Tíminn - 31.03.1988, Side 14
14 Tíminn'
Fimmtudagur 31. mars 1988
FRÉTTAYFIRUT
JERÚSALEM - ísraelskir
arabar og Palestínuarabar á
hernumdu svæðunum héldu
sérstakan mótmæladag gegn
yfirráðum Israela í gær. Dagur-
inn byrjaði á þvi að ísraelar
lokuðu palestínskri fréttastofu
og ísraelskir hermenn skutu
fimmtuga palestínska konu til
bana. Palestínsku fréttastof-
unni sem miðlað hefur erlend-
um fréttamönnum megninu af
þeim uplýsingum sem koma
frá Palestínumönnum á her-
numdu svæðunum var skipað
að loka og hætta starfsemi
næstu sex mánuði.
NIKÓSIA - Mannfall varð
þegar I rakar skutu þremur flug-
skeytum á írönsku borgina
Isfahan í gær.
BEIRÚT - Skæruliðar sem
hallast að írönum sögðust í
gær hafa hrakið hersveitir fsra-
elsmanna til baka er þær hugð-
ust ná á vald sitt þorpi sem
liggur rétt utan þess svæðis í
suourhluta Líbanon sem ísra-
elsmenn hafa lýst sem öryggis-
svæði. Samkvæmt heimildum
í bænum Marjeyoun sem er á
öryggissvæðinu, þá voru harð-
ir bardagar milli ísraelskra
hermanna og líbanskra her-
sveita annars vegar og músl-
ímskra skæruliða hins vegar.
Yfirvöld í Tel Aviv neituðu því
að ísraelskir hermenn hafi tek-
ið þátt í bardögunum, en sögðu
að liðsmenn líbanskra her-
sveita sem Israelar styðja hafi
leitað að byssumönnum á
svæðinu.
MOSKVA - Áhrifamenn í
kommúnistaflokki Sovétríkj-
anna heimsækja nú heimili
Armena sem lagt hafa niður
vinnu í Nagorno-Karabakh oa
hvetja þá til að hefja störf að
nýju.
ISLAMABAD - Skæruliðar
múslíma í Afganistan höfnuðu .
tilboði Najibullah forseta Af-
ganistans þar sem gert var ráð
fyrir að skæruliðar og stuðn-
ingsmenn núverandi stjórnar ■
skipti með sér völdum þegar1
Sovétmenn hverfa með herlið
sitt á brott frá Afganistan. Gul-
buddin Hekmatayar leiðtogi
bandalags sjö múslímskra
skæruliðahreyfinga í Afganist-
an sagði að þetta tilboð um
valdaafsal myndi í engu draga
úr árásum skæruliða á stjórn-
arherinn og hermenn Sovét- i
ríkjanna í Afganistan.
ÚTLÖND
Þýsk geimskutla
á teikniborðinu
Nú er í undirbúningi framleiðsla
á evrópskri geimskutlu sem mun
ekki þurfa hjálparflaugar til að
komast á braut um jörðu, heldur
mun geta hafið sig á loft frá
venjulegum flugvöllum. Er gert
ráð fyrir að geimskutlan geti flutt
fjögur tonn af varningi eða þá tíu
farþega og tvö tonn af farangri út í
geiminn.
Geimskutla þessi er þýsk hug-
arsmíð og nefnist Sánger II. Hún
er í grundvallaratriðum byggð á
hugmynd þýska geimvélafræðings-
ins Eugens Sangers sem lést árið
1964. Að sjálfsögðu var tæknin á
dögum Sángers ekki næg til að
smíða geimskutlu sem þessa, en nú
sjá menn fram á að hugmyndir
hans nái fram að ganga.
Það eru verkfræðingar Messer-
scmitt-Bölkow-Blohm sem unnið
hafa grunnteikningar að Sánger II,
geimskutlan er enn á teikniborð-
inu. Gera menn reyndar ekki ráð
fyrir að jómfrúferð hinnar þýsku
geimskutlu verði fyrr en eftir
fimmtán til tuttugu ár.
Svona mun hin þýska geimskutla líta út. Hún á að geta hafið sig á loft frá
venjulegum flugvelli.
Vegna þeirra eiginleika að geta
hafið sig á loft frá venjulegum
flugvöllum þá mun hin þýska geim-
skutla ekki aðeins vera tilvalin til
að flytja búnað út í geiminn, heldur
mun hún gefa möguleika á farþega-
flutningum sem áður voru ekki til
staðar, eins og að skjótast til
Ástralíu á þremur tímum í stað
fjórtán til sextán tíma sem flugið
tekur í dag.
German Featurs/hm
Austur-Þýskaland:
Sumarbúðir
ístað
kjarnaflauga
Austur-þýsk yfirvöld sjá sér nú
leik á borði eftir að Sovétmenn tóku
niður kjarnaflaugar sínar af SS-12S
gerð sem staðsettar voru í útjaðri
Waren, sem er 160 km norður af
Berlín, og hyggjast breyta herstöð-
inni í sumarbúðir fyrir austur-þýska
verkamenn.
Herstöðin var byggð fyrir aðeins
fjórum árum og voru þá byggðar
nútímalegar íbúðablokkir fyrir eitt
þúsund manns. Sovéskir hermenn
yfirgáfu íbúðir sínar við eldflauga-
stöðina um leið og kjarnaflaugamar
voru fjarlægðar, svo austur-þýska
ríkið fékk ágæta aðstöðu fyrir
sumarbúðir fyrir ekki neitt. Mun
austur-þýskur almenningur geta
haldið í tveggja vikna sumafrí til
Walden fyrir 120 mörk sem samsvar-
ar 2800 íslenskum krónum.
Sovétmenn og austur-þýsk stjórn-
völd fjarlægðu kjarnaflaugarnar til
að sýna friðarvilja sinn þrátt fyrir að
samningur um meðaldræg kjarnork-
uvopn hafi ekki tekið gildi.
Persafíóastríðið heldur áfram af fullum krafti:
íranar ráðast á
herstöð Kuwaita
Mikhael Dukakis fylkisstjóri í
Massachussett rétti út kútnum í
forkosningunum í Connecticut í gær.
Dukakis réttir
úrkútnumáný
Michael Dukakis sigraði með yfir-
burðum í forkosningunum í Conn-
ecticut í gær og hefur því rétt
nokkuð úr kútnum eftir að hafa
orðið illilega undir í forkosningun-
um í Michigan á laugardag þegar
blökkumaðurinn Jesse Jackson vann
yfirburðasigur.
Dukakis hlaut 59% atkvæða í
Connecticut á meðan aðalkeppi-
nautur hans Jackson náði aðeins
27% atkvæða. Dukakis hefur því
styrkt nokkuð stöðu sína á ný og
munu næstu forkosningar eflaust
skera úr um hvort hann nær að halda
dampi og tryggja sér örugga forystu
í baráttunni fyrir útnefningu sem
forsetaefni demókrata.
Næstu forkosningar fara fram í
Wisconsin 5. apríl og sýna skoðana-
kannanir að mjótt sé á munum milli
þessara tveggja keppinauta. Par á
eftir verða forkosningar í New York
fylki og gætu niðurstöður þar ráðið
úrslitum um hver verður útnefndur
forsetaefni demókrata.
Hjá repúblikönum sigraði George
Bush örugglega í forkosningunum í
Connecticut, hlaut 70% atkvæða,
enda hafði Robert Dole dregið sig út
úr baráttunni fyrir útnefningu. Nú
virðist ekkert nema kraftaverk geta
komið í veg fyrir að Bush verði
valinn forsetaefni repúblikana.
Þrír íranskir fallbyssubátar réðust
í gær á herstöð á hernaðarlega
mikilvæga eyju í Kuwait. Mannfall
varð ekkert, en þrír óbreyttir her-
menn í her Kuwaitmanna særðust.
Talsmaður varnarmálaráðuneytisins
í Kuwait lýsti því yfir að Kuwaitar
áskilji sér allan rétt til að hefna
árásarinnar.
Þetta er fyrsta árás írana á Kuwait
Kínverjar hafa hvatt hermenn
sína til að taka að sér aukastörf
annars staðar en í hernum vilji þeir
auka tekjur sínar. Kemur þetta í
á þessu ári, en á seinni hluta síðasta
árs skutu íranar sex sinnum silki-
ormaflugskeytum á olístöðvar og
olíuskip í Kuwait.
íranar hafa ítrekað fordæmt meintan
stuðning arabaríkjanna við Persa-
flóa við íraka í stríðinu við írana
sem eru ekki af arabísku bergi
brotnir.
Ekkert lát er á átökum íraka og
kjölfar þess að kínversk stjórnvöld
reyna að halda niðri útgjöldum til
varnarmála og veita fjármagninu
þess í stað til uppbyggingar á al-
frana í Persaflóastríðinu og halda
stríðsaðilar uppi eldflaugaárásum
hvorir á annars borgir, auk þess sem
hvorir tveggja ráðast á olíuskip á
Persaflóa. Arásin á Kuwait mun
óneitanlega auka spennu á svæðinu
og ef íranar halda uppteknum hætti
gæti endirinn orðið sá að fleiri ríki
drægjust inn í átökin.
mennu atvinnulífi í landinu.
í Kínverska dagblaðinu í gær var
viðtal við hershöfðingjann Jang
Sjangkun sem er varaforseti kín-
verska herráðsins. Þar segir 'Jang að
hermenn geti ekki vænst þess að
laun þeirra hækki á næstunni þar
sem útgjöld til hermála muni ekki
hækka og tiltækir sjóðir verði nýttir
til tækniuppbyggingu í Kína.
Þessar fréttir verða að líkindum
ekki vinsælar hjá kínverskum her-
mönnum þar sem þeir hafa kvartað
undan lágum launum sem rýrna
stöðugt í verðbólgunni. Jang benti
því á þá lausn að kínverskir hermenn
tækju að sér störf annars staðar
jafnhliða hermennskunni til að
drýgja tekjur sínar.
Líkur eru á að kínverskir hermenn eyði minni tíma í heræfingar á næstunni
þar sem þeir munu verða að fá sér aukavinnu til að drýgja tekjumar.
Kínverskir hermenn
hvattir í aukastörf