Tíminn - 26.05.1988, Blaðsíða 2
2 Tíminn
Fimmtudagur26. maí 1988
Eitt sterkasta briddsmót í heimi á þessu ári fer fram hér á landi í lok júní:
56 briddsspilarar
á Norðurlandamóti
islenska sveitin í opnum flokki, f.v. Sævar Þorbjörnsson, Valur Sigurðsson, Sigurður Sverrisson, Hjalti Elíasson
þjálfari og fyrirliði, Þorlákur Jónsson, Karl Sigurhjartarson og Jón Baldursson. - ABÓ
Norðurlandamót í sveita-
keppni í bridds verður haldið að
Hótel Loftciðum dagana 26.
júní til 1. júlí næstkomandi.
Keppendur á mótinu verða að
þessu sinni 56 talsins, þar af 12
Islendingar. Þetta er 21.
Norðurlandamótið í röðinni, en
fyrsta mótið var haldið árið
1946. Norðurlandamótin eru
haldin annað hvert ár til skiptis
á Norðurlöndunum. Síðasta
Norðurlandamót í bridds fór
fram hér á landi 1978. Núver-
andi Norðurlandameistarar eru
Danir.
Á mótinu verður spilað í tveim
flokkum, opnum flokki og kvenna-
flokki. í opna flokknum spila sex
sveitir, ein frá hverju Norðurland-
anna. í kvennaflokki spila fjórar
sveitir, frá Danmörku, íslandi, Nor-
egi og Svíþjóð. Spiluð verður tvöföld
umferð í opnum flokki og þreföld
umferð í kvennaflokki.
Meðal þátttakenda á mótinu eru
margir kunnir briddsspilarar. Má
þar meðal annars nefna Svíana
Björn Fellenius og Magnus
Lindkvist, en þeir voru í sænsku
sveitinni sem varð Evrópumeistari á
síðasta ári, Danann Stig Werdelin
og Norðmennina Tor Helness og
Leif-Erik Stabell. 1 kvennaflokki
koma þekktustu spilakonurnar frá
Danmörku, þær Kristen Steen
Möller, Bettina Kalkerup og Char-
lotte Palmund.
íslenska sveitin í kvennaflokki er
skipuð þeim Ester Jakobsdóttur og
Valgerði Kristjónsdóttur, Erlu Sig-
urjónsdóttur og Kristjönu Stein-
grímsdóttur, Önnu Þóru Jónsdóttur
og Hjördísi Eyþórsdóttur. Þjálfari
og fyrirliði hópsins er Jakob R.
Möller. íslensku sveitina í opna
flokknum skipa Jón Baldursson og
Valur Sigurðsson, Karl Sigurhjartar-
son og Sævar Þorbjörnsson, Sigurð-
ur Sverrisson og Þorlákur Jónsson.
Fyrirliði og þjálfari opna flokksins
er Hjalti Elíasson.
Að sögn Jóns Steinars Gunnlaugs-
sonar forseta Bridgesambands ís-
lands eru Norðurlandaþjóðirnar
meðal sterkustu briddsþjóða í heimi.
Svíar eru núverandi Evrópumeistar-
ar og Norðmenn, Islendingar og
Danir urðu einnig meðal sex efstu
þjóða á Evrópumeistaramótinu. Það
er því Ijóst, sagði Jón Steinar, að
þetta Norðurlandamót verður eitt
sterkasta briddsmót í heiminum á
þessu ári. Áhugi íslendinga á bridds
hefur farið vaxandi á síðustu árum
og er áætlað að um 3000 manns spili
innan vébanda sambandsins.
Keppnisstjóri á Norðurlandamót-
inu verður Hans Olof Hallén, en
hann er einn af þekktustu og virtustu
keppnisstjórum í heimi. Aðstoðar
keppnisstjórar verða þeir Hermann
Lárusson og Jakob Kristinsson.
Mótsstjóri verður Sigmundur Stef-
ánsson varaforseti Bridgesambands
íslands.
Yfirborösmerkingar á götum og vegum:
ER LAUSNIN MASSI
í STAÐ MÁLNINGAR?
Samtök gegn aöskilnaöar-
stefnu S-Afríku:
Stofnfundur
á laugardag
Stofnfundur „Suður-Afríku-
samtakanna - gegn APART-
HEID“
verður haldinn í Gerðubergi
laugardaginn 28. maí kl. 14.00.
“Stjórnvöld í S-Afríku og apart-
heid stjórnkerfið sem þar er við
lýði er ábyrgt fyrir glæpaverkum
gegn s-afrískum blökkumönnum,
sem eru 85% þjóðarinnar, sem
eiga sér enga hliðstæðu í sam-
tímasögu okkar,“ segir í tilkynn-
ingu frá undirbúningsnefnd sam-
takanna.
Markmið samtakanna er að
vera að virkja fólk úr öllum
þjóðfélagshópum til virkrar and-
stöðu gegn ógnarstjórn S-Afríku
en einnig skulu samtökin vinna
að því í heild að engin samskipti
eigi sér stað á milli íslands og
S-Afríku meðan „apartheid"
stjórnkerfið er við lýði.
Vegna þeirrar umræðu sem skap-
ast hefur út af hversu seint á vorin
yfirborðsmerkingar eru endurnýjað-
ar á götum og vegum, og vegna þess
sem haft var eftir Inga Ú. Magnús-
syni gatnamálastjóra I Tímanum á
dögunum, þar sem hann sagði að
nagladekkin eyðileggi yfirborðs-
merkingar gatna, vildi Rögnvaldur
Jónsson deildarverkfræðingur hjá
vegagerðinni taka fram að notkun
nagladekkja væri ekki höfuð vanda-
málið, heldur hvaða merkingarað-
ferð væri notuð.
Rögnvaldur sagði að einkum væru
tvær aðferðir notaðar við yfirborðs-
merkingar, „annars vegar er að mála
göturnar, eins og gert er hjá Reykja-
víkurborg og reyndar okkur líka, en
hins vegar er hægt að nota svokallað-
an massa eins og notaður er í
gangbrautir. Vegagerðin hefur
undanfarin ár notað massa við yfir-
borðsmerkingar á Hafnarfjarðar-
veg, í Njarðvíkum og á nýju Reykja-
nesbrautina. Á þessum stöðum eru
allar merkingar uppi ennþá eftir
veturinn og að mestu leyti óskemmd-
ar. Á þessum götum er svipuð um-
ferð og er á mörgum götum í borg-
inni. Að vísu er þetta dýrara, en
endist mun lengur,“ sagði Rögnvald-
ur.
Sagði Rögnvaldur að í Njarðvík-
urn væri þetta þriðja árið, þar sem
sömu merkingar væru ennþá
óskemmdar að mestu leyti, en urn
veginn fara um 7000 bílar að meðal-
tali á dag. Miðað við veginn í
Njarðvíkum ættu yfirborðsmerking-
arnar á nýju Reykjanesbrautinni að
endast í 2 til 3 ár, eftir því hve
framúrakstur er mikill.
Kostnaðurinn við notkun massa í
stað málningar við yfirborðsmerk-
ingar er um 3 til 4 sinnum meiri, en
á móti kemur að ef notuð er málning,
þá þarf að mála á hverju ári. Rögn-
valdur sagði að þessi massaaðferð
borgaði sig þannig að merkingarnar
eru allan veturinn, þegar ökumenn
þurfa mest á þeim að halda í skamm-
deginu og að auki stóreykur þetta
umferðaröryggi. - ÁBÓ
Samtök launþega mótmæla bráðabirgöalögunum:
SAMNINGAR ERU MANNRÉTTINDI
Stjórnir Landssambands iðn-
verkafólks, BSRB og miðstjórnar-
fundur ASÍ, mótmæla harðlega
þeirri aðför að samningsréttinum
sem felst í nýsettum bráðabirgðalög-
um ríkisstjórnarinnar.
í ályktunum þessara samtaka
kemur fram að efnahagsvandi þjóð-
arinnar geti ekki verið tilefni til
þeirrar kjaraskerðingar sem efna-
hagsráðstafanir ríkisstjórnarinnar
feli í sér. í ályktun stjórnar BSRB
segir að sjaldan hafi blasað jafn
augljóslega við að rót vandans liggi
í skipulagslausum offjárfestingum.
Bendir stjórnin á að frelsi til að gera
samninga um kaup og kjör sé einn
af hornsteinum almennra mannrétt-
inda og að bráðabirgðalög á samn-
inga valdi íslendingum álitshnekki á
meðal menningarþjóða.
f ályktun miðstjórnar ASÍ segir að
endurteknar árásir ríkisvaldsins á
réttindi launafólks megi ekki þola og
hafa forráðamenn aðildarfélaga og
sérsambanda ASÍ verið boðaðir á
fund nk. mánudag til að ræða þessi
mál.
Stjórn Landssambands iðnverka-
fólks segir í ályktun sinni að samn-
ingsrétturinn sé grundvallarréttur í
starfi stéttarfélaga og þann rétt verði
verkalýðshreyfingin að vernda. „Af-
nám vísitöluviðmiðana og þar með
samningsréttarins sé ósvífin árás á
grundvallarmannréttindi fólksins í
stéttarfélögum,“ segir ennfremur í
ályktun stjórnar Landssambands
iðnverkafólks. - ABÓ
Þau sjá um Bílaverkslæði Badda.
Norræn leiklistarhátíð
í Helsinki:
Baddi
fór til
Finn-
lands
Norræna leiklistarsambandið
stendur fyrir mikilli hátíð í Hels-
inki, Finnlandi, sem hófst um
síðustu helgi og stendur tii 29.
þessa mánaðar. Þar eru sýnd
leikrit frá öilum Norðurlanda-
þjóðunum, tvö frá hverju landi.
Samar, Grænlendingar og Færey-
ingar verða einnig hverjir með
sína sýningu. Þjóðleikhúsið send-
ir Bílaverkstæði Badda, eftir Ólaf
Hauk Símonarson, og Iðnó sýnir
Dag vonar, eftir Birgi Sigurðs-
son. Til viðbótar verða finnsku
leikhúsin öll með sýningar í
gangi, þannig að það verður af
nægu að taka.
Norræna leiklistarsambandið
var stofnað 1950 og hefur haldið
þing á nokkurra ára fresti. Þingið
var haldið hér á landi síðast 1982
og þá kom upp sú hugmynd að
efna til leiklistarhátíðar. Hátíð
var svo fyrst haldin í Osló 1984.
Ákveðið var að velja nýleg verk
eftir núlifandi höfunda til sýninga
á hátíðinni. fslendingar sendu þá
Skilnað, eftir Kjartan Ragnars-
son, og Lokaæfingu, eftir Svövu
Jakobsdóttur.
„Þessi hátíð veitir kærkomið
tækifæri fyrir okkur að sýna hvað
við erum að gera og hvað aðrir
eru að gera,“ sagði Sveinn Ein-
arsson á blaðamannafundi áður
en hópurinn fór utan. Mikill
fjöldi leikhúsfólks utan Norður-
landa mun sækja hátíðina og
opnast þar möguleikar á samn-
ingum um sýningu verkanna í
fleiri löndum. Þegar hefur nokk-
ur fjöldi íslenskra verka verið
settur upp á erlendri grundu,
jafnvel í Suður- Ameríku.
Tungumálaörðugleikar virðast
hafa lítil áhrif á leiklistarunnend-
ur.
Norræna leiklistarnefndin, sem
heyrir undir Norðurlandaráð,
styrkir hátíðina fjárhagslega og
verður kostnaður íslensku
leikhúsanna því ekki verulegur.
Þórhallur Sigurðsson leikstýrir
Bílaverkstæði Badda og Grétar
Einarsson sér um leikmynd.
Leikendur eru Jóhann Sigurðar-
son, Bessi Bjarnason, Sigurður
Sigurjónsson, Árni Tryggvason,
Guðlaug María Bjarnadóttir og
Arnar Jónsson.
Stefán Baldursson leikstýrir
Degi vonar og Þórunn S. Þor-
geirsdóttir sér um leikmynd.
Leikendur eru Margrét Helga
Jóhannsdóttir, Sigurður
Karlsson, Þröstur Leó Gunnars-
son, Valdimar Örn Flygenring,
Guðrún Gísladóttir og Sigríður
Hagalín. JIH