Tíminn - 26.05.1988, Síða 6
6 Tíminn
Fimmtudagur26. maí1988
Atvinnumál
Rangæinga
Héraðsfundur um atvinnumál í Rangárþingi verður
haldinn í Félagsheimilinu Hvoli, Hvolsvelli föstu-
daginn 27. maí n.k. og hefst kl. 21.00.
Stutt erindi og ávörp flytja:
Matthías Pétursson, Hvolsvelli
Sigurður Guðmundsson, Byggðastofnun
Bergur Pálsson, Hólmahjáleigu
Sigurður Haraldsson, Kirkjubæ
Jónas Þór Jónsson, Hellu
Páll Guðbrandsson, Hávarðarkoti
Magnús Finnbogason, Lágafelli
Aðalbjörn Kjartansson, Hvolsvelli
Jón Óskarsson, Hellu
Gunnar Bragason, Hellu
Ólafur Ólafsson, Hvolsvelli
Á eftir verða almennar umræður.
Fundarstjórar verða: Jón Þorgilsson, Hellu og
Ólafur Sigfússon, Hvolsvelli.
Rangæingar fjölmennið á fundinn og takið þátt í
umræðum.
Undirbúningsnefndin
Félagsfundur
Veröur haldinn í Félagi bifvélavirkja fimmtudaginn 26. maí 1988 að Suðurlandsbraut 30, kl. 20.00.
Dagskrá:
1. Tekin afstaöa til nýgerðra samninga.
2. Önnur mál. Stjórnin
Sveitavinna óskast
Ungur maður óskar eftir sveitavinnu, er vanur.
Sími 25318, eftir kl. 18.
Hjörleifur snigill Jóhannesson á Yamaha Vmax 160 hestafla götuhjóli, sem hann festi kaup á í mars sl.
(Tíminn: Gunnar)
Kraftmesta verksmiðjuframleidda
hjól í heimi á íslensku malbiki:
Snigill situr á
baki 160 hestum
Útför móöur okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu
Aðalheiðar S. Sigurðardóttur
Kleppsvegi 118
Reykjavík
veröur gerö frá Áskirkju föstudaginn 27. maí kl. 15.00. Þeim sem vilja
minnast hennar er bent á líknarfélög.
Þorsteinn Kristjánsson Guðbjörg Jónsdóttir
Guðrún Kr. Jörgensen Bent Jörgensen
Siguröur Kristjánsson Jónína Eiríksdóttir
BrynhiidurKristjánsdóttir Þórarinn Ingimundarson
barnabörn og barnabarnabörn
t
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug viö
andlát og útför eiginmanns míns, fööur okkar, tengdaföður og afa,
Steins Egilssonar
Hátúni 8
Jónína Jóhannsdóttir
EyþórSteinsson Sigrún Ingibergsdóttir
Jóhann B. Steinsson Hildur Magnúsdóttir
og sonarsynir
Þeir kalla það „hraðbrautahrell-
inn“ eða Highwaykiller í Bandaríkj-
unum, Yamaha Vmax vélhjólið,sem
er kraftmesta verksmiðjuframleidda
vélhjól í heimi. Og nú hefur slíkur
gripur verið keyptur til íslands.
Framleiðsla á hjólinu hófst árið
1984 og enn hefur ekkert vélhjól
komið á markaðinn, sem slær því við
hvað afl vélar snertir. Hjólið er
sérstaklega gert fyrir Bandaríkja-
markað. Hraðbrautahrellirinn, sem
kominn er til íslands, er í eigu
Hjörleifs snigils Jóhannessonar, og
á merkilcga sögu að baki. Sjálfur
segir hann að þetta sé samgöngutæki
fyrir sér. En bætir síðar við að hjólið
sé auk þess leikfang.
Milljónamæringur í Bandaríkjun-
um festi kaup á því nýju 1986 og
félagi hans keypti annað eins, en
hjólin eru ákaflega eftirsótt og dýr.
Fyrir gengisfellingu kostuðu þau sem
svarar til 900 þúsund íslenskra
króna. Áður cn milljónamæringnum
gafst tóm til að reynsluaka hjólinu
fórst félagi hans á sínu hjóli í
árekstri við bíl. Þá guggnaði hann og
hreyfði ekki hjólið.
Löngu st'ðar voru íslendingar í
verslunarleiðangri í Bandaríkjunum
og fyrir tilviljun fréttu þeir að hjól
þetta væri til sölu á góðum kjörum.
Þeir keyptu það því til íslands og hér
heima festi Hjörleifur sér það í
marsmánuði sl. Hann vill ekki gefa
upp kaupverðið, en hjólið hafði
aldrei verið notað.
Yamaha Vmax er 250 kg að
þyngd, 1200 cc og 146 hestöfl úr
verksmiðjunni, en pústkerfi í hjóli
Hjörleifs hefur verið breytt, svo að
hann ríður 160 hestum. Það er 2,3
sekúndur að ná 100 kílómetra hraða
á klukkustund, en hámarkshraði
þess er um 240 km/klst. Það er 14
sekúndur tæpar að ná hámarks-
hraða. Hjólið er4 strokka, vatnskælt
með viftu. Eldsneytistankurinn er
undir sætinu, svo að vélin rúmist.
Ofan á henni er vélarhlíf.
„Það eru engin óþarfa tæki eða
fylgihlutir,“ segir Hjörleifur. „En
mikið af krómi.“ þj
Nýtt skólaár hafiö hjá Jaröhitaskólanum:
69 nemendur hafa
hlotið þjálfun
Tíunda starfsár Jarðhitaskólans
er nú hafið. Frá því að skólinn var
stofnaður árið 1979, hafa verið
þjálfaðir 69 jarðvísindamenn og
verkfræðingar frá 14 þróunarlönd-
um, en að auki hafa 20 aðrir
erlendir nemendur og fræðimenn
tekið þátt í starfi skólans.
Skólaár Jarðhitaskólans er sex
mánuðir, frá vori fram á haust og
miðar starfsemi skólans að því að
gefa nemendum sérhæfða þjálfun í
einstökum greinum jarðhitafræða,
undir handleiðslu íslenskra sér-
fræðinga. Sex nemendur frá sex
löndum eru við skólann í ár, en um
er að ræða þrjá jarðvísindamenn
og þrjá verkfræðinga. Ennfremur
býður skólinn upp á þjálfun í
skemmri tíma fyrir jarðvísinda-
menn og verkfræðinga, sem vilja
kynna sér ákveðna þætti jarðhita-
mála, en slík þjálfun tekur yfirleitt
tvo mánuði.
Jarðhitaskólinn er rekinn af
Orkustofnun í samvinnu við Há-
skóla Sameinuðu þjóðanna.