Tíminn - 26.05.1988, Page 11
Fimmtudagur26. maí 1988
Tíminn 11
ÍÞRÓTTIR
Evrópukeppni meistaraliða í knattspyrnu:
Urslitin réðust
á télftu spymu
Danirnir Sören Lerby og Ivan Nielsen skoruðu báðir í vítaspymukeppninni
í gærkvöldi og fengu Evrópubikarinn að launum.
Vestur-þýska knattspyrnan:
PSV Eindhoven varð í gærkvöldi
þriðja hollenska liðið frá upphafi til
að sigra í Evrópukeppni meistara-
liða í knattspyrnu. Úrslitaleiknum
gegn Benfica Lissabon lauk án
marka og ekkert var heldur skorað í
framlengingu en í vítaspyrnukeppn-
inni tókst PSV loks að knýja fram
sigur. Það var þó ekki fyrr en út í
bráðabana var komið að Hans van
Breukelen markvörður PSV varði
spyrnu frá Antonio Veloso, lausa
spyrnu út við stöngina vinstra megin,
°g tryggði PSV sigur, verðskuldaðan
ef á allt er litið.
Leikurinn var lítt skemmtilegur á
að horfa ef frá er talinn kafli undir
lok venjulegs leiktíma þegar bæði
lið fengu ágætis færi. PSV var sterk-
ari aðilinn en tókst ekki að skapa sér
mikið af hættulegum færum.
Búast má við að þessi leikur
gleymist fljótt enda lítið að sjá en
þess má geta að þetta er í þriðja sinn
á fjórum árum sem úrslitin í keppn-
inni ráðast í vítaspyrnukeppni.
PSV er sem fyrr sagði þriðja
hollenska liðið sem vinnur þessa
keppni. Áður hefur Ajax Amster-
dam tekist það sama þrisvar og
Feyenoord Rotterdam hefur einu
sinni unnið. -HÁ/Reuter
Leverkusen fékk að
kenna á eigin bragði
Kvennalands-
liðið í hand-
knattleik keppir
í Portúgal:
Hópurinn
valinn
Slavko Bambir landsliðsþjálf-
ari kvenna í handknattleik hefur
valið 16 manna hóp sem keppir á
6 liða móti í Portúgal í júní.
Hópurinn er valinn úr 25 manna
hóp sem hefur æft af krafti síðan
18. apríl og er hann skipaður
eftirtöldum:
Markverdir:
Koibrún Jóhannsdóttir Fram
Halla Geirsdóttir FH
Fjóla Þórisdóttir Stjörnunni
Adrir leikmenn:
Guðriður Guðjónedóttir Fram fyrirliði
Arna Steinsen Fram
Erna Lúðvíksdóttir Val
Gudný Guðjónsdóttir Val
Guðrún R. Kristjánsdóttir Val
Katrín Friðriksen Val
Ingibjörg Einarsdóttir FH
Kristin Pétursdóttir FH
Rut Baldursdóttir FH
Inga Lára Þórisdóttir Víking
Svava Ýr Baldursdóttir Víking
Margrót Theodórsdóttir Haukum
Guðný Gunnsteinsdóttir Stjörnunni
Á mótinu í Portúgal keppa auk
íslendinga og heimamanna ítalir,
Spánverjar, Svisslendingar og
Frakkar. Haldið verður utan 11.
júní.
Hópurinn (25 manna) kemur
aftur allur saman að lokinni
keppninni í Portúgal og verður
æft fram í september þegar aftur
verður valið úr liðinu. -HÁ
Töpuðu eftir að vera komnir 3-0 yfir
Leikmenn Bayer Leverkusen
fengu um helgina að finna hvernig
það er að tapa niður þriggja marka
forskoti. Peir unnu eins og menn
muna Espanol í úrslitum í Evrópu-
keppni félagsliða, unnu seinni leik-
inn 3-0 eftir að tapa þeim fyrri með
sama mun og tryggðu sér sigur í
vítaspyrnukeppni. Nú voru þeir
sjálfir komnir í 3-0 eftir 18 mín. leik
gegn Bayern Múnchen en töpuðu
4-3.
Karlsruhe náði naumlega að
bjarga sér frá að þurfa að leika um
sæti í 1. deildinni, þeir skoruðu
þremur mínútum fyrir leikslok gegn
Frankfurt og sendu Mannheim í
millideildaleikinn.
Úr«Ut um helgina:
Kaiserslautem-Gladbach............ 5-2
Uerdingen-FC Homburg.............. 5-1
Hannover-Köln .................... 0-3
Bochum-Niimberg .................. 3-0
Stuttgart-Mannheim................. 1-1
Schalke-Werder Bremen ............ 1-4
Hamburg SV-Dortmund................ 4-3
Karlsmhe-Eintracht Frankfurt....... 1-1
Leverkusen-Bayem Múnchen........... 3-4
Lokaetaðan:
1. Werder Bremen . . . 34 22 8 4 61-22 52
2. Bayern Múnchen .. 34 22 4 8 83-45 48
3. Köln 34 18 12 4 57-28 48
4. Stuttgart 34 16 8 10 69-49 40
5. Numberg 34 13 11 10 44-40 37
11. Bayer Uerdingen .. 34 11 9 14 59-61 31
14. Kaiserslautern .... 34 11 7 16 53-62 29
15. Karlsruhe 34 9 11 14 37-55 29
16. Waldhof Mannheim 34 7 14 13 35-50 28
17. FC Homburg 34 7 10 17 37-70 24
18. Schalke 34 8 7 19 48-84 23
Tvö neðstu liðin falla í 2. deild og
liðið í 16. sæti leikur aukaleik við 3.
liðið í annarri deild. Stuttgarter
Kickers hafa þegar tryggt sér 1.
deildarsæti en enn eru tvær umferðir
eftir í 2. deildinni og ekki vitað hver
hin liðin tvö verða.
-HÁ/Reuter
Atli Eðvaldsson var ásamt fleiri félögum sínum kvaddur með blómum eftir
síðasta leik Uerdingen í vetur, en Atli er,sem kunnugt er, á heimleið. Atli
er þriðji frá hægri á þessari mynd en aðrir eru (frá vinstri): Raschid, van de
Loo, Bommer, Buttgereit og Roder framkvæmdastjóri.
íslandsmótiö í knattspyrnu:
Nítján skoruðu
í fyrstu umferð
Knattspyrnumenn í 2. deild voru mörk.
sannarlega iðnir við kolann í fyrstu
umferðinni sem lauk um helgina. í
fimm leikjum var gert 21 mark,
rúmlega 4 að meðaltali í leik, og
það voru hvorki fleiri né færri en
19 lcikmenn sem komust á marka-
skoraralistann. Öll lið settu mark í
þessari fyrstu umferð en það voru
Hafþór Kolbeinsson KS og Hörður
Magnússon FH sem einir gerðu tvo
Til samanburðar þá voru gerð
níu mörk í fyrstu umferð 1. deildar-
innar og eftir tvær umferðir eru
mörkin orðin 18 en markaskorar-
arnir þrettán. Þess ber að geta að
leikur KA og Þórs úrfyrstu umferð
verður ekki fyrr en í júní svo 1.
deildarleikmennirnir geta enn lag-
fært markastöðuna sér í hag.
-HÁ
NBA-körfuboltinn:
Lakers og
Celtics
komust í
úrslitin
Boston Celtics og Los Angeles
Lakers komust í úrslitakeppni
deildanna í bandaríska NBA-
körfuboltanum. Bæði lið þurftu
mikið fyrir sigrinum að hafa og
bæði unnu þau 4-3 sigur, Lakers
á Utah Jazz og Celtics á Atlanta
Hawks. Lakers keppa við Dallas
Mavericks í úrslitum Vesturdeild-
arinnar en Celtics gegn Detroit
Pistons. -HÁ/Reuter
Handknattleikur:
Margrét og
Guðríður
hættar
að þjálfa
Guðríður Guðjónsdóttir og
Margrét Theodórsdóttir, tvær af
leikreyndari kvennalandslið-
skonunum í handknattleik, hafa
ákveðið að einbeita sér að keppni
með landsliðinu og liðum sínum.
Þær voru báðar þjálfarar sinna
liða í fyrra en hafa sökum þess
hversu mikið landsliðið æflr
ákveðið að láta aðra sjá um þá
hlið mála næsta vetur. -HÁ
VOR ’88
H HOWARD
Jarðtætarar
HOWARD jarðtætarinn er í stærðunum
60"-70" og 80" og hentar flestum venju-
legum heimilisdráttarvélum. Skiptihjóla-
kassi tryggir alltaf réttan snúningshraða
á hnífaás.
UMBOÐSMENN OKKAR -
YKKAR MENN UM LAND ALLT
Vélabær hf., Andakílshr. S. 93-51252
Ólafur Guðmundsson
Hrossholtí Engjahr. Hnapp. S. 93-56622
Dalverk hf. Búðardal S. 93-41191
Guðbjartur Björgvinsson
Kvennahóll, Fellsstrandarhr. Dal. S.
41475
Vélsm. Húnv. Blönduósi S. 95-4198
J.R.J. Varmahlíð S. 95-6119
93-
Bílav. Pardus. Hofsósi S. 95-6380
Bílav. Dalvíkur, Dalvík S. 96-61122
Dragi, Akureyri S. 96-22466
Vélsm. Hornafjarðar hf. S. 97-81540
Víkurvagnar, Vík S. 99-7134
Ágúst Ólafsson
Stóra-Moshvoli, Hvolsvelli S. 99-8313
Vélav. Sigurðar, Flúðum S. 99-6769
Vélav. Guðm. og Lofts, Iðu S. 99-6840
G/obusP
Lágmúla 5 Reykjavík Sími 681555