Tíminn - 11.08.1988, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 11. ágúst 1988 '
Tíminn 11
ÍÞRÓTTIR
Handknattleikur:
Landsliðið náði að hefna
íslenska landsliðið í handknattleik
náði fram hefndum gegn Frökkum í
landsleik í Frakklandi í gærkvöld.
Eftir mjög óvæntan ósigur í fyrra-
kvöld komu íslcnsku strákarnir
ákveðnir til leiks í gær og upp-
skáru fjögurra marka sigur, 26-22.
íslendingar höfðu yfirleitt frum-
kvæðið í leiknum, þó aðallega í
síðari hálfleik. í leikhléinu var stað-
an jöfn, 12-12. Strax í upphafi síðari
hálfleiks náðu íslensku strákarnir
tveggja til þriggja marka forystu og
juku forskotið upp í 4-5 mörk þegar
lengra leið á leikinn. Þegar upp var
staðið var munurinn fjögur mörk,
26-22.
I leiknum í gær voru það einkum
varamennirnir sem fengu tækifæri
og þeir gripu það fegins hendi.
Guðmundur Hrafnkelsson stóð í
markinu allan leikinn og stóð sig
mjög vel, hann varði alls 14 skot.
Júlíus Jónasson og Sigurður Gunn-
arsson áttu einnig báðir góðan leik,
en þeir höfðu lítið fegið að leika
fram að þessu í ferðinni.
Mikill munur var á leik íslenska
liðsins frá því í leiknum í fyrrakvöld,
enda getur liðið vart leikið verr en
það gerði í þeim leik. Frakkarnir
léku ekki verr í gær en í fyrrakvöld,
betur ef eitthvað var, að sögn Guð-
jóns Guðmundssonar liðsstjóra ís-
lenska liðsins.
Greinilegt var á leik liðsins í gær,
að mikil þreyta situr í mönnum eftir
erfitt ferðalag og marga erfiða leiki
á stuttum tíma að undanförnu.
Landsliðið heldur heimleiðis frá
Frakklandi í dag.
Mörkin í gær skoruðu: Kristján
Arason 6, Júlíus Jónasson 6, Þorgils
Óttar Mathiesen 5, Sigurður Gunn-
arsson 3, Bjarki Sigurðsson 3, Jakob
Sigurðsson 2 og Guðmundur Guð-
mundsson 1. BL
Alfreð Gíslason í landsleik gegn Frökkum í Laugardalshöll.
Frá Erni Þórarinssyni fréttamanni
Tímans:
Bikarkeppnin í knattspyrnu kvenna:
Enn mætast ÍA og Valur
í úrslitum bikarsins
„Getum gert beturM
„Það er Ijóst að við getum leikið
betur en við gerðuni í þessari ferð.
Við töpuðum til að mynda tveimur
lcikjum sem við áttum að vinna,“
sagði Guðjón Guðmundsson lið-
stjóri íslcnska landsliðsins ■ hand-
knattlcik, í samtali við Tiinann í
gærkvöld, eftir að liðið lék síðasta
lcik sinn í keppnisfcrö uin Spán og
Frakkland.
„Sigurinn í gær hefði átt að vera
stærri, þaö fór mikið af dauöafær-
um i súginn. Við klikkuðuin til
dæmis á 21 sókn, bara í fyrri
hálfleik. Þeta licfur verið löng og
crfið ferð, en samt góð og leikmenn
eru rcynslunni ríkari efiir. Þrátt
fyrir fjóra tapleiki í siðustu sex
lcikjum þá telja þessir leikir
ekkert, það eru leikirnir í Seoul
sem tclja. Þar ætlum við okkur að
standa okkur vel. Nú er Flugleiða-
mótið framiindan og þar niunum
við leggja okkur allu fram til að ná
góðum úrslilum," sagði Guöjón að
lokum. BL
heima
lenti í útistöðum við framkvæmda-
stjóra Rangers, Graeme Souness í
fyrravetur og Souness sagði þá að
Roberts mundi ekki leika oftar fyrir
Rangers.
Rangers lék á þriðjudaginn æf-
ingaleik á móti Bordeaux og sigraði
3-1. Terry Butcher, sem fótbrotnaði
í nóvember sl. lék nú aftur með
Rangers og skoraði eitt marka liðs
síns. BL
Skíðamenn æfa
í Fljótum
Landslið íslands í skíöagöngu
dvaldi fyrir skömmu í Fljótum við
æfingar og er það í þriðja skipti á
nokkrum mánuðum, sem landsliðið
dvelur við æfingar, undir stjórn
sænska gönguþjálfarans Mats Ves-
terlund.
Að sögn Sigurðar Aðalsteinssonar
í norrænu-greinanefnd SKÍ, æfir
ákveðinn kjarni göngumanna allt
árið. í sumar kemur hópurinn saman
einu sinni í mánuði og æfir á fullu
tvisvar á dag í viku tíma í senn.
Yfir sumarmánuðina er einkum
æft á hjólaskíðum og hlaupið. Hins
vegar verða gönguskíðin tekin fram
um leið og snjóar í haust.
Að sögn Sigurðar Aðalsteinssonar
er stefnt að því að í Fljótum verði
æfingamiðstöð göngulandsliðsins í
framtíðinni. Til þess eru ýmsar ást-
æður, t.d. mun óvíða á landinu hægt
að æfa eins mikið á snjó, þá er í
framtíðinni fyrirhuguð bygging
mannvirkja vegna skíðaíþróttarinn-
ar og síðastliðinn vetur var tekinn í
notkun snjótroðari, sem gerbylti
allri æfingaaðstöðu skíðagöngu-
fólks.
Síðari leikur undanúrslita í bikar-
keppni kvenna í knattspyrnu var í
100 ára
afmælismót
Ármanns
í kvöld vcrður haldið á Laug-
ardaLsvelli 10ö ára afmælismót
Ármanns í frjálsum íþróttum.
Keppt vcrður í 15 grcinum og er
6 keppendum boðið í hverja
grein. Mótið hcfst kl. 18.30 og
því lýkur um kl 20.00. BL
Leikurinn
er í kvöld
Þau mistök urðu að í blaðinu
í gær var sagt frá þvi að leikur
Víkings og Vals ætti að fara
fram í gærkvöld, miðvikudag,
en hið rétta er að lcikurinn er
i kvöld, fimmtudagskvöld.
Tirninn biðst velvirðingar á
þessum mistökum. Lcikurinn
hefst kl> 19.00 í kvöld á Vík-
ingsveilinum við Stjörnugróf.
BL
gærkvöld. Stjarnan og ÍA léku á
Stjörnuvellinum í Garðabæ. Skaga-
stelpurnar höfðu betur og leika til
úrslita gegn Valsstúlkunum, enn
eina ferðina, sunnudaginn 21. ágúst.
Akranesstelpurnar mættu mjög
ákveðnar til leiks, staðráðnar í að
komast í bikarúrslitin. Ásta Bene-
diktsdóttir skoraði eina mark fyrri
hálfleiks fyrir ÍA og í síðari hálfleik
bætti hún öðru marki við. Um 10
mín. fyrir leikslok minnkaði Guðrún
Vala Ásgeirsdótir muninn fyrir
Stjörnuna með hörkuskoti. Þar við
sat, 2-1 fyrir lA, og þær mæta því
bikarmeisturum Vals í úrslitaleik
keppninnar. BL
' ~~~ -
\ • I
tj
^a/ mw
u
Hodge til síns
Tottenham Hotspurs hefur selt
fyrrum enska landsliðsmanninn,
Steve Hodge til Nottingham Forest,
þar sem hann hóf sinn feril, fyrir 575
þúsund pund.
Hodge var seldur til Tottenham í
demember 1986 frá Aston Villa fyrir
650 þúsund pund, en hann náði
aldrei að festa sig í sessi hjá
Lundúnaliðinu. Mikil breyting hefur
orðið á liðsskipan Tottenham síðan
T' ry Venables tók við liðinu í
F imber sl. Clive Allen, Nico
Claesen og Neil Ruddock eru einnig
á bak og burt, en Paul Gascoigne og
Paul Stewart eru komnir í staðinn.
„Það eru allir að tala um hvað ég
eyði miklum peningum í kaup á
nýjum leikmönnum, en við fáum
peningana til baka með því að selja
menn í staðinn,“ sagði Terry Vena-
bles framkvæmdastjóri Tottenham.
Greham Roberts er farinn frá
Rangers í Skotlandi til Lundúnaliðs-
ins Chelsea. Rangers fékk 470 þús-
und pund fyrir Roberts, en hann