Tíminn - 30.08.1988, Side 2
2- Tírfilnín
Þ>iðjudkgbf 30' ágóát^ÖS
f. i X'
Michelinrall Hjólbarðahallarinnar:
Jón og Rúnar
innsigludu
meistara-
titilinn
Feðgarnir Jón Ragnarsson og
Rúnar Jónsson urðu efstir á Miche-
linralli Hjólbarðahallarinnar sem
lauk um helgina. Eru þeir með
sigri sínum í þessu ralli búnir að
tryggja sér íslandsmeistaratitilinn í
ár og getur ekkert breytt því þótt
eitt rall sé enn eftir í haust. Er þetta
þriðja árið í röð sem þeir feðgar
vinna titilinn. Var Jón að vonum
mjög ánægður eftir keppnina er
Tíminn náði tali af honum í gær,
en þá var hann reyndar kominn inn
í Þórsmörk þar sem hann var að
leyfa skosku keppinautunum sín-
um úr rallinu að aka yfir Krossá,
eins og hann orðaði það.
Jón sagði að hann gæti líklega
helst þakkað þennan árangur góðri
og gamalli reynslu, en ekki síður
góðum viðgerðarmönnum.
Að sögn Hreins Vagnssonar, í
Hjólbarðahöllinni, voru Jón og
Rúnar með góða forystu í lokanið-
urstöðunni þótt ekki virtist vera
mjög langt í næsta bíl, eða ein
mínúta og fimmtíu sekúndur.
Næstu rnenn, þeir Guðmundur
Jónsson og Sæmundur Jónsson,
voru þó mun fjær feðgunum en
þeir sem hnepptu annað sætið í
þessari keppni í fyrra, en þá skildu
aðeins tvær sekúndur milli efstu
manna.
Lokastaðan í mótinu var þessi:
1. sæti Jón Ragnarsson og Rúnar
Jónsson með 4 klst. 06 mín. og 55
sek. (4.06.55).
2. sæti Guðmundur Jónsson og
Sæmundur Jónsson, með4.08.55.
3. sæti Ólafur Sigurjónsson og
Halldór Sigurjónsson, með
4.18.05.
4. sæti Óskar Ólafsson og Jóhann
Jónsson, með 4.22.22.
5. sæti Jón S. Halldórsson og
Guðbergur Guðbergsson, með
4.28.06.
6. sæti Sigurður B. Guðmundsson
og Gunnar Siggeirsson, með
4.30.06.
7. sæti Jón E. Halldórsson og
Ragnar Bjarnason, með 4.33.13.
8. sæti Philip Waker og James
Roy, með 4.35.43.
9. sæti Elías Pétursson og Heimir
Björgvinsson, með 5.03.26.
10. sæti Philippe Gobert og Alain
Dropsy, með 5.05.27.
11. sæti Páll Halldórsson og Róbert
Halldórsson, með 5.06.23.
12. sæti Laufey Sigurðardóttir og
Unnur Reynisdóttir, með 5.41.38.
Aðrir luku ekki keppni af 34
keppnisaðilum. Næsta og síðasta
rallkeppni ársins verður haustrall
Bifreiðaíþróttaklúbbs Reykjavík-
ur sem hefst 4. október. Þar verður
fyrst og fremst keppt um það hver
hreppir annað sætið í fslandsmeist-
arakeppninni. í því ralli ætla hinir
bókuðu fslandsmeistarar að skipta
um sæti og verður Rúnar þar í
fyrsta ökumannssæti. „Ég ætla að
leyfa stráknum að æfa sig í þeirri
keppni, en annars þurfum við ekki
að vera með frekar en við viljum
vegna titilsins," sagði Jón Ragnars-
__son. KB
Ávöxtun sf. virðist hafa orðið verst úti í þeirri ólgu sem skapaðist í fjármála-
lifi íslendinga við yfirlýsingar Ólafs Ragnars Grímssonar í síðustu viku:
Sjóðir Avöxtunar
minnkuðu um 25%
Rckstur Verðbréfasjöða Ávöxt-
unar sf. urðu fyrir verulegu áfalli í
síþustu viku eftir að Ólafur Ragnar
Grínisson, formaður Alþýðu-
handalagsins, gaf út yfirlýsingar
uni yfirvofandi hrun á verðbréfa-
markaðinum og þrot tveggja
ónafngreindra verðbréfasjóða.
Hafa forsvarsmcnn Ávöxtunar nú
upplýst að samtals hafi borist inn-
lausnarbeiðnir að andvirði 93 mill-
jóna króna og aðalíega á mánudag-
inn fyrir viku. í síðustu viku gat
sjóðurinn greitt út 13 milljónir, en
samtals bíða óafgreiddar óskir er
nema 80 inilljónum króna. Er þetta
um 25% af heildarveltu verðbréfa-
sjóðanna. Til samanburðar má
geta þess að innlausnarbeiðnir hjá
öðrum verðbréfasjóði, Kaupþingi
hf., námu aðeins um 2- 3% af vcltu
sjóða þeirra.
í auglýsingu um Ávöxtunarbréf-
in segir að engin binding sé á
fjármununum og innlausn geti að
jafnaði farið fram samdægurs.
Tíminn spurði Ávöxtunarmenn
nánar út í ákveðið ósamræmi sem
hlyti að felast í þessari auglýsingu
og þeirri staðrcynd sem þeir stæðu
frammi fyrir núna. Á blaðamanna-
fundi í gær svöruðu þeir því þannig
að þcssi auglýsing hafi staðist alveg
frá stofnun sjóðanna, cn nú hafi
skapast óeðiilegt ástand, vegna
óábyrgra yfirlýsinga stjórnmála-
leiðtoga í fjölmiðlum. Mikil
hræðsla hafi gripið um sig og
almenningur virtist ekki vera ör-
uggur með fjármuni sína eftir
ítrekaðar yfirlýsingar Ólafs Ragn-
ars Grímssonar. Benti Ármann
Reynisson, annar eigandi Ávöxt-
unar, á að mjög lítil fræðsla færi
frant um fjármál einstaklinga og
skólakerfið þyrfti að taka slíka
fræðslu upp og ekki síður stéttar-
félög og önnur samtök almennings.
Samkvæmt ákvæðum í samning-
um við verðbréfasjóði geta fjár-
magnseigendurnir þurft að bíða í
allt að 90 daga eftir að innlausnir
geta farið fram. Nú hefur nokkuð
stór hluti verðbréfaeigenda Ávöxt-
unar sf. þurft að bíða í rúmlega
viku eftir fjármagni sínu og getur
þurft að bíða enn um sinn. Eigend-
ur Ávöxtunar, þeir Pétur Björns-
son og Ármann, vildu þó fullvissa
þessa viðskiptavini sína um að þeir
þyrftu ekki að bíða í neina 90 daga
eftir innlausn. Mikið af ávöxtunar-
fénu væri hins vegar bundið í
þannig kröfunt og ávöxtunarleið-
um að það getur tekið nokkra daga
að leysa það til þeirra. Það væri
einnig helsta skýringin á mjög
hárri ávöxtun sem sjóðir þeirra
geta boðið. Ársávöxtun umfram
verðbólgu var í fyrra 14,4% í
Ávöxtunarbréfum. Meðal kröfu-
bindinga má nefna fasteignarkröf-
ur og fjármagn sem bundið væri í
öruggum fjármagnskröfum. „Við
bjóðum hæstu ávöxtun sem í boði
er og á bak við þetta er auðvitað
ákveðin binding sem ekki er leyst
út svona einn tveir og þrír,“ sagði
Ármann.
Að sögn Ármanns Reynissonar,
annars eiganda Ávöxtunar sf., mun
tvennt hafa valdið hræðslu fólks
öðru fremur. Hið fyrra sé mun
minni fyrirstaða sem felist í því að
ekkert innlausnargjald er tekið hjá
Ávöxtun og því víli fólk ekki fyrir
sér að fara fram á innlausn allra
sinna fjármuna þótt í sumum tilfell-
um ætli það að leggja fjármagnið
aftur inn í sjóðina síðar. Hitt sé sú
staðreynd að þegar fólk kom með
eitt bréf til innlausnar í síðustu
viku og fékk þau svör að það yrði
að konia aftur síðar, þá hafi það
rétt fram öll stn verðbréf og óskað
innlausnar strax. Ákveðinn ótti
hafi því gripið um sig sem hafi
valdið því að sparifjáreigendurnir
óskuðu eftir mun hærri innlausnum
en þeir í raun ætluðu að fara fram
á.
Nýleg auglýsing um Ávöxtunarbréf
undir slagorðinu: „Áhyggjulaus og
örugg fjárfesting.“
Gísli Gíslason, lögfræðingur og
stjórnarformaður Verðbréfasjóðs
og Rekstrarsjóðs Ávöxtunar, sagði
að það sem gert hefði ástandið illt
vcrra hafi verið fjöldi óska frá fólki
sem í raun þyrfti ekki að fá leyst til
sín verðbréfin. Það ylli því að ekki
hafi verið hægt að sinna þeint
viðskiptavinum scm nauðsynlega
þyrftu að fá innlausn.
Verðbréfasjóðir Ávöxtunar sf.
veltu um 244 milljónum um síðustu
áramót, en sú tala var komin upp í
385 milljónir króna „fyrir Ólaf
Ragnar“. Um 93 milljóna króna
innlausnaróskir á mánudag og
þriðjudag í síðustu viku ná því
ekki að þurrka út vöxt þann sem
verið hefur í verðbréfaviðskiptum
Ávöxtunar það sem af er árinu.
Vildu forsvarsmenn Ávöxtunar
sf. fullvissa almenning og við-
skiptavini sína unt að þetta væri
stórsjór sem þeir kæmust út úr
innan skamms, eins og forfeður
íslendinga hafi verið vanir að gera.
Þcim væri þó efst í huga þakklæti
fyrir umburðarlyndi viðskipta-
manna sinna í þessu mikla og
vandasama ölduróti. KB
Samdráttur hjá Hraðfrystihúsi Magnúsar Gamal-
íelssonar á Ólafsfirði vegna hráefnisskorts:
Segja upp 40
starfsmönnum
Milli 40 og 50 starfsmenn Hrað-
frystihúss Magnúsar Gamalíels-
sonar á Ólafsfirði hefur verið sagt
upp tímabundið vegna hráefnis-
skorts og taka uppsagnirnar gildi
24. september nk.
„Ég vil ekki kalla þetta uppsagn-
ir þar sem þetta fólk kemur til með
að verða ráðið aftur strax og ein-
hver kvóti fæst,“ sagði Sigurgeir
Magnússon annar • framkvæmda-
stjóra hraðfrystihússins.
Það voru einkum starfsmenn í
saltfiskverkuninni og rækjuvinnsl-
unni sem voru sendir heim. Sig-
urgeir sagði að fólkið kæmi aftur til
vinnu þegar þeir fengju meiri kvóta
á næsta ári, en hann bjóst við því
að unnt yrði að ráða einhverja
aftur til vinnu þegar líða tæki á
haustið. Sigurgeir sagðist vonast til
þess að rekstur fyrirtækisins kæm-
ist á fullt skrið aftur strax á næsta
ári.
Ástæðuna fyrir þessum sam-
drætti sagði Sigurgeir vera þá að
fyrir 1.200 manna byggðarlag væri
kvóti togaranna alltof lítill. „Menn
verða að fara að gera eitthvað í
þessum máluni," sagði Sigurgeir.
Frá Ólafsfirði eru gerðir út tveir
togarar sem hafa samanlagt um
3.500 tonna kvóta að sögn Sigur-
geirs. _ ABÓ
BRAUSTINN
OG STAL BÍL
Um kl. 3:00 aðfaranótt sunnudags
var brotist inn í söluturninn Tening-
inn á Snorrabraut og stolið þaðan
sígarettum og sælgæti. Stuttu síðar
var tilkynnt um árekstur við Aust-
urbrún, þar sem Toyota bifreið
keyrði framan á leigubifreið.
I Toyota bifreiðinni, sem reyndist
vera stolinn, fannst þýfið úr Ten-
ingnunt. Hafði þá maður á tvítugs-
aldri brotist inn í söluturninn og
stolið svo bílnum og lent í árekstri.
Hann var ölvaður.
Á sama tíma var kveikt í fjórum
bifreiðum á Laugavegi og Snorra-
braut. Bifreiðarnar eru flestar ónýt-
ar og ekki er búið að ná í brennu-
vargana.
Ekki er talið líklegt að innbrotið
tengist brunanum á bifreiðunum.
Talið er lfklegt að eigandi Toyota
bifreiðarinnar hafi brugðið sér út úr
bílnum til að kanna eldana og þá
hafi þjófurinn gripið tækifærið og
stolið bílnum.
Yfirheyrslur yfir þjófinum eru
ekki hafnar þar sem hann slasaðist
talsvert á höfði og höndum í
árekstrinum. -gs
Bíl stolið
IKópavogi
Bifreið af gerðinni Ford Fiesta
var stolið síðdegis á föstudag frá
Hamraborg í Kópavogi. Bifreiðin-
er grá og er frá bílaleigu Flug-
leiða. Hún er með bílnúmerið
R-28754.
Allir þeir sem séð hafa til
bílsins eru vinsamlegast beðnir
um að láta lögregluna í Kópavogi
vita. -es