Tíminn - 30.08.1988, Síða 4
4 Tíminn'
Þriðjudagur 30. ágúst 1988
Alþjóðleg siglingakeppni
milli Islands og Frakklands:
16 manna
hópur að
kanna
aðstæður
Byrjað er að skipuleggja alþjóð-
lega siglingakeppni á milli Gravelin-
es í Norður-Frakklandi og íslands
árið 1990, sem mun eiga sér stað
annað hvert ár þaðan í frá.
Að þessari keppni stendur franskt
vikublað sem heitir „V.S.D“ og er
gefið út í 350 þúsund eintökum.
Einnig stendur að keppninni franskt
félag, Laxalón og sveitastjórn Dun-
kerque í Frakklandi.
Búist er við að um 60 bátar, bæði
fjölskrokka og einskrokka, taki þátt
í keppninni. Stjórnandi verður fræg-
ur franskur siglingakappi. Áætlaður
kostnaður við keppnina er um 100
milljónir ísl.kr., en verið er að gera
endanlega kostnaðaráætlun sem
verður tilbúin í lok september.
Þann 27.ágúst kom hingað til
lands 16 manna hópur til að kanna
aðstæður fyrir keppnina, hópurinn
fer svo af landi brott 2.september.
Hópurinn er m.a. skipaður Albert
Denvers, sveitarstjóra Dunkerque,
þingmanni og bæjarstjóra Gravelin-
es. Einnig er í hópnum Caillavet,
fyrrverandi ráðherra og núverandi
senator. Svo eru í hópnum eigandi
„V.S.D" blaðsins, blaðamenn og
Ijósmyndarar og stjórnarmenn í fé-
laginu „Laxalón" ásamt fleirum.
-gs
Nýir garðar
Um helgina voru afhentar fyrstu
íbúðirnar í nýjum Hjónagörðum við
Suðurgötu.
í þessum áfanga voru afhentar 15
íbúðir tveggja og þriggja herbergja,
en alls verða 93 íbúðir í húsinu. í
vetur verður lokið við 60 íbúðir, en
30 síðustu íbúðirnar vera svo afhent-
ar haustið 1989. Auk íbúðanna 15,
sem nú verða teknar í notkun, eru í
þessum áfanga lesstofa og önnur
sameiginleg aðstaða.
Ibúðirnar voru opnar almenningi
til sýnis á laugardaginn.
Félagsstofnun stúdenta leigir nú
út 100 herbergi í einstaklingsgörðum
og 69 tveggja og þriggja herbergja
íbúðir í hjónagörðum.
Alls bárust um 400 umsóknir um
garðvist næsta vetur, svo enn er
langt í land með að eftirspurn eftir
húsnæði sé fullnægt, en einungis 5%
háskólastúdenta fá inni á garði. -gs
„Þjóðarrétturinn“ innbyrtur.
Tíminn: Gunnar.
Verð Prins Pólós 230%
hærra en innkaupsverð
Ef svipaðri álagningu er „klínt“ á allar vörur sem seldar
eru í sjoppum landsins eins og gert er á Prins Póló þarf
kannski engan að undra hve sjoppurekstur er vinsæl
atvinnugrein á íslandi. Á leiðinni frá skipshlið og upp á
sjoppuborðið hækkaði verðið á hverju stykki úr 7,35 kr. í
24,40 kr. að meðaltali í fyrra, eða um 230%. Að
frádregnum söluskatti urðu 19,50 kr. eftir í sjoppunni, sem
er 165% hækkun frá cif. verði.
Þótt lítið hafi borið á lofi um
pólska umbúðahönnun, ntarkaðs-
setning þeirra sé tæplega í takti við
vestrænar aðferðir og Prins Póló
sjáist aldrei auglýst virðist ekkert
lát á stöðugum vinsældum þessarar
vöru hérlendis. Meira var flutt inn
af Prins Póló heldur en öllu öðru
súkkulaðikexi samanlögðu. Af
þessum „þjóðarrétti" keyptu ís-
lendingar um 182 tonn á síðasta
ári, samkvæmt verslunarskýrslum.
Séu umbúðir áætlaðar um 15%
af þunga eru eftir um 158 tonn,
sem þá eru 3.160.000 stykki af
Prins Póló. Innflutningsverðið var
tæplega 23,2 milljónir króna, eða
um 7,35 kr. fyrir hvert stykki. f
Hagtíðindum kemur fram að smá-
söluverð á Prins Póló var um 24.40
kr. stykkið í fyrra, eða sem fyrr
segir 230% hærra en innkaupsverð-
ið. Samtals hefur þjóðin þá varið
rúmlega 77 milljónum króna til
kaupa á Prins Pólói í fyrra.
Af þessum 77 milljónum ættu
um 15,5 milljónir að hafa skilað sér
í söluskatti til ríkissjóðs. Athygli-
vert er að það er aðeins um 4
milljónum minna heldur en Pól-
verjarnir fengu í sinn hlut, þ.e.
fob. verðið var tæpar 19,5 milljón-
ir.
Ef marka má innflutningsskýrsl-
ur virðist át landsmanna á öðru
sætu kexi hafa aukist um 27% á
síðasta ári. Alls voru flutt inn 983
tonn af öðru sætu kexi en súkkul-
aðihúðuðu. Komið á hafnarbakka
liefur það kostað að meðaltali í
kringum 115-120 krónur kílóið,
eða sem svarar 17-18 krónur hver
150 gr., sem er mjög algeng stærð
á pökkum með sætu kexi.
Innflutningur á öllu kexi og kök-
unt var samtals 2.200 tonn á árinu
1987, sem var um 12% aukning frá
árinu á undan. Pað svarar til þess
að vísitölufjölskyldan hafi keypt
um 31 kíló af innfluttu kexi og
kökum á síðasta ári, auk innlendu
framleiðslunnar. Innflutningsverð-
ið var samtals 252 milljónir króna.
HEI
_ Ekkert lát á samskiptaöröugleikum í Ölduselsskóla:
Foreldrar íhuguðu að
koma á fót einkaskóla
,Ég hef fylgst með því með vaxandi áhyggjum sem er að
gerast í þessum skóla. Þetta er framtíð barnanna okkar sem
er þarna í veði og maður er hreint ekkert ánægður með það
sem er að gerast,“ sagði Leifur Benediktsson, einn af
foreldrum þeirra barna sem senn hefja skólaárið í Öldusels-
skóla, í samtali við Tímann. Eins og kunnugt er voru kennarar
og foreldrar ósáttir við skipun Sjafnar Sigurbjörnsdóttir í
stöðu skólastjóra skólans, í stað Daníels Gunnarssonar, sem
hafði stuðning þessara aðila.
Sigrún Magnúsdóttir
borgarfulltrúi:
Upplýsinga-
spjöld sett á
almennings-
salerni
Sigrún Magnúsdóttir borgar-
fulltrúi Framsóknarflokksins
lagði fram tillögu í borgarráði í
vikunni þar sem lagt er til að
prentuð verði upplýsingaspjöld
sem dreift verði á öll almennings-
salerni í borginni og á salerni í
veitingahúsunum. Á þessum
spjöldum verði gefið upp á áber-
andi hátt símanúmer sem fólk
geti hringt í og fengið upplýsingar
um eyðni og ýmislegt sem tengist
jjeim sjúkdómi. Á spjaldinu yrði
jafnframt upplýsingar um hvar
og hvernig unnt er að láta mót-
efnamæla sig.
Málinu var vísað til heilbrigðis-
ráðs.
Leifur segir að til tals hafi komið
að setja á fót einkaskóla í hverfinu.
„Það var rætt og það var vissulega
vilji fyrir því en við náum því ekki
fyrir haustið. Bæði þyrftum við að
sækja þetta undir þessa ágætu ráða-
menn, Ragnar Júlíusson og Birgi
Isleif Gunnarsson, og fá samþykki
þeirra, og ekki var nægur tími til
undirbúnings. Auk þess hefði það
orðið mjög dýrt,“ sagði Leifur.
„Ég hef af því verulegar áhyggjur
að þarna sitji eftir óánægðir kennar-
ar sem gegni ekki störfum sínum
með sínum létta og starfsviljuga
anda, eins og þeir hafa gert hingað
til, að andrúmsloftið á vinnustaðn-
um verði meira eða minna óbærilegt.
Það hlýtur að koma niður á börnun-
um fyrr eða síðar. Mér líst illa á
þetta í upphafi skólaárs."
Það hefur því lítið dregið úr
samskiptaörðugleikum milli foreldra
og Sjafnar og var Leifur harðorður í
garð hennar. „Mér skilst m.a. að
Sjöfn hafi alls ekkert komið til starfa
við skólann fyrr en 1. ágúst og
hvorki haft samband við kóng né
prest. Sem stjórnandi gef ég svoleið-
is fólki algjört núll, þegar það veit að
vandamál eru í hvarvetna, að bíða
bara í rólegheitum þar til einhverjar
formlegar reglur segja að nú sé tími
til kominn að taka til starfa. Hún
gerir ekki eina einustu tilraun til að
reyna að greiða úr þessu,“ sagði
Leifur.
Heyrst hefur að nokkrir kennara
hafi ákveðið að segja upp eða færa
sig milli skóla. Tíminn hafði sam-
band við Sjöfn Sigurbjörnsdóttur og
bar þetta undir hana. „Það hefur
enginn sagt upp hér en það eru átta
kennarar sem hafa annaðhvort fært
sig til milli skóla eða farið í önnur
störf. Þetta er mjög algengt og er
þetta nákvæmlega sama tala og í
fyrra. Þetta gerist í öllum skólum,"
sagði Sjöfn.
Um gagnrýni Leifs vildi hún lítið
segja. „Ég kom til starfa 1. ágúst og
skólaárið hefst 1. september. Það
hefur enginn úr foreldrafélaginu haft
samband við mig en ég ræði ekki
málefni Ölduselsskóla opinberlega
að svo stöddu.“ JIH