Tíminn - 30.08.1988, Qupperneq 10
10 Tíminn
Þriðjudagur 30. ágúst 1988
Þriðjudagur 30. ágúst 1988
‘Tíminn '11
ÍÞRÓTTIR
ÍÞRÓTTIR
Knattspyma-Mjólkurbikarkeppnin úrslit:
Oruggur sigur Valsmanna
þrátt fyrir aðeins eitt mark
Fögnuður Valsmanna var mikill eftir leikinn, þegar bikarinn var loks í höfn efilir 9 ára fjarveru fró Hlíðarenda.
Yalsmenn urðu bikarmeistarar í knattspyrnu á
laugardag, þegar þeir sigruðu Keflvíkinga, 1-0, í
úrslitaleik mj ólkurbikarkeppninnar.
Leikurinn var því miður ekki skemmtilegur á að
horfa og lítið var um marktækifæri. Leikmenn voru
greinilega mjög taugaspenntir framan af enda mikið í
húfí fyrir bæði lið, en langt er síðan þau hafa sigrað í
þessari keppni.
Bikar
punktar
★ Valsmaðurinn og landslið-
smaðurinn í handknattleik, Jak-
ob Sigurðsson, datt heldur betur
í lukkupottinn á bikarúrslita-
leiknum, en Jakob var þar meðal
áhorfenda. Þegar dregið var í
ferðahappdrætti í hálfleik, kom
númer Jakobs upp, en aðgöngu-
miðarnir giltu sem happdrættis-
miðar. Það má því segja að
ferðavanur maður hafi fengið
ferðavinninginn og vafalaust
kemur það sér vel fyrir Jakob að
skreppa í afslöppunarferð, þegar
baráttunni í Seoul er lokið.
★ Það vakti athygli blaðamanns,
eftir leikinn á laugardag, að Vals-
menn voru í óða önn að næla í sig
barmmerkjum, sem á stóð:
Valur, bikarmeistarar 1988. Sig-
urvissir menn Valsmenn. BL
Fyrsta færið kom á 16. mín. og téll
það Keflvíkingum í skaut. Óli Þór
Magnússon gaf góða sendingu inn fyrir
vörn Valsmanna á Ragnar Margeirs-
son, en Guðmundur Baldursson,
markvörður Vals varði skot hans með
góðu úthlaupi. Þar með rann besta færi
Keflvíkinga í leiknum út í sandinn. Á
21. mín. náði Jón Grétar Jónsson
knettinum af einum varnarmanni ÍBK,
og sendi knöttinn fyrir markið á Sigur-
jón Kristjánsson, sem skaut yfir úr
ágætu færi. Varnarmenn ÍBK virkuðu
mjög óstyrkir framan af leiknum og
hvað eftir annað misstu þeir knöttinn
klaufalega fyrir fætur Valsmanna.
Aðeins mínútu eftir að Sigurjóni mis-
tókst að skora áttu Valsmenn horn-
spyrnu að marki ÍBK. Keflvíkingar
náðu að skalla frá, en knötturinn fór
beint til Hilmars Sighvatssonar, sem
skaut föstu viðstöðulausu skoti að
markinu, en Þorsteinn Bjarnason
varði, glæsilegt skot og góð mark-
varsla.
í upphafi síðari hálfleiks fékk Sigur-
jón annað tækifæri til þess að skora, en
að þessu sinni skaut hann framhjá úr
sannkölluðu dauðafæri. Stuttu síðar
var Guðmundur Baldursson á ferðinni
með góða fyrirgjöf, en Þorsteinn í
Keflavíkurmarkinu varði lausan skalla
Jóns Grétars. Á 59. mín. fengu Vals-
IV-
menn aukaspyrnu rétt utan vítateigs
Keflvíkinga. Sigurjón tók spyrnuna,
skaut þrumuskoti að marki, en Þor-
steinn varði vel í horn.
Sigurmarkið kom á 67. mín. Sæ^ar .
Jónsson tók aukaspyrnu á vallarhelm-
ingi ÍBK, inní teiginn þar sem Alli
Eðvaldsson stökk manna hæst og skall-
aði knöttinn fyrir fætur Sigurjóns sem
skaut á markið, en Þorsteinn varði.
Guðmundur Baldursson var ekki lengi
að átta sig á því hvað væri á seyði,
fylgdi vel á eftir og skoraði eina mark
leiksins.
Það sem eftir var leiksins drógu
Valsmenn sig nokkuð aftar á völlinn,
en Keflvíkingar gátu ekki fært sér það
í nyt og sigur Valsmanna var ekki í
hættu.
Guðmundur Baldursson á mikið hól
skilið fyrir snarræði, þegar hann skor-
aði sigurmarkið, en lék einnig vel í
leiknum, ef á heildina er litið, Sævar
.lónsson og Atli Eðvaldsson voru
einnig sterkir í vörninni, en Atli var
færður í fremstu víglínu á 64. mín.
þegar Jón Grétar var tekinn út af fyrir
Þorgrím Þráinsson. Aðrir leikmenn
Vals léku einnig ágætlega, en Sigurjón
hefði gjarnan mátt nýta sín færi betur.
Sagt eftir leikinn:
Guðmundur Baldursson
„Ég er mjög ánægður með letk-
inn. Það var sérstaklega gaman að
sjá á cftir boltanum í markið. Við
vorum nokkuð taugaspenntir í
byrjun, en eftir það höfðum við öll
tök t leiknum. Það var aldrei
spuming hvort iiðið sigraði. Það
var gaman að sigra, enda höfum
við stefnt að þessu lengi,“ sagði
Guðmundur Baldursson, sem
skoraði sigurmark Valsmanna.
Frank Upton
„Ég er ekki nógu ánægður með
leikinn, við töpuðum. Annars var
þetta þokkalegur leikur, Valsmcnn
voru betri aðilinn, þeir skoruðu
eina mark ieiksins og áttu því skílið
að sigra. Okkar leikmenn eru
margir ntjög ungir og án reynslu í
svona leik, en þeir lögðu sig alla
frant. Ég vil nota tækifærið til þess
að óska Valsmönnum góðs gengls
í Evrópukcppninni gcgn Monaco,“
sagði Frank Upton þjálfari Kell-
vfkinga.
Hörður Helgason
„Ég er vitaskuld mjög ánægður
með þcssi úrslit, bctra liðið vann.
Það vantaði bara fleiri mörk. Við
settum stefnuna strax í vetur á það
að vinna bikarinn og það tókst.
Strákarnir léku vel eins og ég átti
von á,“ sagði Hörður Helgason
þjálfari Valsmannu.
Hilmar Sighvatsson
„Það var ekki spurning hvort
liðið væri betra í dag. Við sórum
þess eið eftir leikinn gegn Viði í
fyrra að standa okkur betur í
bikarkeppninni í ár og það tókst,
við spiluðum vel og unnum. Næsta
verkefni er leikurinn við Monaco,“
sagði Hilmar Sighvatsson fyrirliði
VaLs.
Ragnar Margeirsson
„Það er agalegt að meiðast á
þessum, við áttum jafna möguleika
á sigri í leiknum, eftir markalausan
fyrri hálfleik. Ég var óhcppinn að
meiðast og þar var óheppni að fá
þctta mark á okkur í síöari hálf-
leiknum. Þetta kemur á versta
tíma fyrir mig, mikiö framundan
og ég missi örugglega af leiknum
við Sovétmenn á miðvikudag.
Valsmenn voru sterkir í þessum
leik, en við höfðum heppnina ekki
með okkur,“ sagði Kagnar Mar-
geirsson.
Þorsteinn Bjarnason var bestur í liði
ÍBK og varði oft vel. Keflvíkingar
urðu fyrir því áfalli undir lok fyrri
hálfleiks að Ragnar Margeirsson varð
að yfirgefa leikvöllinn, meiddur á fæti.
Kjartan Einarsson tók stöðu hans á
vellinum. Það að Ragnar færi útaf
veikti Keflavíkurliðið mjög. En ekki
hvað síst var það þeim andlegt áfall að
missa hann útaf.
Dómari Ieiksins var Baldur Scheving
og var dómgæsla hans ekki neitt til að
hrópa húrra fyrir. Sérstaklega voru
Keflvíkingar óánægðir með frammi-
stöðu hans. BL
VXNígoo
ÞGt^?
1.
2.
Vinningstölurnar 27. ágúst 1988
Heildarvinningsupphæð: Kr. 3.980.808,-
vinningur var kr. 1.994.970,-
Aðeins einn þátttakandi var með 5 réttar tölur.
vinningur var kr. 597.000,-
og skiptist hann á 200 vinningshafa, kr. 2.985,- á mann.
vinningur var kr. 1.388.838,-
og skiptist á 5.739 vinningshafa, sem fá 242 krónur hver.
Sölustaðirnir eru opnir frá mánudegi til laugardags og loka
ekki fyrr en 15 mínútum fyrir útdrátt.
Milljónir á hverjum laugardegi!
Upplýsingasími: 685111
Hilmar Sighvatsson fyrirliði Vals lyftir bikarnum, sigurlaununum í Mjólkurbikarkeppninni.
Skemmtileg mynd úr leiknum.
Tfmamyndlr pjetur. Sigurjó Kristjánsson í harðri baráttu við einn leikmann Keflvfldnga.
Milljónir á hverjum laugardegi! Upplýsingasími: oo xll