Tíminn - 30.08.1988, Blaðsíða 14
rnirn'T
14 Tíminn
frY:' ív.j’ub oe 'lUQGbUjÓhf1
Þríðjudagur 30. ágúst 1988
FRÉTTAYFIRLIT
ÚTLÖND
45 þegar látnir og tugir alvarlega slasaðir eftir árekstur ítalskra herþota í V-Þýskalandi:
Flugsýning varð
banvæn martröð
Reuter - Ramstein, Vestur-Þýskalandi
. Rangoon - Forystumenn í j.
. Burma, þar á meðal síðasti \
lýðræðiskjörni forsætisráð-;
herrann U Nu, hafa nú i fyrsta
sinn í 26 ár myndað samein-*
aða blokk stjórnarandstöðu, og,
lýst yfir að þeir muni berjast'
fyrir lýðræði. Yfirlýsingin um.
myndun þessa „Bandalags i
' lýoræðis og friðar" eins og það
heitir, kemur í kjölfar þess að
óróa verður í vaxandi mæli;
vart meðal almennings og kröf- j
ur um að bráðabirgðastjórn
sem almenningur geti sætt sig1
við verði sett á laggirnar undirl
formerkjum lýðræðis.
Genf- írakar segja nauðsyn-!
legt að ná samkomulagi viði
írani um að friðlýsa siglingar á
Persaflóa og Sall al-Arab i
skipaskurðinum áður en |
árangur geti náðst í friðarvið- j
ræðunum í Genf, að sögn'
utanríkisráðherra íraka Tareq
Aziz.
Islamabad - Mohammad
Khan Junejo, fyrrum forsætis-
ráðherra Pakistan hefur nú
gengið í lið með sívaxandi
hópi stjórnarandstæðinga sem
krefjast þess að embættis-
menn sveitastjórna og ríkis-
valdsins verði látnir hætta
störfum til þess að koma í veg 1
fyrir kosningasvindl í þeim
kosningum sem fyrirhugaðar1
eru í landinu í nóvember.
NÍCOSÍa - Leiðtogi kúrdískra
þjóðernissinna, Masoud Bar-
zani hefur skorað á tyrknesk
yfirvöld að opna landamæri
sín fyrir fórnarlömbum efna-
vopna sem hann segir að hafi
nýlega verið beitt í írak.
Læknar og hjúkrunarafólk börð-
ust í gær við að bjarga lífi fjölda
manns sem slösuðst lífshættulega
þegar þrjár ítalskar orrustuþotur
fórust á flugsýningu í Þýskalandi.
Þoturnar rákust saman og steyptust
logandi til jarðar og ein þeirra lenti
inn í áhorfendaskarann með þeint
afleiðingum að a.m.k. 45 manns létu
lífið.
Vestur-þýski varnarmálaráðherr-
ann, Rupert Scholtz, hefur verið
mikið gagnrýndur fyrir að leyfa
flugsýninguna ogsagði hann í yfirlýs-
ingu í gær að harmleikurinn á sunnu-
dag verði til þess að ekki muni
leyfðar fleiri flugsýningar af þessum
toga og tók hann jafnframt fram að
yfirstjórn Natóherja í Evrópu væri
sama sinnis.
Um 300.000 manns fylgdust með
flugsýningunni á sunnudagseftirmið-
daginn þcgar ítölsku þoturnar þrjár
fórust. Slysið varð með þeim hætti
að níu þotu sveit var að sýna þraut-
æfðar flugkúnstir á lágflugi þegar ein
vélanna scm skera átti fluglínu ann-
arrar vélar varð sekúndubroti of sein
og vélarnar tvær rákust saman.
Þriðja vélin dróst síðan inn í þennan
árekstur með fyrrgreindum af-
leiðingum. Skelfingu lostnir áhorf-
endur reyndu að flýja undan
ósköpunum, en eldhafið læsti sig
þegar í fjölmarga þeirra og aðrir
gátu ekki varið sig gegn málmbrot-
um og braki úr vélunum sem rigndi
yfir þá af miklu afli, og a.m.k. einn
áhorfenda missti höfuðið á þennan
hátt. Embættismenn sögðu í gær að
búist væri við að dánartalan ætti enn
eftir að hækka, en fjöldi alvarlega
slasaðra skiptir nú tugum. Banda-
rískir sérfræðingar í læknisfræði
voru í gær á leið til Þýskalands til
þess að aðstoða við meðferð á hinum
slösuðu.
Flugvöllurinn þar sem flugsýning-
in fór fram var hulinn dökkum reyk
eftir slysið, sem torveldaði björgun-
armönnum sem þustu til hjálpar
starfið. Megin þorri áhorfenda var
fjölskyldufólk sem hugðist njóta
flugsýningarinnar á sunnudagseft-
irmiðdegi.
Harmleikur þessi hefur dregið á
eftir sér pólitískan dilk og hefur
Scholz, varnarmálaráðherra fengið
á sig gífurlega gagnrýni fyrir að leyfa
slíkt lágflug herþota. Stjórnarand-
staðan í V-Þýskalandi gagnrýndi fyrr
í sumar æfingaflug orrustuþota þar
sem flogið er lágflug og var þá
nokkuð dregið úr slíku flugi. Ljóst
er að í kjölfar þessa slyss eiga
gagnrýnisraddir enn eftir að
magnast, ekki einungis í Þýskalandi
heldur víðar í Evrópu. en það er
ekki lengra síðan en í júní að Airbus
flugvél fórst á flugsýningu í Frakk-
landi með þeim afleiðingum að þrír
létust. Og síðan í maí á þessu ári
hafa 19 breskar, franskar, banda-
rískar, hollenskar, portúgalskar og
v-þýskar orrustuþotur farist þegar
verið er að æfa lágflug.
í gær fór síðan fram rannsókn á
slysstað sem lýtur stjórn þýskra,
bandarískra, ítalskra og NATO að-
ila. Reuters fréttastofan hafði í gær
eftir bandaríska sendiherranum í
V-Þýskalandi að nauðsynlegt væri
að gjalda aðstandendum hinna látnu
og slösuðu þá skuld að rannsóknin
leiddi eitthvað það í ljós sem tryggt
gæti að nokkuð þessu líkt myndi
ekki endurtaka sig.
Nairobi - Ríkisstjórnin í Bur-
undi hefur.hafið herferð gegn
öfgasinnuðum uppreisnar-
mönnum sem hún kallar svo,
og sakar þá um að bera á torg
upplognar sögusagnir um af-
tökur stjórnarhermanna á sak-
lausu fólki. Ríkisstjórnin hefur
þó viðurkennt að einhverjir
saklausir borgarar hafi fallið
fyrir slysni þegar stjórnarher-
menn reyndu að stöðva stjórn-
lausa öldu ættbálkadrápa í
landinu. I Genf hefurtalsmaður
flóttamannahjálpar Samein-1
uðu þjóðanna sagt að um
53.000 flóttamenn frá Burundi
hafi flúið til nágrannaríkisins
Rwanda til þess að komast
undan slálmöldinni í landinu.
Nokkuð hefur dregið úr flótta-
mannastraumnum og nú fara
aðeins um 1000 manns á dag
frá landinu og u.þ.b. helmingur
flóttamannanna er innan við
15 ára.
HÖfðaborq - Deilur sem
sþunnist hafa um aðskilnað .
þeldökkra og hvítra í íbúðar-1
hverfum í S-Afríku hefur nú
valdið mikilli pólitískri kreppu í ;
þinginu. Jafnframt hefur þetta '
haft slæm áhrif á tilraunir for-
setans, P.W. Botha, til að fara
af stað með yalddreifingar-
verkefni þar sem þeldökkum
eru veitt aukin réttindi.
Dusseldorf - Dómstóli í
V-Þýskalandi hefur sýknað
fyrrum SS-fangavörð af morð-
inu á kommúnistaleiðtoganum
Ernst Thaeleman. Dómsniður-,
stöðunni var mótmælt af þeim
sem fylgdust með á áhorfenda-:
pöllunum í réttarsalnum.
Moskva - Fyrsti afganski
geimfarinn fór út í geiminn í ,
gær í sovésku geimfari sem i
skotið var upp frá Baikonur
geimvísindastöðinni í Sovét-
ríkjunum. Geimskotið heppn-
aðist vel og með Afgananum í ;
för voru tveir sovéskir geimfar-
ar
Verkfallsmenn í Póllandi og stjórnvöld þreifa fyrir sér um samningaviðræður:
Skilyrði að Samstaða
komi inn í viðræður
Jaruzelski segist hafa rétt út sáttahönd
Uganda:
Eyðnin ekki
í kaleiknum
Meðlimir biskupakirkjunnar í
Uganda eni nú á ný farnir að
bergja á bikarnum þegar þeir
ganga til altaris, en leiðtogar kirkj-
unnar hafa nú horfið frá breyttum
siðuni sem teknir voru upp vegna
hræðslu við eyðnismit. ( fyrra
mæltu kirkjuyfirvöld svo fyrir að
prestamir ættu ekki að láta sóknar-
börn sín bergja á bikarnum heldur
skyldi brauðbita dyfið í vínið og
sóknarbörnum gefið það á þann
hátt. Var þetta gert í kjölfar þess
að nokkur fjöldi sóknarbarna hafði
neitað að ganga til altaris sökum
hræðslu við það að smitast af eyðni
ef allir bergðu á einurn og sama
bikarnum. Nú hefur þessu verið
hafnað af kirkjuyfirvöldum sem
hlýtt hafa á ráð vísindamanna sem
segja að veiran geti ekki smitast
með þessum hætti, heldur fyrst og
fremst með kynmökum, blóðgjöf-
um og eða margnota sprautum
o.s.fr.
Heræfingar Nato á
Norður-Atlantshafi
Lech Walesa, leiðtogi hinna ólög-
legu verkalýðssamtaka Samstöðu í
Póllandi sagði í gær að verkföllum
myndi ekki linna né óróa á vinnu-
markaði fyrr en stjórnvöld væru
reiðubúin til að ræða um að aflétta
banni á Samstöðu.
Jaruzelski hershöfðingi, leiðtogi
Póllands staðfesti nú um helgina
tilboð af hálfu stjórnvaida um að
komið verði af stað viðræðum deilu-
aðila um verkföllin sem hrjáð hafa
Pólland í u.þ.b. tværvikur og kvaðst
hann vilja ná sáttum við þau öfl sem
á annað borð væru tilbúin til að
fallast á lausn sem byggðist á grund-
velli stjórnarskrárinnar.
Áður liafði talsmaður Kommún-
istaflokksins tilkynnt að stjórnvöld
myndu vel geta hugsað sér að Jæch
Walesa ætti sæti í slíkri viðræðu-
nefnd þó aldrei yrði fallist á að hann
væri þar sem forystumaður í ólögleg-
um samtökum. Walesa sagði hins
vegar að hann væri tilbúinn til við-
ræðna án skilyrða við stjórnvöld.
Hann gaf út þessa yfirlýsingu í
Lenín-skipasmíðastöðinni í Gdansk
en verkfallið þar hefur verið lýst
ólöglegt af stjórnvöldum. Því virðist
vera grundvöllur fyrir því að viðræð-
ur geti farið af stað en hins vegar
virðist enginn grundvöllur fyrir því
að deiluaðilar geti komið sér saman
um umræðuefni. Stjórnvöld neita
algerlega að ræða stöðu Samstöðu,
en Walesa sagði í gær að um leið og
horfur væru á því að viðræður við
stjórnvöld myndu snúast um raun-
verulega lausn vandamála yrðu verk-
föll afboðuð. En hluti þess sem
Walesa flokkar undir raunveruleg
vandamál er einmitt staða Sam-
stöðu. Þar virðist hnífurinn standa í
kúnni. Reuterfréttastofan hafði m.a.
þetta eftir Walesa í gær: „Eining er
órjúfanlegur hluti af okkar baráttu
og án þessara samtaka munum við
ekki færast millimetra fram á
veginn.“ Og einnig: „Það skiptir
ekki máli við hvern ég tala í slíkum
viðræðum það gæti allt eins verið
skúringakona ef hún hefur umboð
frá stjórnvöldum," og undirstrikaði
þannig að umræðuefnið væri það
sem máli skiptir en ekki viðræður
viðræðnanna vegna.
Verkföll halda áfram að lama
mikilvæga atvinnustarfsemi í Pól-
landi og Reutcrs fréttastofan hefur
eftir áhrifamanni í Samstöðu í
Gdansk að útilokað sé að verkfalis-
inenn muni sætta sig við að aflýsa
verkfallinu án þess að hafa fengið
einhverjum krafna sinna framgengt,
en helstu kröfurnar snúast um opin-
bera viðurkenningu á Samstöðu og
um kauphækkanir.
Fréttaskýrendur telja að þrátt fyr-
ir ágreininginn um það hvort Sam-
staða fái einhvers konar opinbera
viðurkenningu sé enn möguleiki á
að viðræður geti farið af stað milli
deiluaðila. Jaruzelski sagði t.d. á
miðstjórnarfundi Kommúnista-
flokksins á sunnudaginn að hann
biði enn með útrétta sáttahönd og
væri reiðubúinn til þess að gera sitt
til þess að ná fram aukinni þjóðarsátt
í Póllandi. Áhrifamiklir leiðtogar
Samstöðu hafa látið hafa eftir sér að
þeir eygi möguleika á gagnlegum
viðræðum þó jafnan fylgi slíkum
yfirlýsingum af þeirra hálfu ýmsir
fyrirvarar og efasemdir.
Níu aðildarríki NATO munu
taka þátt í heræfingum á Norður-
Atlantshafi dagana 31. ágúst til 21.
september. Æfingarnar hafa hlotið
yfirskriftina „Samvinna 88“,
„Teamwork 88“, og munu fleiri en
500 flugvélar, 200 skip og 45,000
manns taka þátt í þeim. Æfingam-
ar miða að því að sýna og bæta
viðbragð og virkni heraflans og
höfuðstöðva hans í hernaði á sjó, í
tengslum við almennar varnaráætl-
anir NATO. Er þeim ætlað að sýna
staðfestu og fælingarvirkni beit-
ingu flotans á Noregshafi og munu
æfingarnar ná frá austurströnd
Bandaríkjanna og Kanada til vest-
urstrandar Evrópu, Noregshafs og
strandlengju Noregs.
Æfingarnar byggja á stuðningi
við varnarhernað á landi í Norður-
Noregi og hernaðaráætlun NATO
um framvirka vörn. Þessar marg-
hliða æfingar munu m.a. fela í sér
landtöku í Noregi af herafla
Hollands, Bretlands og Bandaríkj-
anna, stuðnings aðgerðir, og breytt
svið sjávarhernaðaraðgerða gegn
óvinveittum kafbátum, skipum,
flugvélum, flugskeytum og tundur-
duflum.
Skipulagning og framkvæmd
æfinganna, sem fram fara á tveggja
ára fresti, er undir forystu Lee
Baggett Jr., flotaforingja, yfir-
manns Atlantshafsflotans. Sam-
ræmingu æfinga land-, sjó- og loft-
herafla Belgíu, Kanada, Dan-
mörku, Vestur-Þýskalands,
Hollands, Noregs, Bretlands og
Bandaríkjanna verður stjórnað frá
höfuðstöðvum hans í Norfolk,
Virginia. Frakkland mun einnig
taka þátt í æfingunum þótt herafli
þess sé ekki formlega samofinn
áætlunum NATO-heraflans. JIH