Tíminn - 26.10.1988, Side 2
2 Tíminn
Miðvikúdágur 26. október 1988
Forstjóri K. Jónsson á Akureyri telur sölusamninga viö Aldi í hættu:
Gildur sölusamningur
við Aldi fram í júní
Lausafregnir um að Aldi verslunarkeðjan þýska ætli að
hætta að kaupa lagmeti af íslendingum hafa vakið
talsverðan ugg.
Fyrirspurn frá verslanakeðjunni barst sjávarútvegsráðu-
neytinu um helgina varðandi h valveiðar íslendinga þar sem
Aldi bað um skýringar og svör ráðuneytisins við fullyrðing-
um, og að því er Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra
kallaði rangfærslur, frá umhverfisverndarsamtökunum
Greenpeace sem verslanakeðjunni hafði borist.
Tíminn ræddi við Kristján Jóns-
son forstjóra K. Jónsson & Co. á
Akureyri, en fyrirtækið hefur um
langt skeið verið stærsti framleið-
andi lagmetis hér á landi og átt
stærstan hlut þeirrar lagmetisfram-
leiðslu sem Aldi hefur keypt af
íslendingum. Aldi hefur síðan um
langt skeið verið lang stærsti kaup-
andi Sölustofnunar lagmetis.
Kristján sagðist helst ekki ræða
málið við fjöimiðla þar sem það
væri á háskafengnu stigi en hann
sagði að ef Aldi hætti þessum
viðskiptum við Sölustofnun þá
þýddi það nokkur hundruð millj-
óna tap.
Kristján sagðist ekki hafa ástæðu
til að ætla annað en hvalveiðar
íslcndinga væru ástæða þess að
bakslag virtist vera að koma í þessi
viðskipti, en K. Jónsson hefði selt
Aldi niðursoðna rækju fyrir 60
milljónir króna núna í október.
Kristján sagði að milli Sölustofn-
unar lagmetis og Aldi væri sölu-
samningur sem gilti fram á mitt
næsta ár. Hann sagði að Aldi hefði
ekki rift þeim samningi en hefði
gefið í skyn að verslanakeðjan
myndi hugsanlega endurskoða hug
sinn.
Aldi er keðja iágvöruverðsversl-
ana og er með verslanir um allt
Þýskaland og í fleiri löndum Evr-
ópu.
Lögð er áhersla á að halda
vöruverði lágu og eru verslanirnar
venjulega í grennd við miklar um-
ferðaræðar en þó utan hefðbund-
inna verslunarhverfa.
Vöruflokkar eru yfirleitt hvorki
fleiri né færri en tíðkast í venjuleg-
um matvöru- og nýlenduvöruversl-
unum en sjaldan nema eitt til tvö
vörumerki úr hverjum flokki.
-sá
Hvajveiðibannið
til umræðu í dag
Umræðu um frumvarp til laga um
hvalveiðibann sem þau Hreggviður
Jónsson (S.Rn.) og Aðalheiður
Bjarnfreðsdóttir (S.Rvk.) lögðu
fram í síðustu viku, var frestað á
Alþingi í gær. Ástæðan var fjarvera
Halldórs Ásgrímssonar sjávarút-
vegsráðherra og Jóns Sigurðssonar
iðnaðarráðherra. Frumvarpið verð-
ur tekið fyrir í sameinuðu þingi í dag
og má búast við að umræður um það
verði líflegar því skiptar skoðanir
eru á milli þingmanna um þetta mál.
Þá hefur Árni Gunnarsson (A.Nlv.)
lagt fram tillögu í sameinuðu þingi
þess efnis að Alþingi álykti gegn
hvalveiðum íslendinga, þar með
töldum vísindaveiðum. Þetta er
sama tillaga og Árni hugðist leggja
fram í síðustu viku, en eins og
kunnugt er gaf hann ríkisstjórninni
frest til að fjalla um málið með tilliti
til þess hversu alvarlegt það væri.
Hún felur í sér að Alþingi feli
ríkisstjórninni að endurskoða hval-
veiðistefnu íslendinga með það fyrir
augum að hvalveiðar verði stöðvað-
ar um a.m.k. þriggja ára skeið. Sá
tími verði notaður til að ljúka nauð-
synlegum vísindaransóknum án
veiða og til kynningar á málstað
íslendinga erlendis og fulltrúum um-
hverfisverndarsamtaka leyft að
fylgjast með og taka þátt f rannsókn-
unum.
Aðspurður kvaðst Árni ekki koma
til með að styðja frumvarp þeirra
borgaraflokksmanna, þar sem það
gæfi ríkisstjórninni ekkert svigrúm
til að leysa þetta mál farsællega.
Hann vildi ekki meina að það fæli í
sér uppgjöf af hálfu íslands heldur
væri einungis verið að leita samstarfs
við græningja. - ág.
Viðræður um síldarsölu til
Sovétríkjanna þokast hægt:
Niðurstöður
í vikulokin
„Það er því miður lítið um viðræð-
ur okkar að segja í bili,“ sagði Einar
Benediktsson aðstoðarfram-
kvæmdastjóri Síldarútvegsnefndar,
en viðræður við Sovétmenn um kaup
á saltaðri síld standa nú yfir hér á
landi.
Einar sagði að málið þokaðist
hægt og viðræðum yrði haldið áfram
í dag. „Mér sýnist að nokkuð sé í
land með að niðurstaða fáist, hvort
sem hún verður jákvæð eða nei-
kvæð,“ sagði Einar, „og ekki fyrr en
í lok vikunnar sem einhvers er að
vænta.“
Sovéska sendinefndin, sem telur
þrjá menn, kom hingað til lands um
síðustu helgi og hófust viðræður á
mánudag. Auk Einars eiga þeir
Birgir Finnsson varaformaður Síld-
arútvegsnefndar og Sigurður Stef-
ánsson stjórnarmaður sæti í íslensku
viðræðunefndinni.
Viðræðunum við Sovétmenn um
kaup á saltaðri síld var frestað fyrir
um mánuði síðan, þar sem sovéska
viðræðunefndin hafði aðeins heimild
til að semja um kaup á 100.000
tunnum. I viðskiptasamkomulagi
þjóðanna er gert ráð fyrir að Sovét-
menn kaupi árlega 200 til 250 þúsund
tunnur. - ABÓ
Þyrlan
sótti
sjómann
Þyrla Landhelgisgæslunnar
sótti slasaðan sjómann um borð í
rækjuskipið Pétur Jónsson RE 69
| í gærmorgun, en skipið var að
rækjuveiðum á Dohrnbanka,
djúpt út af Vestfjörðum, þegar
slysið varð. Hann mun hafa slas-
ast á fæti.
Þyrlan lagði af stað frá Reykja-
vík klukkan 9.40 í gærmorgun og
var flogið til móts við skipið, en
strax eftir slysið voru veiðarfæri
tekin um borð og stefnan tekin á
land. Þyrlan var lent við Borgar-
spítalann klukkan 12.25. -ABÓ
Biskup íslands, herra Pétur Sigurgeirsson, heilsar hér eiginkonu kirkjumálaráðherra, Sigurjónu Sigurðardóttur, við upphaf setningarmessu kirkjuþings, en
Halldór Ásgrímsson, ráðherra, stendur á milli. Tímamynd Gunnar
Halldór Ásgrímsson, kirkiumálaráðherra, við setningu 19. kirkjuþings Þjóðkirkjunnar:
Lög verða að veita
kirkjunni svigrúm
Halldór Ásgrímsson, kirkjumála-
ráðherra, sagði í ávarpi við setningu
kirkjuþings í gær að starf kirkjunnar
yki þroska og bætti manninn. „Ég
vænti þess að kirkjan fái nauðsynleg-
an stuðning þannig að hún geti
áfram stutt okkur sem best til meiri
þroska og hamingju.“ Sagði hann að
til greina komi að auka á sjálfstæði
Þjóðkirkjunnar í ýmsum innri
málum. Þá komi einnig til álita
hvaða málum kirkjunnar skuli skipa
með lögum.
„Löggjöf er nauðsynleg, en mjög
nákvæm lagaleg skipan í málefnum
kirkjunnar hefur oft gengið út í
öfgar. Lögin verða að veita svigrúm
til að mæta breyttum þjóðfélagshátt-
um og taka tillit til þess vilja sem er
ríkjandi innan kirkjunnar á hverjum
tíma,“ sagði Halldór.
Ávarp ráðherra var flutt eftir að
biskup íslands, herra Pétur Sigur-
geirsson, hafði sett þetta 19. kirkju-
þing Þjóðkirkjunnar í Bústaðakirkju
að lokinni messu. Bauð herra Pétur
ráðherrann velkominn til starfa og
þakkaði jafnframt fyrrverandi
kirkjumálaráðherra, Jóni Sigurðs-
syni, fyrir gott samstarf og unnin
störf í þágu kirkjunnar. Sagðist bisk-
up ekki eiga von á öðru en að
Halldór yrði staðfastur og góður
ráðherra kirkjulegra mála.
Halldór sagði í ræðu sinni að hann
væri andvígur því að skipta landinu
upp í þrjú biskupsdæmi, en skildi og
virti sjónarmið þeirra manna sem
teldu það æskilegt. Vék hann einnig
að því hvernig markmið sitt um að
sameina tvær tillögur, um starfs-
menn Þjóðkirkjunnar og um skipan
prestakalla og prófastdæma, í eitt
frumvarp sem koma ætti fyrir þetta
kirkjuþing. Tillögur Halldórs og
þeirra manna sem unnið hafa að
máli þessu í nefnd, ganga skemmra
en fyrri tillögur kirkjuþings og
prestastefnu. KB
Dráttarvextir lækka
Dráttarvextir breytast frá og
með 1. nóvember n.k. og verða þá
27,6% á ári í stað 33,6% sem þeir
eru nú. Sama dag gengur í gildi
ákvæði 20. gr. nýsettra bráða-
birgðalaga, sem er breyting á 9. gr.
vaxtalaga nr. 25, 27. mars 1987,
svohljóðandi:
„Dráttarvextir skulu ætíð reikn-
ast sem dagvextir, nema á annan
veg sé sérstaklega mælt fyrir í
lögum.“
Samkvæmt þessu skal hætta að
reikna dráttarvexti heils mánaðar
fyrir brot úr mánuði þegar vanskil
verða. í stað þess reiknast dráttar-
vextir í réttu hlutfalli við þann
dagafjölda sem vanskil standa.