Tíminn - 11.11.1988, Side 1
Verðbólgan var
innan við 1% í
októbermánuði
• Blaðsíða 3
Handboltastríð
sjónvarpanna
magnastnúenn
t"" ™wmrnfwmm—*m
Rafmagn fór víða
á Vestfjörðum í
miklum veðurofsa
• Baksíða
FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1988 - 259. TBL. 72. ÁRG.
Fjármálaráðherra segir að hallinn á ríkissjóði í ár
muni verða meiri en áður vartalið eða um 4 milljarðar
Halli ríkissjóðs vex
í hverri ræou Olafs
Ólafur Ragnar Grímsson, fjármálaráðherra, flutti
fjárlagaræðu sína á Alþingi gær. Meðal þess
sem kom fram í orðum ráðherrans var að þrátt
fyrir það sem hann sagði í ræðu fyrir skömmu
um horfur á 3 milljarða hailarekstri ríkissjóðs á
þessu ári bentu nýir útreikningar tii að hallinn
yrði mun meiri eða nálægt 4 milljörðum króna.
Ástæðuna fyrir því að hallinn yrði þetta mikið
meiri sagði ráðherra vera þá að fyrirsjáanlegt
væri að tekjur, sem reiknað var með að kæmu
inn á síðasta fjórðungi ársins, myndu verða
minni en talið var. _
• Blaðsiða 5
Útlendir millar vaknaðir til vitundar um góðar veiðilendur á íslandi:
STEFNT AD SOLU PAKKA-
FERDA Á RJÚPU OG GÆS
Flugleiðir vinna nú að skipulagningu skotveiðiferða fyrir
útlendinga hingað til íslands. Þegar hafa þrír smáhópar komið
í þessum tilgangi og stefnt er að fjölgun slíkra ferða. Um er
að ræða smáhópa stöndugra skotveiðimanna sem í fylgd
leiðsögumanna fara á rjúpu og gæs. Erlendu veiðimennirnir
láta reka upp fyrir sig fuglinn og skjóta hann siðan á flugi líkt
og gert er á fasanaveiðum erlendis, en rjúpan hefur í þessu
samhengi verið kölluð „íslenski fasaninn“. E.t.v. verður þess
ekki langt að biða að bændur geti haft af skotveiði hlunnindi
svipuð laxveiðihlunnindum. £ Blaðsíða 2