Tíminn - 11.11.1988, Blaðsíða 5
Föstutfagur 11 >/ nóvémberl 988"'
Tíminn 1 5
Ólafur Ragnar Grímsson, fjármálaráðherra, segir lítil gleðitíðindi af stöðu ríkissjóðs:
Hallinn á ríkissjóði
tæpum milljarði meiri
Ólafur Ragnar Grímsson, fjármálaráðherra, mælti fyrir fjár-
lagafrumvarpi næsta árs í sameinuðu Alþingi í gær og sagði það
flytja landsmönnum lítinn gleðiboðskap. Og ekki voru fréttir af
fjárlögum þessa árs neinn gleðiboðskapur heldur. Samkvæmt
bráðabirgðatölum frá í október er nú spáð um 4 milljarða króna
halla en það er tæpum milljarði meira en áætlað var fyrir nokkrum
vikum.
Þetta stafar einkum af minnk-
andi tekjum af söluskatti, tollum
og öðrum veltusköttum, jafnframt
því sem innheimtan sjálf hefur
gengið verr upp á síðkastið sem er
ákveðin vísbending um vaxandi
greiðsluerfiðleika fyrirtækja. Það
vakti athygli að Ólafur lýsti því yfir
að áætlanir um hallalausan rekstur
Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar gætu
engan veginn staðist og yrði að
öllum líkindum verulegur halli á
starfsemi hennar.
Gagnrýni stjórnarandstæðinga í
þessum fyrstu umræðum um fjár-
lög ársins 1989 einkenndist einkum
af þrennu, ádeilu á fyrirhugaðan
12% skatt á happdrætti, ásakanir
um óheilindi innan ríkisstjórnar-
innar og efasemdum um að for-
sendur fjárlaganna stæðust.
Óli Þ. Guðbjartsson sagði að í
þessu fjárlagafrumvarpi fælist
sama þensluhætta og í frumvarpi
Jóns Baldvins fyrir þetta ár. Þar
átti hann við að lánsfjárþörf B
hluta fjárlaga, þ.e. ríkisstofnana,
væri allt of mikil, en hann taldi að
hún hækkaði um 50% frá síðustu
fjárlögum. Þetta lánsfé rynni ekki
til uppbyggingar atvinnuveganna
en yki eyðslu og skapaði þenslu.
Þorvaldur Garðar Kristjánsson var
svipaðs sinnis og sagði að ríkissjóð-
ur hjakkaði enn í sama foraðinu og
áður. Hann gagnrýndi einnig frum-
varpið fyrir að vera slælega undir-
búið og kvað Ólaf Ragnar kasta
því hálf köruðu inn á Alþingi. Óli
Þ. vildi einnig meina að ríkisstjórn-
in tefldi á tæpasta vað hvað þing-
meirihluta snerti en Ólafur Ragnar
kvaðst vænta góðs samstarfs við
þingheim allan við að ná fram
markmiði ríkisstjórnarinnar varð-
andi fjárlög með tekjuafgangi.
Hann fékk reyndar góðar undir-
tektir hjá Kvennalista þegar Málm-
fríður Sigurðardóttir sagði að sum-
ar fjáröflunarhugmyndir í tekju-
hlið fjárlaganna væru á þeim nót-
um að ekki væri ólíklegt að
Kvennalistinn gæti stutt þær og átti
hún þar við hugmyndir um annað
skattþrep og sérstakan hátekju-
skatt.
Margir fordæmdu fyrirhugaðan
skatt á happdrætti. Málmfríður
benti á að Happdrætti Háskóla
íslands greiddi nú þegar 20%
einkaleyfisgjald til ríkisins og yrði
Fjármálaráðherra fær sér vatnssopa.
skattur þessi settur á nú þegar
þýddi það 200 m.kr. aukakostnað
fyrir H.H.Í. vegna þess að prenta
þyrfti mikið af nýjum miðum þar
sem verð þeirra væri skráð inn á
þá. Friðrik Sophusson notaði tæki-
færið og hreytti ónotum í Steingrím
Hermannsson forsætisráðherra
fyrir að standa að fjárlagafrum-
varpinu en vera á móti skattinum á
happdrættin sem væri ein af tekju-
öflunarleiðum þess.
Alexander Stefánsson sagði að
Framsóknarflokkurinn stæði ein-
huga að markmiðum fjárlagafrum-
varpsins og lagði áherslu á að
koma þyrfti í veg fyrir sjálfvirka
aukningu í launagreiðslum innan
stofnana ríkisins. Hann sagði þess
dæmi að menn innan ríkisstofnana
Timamynd: Gunnar
fengju jafn mikið greitt fyrir hluta-
störf og verkefni og næmi föstum
launum þeirra. Hann kvaðst ekki
mundu trúa því að ábyrgir stjórn-
málamenn vildu koma í veg fyrir
að afgreidd yrðu hallalaus fjárlög
sem þjóðin gæti tekið mark á og
væru jákvæð fyrir efnahagslíf
landsins. - ág
Davíö Scheving Thorsteinsson víkur úr stjórn Smjörlíkis hf. og aðrir taka við:
„Þetta eru þungavigtarmenn
og allir einkavinir mínir“
Miklar breytingar voru gerðar á
stjóm Smjörlíkis hf. á aðalfundi í
lok októbermánaðar. Þessar breyt-
ingar höfðu meðal annars það í för
með sér að Davíð Scheving Thor-
steinsson situr ekki lengur sem
stjórnarmaður í fyrirtækinu. Hlutafé
í fyrirtækinu hefur verið aukið um
100 milljónir auk þess sem nýir
hluthafar komu inn í fyrirtækið. Því
hefur verið haldið fram að nýju
hluthafarnir hafi viljað draga veru-
lega úr áhrifum Davíðs Scheving í
fyrirtækinu og því viljað hann burt
úr stjórninni. Tíminn spurði Davíð í
gær hvort honum hefði verið bolað
út úr stjóminni eins og sögur herma.
„Nei, alls ekki, það er hinsvegar
alveg rétt að ég hætti í stjórn Smjör-
líkis fyrir um hálfum mánuði eða 25.
október. Það komu inn í stjórnina
góðir menn sem við getum kallað
þungavigtarmenn. Þeir eru þrír og
þetta eru þeir Víglundur Þorsteins-
son formaður Félags íslenskra iðn-
rekenda, Jóhann Bergþórsson í
Hagvirki og Gunnar Scheving Thor-
steinsson verkfræðingur. Þessir þrír
menn eru allt saman einkavinir mínir
og Gunnar þar að auki bróðir minn.
Það er því algjörlega úr lausu lofti
gripið að þeir hafi bolað mér út úr
stjórninni", sagði Davíð að lokum.
Játar innbrot
Sautján ára piltur, sem grunað-
ur var urn að hafa brotist inn í
Kaupfélag Suðurnesja aðfaranótt
sl. laugardags og jafnframt orðið
valdur að íkveikju, var handtek-
inn af lögreglunni í Keflavík á
mánudag. Krafist var gæsluvarð-
halds yfir honum, en krafan síðan
dregin til baka á miðvikudag eftir
að pilturinn játaði innbrotið.
Hann hefur ekki gengist við ík-
veikjunni og ber við minnisleysi
vegna ölvunar, en sterkar líkur
eru talar á því að hann eigi sök á
henni. Jakki piltsins fannst
skammt frá innbrotsstaðnum á
mánudeginum og leiddi það til
handtökunnar. - ABÓ
Handboltastrfö sjónvarpsstöövanna heldur áfram:
RÚV býður í bikarkeppnina
Samningurinn milli Stöðvar 2 og
1. deildarfélaganna í handbolta, þar
sem Stöð 2 fékk einkaleyfi á að sýna
frá leikjum í 1. deild og bikarkeppn-
inni, hefur valdið miklum úlfaþyt og
deilum. Til dæmis voru símalínur
hjá Ríkisútvarpinu rauðglóandi og
starfsmenn HSI höfðu sömu sögu að
segja. Fólk hringdi fyrst og fremst til
að lýsa yfir vanþóknun sinni og
óánægju með gerð þessa samnings.
HSI þarf að leggja blessun sfna
yfir þann hluta samningsins sem snýr
að bikarkeppninni. Stöð 2 bauð 500
þúsund fyrir réttinn á bikarkeppn-
inni. Ríkisútvarpið setti fram hærra
boð í gær og býður 600 þúsund fyrir
einkarétt á þeirri keppni. Ingólfur
Hannesson, deildarstjóri íþrótta-
deildar RÚV, sagði að tilboðið fæli
í sér kaup á einkarétti vegna þess að
Stöð 2 hefði stigið fyrsta skrefið í
þessa átt, og þetta tilboð væri fram-
hald á þeirri stöðu sem þá hefði
komið upp.
Sem fyrr segir komu fram sterk
viðbrögð hjá almenningi við þessari
samningsgerð. Það sem fólk hefur
fyrst og fremst bent á og mislíkað,
er að Stöð 2 hefur ekki sömu út-
breiðslu og Sjónvarpið og því er
vissum hluta landsmanna meinað að
njóta þessa sjónvarpsefnis. Einnig
er fjöldi fólks þeirrar skoðunar að
það sé rangt að sélja íþróttir á þann
veg sem þarna er gert, meðal annars
vegna þess að ríkið styrkir íþrótta-
hreyfinguna og almenningur í land-
inu hefur lagt fram fé í fjársafnanir
handboltamanna. Fulltrúar 1. deild-
arfélaganna hafa svo varpað olíu á
eldinn með yfirlýsingum eins og
þeim að íþróttahreyfingin skuldi al-
menningi ekki neitt.
Hve mikil er útbreiðslan?
Forráðamenn Stöðvar 2 hafa lýst
því yfir að dreifikerfi stöðvarinnar
nái til 92-95% þjóðarinnar. Þetta
hefur verið véfengt, meðal annars af
fulltrúum Ríkisútvarpsins, og bent
hefur verið á að samkvæmt síðustu
könnun Félagsvísindastofnunar
Háskólans nái Stöð 2 til 82%
landsmanna.
Tíminn hafði samband við tækni-
deild Pósts og síma og spurðist fyrir
um þetta atriði. Þar fengust þau svör
að dreifikerfi Stöðvar 2 sé byggt upp
á annan hátt en dreifikerfi Ríkisút-
varpsins. Stöð 2 er fyrst og fremst
bundin við þéttbýliskjarnana vítt og
breitt um landið en sveitirnar í kring
ná yfirleitt ekki útsendingunum.
Taka má sem dæmi að Vestfirðirnir
allir eru án Stöðvar 2, nema ísafjörð-
ur og Hnífsdalur að hluta. Á svæðinu
frá Hvolsvelli allt austur til Reyðar-
fjarðar nást útsendingarnar ekki. í
framhaldi af þessu má nefna að á
fundi þar sem fyrrnefndur samning-
ur var kynntur sagði Ólafur H.
Jónsson fjármálastjóri Stöðvar2, að
það væru aðeins einstöku bóndabæir
sem ekki væru á þjónustusvæði
stöðvarinnar.
KA menn óánægðir
Ekki eru öll íþróttfélögin í 1. deild
ánægð með gerð þessa samnings.
KA menn eru mjög óánægðir með
það hvernig að honum var staðið, og
telja að stjórn 1. deildarfélaganna
hefði átt að fara sér hægar. f samtali
við Jóhann Karl Sigurðsson hjá KA,
kom fram að óánægjan væri fyrst og
fremst vegna þess að stjórnin hafði
ekki samband við þá og þeir hafi því
ekki getað fylgst með því sem var að
gerast. „Við erum ánægðir með þær
upphæðir sem fengust en við hefðum
frekar kosið að Sjónvarpið hefði
gert þetta. Því við sjáum ekki Stöð
2 nema að mjög takmörkuðu leyti á
þessu svæði hvað svo sem þeir á Stöð
2 segja um útbreiðslu."
Jóhann sagði ennfremur: „Við
teljum að það hefði mátt taka meiri
tíma í þetta og hörmum það að þetta
skuli hafa farið svona.“ ssh