Tíminn - 11.11.1988, Qupperneq 7
Föstudagur 11. nóvember 1988
Tíminn 7
VÖRUR
Vinnsla nýrrar aðalnámskrár grunnskóla á lokastigi:
Breytinga að vænta
á starfi grunnskóla
Drög að nýrri aðalnámskrá grunnskóla liggja nú fyrir,
en núgildandi námskrá var samþykkt 1976. Drögin fela
m.a. í sér breytingar í þá átt að sjálfstæði skólanna er aukið.
Þessa dagana er að hefjast lokastig vinnslu aðalnám-
skrárinnar. Tekið hefur verið upp það nýmæli að náið
samstarf er haft við fulltrúa foreldra, kennara og sérfræð-
inga. í þeim tilgangi hefur verið skipuð samstarfsnefnd en
í henni eiga sæti tveir fulltrúar Bandalags kennarafélaga,
fulltrúi frá Kennaraháskólanum, Háskóla íslands og
fræðslustjóra einnig tveir fulltrúar foreldrafélaga.
Þessi foreldrafélög voru valin af
handahófi í samráði við fræðslu-
stjóra viðkomandi umdæma.
Niðurstaðan varð sú að það eru
Foreldrafélag Ölduselsskóla í
Reykjavík og Foreldrafélag
Grunnskólans í Stykkishólmi sem
hafa verið beðin um að senda
fulltrúa til vinnu í samstarfsnefnd-
inni.
Samstarfsnefndin mun vinna
með skólaþróunardeild mennta-
málaráðuneytisins að lokafrágangi
námskrárinnar þar sem tillit verður
tekið til þeirra athugasemda sem
komið hafa fram. Ráðgert er að
þessu verki verði lokið í febrúar og
nýja námskráin taki gildi á næsta
skólaári.
í viðtali við Margréti Harðar-
dóttur, fulltrúa hjá skólaþróunar-
deildinni,kom fram að í drögum
aðalnámskrárinnar er að finna
nokkrar veigamiklar breytingar.
Fyrst ber að nefna að faglegt
sjálfstæði skólanna er viðurkennt
og í drögunum er ekki mælt fyrir
um kennsluhætti, en í því felst
viðurkenning á kennurum sem
sérfræðingum um þessi efni. í
íramhaldi af því er þeim tilmælum
beint til skólanna að þeir geri sínar
eigin skólanámskrár þar sem
kennslan er skipulögð.
í stað þess að tala um hvert
námsár fyrir sig er í drögum nám-
skrárinnar talað um þrjú stig
grunnskóla, en skólarnir fá með
þessu möguleika til vissrar skipu-
lagningar, til dæmis að blanda
saman mismunandi aldurshópum
eftir því sem þykir henta best.
Margrét sagði einnig að vissar
breytingar yrðu hvað varðar innra
starf skólanna. Meðal annars væri
meiri áhersla lögð á fræðsluhlut-
verk skólanna, þar sem hugtakið
fræðsla er skilgreint mjög vítt.
Einnig er í drögunum reynt að
skýra hlut foreldra í uppeldi barn-
anna, þá fyrst og fremst hvert sé
verksvið foreldra og hvert sé
verksvið skólanna. En þar kemur
fram að það eru foreldrarnir sem
fyrst og fremst bera uppeldisskyldu
og ábyrgð á uppeldi barna sinna.
ssh
Málverki
stolið
Fiskimaðurinn, málverk eftir
Vigni Jóhannsson listmálara, sem
var í matsal starfsmanna Eimskip í
Sundahöfn var stolið skömmu fyrir
miðnætti á þriðjudagskvöld.
Fjófurinn tók málverkið sem er
125 x 88 sm að stærð úr rammanum
og hékk ramminn einn uppi á veggn-
um á miðvikudagsmorgun, þegar
starfsfólk mætti til vinnu. Fiskimað-
urinn er málaður með olíu á pappa
og er hann metinn á 90 til 100
þúsund krónur. RLR vinnur að
rannsókn málsins. - ABÓ
Stuðningur
við hval-
veiðistefnu
Samtök rækjusjómanna við ísa-
fjarðardjúp héldu fund fyrir
skömmu þar sem eftirfarandi sam-
þykkt var gerð:
„Samtökin lýsa yfir stuðningi við
hvalveiðistefnu stjórnvalda og leggja
þunga áherslu á að það er ótvíræður
réttur hverrar sjálfstæðrar þjóðar að
ákveða hvort og hvernig auðlindir
hafsins eru nýttar á grundvelli vís-
indalegra rannsókna." - ABÓ
NÝJAR
Nýtt skyr
Mjólkursamsalan í Reykjavík
setti í fyrradag á markaðinn tvær
nýjar bragðtegundir af rjómaskyri í
150 gramma dósum. Þarna er um að
ræða annarsvegar Rjómaskyr með
myntusúkkulaði og hinsvegar
Rjómaskyr með ferskjum og ástar-
aldinum.
Á dósunum er borð fyrir rjóma
eða mjólk, sem gera neytandanum
mögulegt að borða skyrið beint úr
dósinni.
Jóhann Björnsson, forstjóri Ábyrgðar hf.:
Ábyrgð þegar bundist
stærri rekstrarheild
Jóhann Björnsson, forstjóri
Ábyrgðar hf., segir að það sé ekki
Unglingaheimilið
fær meira fé
Framlag ríkissjóðs til Unglinga-
heimilis ríkisins verður sarhkvæmt
fjárlagafrumvarpi 24.4 milljónir, en
það er ríflega tvöföldun samanborið
við gildandi fjárlög. Ástæða þessarar
hækkunar er fyrst og fremst sú að á
undanfömum árum hefur heimilið
safnað talsverðum skuldum, en
heimilið hefur tekjur af dagvistar-
gjöldum fyrir vistmenn. ssh
óeðlilegt þótt tryggingarfélög hér á
landi leiti leiða til sameiningar til að
auka hagræðingu. Slíkt hafi trygg-
ingarfélög verið að vinna að um
allan heim. Hins vegar sé ekki á
döfinni að Ábyrgð sameinist ein-
hverri af þeim stærri heildum sem
fjallað var um í Tímanum í gær,
vegna þess að menn ættu erfitt með
að sjá á þessari stundu ákveðna
mynd á þessum viðræðum sem
Ábyrgð gæti fallið inn í. Skýring
þess er að sögn Jóhanns einfaldlega
fólgin í þeirri sérstöðu að Ábyrgð er
félag bindindismanna. Benti hann á
að víðtæk þróun í átt til sameiningar
tryggingarfélaga hafi verið í gangi
um nokkurt skeið á Norðurlöndum.
Inn í þá samninga hefur móðurfyrir-
tæki Ábyrgðar, Andsvar, ekki
komið.
Telur forstjórinn sig ná svipaðri
hagræðingu út úr nánu samstarfi við
Andsvar í Noregi og Svíþjóð og hafi
t.d. allar tryggingar sem Ábyrgð
hefur boðið félögum sínum upp á
verið þróaðar á þeim vettvangi. Því
megi segja að það er ekki alveg rétt
að Ábyrgð standi verr að vígi en
önnur tryggingarfélög og afkoma
þess er ekki eins slæm og á síðasta
ári, enda var það mjög slæmt ár fyrir
bifreiðatryggingar. Ábyrgð er sem-
sagt ekki til sölu hverjum sem er eins
og sumir hafa e.t.v. talið sig geta
lesið út úr ítarlegri frétt Tímans í
gær af viðræðum tryggingarfélaga
um sameiningu. KB
Stúdentaráö HÍ:
Á móti skatti
á happdrætti
Á fundi Stúdentaráðs Háskóla
íslands sem var haldinn 3. nóvem-
ber s.l. var samþykkt einróma
ályktun þar sem fram koma hörð
mótmæli gegn þeim hugmyndum
sem birtast í fjárlagafrumvarpinu,
að leggja 12% söluskatt á happ-
drætti. Ályktun þessi er sett fram
vegna þess að Stúdentaráð telur að
ráðstafanir af þessu tagi muni
skerða stórkostlega það fé sem
rennur frá Happdrætti Háskóla
íslands til byggingarframkvæmda
og tækjakaupa fyrir Háskólann.
í ályktun ráðsins kemur fram að
síðastliðið ár skilaði happdrættið
Háskólanum 250 milljónum kr.í
tekjur. Velta happdrættisins á
þessu ári er áætluð um 1.3 milljarð-
ur króna og myndi það því borga
um 150 milljónir í söluskatt.
Stúdentaráð mótmælir einnig þeim
hugmyndum að láta 30 milljónir af
happdrættisfé renna í Rannsóknar-
sjóð og í tækjakaup fyrir stofnanir
tengdar Háskólanum. Það er skoð-
un ráðsins að þetta sé í raun ekkert
annað en bein skerðing á framlög-
um til Háskólans.
í framhaldi af þessu skorar Stúd-
entaráð á þingmenn að hverfa frá
þeirri stefnu að spara ríkisframlög
til rekstrar Háskóla íslands með
því að taka af happdrættisfé. Ráðið
bendir á að húsnæðismál Háskól-
ans séu með þeim hætti í dag, að
fráleitt er að skerða byggingarfé.
Þessu til stuðnings er bent á að
starfsemi Háskólans er dreifð út
um allan bæ, víða hafa stúdentar
enga lestrar- eða rannsóknarað-
stöðu og fjöldi starfsmanna Há-
skólans er án nokkurrar skrifstofu-
aðstöðu. ssh