Tíminn - 11.11.1988, Side 20
fjjji Átján mán. bindinq V O I^IUSTa ° c>,
/ mm pi A /
RÍKISSKIP 3 7,5% ÞRÚSTUR
NÚTÍMA FLUTNINGAR Hafnarhúsinu v/Trvggvagötu, ® 28822 685060
SAMVINNUBANKINN VANIR MENN
Óveðrið á Vestfjörðum:
90 hnúta vindhraði
á ísafjarðarflugvelli
Mikill vindur gekk yfir Vestfirði í fyrrinótt og gærdag og
hlutust af því einhverjar skemmdir. Víðast hvar á Vestfjörðum
mældist veþurhæðin um 50 hnútar, eða 12 vindstig, klukkan 9.00
í gærmorgun, en þá var vindur einna mestur. Á flugvellinum á
ísafirði var flugskýli sem Flugfélagið Ernir er með í smíðum hætt
komið þegar þverbönd gáfu sig og í Mýrahreppi höfðu sjö
rafmagnsstaurar brotnað í gærkvöldi. Víða varð rafmagnslaust,
einkum norðan Mjólkárvirkjunar og þurfti að grípa til díselraf-
stöðva, þar sem hægt var, til að halda vinnslu í fiskvinnsluhúsun-
um og öðrum fyrirtækjum gangandi.
Veðurhæðin á ísafirði var sem
slík ekki mikil og hafði óveðrið
ekki leitt til neinna vandræða í
bænum sjálfum, að sögn lögreglu,
en á flugvellinum mældist allt að
90 hnúta vindur í verstu hviðun-
um í gærmorgun og var flugskýli
sem flugfélagið Ernir á ísafirði er
með í byggingu nálægt því að
falla saman. Að sögn Jónínu
Guðmundsdóttur hjá flugfélag-
inu Emi var einna mestur vindur
milli 10 og 12 í gærmorgun og fór
hann þá allt upp í 90 hnúta, en
um nóttina sagði hún að hefði
verið um 60 hnútar á flugvellin-
um. Búið var að reisa tvo útveggi
Gnúpur GK frá Grindavík
fékk tvisvar á sig brotsjó í gær-
morgun, þar sem skipið var statt
um 38 sjómílur VNV af Látra-
bjargi í svokölluðum Víkurál.
Engan í áhöfn sakaði, en miklar
skemmdir urðu á skipinu. Búist
er við því til hafnar í Reykjavík
um hádegisbil í dag.
Það var um klukkan 10 í gær-
morgun sem fyrra brotið reið yfir
skipið og fylgdi hitt brotið um
hálftíma síðar. Einir fimm glugg-
ar í brú brotnuðu í fyrsta brotinu,
auk annarrar hurðarinnar inn í
stýrishúsið. Fylltist stýrishúsið af
sjó, þannig að öll tæki í brúnni
urðu óvirk. Þá fór sjór einnig
niður í vistarverur áhafnarinnar.
I seinna brotinu urðu talsvert
á flugskýlinu, en eftir átti að setja
þakið á og gaflana. Húsið kemur
til með að verða 1100 fermetrar
að stærð og er hæð útveggja um
7 metrar, þannig að það tekur
mikinn vind á sig. Eitthvað af
sperrum, sem héldu því saman,
gáfu sig og þurfti að fá vörubíla
og gröfu til að styðja við húsið,
svovþað færi ekki, auk þess sem
eitthvað af lausum þakplötum
sem áttu að fara í bygginguna
fuku. „En það má ekki mikið
hvessa aftur, því þá er skýlið
farið,“ sagði Jónína. Inni í skýl-
inu var Twin Otter flugvél félags-
ins og sagði hún að það hefði
meiri skemmdir, en þá rifnaði af
öldubrjótur sem er framan á
skipinu og myndaðist við það gat,
auk þess sem mikil dæld kom á
bakborðssíðu skipsins, fyrir utan
fleiri skemmdir.
Heiðrún ÍS, sem var á svipuð-
um slóðum, kom fljótlega til
aðstoðar og fylgdi hún Gnúpi
áleiðis til hafnar fram eftir degi,
enda voru öll siglingartæki óvirk
og þurfti að stýra skipinu með
neyðarstýri. Um klukkan sex
kom varðskipið Týr til móts við
skipið og ætlaði það að fylgja því
það sem eftir var leiðarinnar til
Reykjavíkur. Búist er við skipun-
um til hafnar eftir hádegi í dag,
en Gnúpur gat aðeins gengið
hálfa ferð vegna skemmda.
- ABÓ
bjargað vélinni að veggirnir
hefðu verið komnir upp. „Það
hefði verið vonlaust að hafa hana
standandi á flugvellinum í þessu
veðri,“ sagði Jónína.
Gömlu línurnar í notkun
„Útsláttur á rafmagni og raf-
magnsleysi er búið að vera við-
loðandi í allan dag, það er að
segja fyrir norðan Mjóíká," sagði
Sölvi Sólbergsson hjá Orkubúi
Vestfjarða á ísafirði. Þeir staðir
sem voru alveg rafmagnslausir
voru í Mýrahrepp, í kring um
Núpsskóla við Dýrafjörð. „Það
eru sjö til átta staurar farnir á
þessum slóðum og þeir fá ekkert
rafmagn fyrr en eftir sólarhring,“
sagði Sölvi. Þá biluðu einnig
aðallínur. Aðallínan frá Mjólká
bilaði einnig og voru allar tiltækar
díselvélar keyrðar og tókst að
anna rafmagnseftirspurninni að
mestu með gamalli línu frá
Mjólkárvirkjun. „Línuflokkarnir
komust ekki til að kanna
skemmdir á aðallínunni, þannig
að hún verður að bíða þar til
veðrinu slotar," sagði Sölvi.
Línuflokkurinn ætlaði yfir Breið-
dalsheiði, en þurfti frá að hverfa
þar sem bíllinn fauk útaf, þrátt
fyrir að um 5 tonna farartæki með
drifi og keðjum á öllum hjólum
væri að ræða. Vesturlína, sem
Landsvirkjun á og liggur eftir
Barðaströndinni og að Mjólká,
sló einnig út í gærmorgun og var
að lokum tekin alfarið út.
„Málið er það að veðrið er svo
slæmt að þetta er að laskast
áfram og við vitum ekkert hvern-
ig þetta kemur til með að líta út
þegar upp verður staðið. Þetta er
allt í hers höndum sem stendur,“
sagði Sölvi.
Steinar Kristjánsson hjá Bakka
hf. á Hnífsdal sagði í samtali við
Tímann að þeir hefðu þurft að
hætta vinnslu fljótlega eftir að
rafmagnið fór að fara af í gær-
morgun. „Við kláruðum bara það
sem við vorum byrjuð á, svo það
yrði ekki ónýtt," sagði Steinar.
Napurt á Núpi
Það var setið við kertaljós og
gaseldavél, þegar Tíminn hafði
samband við Kristjönu Kjartans-
dóttur í Núpsskóla, en skammt
þar frá höfðu 7 rafmagnsstaurar
brotnað og átti hún ekki von á að
fá rafmagnið fyrr en í fyrsta lagi
stðar í dag, föstudag. Rafmagnið
fór af hjá þeim klukkan níu í
gærmorgun og sagði hún að um
það leyti hefði kennslu verið
hætt. „Maður er bara kominn í
lopapeysuna og situr við kerta-
ljós,“ sagði Kristjana. Strákarnir
fóru að hjálpa bændum í ná-
grenninu við að binda niður laus-
legt dót. Á bænum Núpi fauk
hluti af þaki gamallar hlöðu, auk
þess sem tveir gluggar brotnuðu í
skólanum og fánastöngin brotn-
aði, og girðingar losnuðu upp og
fuku af stað. „Það versta var að
helgarfrí átti að byrja hjá
krökkunum í dag, en því verður
að fresta að öllum líkindum,“
sagði Kristjana. f Núpsskóla eru
40 nemendur.
Bómukrani notaður
til að hemja hús
Á Patreksfirði fauk nýsmíðað-
ur sumarbústaður sem ekki var
búið að flytja á sinn stað. „Það
voru svo óskaplegir sviptivindar
á köflum að hann bara splundrað-
ist,“ sagði Sigursteinn Steinþórs-
son varðstjóri í lögreglunni á
Patreksfirði. „Þakiðfórinnálóð,
stoppaði þar í 5 mínútur eða svo
og hélt síðan áfram út á götu á
Aðalstrætinu."
Gripið var til þess ráðs að
keyra tvær ámokstursvélar upp á
þakið svo að ferðalag þess yrði
ekki lengra og átti ekki að hreyfa
þær fyrr en veðrinu slotaði. Þá
var skúr kominn að því að fjúka,
en gripið var til þess ráðs að láta
krana leggja bómuna ofaná
þakið, svo skúrinn færi ekki af
stað. Rafmagnið hafði farið af
annað slagið, en díselvélin var
keyrð á fullu svo athafnalífið gæti
gengið sinn vanagang.
Veðurútlit betra
f gærkvöldi hafði dregið mikið
úr vindinum og mældist hann um
40 til 45 hnútar, en eitthvað hafði
kólnað. Talið er víst að vestan-
lands verði veðrið fram til hádegis
í dag svipað og það var í gær.
Síðdegis má búast við að vindinn
lægi eitthvað norðan- og vestan-
lands, en ekki er búist við að
veðrið gangi niður fyrr en í kvöld
vestast á landinu. - ABÓ
Gnúpur GK fékk
á sig tvö brot
y-i
L •
Mörður og Silja ritstjórar?
Á blaðstjórnarfundi Þjóðviljans í
gærkvöldi, sem stóð langt fram eftir
kvöldi, var meðal annars rædd mála-
miðlun milli andstæðra fylkinga í
flokknum um það hverjir yrðu rit-
stjórar blaðsins. Málamiðlunin fólst
í því að bæði Mörður Árnason, sem
verið hefur ritstjóri um eins árs
skeið, og Silja Aðalsteinsdóttir verði
ráðin til blaðsins til hálfs árs.
Mörður er úr Ólafs armi Ragnars
Grímssonar formanns en Silju er
teflt fram af svokölluðu „flokkseig-
endafélagi". Með þessari málamiðl-
un er í raun verið að slá ágreinings-
málum á frest en áður en þessir hálfs
árs ráðningarsamningar renna út
mun varða haldinn aðalfundur í
Útgáfufélagi Þjóðviljans og ný
valdahlutföll þá hugsanlega koma
fram. Flokkseigendur hafa meiri-
hluta í núverandi stjórn. ÞegarTím-
inn fór í prentun í gær stóð blað-
stjórnarfundurinn enn yfir.