Tíminn - 16.11.1988, Side 4
4 Tíminn
'Míðvikudagur 16. nóvember
FRÁMENNTAMÁLARÁÐUNEYTINU:
Lausar stöður við
framhaldsskóla
Framhaldsskólinn á Húsavík auglýsir eftir um-
sóknum um þrjár nýjar kennarastöður á vorönn
1989.
Helstu kennslugreinar eru: stærðfræði, viðskipta-
greinar, þýska og enska.
Nánari upplýsingar veitir skólameistari í síma
96-42095. Umsóknir ásamt upplýsingum um
menntun og fyrri störf sendist menntamálaráðu-
neytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 1.
desember n.k.
Menntamálaráðuneytið
Bílaleigubílar
Tilboð óskast í leigu á bílaleigubílum til afnota fyrir
ríkisstofnanir og ríkisfyrirtæki árin 1988-1989.
Útboðslýsing er afhent á skrifstofu vorri, Borgartúni
7, Reykjavík.
Opnun tilboða fer fram á skrifstofu vorri, föstudag-
inn 25. nóvember 1988, kl. 11:00 f.h., í viðurvist
viðstaddra bjóðenda.
INNKAUPASTOFNUN RIKISINS
BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844
LEKUR : ER HEDDIÐ
BLOKKIN? SPRUNCIÐ?
Viögeröir á öllum heddum og blokkum.
Plönum hedd og blokkir — rennum ventla.
Eigum oft skiptihedd í ýmsar gerðir bifreiða.
Viðhald og viðgerðir á iðnaðarvélum — járnsmíði.
Vélsmiðja Hauks B. Guðjónssonar
Súðarvogi 34, Kænuvogsmegin —Sími 84110
Nauðungaruppboð
Nauðungaruppboð, önnur og síðari sala, fer
fram á M.S. Keflavík, skráðri eign Skipafélagsins
Víkur h.f., föstudaginn 18. nóvember 1988 kl.
14:00 á skrifstofu uppboðshaldara, Ránarbraut 1,
Vík í Mýrdal.
Uppboðsbeiðendur eru Lífeyrissjóður sjómanna,
Landsbanki íslandsog innheimtumaðurríkissjóðs.
Sýslumaðurinn í Vestur-Skaftafellssýslu,
Einar Oddsson
t
Viö þökkum auðsýnda samúö og vinarhug viö andlát og útför
Guðlaugar Sigmundsdóttur
frá Gunnhildargerði
Inga M. Langholt
Ragnhildur Pétursdóttur
EinarPétursson
Rós Pétursdóttir
Bryndís Pétursdóttir
Margrét Þorvaldsdóttir
Þórey Sævar Sigurbjörnsdóttir
börn og barnabörn
Benedikt Langholt
Ásmundur Matthíasson
Sigríður Karlsdóttir
Magnús J.Jóhannsson
örn Eirjksson
Breyttar reglur varðandi dráttarvaxtaútreikning:
DRÁTTARVEXTIR
0RDNIR BETRIEN
YFIRDRÁTTUR
Mörg fyrirtæki jafnt sem einstakl-
ingar nýta sér þá þjónustu bankanna
sem yfirdráttarheimild á hlaupa-
reikningum er. Fyrir þessa þjónustu
þurfa menn að borga og svo virðist
sem það geti borgað sig að greiða
heldur dráttarvexti af skuldum, geti
menn ekki greitt á gjalddaga, heldur
en að greiða þær með peningum sem
fengnir eru með yfirdráttarheimild.
Þetta er þó alls ekki algilt heldur á
þetta við í þeim tilfellum þar sem
yfirdráttarheimild er aðeins nýtt að
hluta til. Það borgar sig sem sé
frekar að nýta heimildina til fulls en
að nýta hana aðeins að hluta til.
Ef maður hefur til dæmis heimild
til yfirdráttar en nýtir þá heimild
ekki nema að 70% má segja að hann
sé að greiða um 28,7% í vexti.
Þannig að sé yfirdráttarheimild á
annað borð til staðar, borgar sig að
fullnýta hana sé litið til vaxtaútreikn-
ings í prósentum.
Dráttarvextir á mánuði eru nú
27,6% þannig að sé um stórar upp-
hæðir að ræða getur það munað
töluverðu hvort um er að ræða
greiðslu dráttarvaxta eða vaxta af
yfirdrætti. Sé dæmið sett upp þannig
að heimild til yfirdráttar hljóði upp
á 1.000.000 kr., en aðeins sé um
70% nýtingu að ræða gera það
700.000 kr.. Miðað við fyrrgreinda
útreikninga þarf þá að borga 28,7%
vexti af þeirri upphæð eða 200.900
kr. Ef hinsvegar venjulegir dráttar-
vextir væru greiddir af þessari upp-
hæð í einn mánuð yrði upphæðin kr.
193.200, mismunurinn kr. 7.700.
Auglýstir meðaltalsvextir af yfir-
drætti á hlaupareikningum munu þó
ekki vera nema 20.1% en mismunur-
inn kemur meðal annars til af því að
heimildin er aðeins nýtt að hluta til.
áma
Úr sjónleiknum um Sigríði og Indriða. F.v.: Ásdís B. Geirdal, sem Jóna,
Jóhannes Steinsson sem leikur Línu og Gísli Sverrísson I hlutverki
Jóhannesar.
Ungmennafélagið íslendingur í Borgarfirði
Indriði og Sigríður
á fjölunum í Brún
Síðastliðinn laugardag frum-
sýndi Leikhópur Ungmennafélags-
ins íslendings í Borgarfirði, sjón-
leikinn „Um hið átakanlega og
dularfulia hvarf ungu brúðhjón-
anna Indriða og Sigríðar daginn
eftir brúðkaupið og leitina að
þeim“.
Leikritið, sem sýnt er í Félags-
heimilinu Brún í Bæjarsveit, segir
m.a. frá lífinu í sveitinni á gaman-
saman og einlægan hátt, leitin
stendur sem hæst og ástin
blómstrar...
Höfundar eru Hjördís og Ingi-
björg Hjartardætur, Sigrún Ósk-
arsdóttir og Unnur Guttormsdótt-
ir. Leikstjóri er Hákon Waage,
leikendur eru 17 og 30 manns unnu
við uppfærsluna.
Softver hugbúnaðarfyrirtækið gjaldþrota í gær:
Þekking hf.
annast ALLT
hugbúnað núna
Stjórn Softvers, sem er fyrirtæki
er framleitt hefur ALLT hugbúnað,
lagði í gær inn beiðni um gjaldþrota-
skipti hjá skiptaráðanda í Reykja-
vík.
Tíminn greindi frá því í frétt sl.
laugardag að fyrirtækið ætti í alvar-
legum rekstrarerfiðleikum meðal
annars vegna gjaldþrota nokkurra
viðskiptavina Softvers.
Softveri hefur nú verið lokað og
rödd í símsvara segir að Þekking hf.
annist þjónustu við notendur ALLT
hugbúnaðar.
Framkvæmdastjóri Þekkingar hf.
er Páll Pétursson en hann var einnig
framkvæmdastjóri Softvers. - sá
Félagatal FR
komið út
Félagatal Félags farstöðvaeigenda
fyrir árið 1988 er komið út. „Reglu-
gerð um starfrækslu almenningstal-
stöðva í 27 MHz tíðnisviðinu", er
nýjung í félagatalinu, og var hún
gefin út af samgönguráðuneytinu,
þann. 2. janúar 1987.
Undirbúningur fyrir félagatal
næsta árs hófst s.l. sumar, og munu
breytingar aðallega verða á síma-
númerum á svæðum 98 og 99.
Þá er í félagatalinu notendaskrá
ásamt skrá yfir hand- og sjálfvirka
farsímanotendur. elk.
Alíslenskt
fyrirtæki
Tímanum hefur boríst eftirfarandi
erindi frá VISA Islandi:
„Athugasemd vegna villandi
frétta um SAMKORT, „fyrsta alís-
lenska greiðslukortið".
f fréttatilkynningum um hið nýja
greiðslukort samvinnuhreyfingar-
innar „SAMKORT" nú undanfarið
er ranglega haldið fram að hér sé um
fyrsta og eina alíslenska greiðslu-
kortið að ræða.
Af því tilefni óskast skýrt tekið
fram af hálfu VISA íslands -
Greiðslumiðlunar hf. að það fyrir-
tæki er í fullri eigu innlendra pen-
ingastofnana eða um 83% banka-
kerfisins. Alls eru hluthafar 25, 5
bankar og 20 sparisjóðir. Einstakl-
ingar eiga þó einnig óbeina aðild að
fyrirtækinu, sem hluthafar í Alþýðu-
bankanum hf., Iðnaðarbanka ís-
lands hf. eða Samvinnubanka ís-
lands hf., og eins þjóðin öll, þar sem
ríkisbankamir tveir, Búnaðarbanki
íslands og Landsbanki íslands, eru
stærstu eignaraðilar VISA jslands.
VISA-greiðslukortin em öll gefin
út á nafni viðkomandi banka og
sparisjóða, en bera jafnframt VISA-
merkið, sem gerir þau gjaldgeng um
heim allan.
VISA ísland á aðild að VISA
International fyrir hönd eignaraðila
sinna en ekki öfugt.
Hvað árgjald og stofngjald SAM-
KORTS áhrærir væri allt annað
óeðlilegt en að það væri mun lægra
en þeirra korta, sem gilda á yfir 4000
stöðum hérlendis og 6 milljón stöð-
um erlendis, þar sem gildi þess er
jafn takmarkað nú í upphafi sem
raun ber vitni.
Tilkoma SAMKORTS er fram-
faraspor og fagnaðarefni."
Virðingarfyllst,
Einar S. Einarsson,
framkvæmdastjórí VISA