Tíminn - 10.12.1988, Qupperneq 17
Laugardagur 10. desember 1988
Tíminn 17
ÚTLÖND
llllllllll!
illllllli!
111
Bandaríkin og Evrópubandalagið ná ekki samkomulegi um landbúnaðarvörur:
Viðskiptastríð
í uppsiglingu?
Viðsldptastríð gæti nú verið í
uppsiglingu milli Bandaríkjanna og
Evrópubandalagsins eftir að ekki
náðist samkomulag um innflutning á
bandarískum landbúnaðarvörum til
Evrópu, en viðræður milli þessara
aðila sigldu í strand í Montreal í gær.
Richard Lynch landbúnaðarráð-
herra Bandaríkjanna sagði eftir dag-
langar viðræður bak við luktar dyr
að hann teldi ekki nokkum mögu-
leika á að samkomulag myndi nást.
Ljóst er að hvorki yfirvöld í Was-
hington né í Brussel eru tilbúin að
gefa eftir í viðræðunum sem sigldu
fyrst í strand í síðustu viku, en
fundurinn í gær var haldinn vegna
þrýstings frá Brasilíumönnum og
Argentínumönnum.
Bandaríkjamenn krefjast þess að
Evrópubandalagið falli frá öllum
viðskiptahömlum á landbúnaðaraf-
urðir utan Evrópu, en á það getur
Evrópubandalagið ekki failist, enda
Engisprettu-
flugvél
skotin niður
myndi það leggja afkomu tíu milljón
bænda í Evrópu í rúst. Ein sú
hindrun sem mest fer í taugarnar á
Bandaríkjamönnum er bann Evr-
ópubandalagsins á kjöti af dýrum
sem gefin hafa verið hormónalyf í
fóðri. Það kemur illa við Banda-
ríkjamenn sem leyfa, reyndar tak-
markað, hormónagjöf til að fá vænni
„sauði“ úr nautum og fiðurfé.
Ríki sem reiða sig mjög á fram-
leiðslu landbúnaðarafurða, eins og
til dæmis Argentína, Brasilía, Kan-
ada og Ástralía eru mjög uggandi
með framhald þessara mála, því ef
bæði Bandaríkjamenn og Evrópu-
bandalagið fara að slá um sig of
harkalegum tollum á Iandbúnaðar-
vörur, þá er afkoma þeirra í hættu.
DAGVI8T BARIVA
Fóstrur, þroska-
þjálfar, áhugasamt
starfsfólk!
Dagvist barna, Reykjavík, óskar eftir starfsfólki
í gefandi störf á góðum vinnustöðum.
Til greina koma hlutastörf bæði fyrir og eftir
hádegi. Upplýsingar veita forstöðumenn eftirtal-
inna dagvistarheimila og skrifstofa Dagvistar
barna, sími 27277.
Austurbær
Brákarborg við Brákarsund s. 34748
EfriHlíð viðStigahlíð s. 83560
Breiðholt
Hálsaborg Hálsaseli s. 78360
Vesturbær - Miðbær
Ægisborg Ægisíðu104 s. 14810
Vesturborg Hagamel 55 s. 22438
Grandaborg við Boðagranda s. 621855
Fimm Bandaríkjamenn fórust er
flugvél þeirra var skotin niður yfir
Vestur-Sahara á fimmtudaginn.
Flugvélin yar á vegum bandarískrar
hjálparstofnunar sem er að berjast
gegn engisprettuplágunni sem þar
hefur tröllriðið öllu og var hún á
leiðinni að úða skordýraeitri yfir
akra Norður-Afríkubúa.
Önnur engisprettuflugvél var í
fylgd vélarinnar sem skotin var niður
og náði hún að lenda heilu og
höldnu. Flugvélarnar voru á leið frá
Dakar í Senegal til Agadir í Mar-
okko, en á þessum slóðum gerði
engisprettufaraldur gífurlegan usla
síðastliðið sumar.
4
Á W w
* # P miin m '
i
ALVEG SKÍNANDI
UUrAMoF
FERÐAR
VERÐBREYTINGAR-
STUÐULL
FYRIRÁRÐ 1988
Samkvæmt ákvæðum 26. gr. laga nr. 7514. september 1981 um
tekjuskatt og eignarskatt hefur ríkisskattstjóri reiknað
verðbreytingarstuðul fyrir árið 1988
og nemur hann 1,1848 miðað við 1 ,CX)00 á árinu 1987.
Reykjavík 7. desember 1988
RSK
RlKISSKATTSTJÓRI
I bókinni „Ævintýri
barnanna“, eru
24 sígild ævintýri prýdd
fallegum myndum.
Þetta eru ævintýrin um
sætabrauösdrenginn,
þrjá birni, Rauðhettu,
kiölingana sjö, þrjá litla
grísi og fleiri
góðkunnar ævintýra-
hetjur.
Þetta eru ævintýrin
sem börnin vilja lesa
aftur og aftur.
-TfT.
‘s'/
■ VA'
Vel valdir smáhlutir setja punktinn yfir i-ið í eldhúsinu og á baðinu,
handklæði, baðáhöld, eldhúsáhöld, glös, hnífapör, pottar, pönnur, katlar...
...spennandi og vandaðir munir með stíl.
Líttu inn!
FAXAFENI5, SlMI 68 56 80
(SKEIFUNNI)