Tíminn - 10.12.1988, Page 20
20 Tíminn
Laugardagur 10. desember 1988
HÚSNÆDISSTOFWUW RÍKISIWS
TÆKNIDEILD
Útboó
Nefnd sú sem sér um byggingu almennra kaup-
leiguíbúða í Miðneshreppi óskar eftir tilboðum í
byggingu eins parhúss, einnar hæðar byggðu úr
timbri, verk nr. U.05.03, úr teikningasafni tækni-
deildar Húsnæðisstofnunar ríkisins.
Brúttóflatarmál húss 191m2.
Brúttórúmmál húss 670 m3.
Húsið verður byggt við götuna Ásabraut nr. 3a
Sandgerði og skal skila fullfrágengnu, sbr. útboðs-
gögn.
Afhending útboðsgagna er á skrifstofu Miðnes-
hrepps, Tjarnargötu 4, Miðneshreppi, og hjá
tæknideild Húsnæðisstofnunarríkisins, Laugavegi
77, Reykjavík, frá þriðjudeginum, 13. desember
1988, gegn kr. 10.000,00 skilatryggingu.
Tilboðum skal skilað á sömu staði eigi síðar en
fimmtudaginn 29. desember 1988 kl. 11.00 og
verða þau þá opnuð að viðstöddum bjóðendum.
F.h. bygginganefndar kaupleiguíbúða,
tæknideild Húsnæðisstofnunar ríkisins
n, HUSNÆÐISSTOFNUN
[M2 ríkisins
LAUGAVEGI77101 REYKJAVÍK SÍMI 696900
'ú
Hvammstangi
Til sölu er helmingur húseignarinnar að Brekku-
götu 2 á Hvammstanga. Um er að ræða neðri hæð
og kjallara gamla verslunarhúss Sigurðar Pálma-
sonar á staðnum, samtals um 300 fermetra að
grunnfleti brúttó.
Húsið stendur á sjávarlóð í hjarta bæjarins og er
tilvalið fyrir verslunarrekstur, skrifstofustarfsemi
eða til íbúðar eða félagsstarfsemi.
Tilboðum í eignina skal skila fyrir kl. 12.00 á
hádegi föstudaginn 30. desember 1988 til undirrit-
aðs skiptastjóra sem jafnframt veitir nánari upplýs-
ingar.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði sem er
eða hafna öllum. Jafnframt er áskilinn réttur til að
ganga til nánari samninga við hvaða tilboðsgjafa
sem er.
Guðmundur Arnaldsson, skiptastjóri þrotabús
Verslunar Sigurðar Páimasonar hf. Pósthólf
977,121 Reykjavík, sími: 91-641458.
Fóðuefræðingur
Staða sérfræðings á Rannsóknastofnun landbúnaðar-
ins, bútæknideild á Hvanneyri, er laus til umsóknar.
Upplýsingar um starfið veitir Þorsteinn Tómasson,
forstjóri, s. 91-82230 og Grétar Einarsson, deildarstjóri,
s. 93-70000.
Umsóknir um starfið ásamt gögnum skulu berast
landbúnaðarráðuneyti eigi síðar en 31. desember.
Landbúnaðarráðuneytið, 7. desember 1988.
llllllllllllllllllil
BÆKUR
Ljóðrænar sögur
Gyrðir Eliasson:
Bréfbátarigningin,
Mál og menning, 1988.
Gyrðir Elíasson vakti framan af
fyrst og fremst á sér athygli fyrir ,
frumlega ljóðagáfu, en núna sendir
hann frá sér sína aðra sögubók. Eins
og menn kannski muna kom sú
fyrsta í fyrra og hét Gangandi íkomi.
f>að var skáldsaga, en Bréfbátarign-
ingin hefur áð geyma fjórar tengdar
smásögur. Og skyldleikinn á milli
þessara tveggja bóka leynir sér ekki,
a.m.k. að þvf er stíl og framsetningu
varðar.
Hér líkt og þar er helsta einkenni
frásagnarinnar það að sagt er frá
atburðum sem máski gerast fullt eins
mikið í draumi og í hinum daglega
veruleika. Fyrir vikið verður líkt og
einhvers konar Ijúfur ævintýrablær
yfir öllu efninu, en við lestur leynist
þó ekki að stíllinn og frásagnarhátt-
urinn eru með svo öguðum hætti að
ekki fer á milli mála að hér eru á
ferðinni verk sem taka verður alvar-
lega sem fullgildan skáldskap. Líka
er Ijóst að þessar sögur eiga margt
sameiginlegt með Ijóðinu og formi
þess, þó ekki væri nema það að lýsa
innhverfum og draumkenndum
myndum, með áherslu á sálarlífi
persónanna.
Ekki verður annað sagt en að í
sögunum fjórum í Bréfbátarigning-
unni sé komið allvíða við. Bókin
hefst á sögu sem lýsir gömlum ein-
búabónda í sveit, og lítilli telpu sem
dvelst hjá honum yfir sumario. Nefn-
ast þau Axel og Heiða, en telpan
deyr af slysförum í sögulok. í næstu
sögu er svo vikið að ungum dreng í
þorpi úti á landi, Friðrik Isaksson
heitir hann, og lýst lífinu á heimilinu
þar sem hann býr einbirni með
foreldrum sínum. Þar kemúr einnig
í ljós að tengingin við söguna á
undan felst í því að hann hefur
heimsótt bóndann og telpuna ásamt
föður sínum, sem getið er um þar.
í þriðju sögunni kemur svo til
Gyrðir Ellasson rithöfundur.
sögunnar ævintýralegur maður sem
hefur smíðað sér vængi og flýgur á
þeim um þorpið heima hjá sér eftir
að kvöldsett er orðið. Þar kemur
Friðrik aftur til sögunnar, því að
vængmaðurinn, sem svo er hér
nefndur, fylgist náið með honum og
endar með því að gefa honum vængi
sína. Er hann þar með úr sögunni og
vængirnir sömuleiðis. í síðustu sög-
unni er Friðrik svo orðinn uppkom-
inn og dvelst í fríi ásamt Margréti
unnustu sinni í sumarhúsi í Dan-
mörku. Gerist þar enn ýmislegt
forvitnilegt og undarlegar persónur
koma inn í söguna.
Hér er þannig ekki hægt að segja
að stórir eða miklir atburðir eigi sér
stað, og um átakamikla sögufléttu í
þessum fjórum sögum er hér ekki að
ræða. Þetta eru miklu fremur sam-
stæðar kyrralífsmyndir, sem sama
persónan tengir saman bókina í
gegn.
En þó hygg ég að ekki fari á milli
mála að áhrifamesti hluti bókarinnar
séu fyrstu tvær sögurnar, og þar með
lýsingar höfundar á börnunum
tveimur, telpunni Heiðu og drengn-
um Friðrik, ásamt leikjum þeirra og
draumum. Líka er lýsingin á Axel
býsna glögg þarna, svo og myndin af
hundi hans er heitir því stóra nafni
Tycho Brahe.
í þriðju sögunni er myndin af
vængmanninum vissulega einnig
forvitnileg, en þó full loftkennd til
þess að verulegt bragð sé að. Sú
spurning vaknar óneitanlega þarna
hvort hann sé bókmenntalegt tákn
einhvers konar, en tæplega er þó
nógu ljóst fyrir hvað. Á hann
kannski að standa fyrir gamlan
draum mannkynsins um að lyfta sér
frá jörðunni og fljúga um himin-
hvolfin líkt og fuglarnir? Eða
kannski fyrir tilraunir einstæðinga til
þess að komast í samband við annað
fólk? Eða er hann máski framliðinn
maður sem eigrar um á nóttunni?
Þetta er eiginlega ekki nógu vel ljóst
af bókinni.
Síðasta sagan má svo aftur á móti
þykja veikasti þáttur bókarinnar. Pá
er bernskunni lokið og alvara lífsins
tekin við hjá Friðrik. Þar er vikið að
ýmsu sem snertir samband full-
þroska karls og konu, en full lítið úr
því unnið. Ljóst er að einhvers
konar brestur verður þarna í sam-
bandi hans og Margrétar, en hversu
djúpstæður hann er, hverjar eru
ástæður hans og til hvers hann leiðir
eru allt spurningar sem þarna er ekki
svarað.
En hér líkt og í fyrra er þó meira
en ljóst að Gyrðir Elíasson er að
gera forvitnilegar tilraunir með frá-
sagnir í lausu máli sem engum dylst
að áhugavert er að fylgjast með.
Trúlega er vænlegast til árangurs að
reyna að lýsa þessum verkum hans
þannig að hann sé að þreifa sig
áfram með að tengja saman ljóð og
sögur, skrifa ljóðrænar sögur þar
sem draumheimur ljóðsins taki völd-
in af hörðu raunsæi skáldsögunnar.
Af slíkum tilraunum hafa hérlendir
höfundar ekki gert mikið. Þess
vegna er gaman að fylgjast með
hérna. -esig
y*vVERKAMANNABÚSTAÐIR
TVOrí REYKJAVÍK
Stjórn verkamannabústaða í Reykjavík óskar eftir umsóknum
um kaup á íbúðum sem áætlað er að komi til afhendingar frá
miðju ári 1989 til jafnlengdar 1990.
Um er að ræða bæði nýjar og notaðar íbúðir. Um ráðstöfun, verð
og greiðsluskilmála þessara íbúða gilda lög nr. 60/1984.
Umsóknareyðublöð verða afhent áftskrifstofu V.B. Suðurlandsbraut
30, og verða þar einnig veittar allar almennar upplýsingar.
Skrifstofan er opin mánudaga - föstudaga kl. 9-12 og 13-16.
Umsóknum skal skila eigi síðar en 10. jan. 1989.
Stjófh verkamannabústaða í Reykjavík