Tíminn - 10.12.1988, Blaðsíða 28
RÍKISSKIP
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Hafnarhúsinu v/Tryggvagötu,
S 28822
SAIVIVINNUBANKINN
,^|BIL4St00
ÞRÖSTUR
685060
VANIR MENN
Kjörvextir, sem ekki eru notaðir, felldir úr útreikningum Seðlabankans:
±
\ n A .1 r r r-
w ’AI A > 1
Seðlabanki íslands hefur neyðst til að endurskoða
reglur sínar um útreikninga á meðaltalsvöxtum viðskipta
bankanna, vegna þess að grunur leikur á að lítið sem
ekkert sé lánað út á svokölluðum kjörvöxtum, sem eru
vextir með minnsta álagi.
Markmiðið með kjörvöxtum
hefur verið að geta boðið sérstak-
lega góðum viðskiptavinum upp
á betri kjör en gengur og gerist
og því eru þessir vextir lægri á
útlánum til þessa hóps, en flestir
viðskiptavinir hafa á hinn bóginn
fengið lán sín með mismunandi
háu álagi á kjörvexti. Samkvæmt
öruggum heimildum Tímans hef-
ur Seðlabankinn nú neyðst til að
taka ekki tillit til þessara lágu
kjörvaxta í töflum hjá Verslunar-
bankanum og Samvinnubankan-
um þar sem talið er að lítið sem
ekkert sé lánað út á kjörvöxtum
með lægsta álagi í þessum fyrir-
tækjum.
Hjá Seðlabankanum fengust
þær upplýsingar að lítil breyting
til lækkunar verður á vaxtatöflum
viðskiptabankanna eftir helgi, en
á morgun, sunnudag 11. desem-
ber, er hefðbundinn vaxtabreyt-
ingardagur. f gær hafði peninga-
deild Seðlabanka ekki fengið til-
kynningar annarra viðskipta-
banka en Landsbankans um
vaxtabreytingar, enda tilkynntu
flestir bankar fyrirhugaðar breyt-
ingar fyrir 1. desember sl.
Hins vegar hefur Seðlabankinn
ákveðið að taka nú tillit til þess
við útreikninga á meðalvöxtum,
hve mikið er lánað út á tilteknum
vöxtum. T.d. eru kjörvextir
óverðtryggðra skuldabréfa hjá
Verslunarbanka með lægsta álagi
11,75%. Næsti álagsflokkur fyrir
ofan ber 12,5% vexti en flokkur
með hæsta álagi á kjörvexti ber
14,75% vexti. Það getur því verið
mikill munur á meðaltalsútreikn-
ingum ef ekki er lengur tekið tillit
til kjörvaxta með lægsta álagi. Þá
tekur Seðlabanki einnig tillit til
eldri skuldabréfa sem bera áfram
12,2% vexti.
Niðurstaðan verður sú að vegið
meðaltal útlánsvaxta hefur hækk-
að í þessum nýju útreikningum
Seðlabankans í útlánaflokkum.
T.d. bera skuldabréf með verð-
tryggingu nú 8,0% meðaltals-
vexti, en ekki 7,75% eins og
reiknað hafði verið með. Þá er
vegið meðaltal óverðtryggðra
skuldabréfaeftirhelgi um 12,2%.
Axel Pálmason í peningadeild-
inni sagði að menn þyrftu að líta
á mál þessi með svolítilli vark-
árni, en þó sérstaklega varðandi
útreikniiiga á meðaltali raun-
vaxta. „Það er ákaflega erfitt að
áætla raunvexti vegna þess að
erfitt er að segja nákvæmlega til
um hver verðbólgan er í raun og
veru,“ sagði Axel. KB
í hættu?
Neytendasamtökin deila á bókaútgefendur:
Frumhlaup af hálfu
Neytendasamtakanna
Tímanum barst í gær fréttatil-
kynning frá Neytendasamtökunum
þar sem segir m.a.:
„Athygli Neytendasamtakanna
hefur verið vakin á því að nokkur
stærri bókaforlaganna ,'áta binda inn
bækur með hörðum kili á þann hátt
að í stað þess að sauma kjölinn er
hann eingöngu Ifmdur.
Kiljur (pocketbækur) eru bundnar
'inn á þennan hátt, en límingin er
ekki eins sterk á bókum með hörðum
kili og vilja blaðsíður því losna. Þar
með er bókin ekki sú varanlega eign
sem flestir hyggja. Sá annmarki er
einnig á þessu að vilji fólk binda
slíka bók inn síðar er það ekki
hægt“.
Þá eru í tilkynningunni tínd til
nokkur þau bókaforlög sem sögð
eru hafa látið binda inn bækur sínar
á þennan hátt. Þau eru: Iðunn,
Vaka-Helgafell, Mál og menning og
Almenna bókafélagið.
Tíminn hafði samband við útgef-
endur í gær og sagði Jón Karlsson
hjá Iðunni m.a.:
„Þessi tilkynning er ótrúleg enda-
leysa. Þessir aðilar ræddu við okkur
og ég svaraði því til að það væri hjá
okkur rétt eins og allsstaðar í heim-
inum að ákveðnar bækur væru unnar
á þennan hátt. Það er t.d. svo að
víða er ekki unnið öðruvísi en með
þessum hætti.
Þessi aðferð felst ekki bara í því
að líma bækurnar. Það er allur
kjölurinn fræstur upp og lím sett í
hann. Við leggjum mikið upp úr því
að hlutirnir séu í lagi enda fengjum
við bækurnar fljótt í hausinn annars.
Þannig að þessi athugasemd er al-
deilis fráleit.
Prentsmiðjan Oddi gerði á sínum
tíma fjölda kannana fyrir okkur á
því hvort þessi aðferð kæmi verr út
en sú gamla. Það reyndist alls ekki
vera svo. Það segir reyndar sína
sögu að svo vandað fyrirtæki skuli
vinna bækur á þennan hátt. Þeir
mundu aldrei gera það væri það ekki
í fullkomnu lagi.
Þessi aðferð er auk þess ódýrari
þannig að þarna er um að ræða
viðleitni til að lækka bókaverð til
neytenda.
Þessi fréttatilkynning er hreint
frumhlaup af hálfu Neytendasam-
takanna og ekkert annað."
Ólafur Ragnarsson hjá bókafor-
laginu Vaka-Helgafell tók í öllum
aðalatriðum undir það sem Jón
Karlsson segir hér að framan en
bætti einnig eftirfarandi við:
„Við höfum ekki fengið eina ein-
ustu kvörtun út af bókum sem unnar
eru á þennan hátt.“ -áma
Bráðabirgðalögin
Bráðabirgðalög ríkisstjórnarinnar
voru til umræðu í efri deild Alþingis
í gær. Meirihluti fjárhags- og við-
skiptanefndar deildarinnar skilaði
áliti þar sem Margrét Frímannsdóttir
fulltrúi Alþýðubandalagsins gerði
fyrirvara um samþykki þeirra greina
frumvarpsins er eftir standa óbreytt-
ar frá því í maí s.l. Sjálfstæðismenn
hafa lýst því yfir að þeir muni ekki
styðja bráðabirgðalögin. Þá hlýtur
sú spurning að vakna hvort stjórnað
hafi verið s.l. þrjá mánuði eftir
bráðabirgðalögum sem ekki hafa
méirihluta á Alþingi.
Bráðabirgðalögin voru upphaf-
lega sett í tíð ríkisstjórnar Þorsteins
Pálssonar í maí á þessu ári. Síðan
hefur þeim tvívegis verið breytt.
Fyrst lítillega í lok maí og síðan í
september er ný ríkisstjórn tók við
völdum. Þá voru gerðar verulegar
breytingar á lögunum og eru þannig
einungis fáargreinar upphaflegu lag-
anna í gildi. Þeirra á meðal eru
afnám samningsréttar og frysting
launa. Þessa liði getur Margrét ekki
sætt sig við og mun hún og ef til vill
fleiri þingmenn Alþýðubandalags-
ins, ekki styðja bráðabirgðalögin ef
þessir liðir eru inni í þeim. Þá hafa
sjálfstæðismenn líka skipt um skoð-
un frá því að þeir stóðu sjálfir að
setningu bráðabirgðalaganna og eru
nú á móti verðstöðvun og launafryst-
ingu. Þar með er meirihluti fyrir
bráðabirgðalögunum ekki fyrir
hendi í efri deild, að minnsta kosti
ekki í óbreyttri mynd. Ekki getur
talist líklegt að hann sé heldur fyrir
hendi í neðri deild þingsins þar sem
stjórnin hefur ekki meirihluta í
henni og engar líkur á að Kvennalisti
eða Borgaraflokkur styðji frumvarp-
ið óbreytt.
Þetta mun varla til þess fallið að
flýta afgreiðslu mála á þingi, þar sem
ljóst er að breyti Margrét Frímanns-
dóttir ekki afstöðu sinni, verður að
breyta bráðabirgðalögunum
sjálfum. Þurfi að afnema frystingu
verðlags og launa er það grundvall-
arbreyting á stefnu ríkisstjórnarinn-
ar í efnahagsmálum. Ef farið verður
inn á þá braut mun sú vinna væntan-
lega taka 'nokkurn tíma, jafnhliða
því að verá veruleg ógnun við fast-
gengisstefnuna. -ág