Tíminn - 15.12.1988, Blaðsíða 2
CöOr. -iSMWmíOft&'.íí tupeL'irr.ríi^
t' iTtTi (
. * ni i } r j i v i
2 Tíminn
» <« «u t.». »•
T.T.T."*.
»».»:»’*»-»•.» ».* * « ■».-*Jr.» * » * « m
Fimmtudagur 15. desember 1988
Mjög hvasst var á Hellisheiði í gær. Rútur fóru í hægagangi og langferðabflar tóku sér pásu við Litlu kaffístofuna. Ekki var hálka í gær. En hefði svo verið hefði mátt búast við mörgum utan
vegar. Tímamynd Pjetur
Hellisheiðin fjölfarin sem Laugavegurinn:
Okumenn í sífelldri
baráttu við hálkuna
Bílar sem fara um Hellisheiðina á degi hverjum verða sífellt
fleiri. Nú eru hátt í fímm þúsund bfíar sem aka „Laugaveginn“
á Hellisheiði. Bílstjórar sem aka þessa leið til og frá vinnu í
austur eða vestur segja að þrátt fyrir að tið hafí verið góð í
haust og vetur hafí oft mátt líta bíla utan vegar, bæði á
hjólunum og á hvolfi. Nokkrir þeirra sem fara Þrengslin hafa
einnig kvartað og þar telja menn að gera verði breytingar á
veginum, breikka hann og gera öruggari.
Hálka hefur nokkrum sinnum ver- að hliðarvindur er lengst af, þegar
ið á heiðinni og vildi einn bílstjóri
sem Tíminn talaði við í gær orða það
sem svo að bílar væru oft eins og
hráviði utan vegar. Hálkan ein og
sér á heiðinni er ekki það versta.
Áttir blása oftast þannig á heiðinni
ekið er til austurs eða vesturs. Við
slíkar aðstæður getur verið erfitt að
halda bílum á veginum og sérstakir
kaflar eru varhugaverðir.
Þá er rétt að geta þess að slys á
fólki og dauðaslys hafa verið tíð á
Samningar að takast milli stjórna Hraðfrystihúss
Keflavíkur og Fiskiðjunnar á Sauðárkróki:
HKsamþykkir
skipaskiptin
hinni miklu umferðaræð sem Hellis-
heiðin er, síðustu ár.
„Ég get nú ekki merkt að slysin
verði frekar á einum stað eða öðrum
á Hellisheiðinni og í Svínahrauninu,
vegna hálku,“ sagði Jón Guðmunds-
son yfirlögregluþjónn á Selfossi í
samtali við Tímann.
„Hálkan leggst mjög misjafnlega
yfir, stundum er mikil hálka á Hellis-
heiðinni, en engin í Svínahrauninu
og svo öfugt. Það getur verið mikil
hálka í miðjum Kömbum, en engin
efst,“ sagði Jón. Hann sagði að ekki
hefði borið eins mikið á slysum og
útafakstri á heiðinni á þessum vetri,
enda hefði tíðarfarið verið einstak-
lega gott. „Það hefur verið töluvert
um útafakstur, en lítið um alvarleg
slys á fólki.“ Jón sagði að vegakant-
arnir ættu líka sinn þátt í að draga
úr slysum á fólki, þar sem þeir væru
breiðirog aflíðandi, a.m.k. áflestum
stöðum og bílar yltu yfirleitt ekki
þegar ekið væri útaf.
„Ég verð að gefa Vegagerðinni
ákaflega góða einkunn við eftirlit
með hálku og ófærð á þessum vegi
og þeir eru fljótir að bregðast við ef
það gerir hálku. Veður eru hins
vegar fljót að breytast hérna, eins og
allir vita, þannig að erfitt getur verið
að eiga við þetta,“ sagði Jón.
Ómar Smári Ármannsson upplýs-
ingafulltrúi lögreglunnar í Reykja-
vík sagði í samtali við Tírnann að á
þeirra svæði, sem nær upp að Litlu
kaffistofunni, yrðu alvarlegri slysin
á kaflanum frá Lögbergi austur að
Rauðavatni, þrátt fyrir að hann sé
ekki mjög hátt uppi og vegurinn
beinn.
Á degi hverjum fara að jafnaði
um 4800 bílar þessa leið, samkvæmt
téljara sem staðsettur er við Geit-
háls. Vegna þessarar miklu umferð-
ar hafa menn verið að velta því fyrir
sér hvers vegna eingöngu er notaður
sandur til hálkueyðingar á þessari
leið, en ekki salt.
Samkvæmt upplýsingum sem
fengust hjá Vegagerðinni, er fyrir-
komulag með eftirliti á veginum
þannig háttað að alltaf er farið í
eftirlitsferð ef hald manna er að
hálka eða ófærð sé á veginum.
Vegurinn er sandborinn á heiðinni,
þar sem þurfa þykir og niður Kamba,
en næst Reykjavík er hann saltbor-
inn, þ.e. þar sem malbik er. Að sögn
vegagerðarmanna er verra að nota
saltið á olíumöl og klæðningu, þar
sem það étur út frá sér, þannig að
sandurinn er notaður þar sem salt
má ekki fara. Sandurinn sem borinn
er á, er hitaður upp, þannig að þegar
honum er dreift þá bræðir hann efsta
lagið, síðan frýs og þá situr sandur-
inn fastur og við það dregur úr
hálku.
Stjórn Hraðfrystihúss Keflavíkur
samþykkti fyrir sitt leyti skipaskipti
við Fiskiðju Sauðárkróks og Útgerð-
arfélag Skagfirðinga, síðdegis í gær.
Búist er við að stjórnir skagfirsku
fyrirtækjanna taki ákvörðun síðar í
vikunni. Aðilar fyrirtækjanna hafa
undanfarnar vikur unnið að því að
koma þessum skiptum í kring.
„Formlega hafa skipaskiptjn ekki
farið fram, en efnislega er staða
málsins þannig að stjórn HK er búin
að samþykkja þessi skipaskipti og
ganga frá þeim fyrir sitt leyti og
síðan eiga stjórnir Fiskiðju Sauðár-
króks og Útgerðarfélags Skagfirð-
inga eftir að afgreiða málið frá sér,
sem ég á von á að verði næstu daga,“
sagði Ólafur Jónsson varaformaður
stjórnar HK í samtali við Tímann.
Samkvæmt samningnum kaupa
Skagfirðingarnir togarana Aðalvík
og Bergvík fyrir 375 milljónir króna
og Hraðfrystihús Keflavíkur kaupir
Drangey af Skagfirðingunum á 300
milljónir. Stefnt er að því að skiptin
fari fram unt áramótin.
Ólafur sagði að ekki hefði verið
tekin ákvörðun unt hvað gert yrði
við hús Hraðfrystihússins, en ákveð-
ið hefur verið að vinns|a hætti í
húsinu í lok þessarar viku. „Við
munum síðan halda áfram að vinna
að lausnum á vanda fyrirtækisins,“
sagði Ólafur.
Aðspurður hvort Drangeyin kæmi
til ptieð' að bæta hag HK, sagði
Ólafur: „Við skulum orða það
þannig, að það var mat manna að
þetta væri illskásti kosturinn í stöð-
unni.“ Drangeyin er útbúin sem svo
kallað hálffrystiskip, en eftir er að
setja niður vinnslubúnað á millidekk
sem farið verður í eftir áramót.
-ABÓ
Yfirlögregluþjónar
með 170 þús. á mán.
Yfirlögregluþjónar gengu í maí
sl. frá sérstökum launasamningi
við fjármála- og dóntsmálaráðu-
neytin, sem gefur þeim 70-80 þús-
und krónur í fastar aukatekjur til
viðbótar rúmlega 90 þúsund
krónum, er þeir elstu hafa í mánað-
arlaun fyrir venjulegan dagvinnu-
tíma. Samtals hefur yftrlögreglu-
þjónn í 81. launaflokki því um 170
þúsund krónur í föst mánaðarlaun
fyrir utan bifreiðastyrk, en hann er
nokkuð breytilegur eftir embætt-
um. hetta virðist nokkuð einkenni-
leg launahækkun fyrir þá yfirlög-
regluþjóna sem eru starfandi f
Reykjavík þar sem mikill niður-
skurður hefur átt sér stað í annarri
starfsemi.
Launaauki þessi er veittur sam-
kvæmt sérstökum santningi sem
gerður var milli fjármálaráðuneytis
og dómsmálaráðuneytis annars
vcgar og Félags yfirlögregluþjóna
og Landssantbands lögregluþjóna
hins vegar, og tók hann gildi 1. júní
sl. Það var unt líkt leyti og felld
voru úr gildi öll ákvæði um rauð
strik kjarasamninga með bráða-
birgðalögum þáverandi ríkisstjórn-
ar. Er þessi samningur kallaður
tilraun í bréfi því sem sent var
öllum lögreglustjórum landsins fyr-
ir gildistökuna. Er talað um að
tilraunin eigi að vara fram að n.k.
áramótum og er þessi tími kallaður
reynslutími. Að honum loknum er
kveðið á um að endurskoða eigi
samninginn og meta hversu vel
tilraunin hafi heppnast.
Ákvæðin um aukaálag fela í sér
45% álag vegna stjórnunarstarfa
og ónæðis utan venjulegs vinnu-
tíma. Greiðist þetta 45% álag af
120 klst. á mánuði. Þá verði yfir-
vinna allra yfirlögregluþjóna og
aðstoðaryfirlögregluþjóna 50 klst.
í mánuði. Þessir 50 aukavinnutím-
ar eru þó ekki algert þak á yfirvinn-
una, þar sem greiða má, eftir
samkontulagi við ráðuneytið, fleiri
aukatíma ef stóratburðir eiga sér
stað. Þrátt fyrir föst yfirvinnulaun
er reiknað með að vinnutíminn
miðist við venjulega dagvinnu.
ABÓ
V,'