Tíminn - 15.12.1988, Qupperneq 4
4 Tíminn
Fimmtudagur 15. desember 1988
t t . . J w .. J . » * l . » . » , I
rbvrvn^a i «r»r
Jólakort - Jólakort!
Höfum til söiu tvær gerðir af fallegum jólakortum. Einnig hálsbindi,
blómavasa og glösin vinsælu með flokksmerkinu.
Landssamband framsóknarkvenna
Nóatúni 21, - s. 24480
Jólaalmanak SUF 1988
Eftirtalin vinningsnúmer hafa komið upp:
1. des. 1. nr. 1851 8. des. 15. nr. 1340 15. des. 29. nr. 808
2. nr. 4829 16. nr. 7485 30. nr. 6106
2. des. 3. nr. 7315 9. des. 17. nr. 6401
4. nr. 1899 18. nr. 5984
3. des. 5. nr. 6122 10. des. 19. nr. 6305
6. nr. 1500 20. nr. 1398
4. des. 7. nr. 2993 11. des. 21. nr. 4671
8. nr. 8376 22. nr. 5488
5. des. 9. nr. 1780 12. des. 23. nr. 714
10. nr. 3258 24. nr. 7300
6. des. 11. nr. 1984 13. des. 25. nr. 4456
12. nr. 8352 26. nr. 1016
7. des. 13. nr. 8240 14. des. 27. nr. 3260
14. nr. 7307 28. nr. 6725
Velunnarar! Látið ekki happ úr hendi sleppa. Gerið skil og leggið
baráttunni lið.
Allar frekari upplýsingar eru veittar í síma 91-24480 eða 91-21379
og á skrifstofu Framsóknarflokksins, Nóatúni 21, Reykjavík.
SUF
Jólahappdrætti
Framsóknarflokksins
Dregið verður 24. desember.
Vinsamlegast greiðið heimsenda miða.
Framsóknarflokkurinn
Hafnfirðingar - Jólaglögg
Hið árlega og sívinsæla jólaglögg Framsóknarfélaganna í Hafnarfirði,
verður n.k. föstudagskvöld 16. des. kl. 20.30 í veitingahúsinu A.
Hansen. Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur les úr verkum
sínum. Jólalögin sungin.
Allir velkomnir.
Framsóknarfélögin í Hafnarfirði
j Islensk kvikmynd notuð við kennslu:
Utlaginn fyrir
dönsk skólabörn
Frumvarp til nýrra laga um leigubíla
fyrir Alþingi eftir áramót:
Reglugerðar-
ákvæði verða
lagaákvæði
„Samgönguráðherra ákvað af
tvennu tilefni að láta endurskoða
gildandi lög um leigubifreiðar: Ann-
ars vegar eru gildandi lög talsvert
gömul. Hins vegar upphófust deilur
í sumar um réttmæti þess að leigu-
bílstjórar sem náð höfðu 75 ára aldri
misstu atvinnuleyfi sín“; sagði Ólaf-
ur Steinar Valdimarsson ráðuneytis-
stjóri í samgönguráðuneytinu.
Ólafur Steinar sagði að umboðs-
maður Alþingis drægi í efa að leyf-
ismissirinn stæðist gagnvart lögum
en sérfr.æðingar sem ráðuneytið
hefði leitað til teldu svo vera.
Hann sagði að endurskoðun lag-
anna hefði verið falin tveimur lög-
fræðingum; Jóni Þorsteinssyni og
Helga Jóhannessyni og væru þeir
langt komnir með að semja drög að
frumvarpi sem væntanlega yrði lagt
fyrir Alþingi eftir áramót.
Aðspurður um hver nýmæli væru
í frumvarpinu sagði hann gildandi
lög frá 1970 vera rammalög. Þau
væru mjög stuttorð og því væri
reglugerðin bæði löng og ítarleg en
samkvæmt nýju lögunum yrði ýmis-
legt af því, sem nú væri bundið í
reglugerð, hluti nýju laganna. - sá
Bústofni forðað
íslenska kvikmyndin Útlaginn er
nú notuð við kennslu í grunnskólum
í Danmörku. Tildrög þess eru þau
að á árinu 1987 gerði fyrirtækið
Haust h.f. samning við danska kenn-
arasambandið þar sem samið var um
notkun Útlagans við kennslu, en í
myndinni er Gísla saga Súrssonar
færð í kvikmyndabúning. Á dönsku
ber kvikmyndin heitið: „Den fred-
löse“.
Með samningnum fékk danska
kennarasambandið jafnframt um-
boð fyrir kvikmyndina á hinum
Norðurlöndunum og ráðgert er að
hún verði einnig útbúin sem kennslu-
gagn fyrir norska, sænska og finnska
nemendur.
Útlaginn hefur verið gefinn út á
myndböndum en dönsku skólaútgáf-
unni fylgir vandað og ítarlegt hefti
sem nemendur fá við sýningu mynd-
arinnar. Þar er fjallað m.a. almennt
um yfirfærslu bókmenntaverka á
kvikmyndaform, Gísla sögu Súrs-
sonar og það hvernig hinn ritaði
texti birtist í myndinni, einnig er þar
að finna viðtal við leikstjórann Ág-
úst Guðmundsson auk þess grein
eftir Erik Skyum-Nielsen þar sem
hann fjallar um áhrif Islendingasag-
anna á íslendinga nútímans. Anne
Jerslev ritstýrði heftinu.
Útlaginn var gerð 1982 og leik-
stjóri er Ágúst Guðmundsson en
framleiðendur eru Jón Hermanns-
son og Indriði G. Þorsteinsson. SSH
Kennsluhefti sem danskir nemendur
munu lesa á komandi misserum. Þá
hefur kvikmyndin Útlaginn verið
sett í danskan búning.
Kýrnar Perla, Þraut, Bleikja,
Klauf, Kinna, Kola, Skripla, Skekta,
Stjarna og Fleyta voru auglýstar á
nauðungaruppboði en sleppa með
skrekkinn því búið er að draga
uppboðið til baka að sögn sýslu-
mannsins í Barðastrandarsýslu.
Þar sem þessar heiðurskýr voru
allar auglýstar á uppboði undir eigin-
nöfnum sínum var spurst fyrir um
hvort hér væri um sérstakar dáind-
iskýr af víðkunnu kostakyni að ræða.
Sýslumaður sagðist ekki vita til
þess. Ástæðan væri sú að svona
hefðu verðmæti verið skrifuð upp af
matsmönnum sem könnuðu verð-
mæti í búi því sem verið var að gera
kröfur í.
Þar sem eigandi kúnna og lánar-
drottinn hans hefðu samið um sín
mál yrðu kýrnar eins og áður segir
heima áfram, því uppboðinu hefði
nú verið aflýst. -sá
Sýslumenn
funduðu
Sýslumannafélag íslands hélt
aðalfund sinn í nóvember s.l. í
Reykjavík. Aðalmál fundarins
voru: Framtíðarskipan embætta
bæjarfógeta og sýslumanna. o.fl.
Um fyrsta málið voru flutt
fróðleg framsöguerindi og í fram-
haldi af áhugaverðum umræðum
gerði fundurinn svohljóðandi
samþykkt: „Frumvarp til laga um
aðskilnað dómsvalds og umboðs-
valds í héraði, sem lagt var fyrir
síðasta Alþingi og fengið hefur
umfjöllun milliþinganefndar,
sem skipuð var fulltrúum allra
stjómmálaflokka, virðist njóta
almenns stuðnings í höfuðdrátt-
um. Sýslumannafélag íslands lýs-
ir stuðningi sínum við höfuð-
markmið þessa frumvarps, þ.e.
aðskilnað dómsvalds og fram-
kvæmdavalds. Félagið hefur í
umsögnum sínum um frumvarpið
bent á einfaldari og kostnaðar-
minni leiðir til að ná þessu mark-
miði og óskar eindregið eftir að
fá að vera með í ráðum við
útfærslu þeirra leiða eða við fram-
haidsmótun málsins. Sýslu-
mannafélagið leggur sérstaka
áherslu á að samhliða frumvarpi
um aðskilnað dómsvalds og um-
boðsvalds í héraði verði lögð
fram á þingi önnur frumvörp á
sviði réttarfars og stjórnsýslu,
sem tryggi þá þjónustu út um
byggðir landsins, sem embætti
sýslumanna og bæjarfógeta veita
nú.“
1 stjóm Sýslumannafélagsins
til næsta aðalfundar voru kjörnir:
Rúnar Guðjónsson. sýslumaður,
formaður, Halldór Þ. Jónsson,
bæjarfógeti og sýslumaður, Rík-
harður Másson, sýslumaður,
Elías I. Elíasson. bæjarfógeti og
sýslumaður og Stefán Skarphéð-
insson, sýslumaður, meðstjórn-
endtir,_____________