Tíminn - 15.12.1988, Blaðsíða 5
Tíminrr "5
Fimmtudagur 15.
desémber 1988
Jóhannes Nordal, seðlabankastjóri, varar við miklu ójafnvægi í efnahagslífi þjóðarinnar:
Gífurleg óvissa meðan
fjárlög eru óafgreidd
í nýrri skýrslu Seðlabankans um þróun peningamála á
íslandi, er m.a. rakin vaxtaþróun liðinna mánaða. Bent er á
að ennþá er ekki Ijóst að hve miklu leyti nýleg vaxtalækkun
geti staðist. Er það rakið til þeirrar miklu óvissu í fjármálum
ríkisins og þó sérstaklega þeirri óvissu sem fylgir óafgreiddum
fjárlögum. Skýrsla þessi hefur verið send ríkisstjórninni og
var hún lögð fram á fundi hennar sl. föstudag.
„Við rekjum í þessari skýrslu
vaxtaþróunina eins og hún hefur
verið og bendum á að það er ekki
ennþá ljóst hversu haldgóð nýleg
raunvaxtalækkun muni verða,“
sagði Jóhannes Nordal, seðlabanka-
stjóri, í viðtali við Tímann í gær.
Hann vildi að öðru leyti ekki tjá sig
um innihald hennar fyrr en ríkis-
stjórnin hefur fengið tækifæri til að
ræða hana á sínum fundum. Jóhann-
es varar þó við því að afgreiðsla
fjárlaga dragist enn á langinn, vegna
þeirrar miklu óvissu sem það skapaði
til viðbótar við óvissu í atvinnumál-
um þjóðarinnar.
Skýrslur úreldast á viku
Mikil óvissa hefur ríkt um það
hvernig fjármögnun ríkissjóðs verð-
ur háttað og hefur treg sala á ríkis-
skuldabréfum enn aukið á óvissu
þessa. Stöðugar fréttir af auknum
halla í þjóðarbúskapnum hafa auk
þess valdið slíkri óvissu að engu er
líkara en bankastofnanir og aðrir
aðilar á fjármagnsmarkaði sem
ákvarðað geta vaxtastefnuna, vita
ekki hver þróunin getur orðið á
næstu mánuðum. T.d. um fréttir af
halla ríkissjóðs má geta þess að tölur
um hallann í þessari skýrslu Seðla-
Jóhannes Nordal, seðlabankastjóri.
Tímamynd Pjelur.
bankans eru þegar orðnar úreltar,
en skýrslan var fjölrituð sl. föstudag
handa ríkisstjórninni, eins og áður
er getið.
Vextir ráðast
raunvertilegu jafnvægi
Pessi mikla óvissa magnast með
hverjum degi sem líður án þess að
fjarlög verða afgreidd og hefur
seðlabankastjóri áhyggjur af þróun
mála. “Það eru þarna vissir hlutir
sem eru vandamái frá sjónarhóli
vaxtastefnunnar," sagði Jóhannes.
„Við bendum auðvitað á það að
vextirnir hljóti, þegar framí sækir,
að ráðast af því jafnvægi sem næst í
efnahagsmálum. Þaðverðurþvíekki
fyrr en eftir áramótin sem hægt er að
fá rétta tilfinningu fyrir því hvað eru
raunhæfir vextir í dag.“
Geysileg óvissa
Jóhannes Nordal sagði ennfremur
að það ríkti geysileg óvissa um
raunverulega útkomu ríkissjóðs
vegna stöðugt nýrra frétta af meiri
halla. “Útkoman á ríkissjóði virðist
núna vera mun verri en fyrir
skömmu síðan. Það er auk þess ekki
enn búið að afgreiða fjárlög og er
því ekki vitað hverjar niðurstöðurn-
ar verða. Það ríkir töluverð óvissa
þar til fjárlögin verða komin í gegn-
um Alþingi. Við þetta bætist svo sú
óvissa sem er um stöðu atvinnuveg-
anna og hvernig á þeim vanda verður
tekið,“ sagði seðlabankastjóri. „Það
verður að taka tillit til raunverulegra
staðreynda efnahagslífsins þegar að
því kemur að ákveða frekari vaxta-
þróun. Grundvöllur þess að þessi
vaxtaþróun standist er að hér komist
á betra jafnvægi, en þó sérstaklega í
opinberum fjármálum og þeirri
óvissu sem nú ríkir t.d. um ákvarð-
anir í gengismálum verði eytt. Fyrst
og fremst veltur á því hvernig fjárlög
verða afgreidd.“ KB
Guðmundur J. Guðmundssonformaður Verkamannasambands-
ins segir hlálegt að íhaldið snúist gegn sínum eigin Verkum:
„Stjórnin kemur til
móts við launþega“
- sagði Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra í viðtali við Tímann
Yfirlýsing Steingríms Hermanns-
sonar forsætisráðherra um að ríkis-
stjórnin felli úr gildi bann við samn-
ingsrétti og kjaraaðgerðum hefur
vakið umtal og athygli og eru menn
ekki á eitt sáttir um hvaða gildi þetta
hefur. Þingmenn Sjálfstæðisflokks-
ins brugðust mjög hart við og sögðu
að með þessu væri veríð að koma í
bakið á þeim með sýndarmenn-
skutillögu.
Guðmundur J. Guðmundsson
segir að þessi yfirlýsing breyti engu
í málum Verkamannasambandsins,
en það sé hlálegt að sjálfstæðismenn
skuli nú snúast gegn sínum eigin
verkum með þessum hætti.
Miklar umræður spunnust um
þessi mál í efri deild Alþingis í gær
og sagði Halldór Blöndal það ámæl-
isvert að stjórnvöld gæfu út svo
villandi og ótímabærar yfirlýsingar.
Sem nefndarmaður í fjárhags og
viðskiptanefnd bað hann um öli
ummæli Steingríms er hann lét falla
í fjölmiðlum um málið í fyrradag, til
þess að geta áttað sig á því hvað
þessi yfirlýsing þýddi.
Steingrímur Hermannsson sagði í
samtali við Tímann í gær að ríkis-
stjórnin hefði tekið þessa ákvörðun
til að koma til móts við launþega-
samtökin. En A.S.Í. hefur sem
kunnugt er kært 4. grein bráða-
birgðalaganna til Mannréttinda-
dómstóls Sameinuðu þjóðanna.
„Bráðabirgðalögunum hefur verið
harðlega mótmælt af launþegum. í
því sambandi hefur sérstaklega verið
dregið fram það sem þeir kalla
mannréttindabrot og má segja að
komi greinilegast fram í þeirri máls-
grein sem nú hefur verið felld niður.
Þetta kemur m.a. greinilega fram í
kæru A.S.Í. til Alþjóða vinnumála-
sambandsins og þeir töldu sig ekki
geta rætt við sína vinnuveitendur á
meðan þetta ákvæði væri í lögum.
Með öll þessi mótmæli í huga og eftir
að hafa rætt við einstaklinga innan
launþegasambandanna og eftir að
hafa fjallað um þetta innan ríkis-
stjórnarinnar ákvað ég að leggja til
að þessi breyting yrði gerð á lögun-
um,“ sagði Steingrímur. Önnur
ákvæði laganna standa og þar á
meðal 12. grein þeirra þar sem
samningar um hækkun iauna um-
fram 1,5% erkemurtilframkvæmda
um áramót. Hins vegar er launþeg-
um og atvinnurekendum heimilt að
hefja samningaviðræður og heimilt
er að semja um önnur atriði kjara-
samninga en laun. í því sambandi
má nefna að forystumenn B.S.R.B.
hyggjast á næstu vikum fara fram á
viðræður við ríkisvaldið, en samn-
ingar þeirra eru lausir 15. febrúar
þegar verðstöðvun lýkur.
Karl Steinar Guðnason sagði í efri
deild í gær að honum þætti það
furðulegt ef A.S.Í. ætlaði að vera á
móti þessum aðgerðum. Hann sagði
það nær fyrir verkalýðsforystuna að
horfast í augu við þann vanda sem
blasti við í þjóðarbúinu, heldur en
að stinga höfðinu í sandinn eins og
honum sýndist að sumir forystu-
menn A.S.Í. ætluðu að gera. - ág
1. deild íslandsmótsins í handknattleik:
Valssigur í toppslag
Valsmcnn unnu KR-inga með
23 mörkum gegn 21 í toppslag 1.
deildarinnar í handknattleik í troð-
fullri Laugardalshöllinni í
gærkvöld. Valsmenn höfðu leikinn
í hendi sér allan tímann, cn í
hálfleik var staðan 13-7 fyrir Val.
Sigurður Sveinsson átti mjög
góðan leik í gærkvöld, eins og allir
félagar hans í Valsliðinu. Staðan
var 8-7, þegar KR-ingar urðu fyrir
áfalli, misstu Alfreð og Sigurð út af
í 2 mín. og Valsmenn skoðuðu 5
síðustu mörkin í hálfleiknum og
breyttu stöðunni í 13-7 vendi-
punktur í leiknum.
Vesturbæingarnir gerðu 4 síð-
ustu mörkin í leiknum og lokatölur
urðu 23-21 fyrir Val. Sanngjarn og
öruggur sigur, en Vaisararnir slök-
uðu nokkuð á í lokin og gæti reynst
þeim dýrt. Það verður þá ekki séð
á þessum leik að nokkurt hérlent
lið nái að leggja þá að velli í vetur.
Valsmcnn hafa nú 18 stig í
deildinni, en KR-ingar töpuðu nú
sínum fyrsta ieik og hafa 16 stig.
Öðrum leikjum í 1. deild í gær-
kvöld var frestað.
Mörkin KR: Alfreð 8/2, Sigurð-
ur 5, Páll 3, Konráð 2, Stefán 2 og
Jóhannes 1. Valur: Sigurður Sv.
7/2, Valdimar 5, Jón Kr. 3, Geir 3
, Júlíus 3 og Jakob 2.
Góðir dómarar leiksins voru þeir
Sigurður Baldursson og Björn Jó-
hannesson. BL
Forsætisráðherra segir að dragist
afgreiösla fjárlaga verði:
Efnahagsmál
öíl í óvissu
Steingrímur Hermannsson segist
telja það mjög brýnt að fjárlög
verði afgreidd fyrir áramót til þess
að grundvallarþættir efnahags-
stefnu ríkisstjórnarinnar liggi fyrir
þegar frekari ákvarðanir verði
teknar um aðgerðir til stuðnings
atvinnuvegum þjóðarinnar.
Ef óvissa ríkti lengi áfram um
jafnvægi í ríkisfjármálum og menn
hefðu jafnvel ástæðu til að óttast
mikinn halla á ríkisbúskapnum,
teldi hann afar mikilvægan þátt í
ríkisfjármálum opinn. „Skapist
slíkt óvissuástand væri það mjög
slæmt og öll efnahagsmál þjóðar-
innar í raun og veru í óvissu," sagði
Steingrímur.
Samkvæmt starfsáætlun Alþingis
verða fjárlög ársins 1989 tekin til
annarrar umræðu í efri deild þings-
ins á morgun, en fjárveitinganefnd
mun væntanlega skila umsögn um
Steingrímur Hermannsson, forsæt-
isráðherra.
frumvarpið í dag eftir að hafa gert
á því breytingartillögur frá fyrstu
umræðu. - ág
Bráðabirgðalögin samþykkt í efri deild:
Úrslit ráðast
í neðri deild
Bráðabirgðalög ríkisstjórnar-
innar voru afgreidd frá efri deild
Alþingis seint í gærkveldi. Önnur
og þriðja umræða um lögin fór
fram í deildinni í gær og spunnust
nokkrar umræður um breytingar-
tillögur stjórnarandstöðunnar, en
þingmenn Sjálfstæðisflokksins
lýstu því yfir að gengisfelling væri
óhjákvæmileg til að halda útflutn-
ingsvegunum gangandi.
Til að vinna upp á móti afleiðing-
um lögðu þeir til að söluskattur
yrði lækkaður. Steingrímur Her-
mannsson sagði að gengisfelling
ein og sér leysti engan vanda.
Hann benti á að fyrirtæki í sjávar-
útvegi sem skulduðu stórar upp-
hæðir kæmu verr út úr gengisfell-
ingu en ekki, vegna þess að skuldir
hækkuðu meira en tekjur ykjust.
Hann sagði að nú væri unnið á
vegum forsætisráðuneytisins að ít-
arlegri úttekt á áhrifum gengisfell-
ingar á afkomu sjávarútvegsfyrir-
tækja. Bráðabirgðalögin voru sam-
þykkt með smávægilegum breyt-
ingunt og verða nú send til neðri
deildar þingsins. - ág