Tíminn - 15.12.1988, Blaðsíða 9
Fimmtudagur 15. desember 1988
Tíminn 9
VETTVANGUR
Þórarinn Þórarinsson:
Lenín
til valda. Það leiddi til mikilla
breytinga á stjórnkerfi Sovétríkj-
anna, sem höfðu einræði, ógnar-
stjórn og gífurlega misbeitingu
valds og ofsóknir í för með sér.
Gorbatsjov lýsti stjórnarfarinu,
sem hófst á fjórða áratugnum undir
forustu Stalíns mjög greinilega í
ræðu á nýloknum fundi æðsta ráðs
Sovétríkjanna og dró ekkert
undan. Þessi reynsla frá fjórða
áratugnum veldur því, að nokkuð
gætir þess ótta, að sagan frá fjórða
áratugnum eigi eftir að endurtaka
sig og bylting Gorbatsjovs kunni
því að reynast völt. Andstæðingar
Sovétstjórnarinnar í Vestur-Evr-
ópu og Bandaríkjunum reyna að
magna þennan ótta og hafa banda-
menn í íhaldsmönnum í Sovétríkj-
unum sem vilja halda í gantla
kerfið og þau völd, sem það tryggði
þeim.
Þess má samt vænta, að bylting
Gorbatsjovs hafi fest það sterkar
rætur hjá rússneskunt almenningi
og uppvaxandi kynslóð, að hún
haldi velli. Annað væri ekki aðeins
verst rússnesku þjóðinni heldur
öllu mannkyni, því að í kjölfar
þess að bylting Gorbatsjovs mis-
tækist, kæmi að öllum líkindum
nýtt kalt stríð og vígbúnaðar-
kapphlaup. En málalok þess gætu
orðið kjarnorkustyrjöld, þótt eng-
in ríkisstjórn óski eftir henni.
Svo miklu skiptir það, að bylting
Gorbatsjovs haldi velli í Sovétríkj-
unum og festi rætur í allri Austur-
Evrópu. Þá gæti Evrópa öll orðið
það friðarheimili, sem er draumur
Evrópubúa jafnt í vestri og austri.
UM STRÆTI OG TORG
111111111
OTIDINDI
Opinberar stofnanir eru gjarnan
skotspónn þeirra sem grínast með
Parkinsonslögmálið, eða þá áráttu
að starfsmönnum fjölgar hjá stofn-
un þeim mun meir sem minna
verður að gera á staðnum. Við
slíkar aðstæður er gjarnan nefnt að
starfsmenn þurfi að eiga tvo jakka,
annan til að vera í við einkaerindin
úti í bæ, og hinn til þess að skilja
eftir á skrifborðsstólnum, svo allir
haldi að viðkomandi sé í það
minnsta í húsinu.
Lögreglan
Þrátt fyrir grun minn um að í
löggæslustörfum landsins og þar á
meðal höfuðborgarinnar væri
þessu þveröfugt farið, þar fækkaði
starfsmönnum í réttu hlutfalli við
aukin umsvif, þá krossbrá mér
þegar ég las það í Morgunblaðinu
1. des. sl. að lögreglumenn væru
nú, eða stefndi í sama fjölda lög-
reglumanna í Reykjavík nú og var
árið 1944.
Þetta eru ótíðindi, ráðamenn,
góðir menn, verða að huga vand-
lega að þessu máli. Þessari öfug-
þróun verður að sporna við, og
ekki aðeins það, það verður að
snúa við á þessari óheillabraut.
1944
Þetta ár hafa bílar í Reykjavík
verið um 3000 talsins og fyrst um
eða eftir 1947-8 hafi bílarnir verið
orðnir 4-5000. Nú munu bílarnir í
Reykjavík vera 40-50 þúsund. Nú
veit ég ekki hvort löggæsla varð-
andi bifreiðar, akstur og ökumenn
hefur verið léleg, sæmileg eða góð
árið 1944. Það liggur þó í augum
uppi að til þess að núverandi
löggæsla í þessum málum sé f
svipuðu horfi og þá, þá verður að
reikna með því að tíföldun hafi
orðið í því liði lögreglunnar sem
sinnir þessum þætti löggæslu.
1988
Á þessu herrans ári, liggur ljóst
fyrir að borgararnir þarfnast hlut-
fallslega meiri löggæslu en árið
1944. Þar kemur til að fjölbreytni
lagabrota hefur aukist. Nýir flokk-
ar lagabrota hafa komið til, og þeir
mjög alvarlegir.
Fíkniefnamál eru nýr flokkur
afbrota, sem kallar á mikið starf
lögreglu.
Líkamsárásir, reyndar tengdar
fyrrnefnda flokknum hafa aukist
og kalla á aukna löggæslu.
Reykjavík hefur stækkað, íbú-
um hefur fjölgað, allt ber þetta að
sama brunni, til þess að sinna
löggæslu sæmilega, verður að
fjölga í lögregluliði borgarinnar
(þetta á að sjálfsögðu við um land
allt). Við sem trúum á lögregluna
okkar og treystum því að mild en
stöðug löggæsla sé til góðs, við
erum flemtri slegin. Það er svo
margt sem við viljum að lögreglan
geri. Mörgum finnst hún gera of
lítið, og margt er það sem ætlast er
til, margt vissulega smátt en samt
afgerandi, ef sinnt væri. Fámenn
lögregla getur vitanlega ekki sinnt
ýmsum óskamálum. Fámenn lög-
regla verður að einbeita sér að
alvarlegustu málunum en verður
að láta lönd og leið, litlu léttu
málin sem þó geta verið fyrirbyggj-
andi og ef þeim væri sinnt, kæmu
þau í veg fyrir sum hin stærri og
verri málin.
Smærri málin
Rétt svona til þess að ráðamenn
þjóðarinnar og lögreglunnar geri
sér grein fyrir þeim málum sem
lögreglan verður, vegna fámennis
Heldur bylting
Gorbatsjovs velli?
Þegar Gorbatsjov boðaði breyt-
ingar þær, sem hann og félagar
hans í forustu Kommúnistaflokks-
ins höfðu fyrirhugað á stjórnkerfi
og efnahagskerfi Sovétríkjanna,
urðu flestir undrandi og vantrúaðir
í senn. f raun virtust þessar breyt-
ingar tákna róttæka byltingu, (tar
sem stefnt væri að því að skoðana-
frelsi og lýðræði leysti af hólmi
einræðisstjórn þá og ófrelsi, sem
komist hafði á í Sovétríkjunum í
stjórnartíð Stalíns og arftaka hans.
Hinar róttæku breytingar, sem
Gorbatsjov boðaði á stjórnarhátt-
um Sovétríkjanna hafa nú verið
lögfestar af viðkomandi stofnunum
í Sovétríkjunum og þarf þvf ekki
að efast um að hér hefur hugur
fylgt máli. Breytingunum er ætlað
að koma til framkvæmda á næsta
ári. Það má því segja að bylting sé
að gerast í Sovétríkjunum -
bylting, sem hefji skoðanafrelsi og
lýðræði til vegs í einu voldugasta
ríki heimsins. Ef þetta rætist hefur
hér gerst einn af stærstu atburðum
mannkynssögunnar. Það er öll
ástæða til að fagna þessari byltingu
engu síður en frjálslyndir menn
fögnuðu falli keisarastjórnarinnar
og byltingu Leníns á sinni tíð.
Þetta var sterklega áréttað í for-
ustugrein Tryggva Þórhallssonar í
Tímanum 30. mars 1918. Þar var
ógnarstjórninni í Rússlandi í tíð
keisaranna líkt við hafþök af ís er
leggjast á íslenskan gróður á vor-
degi. Síðan segir:
„En nú er skift um. Hafþökin
hafa bráðnað. Leirfætur rússneska
járntröllsins eru brotnir í mola og
sjálfur jötunninn virðist nú ekki
ægilegri en afturgöngurnar í þjóð-
sögum. Júnkaraflokkurinn rúss-
neski virðist svo gersamlega brot-
inn á bak aftur, að hans heyrist að
engu getið. Alþýðan rússneska hef-
Lenín féll frá og Stalín
hófst til valda. Það
leiddi til mikilla breyt-
inga á stjórnkerfi
Sovétríkjanna, sem
höfðu einræði, ógnar-
stjórn og gífurlega mis-
beitingu valds og of-
sóknir í för með sér.
ur sest í þeirra sæti. Að vísu ekki
komið á föstu skipulagi, það getur
tekið mörg ár. En hin frjálslyndu
öfl virðast langsamlega vera orðin
yfirsterkari.
Og húsbóndamunurinn verður
mikill. Rússneska þjóðin er í raun
og veru jafn draumlynd, mild og
mannúðleg eins og stjórnin hefur
verið grimm og harðýðg. Að lík-
indum er engin þjóð í Norðurálfu
jafn friðelsk og mannúðleg að
eðlisfari eins og Rússar. En einmitt
vegna þeirra góðu eiginleika hafa
þeir borið í undirgefni hinn þunga
kross, sem kúgarar landsins hafa
lagt á herðar þeim.
Breytingin í Rússlandi er líklega
einn þýðingarmesti atburðurinn í
styrjöldinni enn sem komið er. Sá
sem helst glampar af fram á veginn.
Ein hin stærsta og besta þjóð
heimsins er nú losnuð úr álögum
og ófreskjuham. Getur á ókomn-
um tímum lagt lið frelsi og dreng-
Gorbatsjov
skap í stað þess að vera skynlaust
verkfæri grimmlyndrar harðstjórn-
ar.“
Þannig voru miklar vonir frjáls-
lyndra manna um víðan heim
bundnar við byltingu Leníns. Hin-
ar glæstu vonir, sem voru bundnar
við byltingu Leníns áttu ekki eftir
að rætast, nemá að takmörkuðu
leyti. Lenín féll frá og Stalín hófst
að aftan kveikt og þá villandi
þannig að hemlaljós verða litt
áberandi með tilheyrandi aftaná-
keyrslum),
Að áminna ökumenn sem aka
umáeineygðumbílurn,að áminna
ökumcnn sem stöðva eðlilega um-
ferð mcö því að stansa til þess að
góna á liðið við dans eða vertshús,
eða til þess að spjalla við kunningj-
ana. Að halda vel á því sem þegar
er í gangi, að fjarlægja bíla sem illa
og ólöglega er lagt, að hnippa í
stráka sem aka skellinöðrum eða
mótorhjólum ólöglega í íbúðar-
hverfum eða fjórhjólum eða vél-
sleðum um gangbrautir í íbúðar-
hverfum.
Löggæsla sem sinnti öllu þessu
með mildi og með alúð, gæti með
því markvisst unnið að því að
fækka hinum stærri og verri
brotum.
Fjölgun
Það er sannfæring mín, að með
því að fjölga lögreglumönnum
verulega og láta þá sinna smámál-
unum með mildi og elskulegheit-
um, ekki sektir og þvarg, heldur
föðurlegar áminningar, þá yrði
minna að gera í hinum stærri og
alvarlegri málum. Stefnum að
þessu mínir elskulegu áhrifa og
ráðamenn. Þá verður betra að búa
í hverfinu mínu ogþínu.
E.S. Næturlokun Árbæjarstöðvar
lögreglunnar er hneyksli og
skömm. í guðanna bænum breytið
þessu.
að vanrækja, skulu nokkur smá-
málanna rakin hér. Það skal tekið
fram að sannfæring mín er sú, að
ef við gerum lögreglunni kleift að
sinna þessum smámálum, þá er
líklegt að hinum stærri málum
fækki. Það er smámál að koma í
veg fyrir ólöglega farþegaflutninga
í litlum sendiferðabílum, að stöðva
þá áráttu ungra ökumanna (sem
ekki eru komnir af skellinöðrualdr-
inum) að aka með bíla sína núm-
erslausa að framan, að stöðva öku-
menn sem aka með uppfennta eða
uppfreðna glugga á bílum sínum
(og láta þá hreinsa þá áður en
haldið er áfram), að koma í veg
fyrir algengustu brot gegn ein-
stefnuakstursákvæðum, (í mið-
bænum, Aðalstræti, Hallærisplan
og ESSO plan í Hafnarstræti). Að
koma í veg fyrir akstur bifreiða
með þokuljós kveikt að aftan eða
að framan, í tíma og ótíma innan
bæjar. (Þokuljósin að framan oft
illa stillt og blindandi og þokuljósin