Tíminn - 15.12.1988, Qupperneq 12
12 Tíminn
Fimmtudagur 15. desember 1988
llllllllllllllllll útlónd .......................................... ... ............ ................ .......... ............. ............. .......... . .................................................... .............. .................... ,;íí|!-' ........
Olof Palme forsætisráðherra Svía ásamt eiginkonu sinni Lisbeth. Palme var myrtur fyrir rumum tveimur árum og
er nú talið að morðinginn sé fundinn. Lisbeth mun þurfa að skera úr um hvort hinn handtekni sé rétti maðurinn,
en hún sá morðingja eiginmanns síns í svip á sínum tíma.
Svíþjóð:
Morðingi Olof
Palme fundinn?
FRÉTTAYFIRLIT
KAUPMANNAHÖFN -
Minnihlutastjórn Schluters í
Danmörku kynnti fyrirhugaöar
niöurskurðaraögerðir sínar.
Þar kemur fram aö mikill niður-
skurður veröur í heilbrigðis- og
félagskerfi Danmerkur. Ríkis-
stjórnin hyggst reka ríkissjóð
hallalausan á næsta ári. Þrátt
fyrir minnihlutann er talið að
fjárlagafrumvarpið verði
samþykkt.
LONDON — Hveitifram-
leiðsla í heiminum gæti orðið
algjört met á næsta ári og í
fyrsta sinn farið yfir 550 milljón
tonn. í ár náðust rétt um 500
milljón tonn af hveitiökrum
heimsins, enda miklir þurrkar í
Bandaríkjunum síðastliðið
sumar.
BELFAST - IRA segist
bera ábyrgð á handsprengju-
árás í landamærabænum
Newry á Norður-írlandi. Tveir
breskir lögreglumenn og einn
óbreyttur borgari særðust í
árásinni.
SEOUL — Sovétríkin hafa í
fyrsta sinn gefið fyrirtækjum í
Suður-Kóreu kost á að bjóða í
byggingaframkvæmdir í Sov-
étríkjunum.
WURZBURG — Vestur-
Þjóðverjar eru að missa sjónar
á því að vilja halda NATO eins
sterku og hægt er en þess í
stað semja um mikinn sam-
drátt í hefðbundnum vígbúnaði
í austri og vestri. Þetta kom
fram í ræðu varnarmálaráð-
herra Vestur-Þýskalands á
fundi með v.-þýskum hers-
höfðingjum.
GENF - ísraelar sem ham-
ast nú við að réttlæta sjálfa sig
í augum umheimsins buðust til
þess að taka upp beinar við-
ræður við Jórdani og útvalda
Palestínumenn um frið á her-
numdu svæðunum. Hins vegar
aftaka þeir með öllu að ræða
við PLO. ísraelar hafa verið
harðlega gagniýndir á allsherj-
arþingi SÞ fyrir að vilja ekki
ráostefnu um frið í miðaustur-
löndum með ríkjum þar og
Palestínumönnum.
MOSKVA — Heilbrigðisráð-
herra Sovétríkjanna Yevgeny
Chazov sagði að almanna-
varnakerfi Sovétríkjanna væri
óhæft við að eiga við óáttúru-
hamfarir. Það hafi sannast í
jarðskjálftunum í Armeníu.
Neyðarástand er í gildi í Arm-
eniu og á vissum stöðum í
Azerbaijan vegna kynþátta-
ólgu.
JÓHANNESARBORG-
Síirvöld í Suður-Afríku hafa
oðist til að hafa fangaskipti á
angólskum flugmanni sem
neyddist til að lenda MIG-21
herþotu sinni í Namibíu og á
suðurafrískum fanga er tekinn
var höndum í Angóla.
Sænska lögreglan telur sig hafa
fundið morðingja Olof Palme og
hefur maðurinn verið handtekinn.
Maðurinn sem er sænskur hefur
áður setið inni fyrir að hafa myrt
forfallinn fíkniefnaneytanda með
byssusting. Nafn mannsins hefur
ekki verið gefið upp þar sem það
brýtur í bága við sænsk lög, en hann
mun vera 41 árs að aldri og var
yfirlýstur hatursmaður Olof Palme.
Hann hefur neitað því að hann sé
morðingi Palme.
Vitni hafa staðfest að maðurinn
hafi verið í nánd við morðstaðinn er
Olof Palme var myrtur. Hann hafði
Öryggissveitir skutu til bana þrjá-
tíu fanga á flótta á Sri Lanka í gær.
Rúmlega tvöhundruð fangar náðu
þó að sleppa úr klóm réttvísinnar.
Fangarnir voru flestir vinstri sinnaðir
skæruliðar og fengu þeir myndarleg-
an stuðning félaga sinna utan fang-
elsisveggjanna við flóttann.
Bandaríkin:
Viðskiptahalli
George Bush getur glaðst yfir
því að viðskiptahallinn í Banda-
ríkjunum varð mun minni í októ-
bermánuði en mánuðina þar á
undan. Varð viðskiptahallinn 3%
minni í októbermánuði en hann
var í september. í september
hafði viðskiptahallinn verið 10,67
milljarðar en var 10,35 milljarðar
dollara í október.
Ástæða þessa var annars vegar
það að innflutningur Bandaríkja-
manna var 1,7% minni í október
en mánuðinn á undan. Reyndar
dró einnig úr útflutningi, en að-
eins um 1,1%.
verið yfirheyrður þegar frumrann-
sókn á morðinu fór fram, en honum
var sleppt þar sem Hans Holmér
lögreglustjóri er stjórnaði rannsókn
málsins taldi öruggt að Olof Palme
hefði verið myrtur af Kúrdum.
Olof Palme þáverandi forsætisráð-
herra Svfþjóðar var skotinn til bana
í „Tunnelgatan" að kvöldi 26. febr-
úar árið 1986. Palme var þá á
heimleið úr kvikmyndahúsi með Lis-
beth eiginkonu sinni. Morðinginn
slapp á hlaúpum og hefur ekki
komist undir manna hendur fyrr en
nú, ef hinn grunaði er rétti maður-
inn.
Vopnaðir menn réðust að Welik-
ade fangelsinu í Colombo sem er
rammgerðasta fangelsið á Sri Lanka,
hófu skothríð og vörpuðu sprengjum
að fangavörðum. I ringulreiðinni
flúðu fangarnir síðan út í frelsið.
Þeir komust síðan undan á trukkum
og sendiferðabílum.
Árásarmennirnir tóku sér stöðu í
nálægu pósthúsi og skutu þaðan að
fangavörðunum. Einn óbreyttur
borgari lést í þeirri skothríð. Herinn
á Sri Lanka kom á staðinn á bryn-
vörðum bifreiðum og umkringdu
svæðið. Allar líkur eru þó á að
fangarnir hafi náð að flýja Colombo.
Öryggissveitir voru þó að fínkemba
hverfið kringum fangelsið með hjálp
leitarhunda og þyrla.
Skæruliðarnir sem sluppu eru aðil-
ar að Marxísku Alþýðufylkingunni
og af kynþætti Sinhalesa sem eru í
meirihluta á eyjunni. Þessi samtök
hafa sett úr skorðum athafnalíf
í landinu undanfarna tvo mánuði
með aðgerðum sínum, en kosningar
eru á næsta leiti á Sri Lanka.
Að minnsta kosti hundrað fangar
hafa flúið úr sex fangelsum á Sri
Lanka með aðstoð Alþýðufylkingar-
innar síðastliðna tvo mánuði.
Maðurinn vann á þessum tíma
sem dyravörður á næturklúbbi nærri
morðstaðnum. Lögreglan hefur upp-
lýst að vopn hafi fundist við húsleit
hjá hinum grunaða, en ekki var
skýrt frá því hvort morðvopnið gæti
verið þar á meðal.
Lisbeth Palme mun kanna í dag,
hvort hún beri kennsl á manninn, en
hún sá morðingja eiginmanns síns í
svip hiö örlagaríka kvöld. Þá munu
vitni sem sáu mann, hugsanlega
morðingjann, vera að sniglast í
„Tunnelgatan“ kvöldið sem Palme
var myrtur, líta á hinn grunaða.
Ratsjárstöðv-
ar eyðilagðar
Sovétmenn hafa tilkynnt
Bandaríkjamönnum að þeir
hygðust eyðileggja tvær ratsjár-
stöðvar sem taldar eru brjóta í
bága við samning þjóðanna um
gagnflaugar frá því 1972. Þetta er
staðhæft í New York Times, en
hefur ekki verið staðfest af stjórn-
völdum.
Blaðið vitnar í ónafngreindan
embættismann Bandaríkjastjórn-
ar sem segir að Sovétmenn hafi
tilkynnt að eyðilegging ratsjár-
stöðva nærri Moskvu og við borg-
ina Gomel í Hvíta-Rússlandi
muni hefjast á föstudag. Munu
eyðileggingarnar verða það auð-
sæjar að auðveldlega megi ganga
úr skugga um þær gegnum
njósnatungl Bandaríkjamanna.
Sovétmenn eiga að hafa skýrt
frá þessum ákvörðunum í lok
viðræðna ríkjanna um gagnflaug-
ar, en þeim lauk í mánudag.
Ekkert samkomulag náðist þó
um aðal deiluefnið sem er bygg-
ing stórrar ratsjárstöðvar við
borgina Krasnoyarsk í Síberíu.
Þá ratsjárstöð telja Bandaríkja-
menn brjóta í bága við samkomu-
lagið frá því 1972.
Íranar leyfa
stjórnmála-
flokka á ný
Starfsemi stjórnmálaflokka hefur
nú verið leyfð að nýju í íran, en
eiginlegir stjórnmálaflokkar hafa
ekki starfað í fran frá því í bylting-
unni 1981.
Ekki geta ailir tekið þátt í starfi
stjórnmálaflokka því þeir sem ekki
hafa hreina sakaskrá, þeir sem ekki
samþykkja stjórnarskrá klerkaríkis-
ins og háttsettir embættismenn í tíð
keisarans fá ekki að starfa að stjórn-
málum.
Innanríkisráðherra íran Ali Akb-
ar Mhotashemi skýrði frá þessu í
íranska ríkisútvarpinu í gær. Hann
upplýsti einnig að einungis stjórn-
málalega menntað fólk sem sé sér-
fræðingar í stjórnun og treystandi sé
til að leysa vandamál íslamska lýð-
veldisins gæti stofnað stjórnmála-
flokka.
LESTUNARÁiETLUN
Skip Sambandsins
munu ferma til íslands
á næstunni sem hér
segir:
Aarhus:
Alla þriðjudaga
Svendborg:
Annan hvern þriðjudag
Kaupmannahöfn:
Alla fimmtudaga
Gautaborg:
Alla föstudaga
Varberg:
Annan hvern miðvikudag
Moss:
Annan hvern laugardag
Larvik:
Alla laugardaga
Hull:
Alla mánudaga
Antwerpen:
Alla þriðjudaga
Rotterdam:
Alla þriðjudaga
Hamborg:
Alla miðvikudaga
Helsinki:
Skip.............15/1
Gloucester:
Skip 27/12
Skip 16/1 '89
Skip . 6/2 ’89
New York:
Jökulfell 27/12
Skip 16/1 '89
Skip . 6/2 '89
Portsmouth:
Jökulfell 27/12
Skip 16/1 '89
Skip . 6/2 '89
SKIPADEILD
P** SAMBANDSINS
LINDARGÖTU 9A • 101 REYKJAVÍK
SIMI 698100
A. A A A 1 Á LllJ
!AKN IRAIJSÍRA fLUININCjA
Sri Lanka:
200fangar flýja,
30 skotnir
Sovétríkin: