Tíminn - 15.12.1988, Page 16
•16 „TLminn
',Fíimmtúðátgar*'l 5: déseimbénÖ88
DAGBÓK
Félag eldri borgara
Opið hús verður í Goðheimum, Sigtúni
3, í dag, fimmtud. 15. des. Kl. 14:00
verður frjáls spilamennska, kl. 19:30
félagsvist, hálft kort. Kl. 21:00 er dans.
Athugið: Danskennslan hefst aftur í
Tónabæ 7. janúar 1989. Kennt verður þá
kl. 17:30-19:00 og kl. 19:00- 20:30.
Tilkynnið þátttöku sem fyrst á skrif-
stofu Félags eldri borgara í síma 28812.
Aðventukvöld
Strandamannakórsins
Kór Átthagafélags Strandamanna held-
ur aðventukvöld í Sóknarsalnum, Skip-
holti50Aföstud. 16. desemberkl. 20:30.
Heimilispósturinn
Gísli Sigurbjörnsson, forstjóri Elli- og
hjúkrunarheimilisins Grundar, er ritstjóri
og ábyrgðarmaður þessa rits, sem nefnist
Heimilispósturinn - heimilisblað.
f október-nóvember hefti Heimilis-
póstsins er m.a. þetta efni: Sagan endur-
tekur sig? - Ef ég væri orðinn ungur aftur,
nefnist grein eftir Gísla Sigurbjörnsson.
Árni Helgason skrifar: Öldungur í Stykk-
ishólmi, en þar segir Árni frá Ágústi
Lárussyni, sem er 86 ára. Hann ræðir við
Ágúst um lífviðhorf hans og birt eru vers
eftir Ágúst.
Pá er sagt frá fundi með fulltrúum
safnaða og fleiri félaga um sumardvalir í
Ási/Ásbyrgi o.fl.
Einnig eru í blöðum þessum birtar
ræður sem haldnar hafa verið við guðs-
þjónustur á Grund.
Desember-blað Hcimilispóstsins er
helgað boðskap jólanna og þar birtist
smásagan Hvíta skipið eftir Guðrúnu
Lárusdóttur og 2 kvæði eftir Guðrúnu
Guðmundsdóttur frá Melgerði: Jólin á
Grund og Gamlaárskvöld og annað eftir
Þórhildi Sveinsdóttur: Á jólunum og eftir
Karl Bjarnason: Friðarjól. Fremst i blað-
inu er eftir sr. Sigurbjörn Á. Gíslason: f
dag er yður frelsari fæddur (Samtal á
jóladaginn), cn það er endurprentað úr
Bjarma frá árinu 1928.
Tímarit Gigtarfélags íslands
Nýkomið er út Tímarit Gigtarfélags
fslands. Þar er, auk margs konar félags-
frétta, birtur kafli úr erindi, sem flutt var
á sameiginlegum fundi norrænu gigtarfé-
laganna: Mannlegi þátturinn aða baki
sjúkdómsgsreiningarinnar. Þaðerindi var
samið og flutt af gigtsjúkri norskri konu,
Hallgerd Skaar að nafni.
Þá er í þcssu tímariti sagt frá upplýs-
ingariti sem nefnist: „Rauðir úlfar" -
upplýsingarit fyrir sjúklinga, gefið út af
Gigtarfélagi íslands.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður ritsins cr
Einar S. Ingólfsson.
20 sönglög
eftir Ólaf I. Magnússon
20 sönglög eftir Ólaf I. Magnússon eru
að koma á markaðinn um þessar mundir.
Flest laganna hefur Eyþór Þorláksson,
hljóðfæraleikari í Hafnarfirði útsett, en
Jónas Tómasson, fyrrverandi organleik-
ari á ísafirði útsetti tvö og Páll Halldórs-
son, fyrrv. organleikari í Reykjavík tvö.
Eyþór Þorláksson hefur skrifað nóturn-
ar og séð um allan frágang, en bókin er
prentuð í Prentstofu G. Benediktssonar.
Frjáls verslun - þríefld
Á þessu hausti sameinaði Frjálst fram-
tak hf. þrjú af tímaritum sínum þegar
Iðnaðarblaðið og Viðskipta- & tölvublað-
ið runnu saman við Frjálsa verslun, og
eru fjögur tölublöð þegar komin út í
breyttri mynd.
I þessu blaði er viðtal við Þórð S.
Gunnarsson hrl., fyrrv. stjórnarformann
Olís.
Þá er í þessu blaði listi Frjálsrar
verslunar um 100 stærstu fyrirtæki
landsins, og ýmiss konar yfirlit yfir starf-
semi þeirra. Þáerustuttarviðskiptafréttir
af erlendum vettvangi, sagt frá ráðstefnu
SÍA - Sambands íslenskra auglýsinga-
stofa - en þar hélt fyrirlestur David
Wheeler, framkv.stj. Félags auglýsinga-
stofa í Bretlandi.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður Frjálsrar
verslunarer Helgi Magnússon. Útgefandi
er Frjálst framtak hf.
uÉTl Hafírðu
smakkað vín
- láttu ;þér þá AU)REI
detta í hug
að keyra!
ÓKEYPIS
hönnun auglýsingar
þegar þú auglýsir í
TÍMANUM
AUGLÝSINGASÍMI 680001
Símavarsla
Tíminn óskar eftir að ráða starfskraft í
hálfsdags starf á skiptiborð, í einn og
hálfan mánuð.
Upplýsingar gefur skrifstofustjóri í síma
686300.
Tíminn
Selfoss og nágrenni
Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra ræðir
stjórnmálaviðhorfið á Hótel Selfossi fimmtudags-
kvöldið 15. desember kl. 21.00.
Allir velkomnir.
Framsóknarfélag Selfoss
Borgnesingar - Nærsveitir
Spilum félagsvist í Samkomuhúsinu, Borgarnesi, föstudaginn 16.
desember kl. 20.30.
Síðasta kvöld í þriggja kvölda keppni.
Góð verðlaun.
Mætum vel og stundvíslega.
Framsóknarfélag Borgarness
Rangæingar
Spilum félagsvist að Hlíöarenda sunnudaginn 18. desember kl. 21.00.
Stjórnin
Steingrímur
BÆKUR
Jónína Leósdóttir.
Séra Sigurður Haukur
Guðjónsson.
Guð almáttugur
hjálp þér
Endurminningar séra
Sigurðar Hauks
Guðjónssonar
Út eru komnar endurminningar
séra Sigurðar Hauks
Guðjónssonar, sem Jónína
Leósdóttirritstjórihefurskráð, og
nefnist bókin „Guð almáttugur
hjálpi þér“.
Séra Sigurður Haukur fæddist
1927 í Hafnarfirði en ólst upp í
Ölfusi. Að loknu embættisbprófi,
starfaði hann um hríð hjá
Sambandi íslenskra
samvinnufélaga, en vígðist síðan
1955 prestur að Hálsi í Fnjóskadal.
Frá 1964 hefur hann verið
sóknarprestur í Langholtssókn í
Reykjavík, en hyggst á næstunni
láta af embætti.
Fáir prestar eru umdeildari
hérlendis en séra Sigurður
Haukur, og má nefna snarpar
ádrepur hans um ýmis málefni,
„poppmessur" fyrir unghnga og
stuðning hans við sálarrannsóknir
og læknamiðilinn Einar á
Einarsstöðum. Hefur hann jafnan
verið talinn í röð hinna
„frjálslyndari" kennimanna
hérlendis og þótt sýna áræði í
embættisverkum sínum og ýmissi
nýbreytni.
í frásögn sinni er prestur
fundvís á eftirminnileg atvik og
bregður upp ljóslifandi myndum
af samferðarmönnum sínum, auk
þess að miðla lesendum af
margvíslegum
umhugsunarefnum. Má þar nefna
ýmsar frásagnir úr prestsstarfinu
og sálusorgun, auk þess sem
kynni hans af sálarrannsóknum
og læknamiðlum munu vekja
áhuga margra.
Bókin er 294 blaðsíður, með um
75 myndum. Útgefandi er Nýja
bókaútgáfan hf.
Öldin okkar
1981-1985
Iðunn hefur gefið út nýja bók í
bókaflokknum um Aldirnar.
Öldin okkar, minnisverð
tíðindi áranna 1981-1985, er
sjöunda bókin um öldina sem nú
er að líða, en jafnframt fjórtánda
bindi bókaflokksins sem nefndur
hefur verið Aldirnar. Hér er saga
liðinna atburða rakin bæði í máli
og myndum. Bækur þessar hafa
notið ótrúlegra vinsælda meðal
fólks á öllum aldri. Þær eru lesnar
jafnt tU skemmtunar og fróðleiks
og sem uppsláttarrit um liðna tíð
tapa þær aldrei gildi sínu.
Öldin okkar 1981-1985 rekur á
sama hátt og fyrri bækur helstu
atburði þessara ára og hefur
meðal annars að geyma frásagnir
af fyrsta bankaráni á íslandi,
Helliseyjarslysinu, frækilegu
sundi Guðlaugs Friðþórssonar,
Vilmundi Gylfasyni og stofnun B J,
BSRB-verkfaUinu, gjaldþroti
Hafskips, kvennaframboðum,
heimsókn furstahjónanna af
Mónakó og fjölmörgum
fréttnæmum atburðum, stórum
og smáum.
Nanna Rögnvaldsdóttir og
Sigurður G. Tómasson tóku
bókina saman.
Á sama
sólarhring
Hjá Grænu skáldsögunum er
komin út skáldsagan Á sama
sólarhring eftir Louis Bromfield,
sem er þekktur bandarískur
rithöfundur og hafa margar bóka
hans notið mikiUa vinsælda
íslenskra lesenda, svo sem Nótt í
Bombay, Auðlegð og konur og Frú
Parkingson.
Á sama sólarhring segir frá
auðugum sérvitringi, sem leiðist
einvera og býður til sin fjölda
fólks, sem hann fyrirlítur í hjarta
sínu. Verður uppátækið að
spennandi atburðarás.
Paradísareyjan
- ný bók eftir Viktoríu Holt
Vaka-HelgafeU hefur gefið út
nýja bók eftir Victoriu Holt sem er
einn vinsælasti höfundur
rómantískra örlagasagna um
allan heim.
Efni nýju bókarinnar,
Paradísareyjan, er þrungim
spennu sem tengist örlögum
ungrar stúlku sem látin háfði verið
í hundrað ár. Annalice rekst af
tUviljun á vinhirt leiði stúlkunnar
og skömmu síðar finnur hún
dagbók hennar sem hefur að
geyma óvænta leyndardóma.
Meðal annars finnur Annalice
gamalt kort af leyndardómsfullri
eyju. Frá henni er greint í
dagbókinni og sagt að þar leynist
mikU auðæfi.
Sigurður Bjarnason þýddi
Paradísareyjuna sem er 338
blaðsíður að stærð. Bókin kostar
1680 krónur með söluskatti.
BILALEIGA
með útibú alil i kringurri
landið, gera þér mögulegt
að leigja bíl á einum stað
og skila honum á öörum.
Reykjavík
91-31615/31815
Akureyri
96-21715/23515
Pöntum bíla erlendis
interRent
Bílaleiga Akureyrar
LOKAÐ VEGNA FUNDAR
MEÐ STARFSMÖNNUM
Vegna sameiginlegs kynningarfundar með starfsmönnum um væntanlega hækkun vörugjalds, verða eftirtalin iðnfyrirtæki
lokuð í dag kl. 13-14.30
Vífilfell hf. Sælgætisgerðin Freyja hf.
Ölgerðin Egill Sælgætisgerðin Góa hf.
Skallagrímsson hf. Sælgætisgerðin Opal
Sanitas hf. Sælgætisgerðin Drift sf.
Sana hf., Akureyri Sælgætisgeröin Móna
Sól hf. Sælgætisgerð
Nói-Síríus hf. Kristins Árnasonar
Linda hfM Akureyri Lakkrísgerðin Krummi Kexverksmiðjan Frón hf.