Tíminn - 31.12.1988, Blaðsíða 7

Tíminn - 31.12.1988, Blaðsíða 7
iwniT c> 5Q6I . TS UiQBblBgL'B-! Laugardagur 31. desember 1988 r*nr*~-n0'-r~yr' r-r-'i-<F'Yimr*r*iií'W~vw~* ■> Tíminn 7 Tíminn flutti í nýtt og glæsilegt húsnæði að Lynghálsi 9 í júní. Hér sést þar sem verið er að leggja síðustu hönd á nýja húsið. Tímamynd Gunnar í byrjun júnímánaðar, en hún varð í kjölfar hatrammrar baráttu and- stæðra hluthafafylkinga þar sem kom fram að mikil fjármálaóreiða var til staðar. Eins og kunnugt er fór það svo að Helgarpósturinn lagði upp laupana og starfsfólkið var rekið, mótleikur þeirra var sá að einn blaðamanna HP eignaði sér Júní Endalok Helgarpostsins Upplausn varð á Helgarpóstinum nafnið og skráði nýtt hlutafélag und- ir heitinu: Helgarpósturinn. Hvalveidar Hvalamálið svokallaða var mikið í fréttum í júnímánuði. Öfgasinnar biðu lægri hlut á fundi Alþjóða hvalveiðiráðsins í byrjun mánaðar- ins og var ályktun fundarins á þá leið að íslensk stjórnvöld skyldu endur- skoða vísindaveiðar á hval. Halldór Ásgrímsson. sjávarútvegsráðherra leit á þessa niðurstöðu sem áfanga- sigur fyrir íslendinga. Seinna í sama mánuði vannst annar sætur sigur er Bandaríkja- menn féllust á að vísindaveiðar ís- lendinga voru viðurkenndar af Bandaríkjamönnum eftir smávægi- legar breytingar á vísindaáætluninni. 2 milljarðar fjármagnskostnað Á aðalfundi SÍS sem haldinn var í Verjendur í Kaffibaunamálinu. Frá vinstri: Örn Clausen verjandi GíslaTheodórssonar, Guðmundur Ingvi Sigurðsson verjandi Hjalta Pálssonar og Jón Finnssonar verjandi Erlendar Einarssonar. Timamynd Gunnar Forsetakosningar voru í júnímánuði. Hér sést Vigdís Finnboga- dóttir forseti (slands greloa atkvæði. Hún hlaut örugga kosningu. Tímamynd Pjetur júní kom fram að þctta stærsta fyrirtæki landsins átti í nokkrum erfiðleikum. Kom fram að rekstrar- tekjur jukust um 19,7% en gjöld J jukust um 27,6%, en bókfært rekstr- artap narn aðcins tæpum 49 milljón- um. Fjármagnskostnaður fyrirtækis- ins var svimandi hár eða um 2 milljarðar króna. Allir í gluggaþvottinn í Hagtíðindum kom fram í júní að sáralítill vöxtur hafði verið í fram- leiðsluatvinnugreinum á landinu síð- ustu þrjú árin ef miðað var við fjölgun ársverka. Hins vegarsexfald- aðist fjöldi innheimtumanna og ann- ar hclsti vaxtarbroddurinn í atvinnu- lífinu reyndist vera gluggaþvottur! Framhald á bls. 10 Gleðilegt nýtt ár Þökkum starfsfólki og viðskiptavinum ánægjulegt samstarf og viðskipti á árinu, sem er að líða. Hraðfrystihús Kaupfélags Austur-Skaftfellinga Höfn, Hornafirði

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.