Tíminn - 31.12.1988, Blaðsíða 12
12 Tíminn
DAGVIST BARINIA
Fóstrur, þroska-
þjálfar, áhugasamt
starfsfólk!
Dagvist barna, Reykjavík, óskar eftir starfsfólki
í gefandi störf á góðum vinnustöðum.
Til greina koma hlutastörf bæöi fyrir og eftir
hádegi. Upplýsingar veita forstöðumenn eftirtal-
inna dagvistarheimila og skrifstofa Dagvistar
barna, sími 27277.
AUSTURBÆR
Lækjarborg v/Leirulæk s. 686351
Staöarborg v/Háageröi s. 30345
BREIÐHOLT
Hraunborg Hraunbergi 10 s. 79600
VESTURBÆR
Drafnarborg v/Drafnarstíg s. 23727
Þjóðhátíðarsjóður
auglýsir eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum á
árinu 1989.
Samkvæmt skipulagsskrá sjóðsins nr. 361 30. september 1977
er tilgangur sjóðsins „að veita styrki tii stofnana og annarra
aðila, er hafa það verkefni að vinna að varðveislu og vernd þeirra
verðmæta lands og menningar, sem núverandi kynslóð hefur
tekið í arf.
a) Fjórðungur af árlegu ráðstöfunarfé sjóðsins skal renna til
Friðlýsingarsjóðs til náttúru verndar á vegum Náttúruverndar-
ráðs.
b) Fjórðungur af árlegu ráðstöfunarfé sjóðsins skal renna til
varðveislu fornminja, gamalla bygginga og annarra menning-
arverðmæta á vegum Þjóðminjasafns.
Að öðru leyti úthlutar stjórn sjóðsins ráðstöfunarfé hverju sinni
í samræmi við megintilgang hans, og komi þar einnig til álita
viðbótarstyrkir til þarfa, sem getið er í liðum a) og b).
Við það skal miða, að styrkir úr sjóðnum verði viðbótarframlag
til þeirra verkefna, sem styrkt eru, en verði ekki til þess að lækka
önnur opinber framlög til þeirra eða draga úr stuðningi annarra
við þau.“
Stefnt er að úthlutun á fyrri hluta komandi árs. Umsóknarfrestur
er til og með 24. febrúar 1989. Eldri umsóknir ber að endurnýja.
Umsóknareyðublöð liggja frammi í afgreiðslu Seðlabanka
íslands, Kalkofnsvegi 1, Reykjavík. Nánari upplýsingar gefur
ritari sjóðsstjórnar, Sveinbjörn Hafliðason í síma (91) 699600.
Reykjavík, 28. desember 1988
ÞJÓÐHÁTÍÐARSJÓÐUR
Félagsmálastofnun
Reykjavíkurborgar
Yfirfélagsráðgjafi
Laus er staða yfirféiagsráðgjafa III við hverfaskrif-
stofu Fjölskyldudeildar í Breiðholti.
Starfsreynsla og þekking á fjölskylduvinnu er
skilyrði fyrir ráðningu.
Upplýsingar veitir yfirmaður Fjölskyldudeildar í
síma 25500 og umsóknarfrestur er til 13. janúar.
Umsóknum skal skilatil starfsmannahalds Reykja-
víkurborgar, Pósthússtræti 9 á eyðublöðum sem
þar fást.
Laugardagur 31. desember 1988 Laugardagur 31. desember 1988
Tíminn 13
Eftir aurskriðurnar sem féllu á
Ólafsjörð þann 28. ágúst var hættu-
ástandi aflétt þann 31. ágúst. Skurðir
þeir sem grafnir voru við fjallið, til
að veita vatninu burt, báru tilætlað-
an árangur. Fólkinu sem býr á
brekkunni var leyft að halda heim á
leið og huga að húsum sínum, og
vinnuflokkar voru teknir til starfa
Striplingur stal senunni í
upphafi landsleiks Islendinga og
Sovétmanna á Laugardalsvelli. Lög-
regluþjónargómuðu manninn í öðru
markinu eftir eltingaleik. Lögreglu-
konan á myndinni hefur augun hjá
sér, enda þurfti að semja skýrslu um
atburöinn. Timamynd Pjetur
Ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar var mynduð í september. Hér sjást ráðherrar
ríkisstjórnarinnar ásamt forseta íslands, frú Vigdísi Finnbogadóttur. Tímamynd Árni Bjama
Þeir sitia að tafli. Kortsnoj í þessum heimi, en Geza Maroczy handan móðunnar miklu. Miðilsaðstoðar
er þörf til ao koma leikjum á milli. Frétt Tímans af „handanheimsskákinni" vakti heimsathygli. Tímamynd Árni Bjarna
Október
Teflt milli heima
Victor Kortsnoj, skákmeistarinn
góðkunni, vakti verðskuldaða at-
hygli á heimsbikarskákmóti því er
Stöð stóð fyrir í október mánuði.
Tíminn flutti þann 5. þess mánaðar
fréttir af því að Kortsnoj væri farinn
að etja kappi við framliðinn stór-
meistara Geza Maroczy að nafni en
hann lést árið 1951.
Skák þessi hefur verið tefld með
hléum í fjögur ár og er fullyrt að
þetta sé fyrsta skákin sem tefld er
milli tveggja heima. Á þeim tíma er
fréttin birtist höfðu 30 leikir verið
leiknir.
Nafnvaxtalækkun
Fyrstu skref vaxtalækkana voru
kynnt í Tímanum 8. október. Þar
var m.a. haft eftir Jóni Sigurðssyni
viðskiptaráðherra að nauðsynlegt
væri að lækka nafnvexti um 5-10%
á næstu vikum.
Steingrímur Hermannsson lagði á
það þunga áherslu að ef ekki yrði
leyfð vísitölubinding launa þá yrði
ekki hægt að leyfa vísitölutengingu
fjármagns.
Það var og haft eftir Jóni Sigurðs-
syni að fyrstu skref vaxtalækkunar-
innar yrðu tekin þegar á mánudaginn
10. október.
Hugviti stolið
Þann 11. október birtist á forsíðu
Tímans, frétt um það að íslensku
hugviti hefði verið stolið og það selt
í henni Ameríku.
Það var fyrirtækið Micro Weigh
Inc. sem orðað var við þjófnað
þennan en fyrirtækið hafði m.a.
umboð fyrir nokkrar vörur Póls-
tækni á árunum 1983-86.
Micro Weigh auglýsti í október-
hefti National Fisherman sérstaka
útsölu á tölvuvogum í skip, sem
óneitanlega líktust blöndu af skipa-
vogum frá Pólstækni og Marel.
Guðrún forseti
Kvikmyndin „í skugga hrafnsins"
var töluvert í sviðsljósinu í október
og þá ekki síst fyrir þær sakir að þau
Tinna Gunnlaugsdóttir og Helgi
Skúlason voru bæði tilnefnd til fyrstu
Evrópuverðlaunanna fyrir leik
þeirra í myndinni.
Þann sama dag var flutt frétt af því
að Guðrún Helgadóttir hefði verið
kjörin forseti sameinaðs þings. Það
var reyndar í fyrsta sinn sem kona
hefur verið kjörin til þess starfs.
Tinna Gunnlaugsdóttir var tilnefnd til Evrópuverðlauna fyrir
leik í kvikmynd bróður síns, í skugga hrafnsins. Helgi Skúlason var einnig
tilnefndur, en hvorugt þeirra hlaut verðlaunin.
Oskum öllum
farsældar
a komandi ári
Þökkum ánægjulegt samstarf
og viðskipti á liðnu ári
Fiskimjöls-
verksmiðjan hf.
Höfn, Hornafirði
viö hreinsun garöa og gatna bæjar-
ins.
Sambandið fær nýtt
skip í flotann
I lok ágúst var Helgafell, það
nýjasta í Skipadeild Sambandsins,
formlega afhent. Það hefur mesta
gámaflutningsgetu íslenska kaup-
skipaflotans, getur flutt 426 gáma og
hægt er að tengja 60 frystigáma.
Skipið er 7.200 burðartonn að
þyngd.
Aðgerða er þörf strax
„Teningunum hefur verið kastað.
Með frestun aðgerða og samþykki
verkalýðshreyfingarinnar verður
ekki aftur snúið með niðurfærslu-
leiðina, sem er eina færa leiðin út úr
þeim efnahagsþrengingum sem
þjóðin er nú í. Því þarf ríkisstjórnin
að taka fjölmargar ákvarðanir á
mörgum sviðum, næstu tvær til þrjár
vikurnar. Aðgerða er þörf strax.“
Þetta sagði Steingrímur Hermanns-
son, formaður Framsóknarflokks-
ins, á 50 ára afmælisþingi Sambands
ungra framsóknarmanna, sem hófst
á Laugarvatni þann 2. september.
Þetta var 22. þing og var SUF
einmitt stofnað á Laugarvatni, 50
árum áður.
Austur-þysk stúlka leitar
hælis í Reykjavík
A.m.k. tveir áratugir voru liðnir
frá því að pólitískur flóttamaður
leitaði hælis á íslandi síðast, þegar
Heidi Schlossen, tvítug austur-þýsk
stúlka, leitaði hælis í byrjun sept-
ember. Hún stakk samferðafólk sitt
af, fór í sendiráð Vestur-Þýskalands
við Túngötu, og þaðan fljótlega af
landi brott. Stúlkan kemur úr tvístr-
aðri fjölskyldu, sem er þannig vegna
tilvistar járntjaldsins. Foreldrar
hennar eru nú aldraðir og þau einu
úr fjölskyldunni sem eftir eru í
Austur-Þýskalandi.
Avöxtun sf. stöðvuð og
sjóðir teknir yfir
Þann 5. sept. tók Seðlabankinn að
sér vörslu fiármuna verðbréfasjóð-
anna sem Ávöxtun sf. annaðist og
var annar eigandi fyrirtækisins svipt-
ur réttindum til verðbréfamiðlunar
tímabundið, eftir að ríkissaksóknari
ákvað að hefja opinbera rannsókn á
málinu.
Mikil skuldasöfnun
sjávarútvegsins
og verslunarinnar
Sjávarútvegurinn var kominn í
sex milljarða króna skuld við banka-
kerfið um miðjan september, og
Landsbankinn hætti lánveitingum,
utan hefðbundinna afurðarlána.
Ný þriggja flokka
ríkisstjórn
Ríkisstjórn Steingríms Her-
mannssonar tók við á hádegi þann
28. september og fékk hún stuðning
meirihluta Alþingis. Daginn áður
ríkti nokkur óvissa um hvort Stefán
Valgeirsson styddi ríkisstjórnina, án
beinnar aðildar að henni, en sam-
komulag náðist að lokum.
INNLENDUR
ANNÁLL
1988
September
á Laugardalsvelli
Miðvikudaginn 31. ágúst vai
landsleikur íslands og Sovétríkjannt
á Laugardalsvelli. Þá átti sér stað si
einstæði viðburður, að allsnakinr
rnaður hljóp út á leikvöllinn. Honun:
tókst að komast eftir vellinum og inr
í annað markið, en þar náði löggan
í skottið á honum og fór með hann i
burtu. Atvik þetta var litið alvarleg-
um augum af lögreglunni, sérstak-
lega þar sem verið var að leika
sovéska þjóðsönginn. Úrslitin í
leiknum urðu jafntefli, 1 gegn 1.
Vextir á skuldabréfum
lækka um rúm 14%
Viðskiptabankarnir og sparisjóðir
skiluðu inn tillögum að lækkun nafn-
vaxta til Seðlabankans, þennan sama
dag, í kjölfar fundar sem þessir
aðilar áttu mánudaginn á undan og
sú lækkun tók gildi frá og með 1.
september. Innlánsvextir lækkuðu
mest á skiptikjarareikningum bank-
Hættuastandi aflett
á Ólafsfirði