Tíminn - 03.01.1989, Blaðsíða 2
2 Tíminn
Þriðjudagur 3. janúar 1989
Samið um sérfræðiþjónustu lækna:
Kostnaður lækkar
um 80 milljónir
Samkomulag hefur náðst milli heilbrigðisráðuneytisins
og fulltrúa lækna um gjald fyrir sérfræðiþjónustu. Sam-
komulagið var undirritað á gamlársdag en eftir er að bera
samninginn undir Tryggingaráö og Læknafélag Reykjavík-
ur. Ráðgert er að samningurinn leiði til 80 milljóna króna
sparnaðar á þessu ári, sem samsvarar því að vera 10% af
áætluðum kostnaði ríkisins vegna sérfræðiþjónustu á árinu
1988.
Að sögn Guðmuntlar Bjarna-
sonar heilbrigðisráðherra byggist
samningurinn á því að reyna að
draga úr kostnaði ríkisins vegna
sérfræðiþjónustu scm hefur vaxið
á undanfömum árum umfram aðra
þætti heilbrigðisþjónustunnar.
„Við ætluðum að ná fram sparnaði
með því að taka aftur upp tilvísana-
kerfið, en sumir hafa haldið því
fram að niðurfelling þess hafi ieitt
til aukins kostnaðar. ísamningnunt
ganga sérfræðingarnir inn á það að
vcita tiltekinn afsiátt af sérfræði-
töxtunum, gegn því að við frestum
því um eitt ár að taka tilvísanakerf-
ið aftur upp. Við áætlum að þctta
ieiði til 80 milljóna króna sparnað-
ar á þessu ári.“
Guðmundur sagði einnig að
fyrirhugað væri að fylgjast betur
með því hvort ástæða sé til þess að
athuga nánar hlutfall kostnaðar
milli einstakra sérfræðigreina.
Aðspurður sagðist Guðmundur
vera ánægður með samninginn.
„Ég tel að við megum nokkuð vel
við una og vænti þess að sérfræð-
ingarnir geri það líka því þeir
lögðu mikla áherslu á það að
tilvísanakerfið yrði ekki tckið upp.
Mér sýnist að gerð þcssa samnings
og sparnaðurinn sem honum fylgir
svari þeim kröfum sem gerðar voru
til heilbrigðisyfirvalda við fjarlaga-
gerðina.*'
Afsláttur sérfræðinganna er
hlutfallslegur, þ.e. fervaxandieftir
því sem meiri þjónusta er veitt.
Samkvæmt hcimildum Tímans er
hann á bilinu 10-40%. Einnigmun
afslátturinn vera breytilegur eftir
því um hvers konar sérfræðiþjón-
ustu er að ræða. SSH
Áramótagleðin fór víðast hvar vel fram:
Mikil ölvun í
heimahúsum
Mikill erill var hjá lögreglu víða
um land á nýársnótt og var fjöldi
ökumanna tekinn grunaður um ölv-
un við akstur, einkum þegar líða tók
á morguninn. Útköll lögreglu voru
einkum í tengslum við ölvun í heima-
húsum, en á heildina litið voru
löggæslumenn ánægðir með hegðun
fólks og ekki urðu nein teljandi
meiðsl á mönnum.
Hjá lögreglunni í Reykjavík byrj-
aði að rigna inn útköllum upp úr
klukkan tvö og linnti þeim ekki fyrr
en um klukkan 9 á nýársdagsmorg-
un, var það svo á tíma að verulega
dróst að lögreglan gæti sinnt öllum
útköllum. Þegar líða tók að morgni
urðu útköllin öðru fremur vegna
ölvunar í heimahúsum og ölvunar-
akstur. Átján voru teknir grunaðir
um ölvun við akstur í Reykjavík frá
því um kvöldið á gamíársdag og
fram til hádegis á nýársdag.
Á Akureyri fór skemmtanahald
mjög vel fram og ekki kom til neinna
teljandi vandræða. Þar sem mjög
gott veður var, safnaðist fjöldi
manns saman í miðbænum undir
morguninn og þurfti lögreglan að
hafa nokkur afskipti af því. Þrír
voru grunaðir um ölvunarakstur.
í Hafnarfirði og Kópavogi voru
þrír á hvorum stað teknir fyrir
ölvunarakstur. Hjá lögreglunni
fengust þær upplýsingar að mjög
rólegt hefði verið yfir fólki, en þó
hefði þurft að sinna nokkrum útköll-
um í heimahús, þar sem um ölvun
var að ræða. Lögreglan í Kópavogi
sagði að þessi áramót hefðu verið
óvenju róleg, miðað við undanfarin
ár.
Á ísafirði voru þrír ökumenn
teknir grunaðir um ölvunarakstur á
nýársnótt og tengjast þeir allir
óhöppum. Að sögn lögreglu fóru
áramótin að öðru leyti vel fram og
erillinn ekki meiri en um venjulega
helgi.
A Selfossi var sömu sögu að segja.
Áramótin fóru mjög vel fram að
sögn lögreglu, að öðru leyti en því
að sex voru teknir grunaðir um
ölvun við akstur. Þá var einn grunað-
ur um ölvunarakstur í Vík í Mýrdal.
Lögreglan þar hafði í nokkru að
snúast og var eitthvað um rúðubrot
og smávægileg meiðsl. -ABÓ
Forsvarsmenn Hótel íslands:
Neita þrengslum
á gamlárskvöld
Forráðamenn Hótel íslands þykja
hafa verið nokkuð fégráðugir á ný-
ársnótt. Eftir því sem gestir staðarins
þá nótt segja var hvergi hægt að
þverfóta fyrir fólki.
„Ég var stödd á neðri hæð hússins
og ætlaði mér að fara upp stigann.
Hvert einasta þrep var þéttskipað
fólki og því komst ég ekki eitt né
neitt. Einhver óþokki sem staddur
var á efsta palli stigans tók þá upp á
því að ýta við einum þeirra sem í
efsta þrepinu var með þeim af-
leiðingum að þeir scm í stiganum
stóðu duttu hver unt annan þveran.
Fólkið hreinlega hrundi niður stig-
ann líkt og spilaborg," sagði einn
gestanna í samtali við Tímann.
Tíminn bar fréttir af of miklum
mannfjölda inni á staðnum undir
Birgi Hrafnsson hjá Ólafi Laufdal
hf.
„Mér finnst þessar fréttir nú tæp-
lega svara verðar. í húsinu var
nákvæmlega löglegur fjöldi fólks
eins og alltaf hefur verið á Hótel
íslandi. Það hefur oft og tíðum verið
talið út úr húsinu en aldrei hefur
verið of margt þar. Þess vegna vísa
ég þessu alfarið heim til föðurhús-
anna.
Það vita eflaust flestir að gamlárs-
kvöld er mjög sérstakt kvöld. Segja
má að hver gestur sé að minnsta
kosti þrefaldur í umfangi á þessu
kvöldi. Við vorum með hljómsveitir
í öllum þrcmur sölurn hússins til að
reyna að dreifa fólkinu sem mest.
Því er svo ckki að neita að um-
gengni þessa fólks sem staðinn sótti
var ekkert til að hrópa húrra yfir.
Þarna inni voru ítrekað sprengdir
„kínverjar" og allskyns sprengjur og
mikið tjón unnið á staðnum.**
Að sögn lögreglu var töluvert um
það að hún væri kölluð að Hótel
íslandi á nýjársnótt og eitthvað mun
hafa verið um slys á fólki þar. Þá er
það haft eftir lögreglu að suntir þeir
sem komust inn í húsið, hafi náð að
greiða aðgangseyrinn og komast í
humátt að fatageymslunni en þar
hafi þeir þurft að snúa til baka og fá
endurgreitt sökum mannmergðar.
- áma
UMSKIPTI
HJÁÚTSÝN
Þýsk-íslenska verslunarfélagið
hefur keypt síðasta eignarhluta
Ingólfs Guðbrandssonar fyrrum
aðaleiganda ferðaskrifstofunnar
Útsýnar. Ingólfur og sonur hans
Andri Már, sem verið hefur fram-
kvæmdastjóri Útsýnar hf. að
undanförnu, hafa nú hætt störfum
hjá ferðaskrifstofunni.
Sala á síðasta eignarhluta þeirra
feðga í fyrirtækinu, sem var 10%,
fór fram á gamlársdag. Andri Már
sagði starfi sínu lausu á stjórnar-
fundi á milli jóla og nýárs og hætti
störfum samdægurs. Ástæðan er
sögð ósamkomulag hans og Ómars
Kristjánssonar eiganda Þýsk-ís-
lenska. Þá rann einnig út nú um
áramótin samstarfssamningur sem
gerður hafði verið milli Ómars og
Ingólfs árið 1986 og var ekki talin
ástæða til að framlengja hann í
ljósi síðustu atburða.
f gærmorgun mætti Ingólfur á
skrifstofuna til að skýra út fyrir
starfsfólkinu stöðu mála. Að sögn
eru starfsmenn ráðvilltir hvað
áframhaldandi starf ferðaskrifstof-
unnar varðar. Andri Már hefur
ráðið sig sem framkvæmdastjóri
Ferðamiðstöðvarinnar. -ABÓ
Þannig leit framhlið KRON út eftir árásir helgarinnar.
Tímamyndir: Pjetur
Mikil skemmdarverkframin viö Eddufell í Breiðholti um áramótin:
Ætluðu að leggja
hér allt í rúst!
Það virðist vera viðtekin venja hjá
ákveðnum hópum fólks að ganga af
göflunum á nýjársnótt og níðast á
náunganum. Um hver áramót safn-
ast þessir ákveðnu hópar þannig
þenkjandi fólks saman hér og þar og
ganga berserksgang, brjóta allt og
mölva rétt eins og þeim sé borgað
fyrir það. Slíkur hópur var einmitt
að eyðileggja fyrir öðrum í Breið-
holtinu nýliðna nýjársnótt, eflaust
sér til ómældrar ánægju og yndis-
auka.
Bjarna Rúnari Sigurðssyni, versl-
unarstjóra KRON í Eddufelli fórust
þannig orð:
„Mér leist nú bara satt best að
segja ekkert á þetta. Ég var úti á
landi yfir hátíðirnar og vissi ekki af
þessum látum fyrr en á heimleið
þegar mér var sagt að mikið hefði
gengið hér á. Mitt fyrsta verk þegar
ég kom í bæinn var að líta á
verksummerkin. Þá var búið að
negla fyrir rúður í flestöllum búðun-
um og glerbrot út um allt.
Þegar rifið var frá gluggunum í
morgun kom svo í ljós að einar átta
rúður höfðu verið brotnar hér hjá
okkur, þar af voru fimni þeirra
u.þ.b. 3 fermetrar í ummál hver.
Það má segja að framhlið verslunar-
innar hafi verið brotin eins og hún
lagði sig. Það var farið hér inn og
lítillega gramsað í sjoppunni en litlu
stolið. Þjófarnir hafa að öllum lík-
indum verið að leita að peningum og
tóbaki en haft lítið upp úr krafsinu.
Við vorum með öryggisgæslu hér
á staðnum en það dugði ekki til. Það
var kallað á aðstoð lögreglu og ég
held að mestallt lögreglulið borgar-
innar hafi mætt á staðinn. Eftir því
sem einn af starfsmönnum öryggis-
gæslunnar tjáði mér sögðust krakk-
arnir ætla að leggja hér allt í rúst.
Mér skilst að svæðið hér í kring hafi
svo verið vaktað alla nóttina og hver
sem gerði sig líklegan til einhverra
ódæða var umsvifalaust gripinn
höndum.
Þetta er reyndar ekki í fyrsta sinn
sem slíkt gerist hér um áramót því
atburðir líkir þessum munu hafa
verið nokkuð algengir hér fyrir
nokkrum árum. Þessi læti gefa vissu-
lega tilefni til að byrgja hér glugga,
enda höfðu nokkrir verslunareig-
endur þann háttinn á fyrir þessi
áramót. Þeirra rúður eru heilar í
dag“. - áma.