Tíminn - 03.01.1989, Síða 6
6 Tíminn
Þriðjudagur 3. janúar 1989
Forseti veitir heiöursmerki
20 manns hljóta
riddarakrossinn
Samkvæmt tillögu orðunefndar sæmdi forseti íslands 21
íslending heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu. Eftir-
taldir tuttugu hlutu riddarakrossinn og einn stórriddara-
kross.
Birgitta Spur safnstjóri Reykjavík,
riddarakross fyrir störf í þágu
höggmyndalistar. Björgvin Freder-
iksen iðnrekandi Reykjavík, ridd-
arakross fyrir störf í þágu iðnaðar.
Bryndís Víglundsdóttir skólastjóri
Garðabæ, riddarakross fyrir störf í
þágu þroskaheftra. Egill Ólafsson
bóndi Hnjóti Örlygshöfn Barða-
strandarsýslu, riddarakross fyrir
söfnun og vörslu sögulegra minja.
Elísabet G.K. Þórólfsdóttir hús-
freyja Fellsströnd Dalasýslu, ridd-
arakross fyrir húsmóður- og upp-
eldisstörf. Guðjón Magnússon for-
maður Rauða kross íslands
Reykjavík, riddarakross fyrir störf
að líknarmálum. Guðrún Magnús-
son sendiherrafrú Reykjavík, ridd-
arakross fyrir störf í opinbera
þágu. Hersteinn Pálsson fyrrver-
andi ritstjóri Seltjarnarnesi, ridd-
arakross fyrir ritstörf. Hörður Sig-
urgestsson forstjóri Reykjavík,
riddarakross fyrir störf að sam-
göngumálum. Jóhannes Stefáns-
son fyrrverandi forseti bæjarstjórn-
ar Neskaupstað, riddarakross fyrir
störf að bæjar og atvinnumálum.
Jón Þórarinsson tónskáld Reykj-
avík, stórriddarakross fyrir störf
að tónlistarmálum. Jón Jónsson
búnaðarmálastjóri Reykjavík,
riddarakross fyrir störf í þágu land-
búnaðarins. Jórunn Viðar tónskáld
Reykjavík, riddarakross fyrir störf
að tónlistarmálum. Kjartan
Guðnason formaður sambands ís-
lenskra berkla- og brjóstholssjúk-
linga Reykjavík, riddarakross fyrir
störf að félags og tryggingamálum.
Margrét Guðnadóttir prófessor
Reykjavík, riddarakross fyrir
kennslu og vísindastörf. Páll Flyg-
enring ráðuneytisstjóri Reykjavík,
riddarakross fyrir störf í opinbera
þágu. Sigurður J. Briem deildar-
stjóri Reykjavík, riddarakross fyrir
störf í opinbera þágu. Sigurlín
Gunnarsdóttir hjúkrunarfræðingur
Reykjavík, riddarakross fyrir störf
í þágu sjúkra. Skapti Áskelsson
skipasmiður Akureyri, riddara-
kross fyrir brautryðjendastarf í
skipasmíðum. Vilhjálmur Jónsson
forstjóri Reykjavík, riddarakross
fyrir störf að atvinnumálum. Séra
Þorsteinn Jóhannesson fyrrverandi
prófastur Reykjavík, riddarakross
fyrir störf að kirkjumálum. jkb
Hagstofan gefur út tilkynn-
ingu um aö leiga húsnæöis
skuli ekki hækka fyrstu þrjá
mánuöi þessa árs:
Húsaleiga
er óbreytt
Hagstofa Islands hefur gefið út
tilkynningu um að húsaleiga skuli
vera óbreytt mánuðina janúar, fe-
brúar og mars 1989, frá því sem hún
var í desember á síðasta ári.
Þessi ákvörðun er liður í verð-
stöðvun ríkisstjórnarinnar og gildir
um leigu fyrir íbúðarhúsnæði og
atvinnuhúsnæði sem samkvæmt
samningum fylgir vísitölu húsnæðis-
kostnaðar eða breytingu meðallauna
samanber lög númer 62 frá árinu
1984. Verðbótahækkun húsaleigu
fylgir hækkun launa. Þar sem laun
hækkuðu ekki í október síðast liðn-
um og ekki heldur við upphaf þessa
árs, eins og gert var ráð fyrir í
samningum hækkar þessi viðmiðun-
arstaðall húsaleigu ekki heldur.
Hvort farið er eftir viðmiðunartöl-
um frá Hagstofunni er annað mál og
með því er ekkert eftirlit af hálfu
þess opinbera, enda ekki þægilegt
að koma slíku eftirliti við þar sem
algengt er að hluti húsaleigu sé ekki
gefinn upp til skatts. -ág
íslenski hundastofninn
m er í hættu:
Islenski
hundurinn
dýrgripur
„íslenski hundurinn á fáa
sína líka meöal hunda. Hann
er góölyndur, skapgóður,
greindur og hefur ótrúlega
aðlögunarhæfni,“ sagði Sig-
ríður Pétursdóttir á Ólaf-
svöllum á Skeiðum.
Sigríður hóf að rækta íslenska
hundinn árið 1967 en þá lá við að
hann væri að verða aldauða og enn
er íslenski hundurinn ekki úr allri
hættu því áhugi íslendinga fyrir
hundinum er afar lítill.
í frétt Tímans þann 22. des. sl. er
greint frá því að hreinræktaðir ís-
lenskir hundar á íslandi eru nú
aðeins á annað hundrað dýr og
ræktun því erfið.
Sigríður sagði að eftirspurn eftir
hundinum hefði lítið aukist upp á
síðkastið og væri það miður að
íslendingar skyldu ekki skynja kosti
þessa hunds betur en raunin er og
hvílíkur dýrgripur hann væri.
Hún sagði að sá misskilningur
væri furðu algengur að íslenski
hundurinn þurfi að vera „frjáls“ sem
fólk skildi þannig að hann ætti að
ráfa eftirlitslaus út um sveitir.
Þetta sagði Sigríður alrangt. Fáir
hundar væru auðveldari í meðförum
inni á heimili eða ættu auðveldara
með að aðlaga sig hvers konar
aðstæðum. Það væri hins vegar al-
gerlega undir hundaeigendum sjálf-
um komið hvernig uppeldi hundsins
tækist og það ætti við um allar
hundategundir. -sá
Laxfoss hinn nýi í höfn í Reykjavík. Stærsta skip íslenska flotans mun leysa af tvö minni skip Eimskipafélagsins en þó auka flutningsgetuna um 20%.
Lýsandi dæmi um þróunina í skipaflutningum?
Tímamynd: Pjetur.
Reykjavíkurhöfn:
SKIPUNUM FJEKKAR, EN
FLUTNINGARNIR AUKAST
Skipakomum í Reykjavíkurhöfn fækkaði um 11 frá því í
fyrra en rúmlestatala jókst um 23% eða úr 3.085.000
brúttórúmlestum árið 1987 í 3.804.125 árið 1988.
Heildarvöruflutningar um höfnina
virðast ekki hafa dregist saman að
magni frá fyrra ári, enda þó innflutn-
ingur síðustu mánuði ársins hafi
orðið minni en áætlað var. Útflutn-
ingur um Reykjavíkurhöfn milli ár-
anna ’87 og ’88 hefur aukist veru-
lega.
Á tveimur síðastliðnum árum hef-
ur verið unnið að stækkun hafnar-
svæðisins í Vatnagörðum í Sunda-
höfn og m.a. var Kleppsbakki lengd-
ur í 287 metra. Þá hefur verið unnið
að lengingu skjólgarðs út frá Korn-
garði, til að skapa viðunandi skjól í
hafáttum við Kleppsbakka. Hafnar-
stjórn áætlar að ljúka þessum fram-
kvæmdum á þessu ári. Á síðasta ári
var einnig gerð viðlega fyrr Viðeyj-
arferju í Klettavör í Sundahöfn og
lokið við bryggju í Viðey. Þá hefur
verið unnið að undirbúningi hafnar-
svæðis í Kleppsvík og verður þeim
framkvæmdum haldið áfram.
Stærsta skipið sem kom til Reykja-
víkur á árinu var skemmtiferðaskip-
ið Europa, en það getur lagst að
bryggju í Sundahöfn. Stærsta ís-
lenska skipið sem kom á árinu er hið
nýja skip Eimskipafélagsins, Brúar-
foss sem kom til Reykjavíkurhafnar
í fyrsta sinn 21. desember s.l. - ág
Félag áhugafólks um alnæmi stofnað í Reykjavík:
Stutt við smitaða og sjúka
Nýlega voru stofnuð í Reykjavík Samtök áhugafólks um
alnæmisvandann en alnæmi er nú þegar orðið verulegt
vandamál hér á landi. Tilgangur samtakanna er að styðja
smitaða og sjúka og aðstandendur þeirra og að auka
fræðslu um alnæmi.
Á stofnfundi samtakanna, sem
var vel sóttur, voru stofnaðir þrír
starfshópar: fræðsluhópur, félags-
málahópur og fjáröflunarhópur. í
stjórn samtakanna voru kjörin þau
Auður Matthíasdóttir formaður,
Vilborg Ingólfsdóttir varaformað-
ur, Guðlaugur Einarsson, Guðni
Baldursson, Hólmfríður Gísla-
dóttir, Jón Bj@rman og Sonja B.
Jónsdóttir.
Meðal þeirra, sem fluttu ávörp á
stofnfundinum, voru þeir Kristján
Erlendsson læknir og Ólafur Ólafs-
son landlæknir og fagnaði hann
stofnun samtakanna. Rauði kross
íslands bauð stofnfélögum upp á
veitingar og hefur auk þess gefið
samtökunum 200.000 krónur til
starfseminnar. Þá hefur Lands-
nefnd um alnæmisvarnir gefið sam-
tökunum 100.000 krónur sem er
ágóði af styrktartónleikum þeirra
Bubba Morthens, Harðar Torfa-
sonar og Megasar, en þeir tónleik-
ar voru haldnir í byrjun des. s.l.
Þrátt fyrir talsverða fræðslu um
alnæmi á undanförnum árum virð-
ast margir telja að þessi sjúkdómur
sé einkamál tiltölulega fámenns
hóps. Þann misskilning vilja með-
limir samtakanna reyna að leið-
rétta því alnæmi getur snert hvern
sem er. Þótt maður telji enga hættu
á því að hann smitist sjálfur þá
verður hann átakanlega var við
þennan sjúkdóm ef ættingi eða
vinur smitast.
Nýlegar skoðanakannanir benda
til þess að hér þrífist hræðsla og
fordómar gegn smituðum einstakl-
ingum. Það er staðreynd að smitað
fólk á í miklum erfiðleikum með
að halda atvinnu sinni og að finna
sér öruggt húsnæði. Samtök áhuga-
fólks um alnæmisvandann ætla að
beita sér fyrir breyttu viðhorfi í
garð þeirra sem smitast hafa af
alnæmi og auknum stuðningi við
aðstandendur þeirra.
Þeir sem vilja gerast félagar í
samtökunum eru hvattir til þess að
hafa samband við Auði Matthías-
dóttur í síma 22400.