Tíminn - 03.01.1989, Blaðsíða 7
Tíminn 7
Þriðjudagur 3. janúar 1989
Eftir ríflega 100 tonna, góða flugeldasölu virðist enginn finna ruslið
sem fellur til við áramótin:
Gufa yfir 50 tonn af
flugeldarusli upp?
Svo virðist sem ríflega
fímmtíu tonn af rusli því sem
fellur til um áramótin vegna
notkunar flugelda, svoköll-
uðu flugeldarusli, hafí gufað
upp og hvergi fundist eftir
því sem gatnamálastjóri og
aðrar heimildir herma. Talið
er að ríflega hundrað tonn
hafí selst af flugeldum fyrir
þessi áramót og af því er
áætlað að meira en helming-
ur þess verði eftir á hlaði
fólks eða komi niður úr him-
inhvolfunum aftur.
Tíminn grennslaðist fyrir um hvað
verður um öll þau 50-60 tonn af
flugeldarusli, sem verða eftir þegar
búið er að draga áætlaða púður-
þyngd frá heildarþyngd flugeldasöl-
unnar.
Gatnamálastjóri
finnur ekki tonnin
Gatnamálastjórinn í Reykjavík,
Ingi Ú. Magnússon, var hissa á að
heyra þessa háu tölu, en áætlað er að
um 20—25 tonn af flugeldarusli falli
til á Reykjavíkursvæðinu einu.
Sagðist hann aldrei hafa orðið var
við meira rusl um áramót en aðra
tíma. „Petta dreifist svo víða að við
verðum ekkert varir við öll þessi
tonn af flugeldarusli," sagði Ingi.
„Það er engin sérstök yfirferð hjá
okkur yfir borgarsvæðin, en við
tínum [Detta upp með öðru rusli
þegar farið er yfir svæðin með reglu-
bundnum hætti."
En starfsmenn borgarinnar og
annarra sveitarfélaga hafa þó í nógu
að snúast því hreinsa þarf upp svæði,
þar sem gamlársbrennur hafa verið
tendraðar. Taldi Ingi Ú. að sínir
menn lykju því verki í dag, en við
það starfa allir tiltækir menn hreins-
unardeildarinnar í einu.
Gífurlegt magn flugelda fer í loftið um hver áramót og um helmingur þess svífur til jarðar aftur og kallast þá flugeldarusl. Þessi mynd var tekin þegar fímm
mínútur voru eftir af árinu 1988. Tímamynd Pjetur
Hjá innflytjendum flugelda feng-
ust þær upplýsingar að sala flugelda
hafi verið um og yfir hundrað tonn.
Lúðvík Georgsson, framkvæmda-
stjóri KR-flugelda, sagði að nokkurs
samdráttar hafi gætt hjá söluaðilum
knattspyrnufélagsins. Þar munaði
mest um sölu á tívolíbombum um
síðustu áramót. Sagði Lúðvík að hjá
þeim hafi ekki tekist að selja fólki
aðra flugelda í sama mæli og bomb-
urnar, og því hafi heildarsala orðið
minni. „Það munar mikið um söluna
á tívolíbombunum, sem bönnuð var
í ár.“
Annað hljóð var í meðlimum
Hjálparsveitar skáta, sem selja 7-8
af hverjum tíu sem kaupa rakettur
og blys í landinu. Björn Hermanns-
son, framkvæmdastjóri hjá LHS-
flugeldum, sagði að þeir væru yfir sig
þakklátir fyrir góðan stuðning al-
mennings eitt árið enn. „Við urðum
ekki varir við neinn samdrátt þrátt
fyrir lélegt veður meðan sölustaðir
voru opnir á gamlársdag, tívolí-
bombuleysið og slæmt efnahags-
ástand þjóðarinnar," sagði Björn.
Ekki náðist í aðra innflytjendur,
eins og Björgunarsveitina Fiskaklett
og íþróttafélagið Fram.
En hvernig bregðast söluaðilar
við öllu því rusli sem fellur af
himnum ofan eða verður eftir á
skotstað? „Við hreinsum auðvitað
sölusvæði okkar, en höfum ekkert
sérstakt apparat í gangi eftir áramót-
in,“ sagði Lúðvík hjá KR-flugeld-
um, en hann benti á að meira hafi
sést af rusli nú en oft áður, vegna
þess að enginn snjór hylur yfir.
Söfnunarverðmæti
pollanna
Björn, hjá LHS-flugeldum, sagði
að hann hefði fengið sér góðan
göngutúr á nýársdag og séð hópa af
strákapollum vera að tína upp prik
og annað söfnunarverðmæti, líkt og
hann gerði sjálfur þegar hann var
polli. „Ég heíd nú að mest af þessu
rusli séu umbúðir af blysum og
flugeldum, sem verða eftir á
skotstað. Ætli mest af þessu lendi
ekki strax í ruslatunnum húseig-
enda.“ Björn benti á að tonnin af
rakettum sem færu í loftið væru
eitthvað innan við tuttugu. Þannig
væri ekki nema innan við tíu tonn
sem svífa til jarðar aftur og miklu af
því væri safnað saman af lóðareig-
endum og öðrum. „Það virðist því
hverfa mjög fljótt þetta flugeldarusl
og það hefur hreinlega ekki verið
talin þörf á neinum sérstökum
hreinsunaraðgerðum til þessa,"
sagði Björn Hermannsson, hjá LHS-
flugeldum. KB
Ökumaöur fótbrotnaöi og skarst á andliti þegar hann
ók fram af veginum í Óshlíð:
FELL UM 40 M
NIDUR í FJÖRU
Bifreið fór fram af veginum í
Óshlíð á tímabilinu frá hálf fjögur til
klukkan sjö í fyrrinótt að því er talið
er. Fallið frá vegbrúninni og niður í
fjöru er 40 til 50 metrar. Ökumaður
bifreiðarinnar slasaðist nokkuð og
var hann lagður inn á sjúkrahúsið á
ísafirði.
Það var lögreglumaður hjá lög-
reglunni á ísafirði sem var á leið til
vinnu skömmu fyrir sjö í gærmorgun
sem veitti hjólförum sem lágu út af
vegbrúninni athygli. Þegar betur var
að gáð kom í ljós að bíll hafði farið
fram af veginum og hafnað niður í
fjöru. Kallað var til lögreglu, sjúkra-
liðs og björgunarsveita og náðist að
bjarga manninum úr bílnum og
koma honum undir læknishendur á
sjúkrahúsinu á ísafirði. Maðurinn
skarst í andliti og fótbrotnaði, en að
öðru leyti slapp hann vel, að sögn
lögreglu.
Þar sem brattinn frá vegbrúninni
og niður í fjöru er mjög mikill þurfti
að notast við dráttarspil til að komast
upp og niður hlíðina. í gærdag var
unnið að því að ná bílnum upp, en
hann er ónýtur. -ABÓ
Sjö á slysadeild eftir harðan árekstur:
Banaslys í Svmahrauni
Sjötíu og átta ára gömul kona, Helga Þóroddsdóttir til heimilis að
Hörðalandi 10 i Reykjavík, lést í bdslysi í Svínahrauni á nýársdag. Sjö
voru fluttir á slysadeild, en munu ekki hafa slasast alvarlega.
Það var um hálf fjögur sem tilkynnt var um að þrír bflar hefðu lent í
árekstrí í Svínahrauni. Slysið varð með þeim hætti að bfll á leið til
Reykjavikur rann til á veginum og t veg fyrír tvær bifreiðar á leið austur
yfír, en mikil hálka og krap var á veginum. Helga var farþegi í bifreiðinni
sem var á leið til Reykjavíkur og mun hún hafa látist samstundis. -ABÓ
Neskaupstaður
fagnar 60 ára
afmæli sínu
Þann 1. janúar s.l. voru 60 ár liðin frá því að
Neskaupstaður hlaut kaupstaðarréttindi. Af því tilefni
hafði Tíminn samband við Ásgeir Magnússon bæjarstjóra
og spurði hann um hag kaupstaðarins á þessum tímamót-
fyrirtæki í sjávarútveginum. Al-
mennt eru menn þó bjartsýnir."
Ýmsar framkvæmdir eru í gangi
á vegum bæjarfélagsins. í haust
hófst bygging á níu leiguíbúðum
fyrir aldraða. Einnig er í byggingu
heimavist Verkmenntaskólans, en
í fyrsta áfanganum verður rými
fyrir 30 nemendur. Fljótlega verða
teknar í notkun sex leiguíbúðir
innan verkamannabústaðakerfis-
ins. Á þessu ári stendur fyrir dyrum
að hefjast handa við viðbyggingu
íþróttahússins.
í tilefni af afmælinu verður há-
tíðafundur í bæjarstjóminni en
almenn hátíðahöld vegna afmælis-
ins verða í kringum 17. júní.
SSH
um.
Ásgeir sagði m.a. að íbúatalan
færi hægt vaxandi en þó hefði ekki
mikið verið byggt í bænum á
undanförnum árum. „Atvinnu-
ástandið er mjög gott, það er næg
atvinna á öllum sviðum. Ég held að
við séum komin út úr þeirri lægð
sem var hér frá 1980 og þangað til
í fyrra. Það skiptir mestu máli fyrir
okkur á Neskaupstað að sjávarút-
vegurinn gangi þokkalega. Ástand-
ið hefur verið mjög erfitt, þrátt
fyrir verulega aukningu. Fram-
leiðsla hefur verið meiri, nýting á
hráefnum og vinnslu er betri en
áður, þrátt fyrir þetta gengur
mönnum illa að ná endum saman.
Þessu veldur fyrst og fremst fjár-
magnskostnaðurinn sem er að sliga