Tíminn - 03.01.1989, Side 10
10 Tíminn
Þriðjudagur 3. janúar 1989
Áramótaávarp
forseta íslands
forréttindi í heimi sem hefur þungar áhyggjur af
afleiðingum efnaiðnaðar og annarrar tækniþróunar.
Við eigum orkulindir sem enn eru ekki nýttar
nema að litlu leyti.
Við eigum fengsæl fiskimið og þá mikilvægu
þekkingu í góðum mönnum sem þarf til að nýta þau
skynsamlega.
Pað eru fríðindi hve fámenn þjóðin er, hve nálægt
við stöndum hvert öðru; við getum komið skilaboð-
um hvert til annars hraðar en nokkur önnur þjóð.
Við erum hraust og þokkalega af guði gerð.
Við eigum með öðrum orðum mikið í sjóði. Við
höfum föng og þurfum ekki að koðna niður í erjum
eða vanmetakennd. Pað er meðvitund um siðmenn-
ingu okkar sjálfra sem fyrr og síðar er og verður
okkur uppspretta til frjórra framfara. Við skulum
muna að menning er að gera hlutina vel, hvert sem
verkefnið er. Menning er einnig að beita sér fyrir
því að leggja gott til mála með staðfestu og hæfilegu
umburðarlyndi, - og gæta þess ætíð að staðna ekki
í fari hins neikvæða. Við sitjum í flokki menningar-
þjóða, - óskum þess sjálf að fá að sitja við sama
borð og hámenningarþjóðir.
Allar stundir höfum við verk að vinna í þessum
anda. Við munum það vonandi vel að íslensk tunga
er okkar besta sameign, okkar stærsta hnoss, ein
helsta réttlætingtilveru okkar-sjálfur virðingarlyk-
ill okkar að heiminum. Og við vitum það vonandi
að þessi eign okkar má ekki rýrna. Við höfum á
síðustu misserum séð gleðilega vakningu hjá ís-
lenskri þjóð. Það hefur tekist að opna augu hennar
fyrir því hve alvarleg gróðureyðing hefur átt sér stað
! landinu um aldir og breiða út skilning á því með
hvaða ráðum er skynsamlegast að mæta þessum
vanda. En til þess er nýr fróðleikur og ný sannfæring
ævinlega fallin að hvetja til umhugsunar og lær-
dóma: þegar við höfum lært að glíma við einn
vandann ættum við þessvegna ávallt að spyrja
okkur, hvort þær aðferðir sem þar dugi kunni ekki
að eiga við á öðrum sviðum einnig. Og þar með vísa
ég beint til uppblásturs í þeim hluta þjóðernis okkar
sem tungan er og er mörgum áhyggjuefni. Fyrir
nokkru sendi ágætur samtíðarmaður okkar, sem
hefur meðal annars fengist við að finna orð til að
hægt sé að tala um verkmenningu á íslensku, mér
lista þar sem hann ber fram ýmsar áleitnar spurning-
ar. Nokkrar þeirra vil ég nefna hér okkur öllum til
umhugsunar.
Ef tungunni hrakar ár frá ári, eins og margir vilja
halda fram, vita stjórnvöld af því?
Ber þeim einhver stjórnarfarsleg skylda til að
bregðast við?
Hvernig metum við það hvort tungunni hrakar?
Hvert getur helst metið breytinguna?
Hvort er mikilvægara í því efni, mál hinna eldri
eða yngri?
Getur tungunni hrakað svo mjög að hún glatist?
Þýðir hnignun tungunnar að sjálfstæði þjóðarinn-
ar sé í hættu og þarf þá að gera sérstakar
ráðstafanir?
Hvaða ráðstafanir hafa verið gerðar á síðastliðnu
ári?
Eru ráðstafanir í undirbúningi á þessu ári sem nú
fer í hönd?
Svo mætti áfram halda. Ég ætla mér ekki þá dul
að svara þessum spurningum. Hitt er okkur ljóst að
hér er um alvarlegt mál að ræða. Við vitum að það
þarf meira til en að slá á slettur eins og hæ hæ og
bæ bæ, sem unglingar, liðsmenn mínir, eru nú að
reyna að kenna ungviðinu, grænjöxlum, að er
hlægileg kveðja á íslensku. Unglingar eru áreiðan-
legt fólk sem vert og hyggilegt er að treysta. Það er
þar á ofan ekki nóg að leggja sig fram við að
varðveita gömul orðatiltæki og réttar beygingar
orða - þannig að píta sé ekki seld með egg eða fisk
heldur eggi eða fiski á skyndibitastöðum. Umfram
sjálfa varðveislu hins talaða og ritaða máls þarf að
smíða ný orð af glöggskyggni, svo íslendingar geti
talað saman um sín eigin mál á öllum sviðum á sinni
eigin tungu. Hér er þörf stórra átaka sem kosta
vinnu og fé. Sú er samábyrgð okkar. Einkaábyrgð
hvers og eins er að hafa löngun og vilja til að taka
á málfari sínu, vanda orðfæri sitt og auðga, rétt eins
og menn vilja ganga vel um hús sín og fara góðum
höndum um eignir sínar.
Illlllllllllllllllllllllll ÍÞRÓTTIR lllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
Úrslitin í gær urðu þessi:
1. deild:
Coventry-Sheflield Wednesday........5-0
Luton-Southampton....................6-1
Middlesbrough-Manchester United ... 1-0
Millwall-Charlton ...................1-0
Newcastle-Derby......................0-1
Nottingham Forest-Everton............2-0
Queen’s Park Rangers-Norwich........1-1
West Ham-Wimbledon...................1-2
Úrslitin í 2. deild:
Barnsley-Hull........................0-2
Birmingham-Oldham....................0-0
Blackburn-Stoke......................4-3
Bournemouth-Brighton.................2-1
Bradford-Sunderland..................1-0
Crystal Palace-Walsall ..............4-0
Ipswich-Leicester....................2-0
Manchester City-Leeds................0-0
Oxford-Chelsea.......................2-3
Plymouth-Watford.....................1-0
Portsmouth-Swindon...................0-2
West Bromwich-Shrewsbury ............4-0
Úrslitin í 3. deild:
Aldershot-Cardifl....................0-1
Blackpool-Bury.......................2-2
Bolton-Mansfleld.....................0-0
Bristol City-Bristol Rovers .........0-1
Fulham-Brentford.....................3-3
Huddersfleld-Southend................3-2
Northampton-Preston..................1-0
Port Vale-Notts County ..............1-0
Sheflield United-Chesterfield........1-3
Swansea-Reading .....................2-0
Wigan-Gillingham ....................3-0
Wolverhampton-Chester................3-1
Úrslitin í 4. deild:
Doncaster-Scarborough ...............3-1
Grimsby-Colchester...................2-2
Halifax-Scunthorpe ..................5-1
Hartlepoole-Rotherham................1-1
Rochdale-Leyton Orient...............0-3
Tranmere-Burnley.....................2-1
Wrexham-Darlington...................3-3
York-Lincoln.........................2-1
BL
Enska knattspyrnan:
Mick Harford gerði 2 mörk fyrir Luton í gærkvöld.
Stórsigrar Luton og
Coventry í gærkvöld
í gærkvöld var leikin heil umferð
í ensku knattspyrnunni. Helst bar til
tíðinda að Coventry og Luton unnu
sannkallaða stórsigra. Coventry
vann 5-0 sigur á Sheffield Wednes-
day og Luton vann 6-1 sigur á
Southampton.
Manchester United þurfti að láta
í minni pokann fyrir Middlesbrough
á útivelli 0-1. Derby County náði sér
á strik að nýju og vann 1-0 útisigur
á Newcastle.
Hinn 35 ára gamli Andy Taylor
lék sinn fyrsta leik í 1. deild eftir
nærri 9 ára fjarveru, er hann kom
inná sem varamaður í liði Norwich
gegn QPR. Taylor skoraði fyrir
Norwich á 59. mín. en Mark Falco
jafnaði fyrir QPR einni mínútu fyrir
leikslok.
Skoski landsliðsmaðurinn Dave
Speedie gerði þrennu í stórsigri
Coventry gegn Sheffield Wednes-
day. Þeir Roy Wegerle og Hick
Harford gerðu tvö mörk hvor í
stórsigri Luton gegn Southampton.
Sigur Luton í gærkvöld er stærti
sigur liðsins á keppnistímabilinu, en
Sheffield liðið tapar nú hverjum
leiknum á fætur öðrum með miklum
mun, liðið hefur ekki unnið í síðustu
7 leikjum sínum.
Garmisch-Partenkir-
Chen. Finninn fljúgandi, Matti
Nykanen, sigraði í heimsbikar-
keppninni í skíðastökki á nýársdag,
þegar önnur keppnin af fjórum fór
fram í Garmisch-Partenkirchen í
V-Þýskalandi. í öðru sæti varð A-
Þjóðverjinn Jens Weissflog, en landi
Nykanens, Finninn Risto Laakko-
nen varð í þriðja sæti.
Madrid. Real Madrid og Barce-
lona eru enn í efstu sætum spænsku
1. deildarinnar í knattspyrnu eftir
leika nú um áramótin. Barcelona
sigraði Athletico Madrid 3-1 á nýárs-
dag á útivelli, en Real Madríd vann
Espanol 4-1 á útivelli á gamlársdag.
London. Sovéska landsliðið í
körfuknattleik tekur um þessar
mundir þátt í alþjóðlegu móti í
Englandi. Sovéska liðið lék á nýárs-
dag gegn skoska liðinu Murray Liv-
ingston í undanúrslitum mótsins.
Þau óvæntu úrslit urðu í leiknum að
skoska félagsliðið sigraði sovéska
landsliðið í leiknum 72-66. Leik-
menn skoska liðsins höfðu leikinn í
hendi sér eftir að hafa gert 15 fyrstu
stigin, án þess að sovéska liðinu
tækist að svara fyrir sig. Það var
leikstjórnandi Livingston, Banda-
ríkjamaðurinn Victor Fleming, sem
var maðurínn á bak við sigur skoska
liðsins á Ólympíumeisturunum. Stig-
ahæstir skosku leikmannanna voru
Tommy Collier með 19 stig, Lewis
Yong með 18, Jason Foggerty með
13 og Iain Maclean með 12. Hjá
sovéska liðinu voru Alexander Vol-
kov og Sergei Tarakanov stigahæstir
með 18 stig, en Viktor Breznov
skoraði 12 stig.
ParíS. Finnski rallkappinn Arí
Vatanen sigraði í 4. hluta París-Da-
kar rallsins, en á nýársdag var haldið
inní V-Afríkuríkið Niger. Vatanen
ekur Peugeot bifreið, en félagi hans
í Peugeot-liðinu Jacky Icky, sem
hefur verið einráður í rallinu fram að
þessu, varð annar. Icky er þó enn
efstur að stigum þegar á heildina er
litið.
New York. í gær voru 2 leikir í
úrslitakeppni NFL-deildar ameríska
fótboltans. f undanúrslitum í Amer-
ican-deildinni vann Buffalo Bills 17-
10 sigur á Houston Oiiers og á
National-deildinni vann San Fran-
cisco ’49 ers stórsigur á Minnesota
Vikings 34-9, einnig í undanúrslit-
um.
Mílanó. Ruud Gullit er nú kom-
inn á fulla ferð með liði sínu AC
Mflan eftir að hafa átt við meiðsl að
stríða um tíma. Gullid sagðist í gær
ekki vera búinn að gefa upp alla von
um að iiðinu tækist að verja meist-
aratitilinn, en liðið er nú 8 stigum á
eftir nágrönnum sínum Inter Mflan,
en Inter hefur 20 stig af 22 möguleg-
um í deildinni. Napólí er í öðru sæti
deildarinnar með 17 stig.
New York. um áramótin voru
nokkrir leikir í NHL-íshokkídeild-
inni. Úrslit urðu þessi:
N.Y.Rangers-Chicago Black Hawks . 4-1
Pittsburgh Pen.-N.J.Devils........8-6
Philadelphia FI.-Buffalo Sabres ... 3-2
N.Y. Islanders-Washington Capit . . 6-4
Hartford Whalers-Detroit Red W. . 3-2
Calgary Flames-Winnipeg Jets .... 4-4
Montreal Can.-Edmonton Oilers . . 4-2
Toronto M.L.-Quebec Nordiques . . 6-1
Minnesota North Stars-St.Louis ... 6-2
Toronto Maple Leafs-Chicago B.H. 3-3
Montreal Canadiens-Vancouver C. . 4-0
Lið Calgary Flames sem leikur í
Smythe-ríðli Campbell deildarinnar
stendur allra liða best að vígi í
deildinni með aðeins 4 tapleiki.