Tíminn - 03.01.1989, Blaðsíða 12
12 Tíminn
Þriðjudagur 3. janúar 1989
lllllllllllllll ÚTLÓND . ..I.. ... .. ... ... . .jli:,. ....■':iil!ll!... '^ílíir. ..... ............
Áramótagleðin snýst upp í martröð í Brasilíu:
Hundrað broddborg-
arar drukkna
Áramótagleðin snerist upp í martröð hjá velstæðum
farþegum skemmtiferðabáts í Rio de Janeiro á gamlárskvöld.
Báturinn sökk rétt utan við Copacabanaströndina í Rio og
drukknuðu nær hundrað manns. Aðeins tuttugu farþegar
náðu að bjarga sér í land.
Flestir farþeganna voru brasilískir, en Portúgalar, Norð-
menn og Danir voru einnig um borð.
FRÉTTAYFIRLIT
BEIRÚT - Andstaeöar fylk-
ingar Shlta héldu áfram með
djöfulganginn í Beirút þriðja
daginn í röð þrátt fyrir að
Sýrlendingar geri allt sem þeir
geta til að stilla til frioar.
Sprengjur, eldflaugar og hand-
sprengjur eru ráðandi í suður-
hverfunum og sjúkrabílar kom-
ast ekki að bardagasvæðun-
um. Ekki er vitaö hve mikið
mannfall varð í gær.
Það er mjög vinsælt að fara í
bátsferðir út fyrir stönd Rio á gaml-
árskvöld til að fá betra útsýni yfir
borgina þar sem flugeldar í milljóna-
tali lýsa upp himininn þegar borgar-
búar fagna nýju ári. Skemmtibátur-
inn „Café com Leite“ var einmitt í
slíkri för þegar há alda reið yfir hann
og færði í kaf á svipstundu.
- Við sigldum inn í háa öldu og
báturinn fór á hliðina. Það var
hræðilegt. Fullorðnir menn börðust
eins og dýr. Við reyndum að bjarga
konum og börnum, en fullvaxta
menn hrintu börnunum í burtu.
Þetta var lýsing Norðmannsins
Toby Sanne sem bjargað var af
fiskibát sem kom á slysstað.
Að sögn þeirra er lífs komust úr
þessari feigðarför var báturinn
greinilega ofhlaðinn í þessari ferð þó
eigendur vísi því á bug.
- Það var greinilegt að báturinn
var ofhlaðinn og þegar við héldum
frá landi lá hann djúpt í sjónum,
sagði Vestur-Þjóðverjinn Hans
Leutner. Hann lýsti slysinu svo:
- Báturinn hallaði á annað borðið
og réttist ekki aftur. Á hálfri mínútu
í Rio
var hann sokkinn.
• Lögreglan hafði stöðvað bátinn er
hann átti að leggja frá bryggju þar
sem talið var að hann væri ofhlaðinn.
Þrátt fyrir það hélt báturinn í hina
örlagaríku ferð. Tengdasonur skip-
stjórans sagði að faðir hans hefði vel
gert sér grein fyrir hættunni því hann
hafi hringt heim rétt fyrir slysið og
sagt:
- Það er engin leið að halda út.
Gróðavonin hefur þó haft yfir-
höndina enda hafði hver farþegi
greitt 150 dollara fyrir ferðalagið.
Meðal þeirra er fórust voru margir
úr hópi broddborgara Brasilíu.
PARÍS - Frönsk útvarpsstöð
skýrði frá því að 17 manns hafi
fundist á lífi í rústum kornverk-
smiðju í armenska bænum
Spitak á laugardag 24 dögum
eftir að jarðskjálftar lögðu bæ-
inn í rúst. Útvarpsstöðin vitnaði
í franska hjúkrunarkonu sem
er við björgunarstörf, en konan
sagði að fólkið hafi verið tiltölu-
lega vel á sig komið. Það hafi
lifað á korni og bráðnuðum
snjó. I Jerevan gátu stjórnvöld
ekki staðfest fréttirnar. Sovésk
yfirvöld hyggjast endurbyggja
111 þorp og borgir er eyðilögð-
ust í jarðskjálftanum.
STOKKHÓLMUR - Þrjár
sprengjuhótanir urðu til þess
að flug SAS fór úr skorðum um
heim allan á meðan öryggis-
gæsla gekk úr skugga um að
allt væri með felldu.
VARSJÁ - Eitt hundrað
menntamenn og stjórnarand-
stæðingar hafa farið fram á að
frjálsar kosningar verði haldnar
í Póllandi í október, en þá er
gert ráð fyrir að þingkosningar
verði haldnar.
BONN - Stjórnvöld í Bonn
skýrðu frá því að þau hefðu
engar sannanir fyrir ásökunum
Bandaríkjamanna um að vest-
urþýsk fyrirtæki taki þátt í
byggingu efnaverksmiðju í Lí-
býu. Bandaríkjamenn seaja að
verksmiðjunni sé ætlað að
framleiða efnavopn, en Líbýu-
menn segja að um lyfjaverk-
smiðju sé að ræða.
Skæruliðar í Eritreu ætla að halda áfram að berjast þrátt fyrir sáttahljóð í Eþíópíustjórn:
Hafna sj álfsstjórnar-
hugmyndum Mengistus
Skæruliðar í Eritreu höfnuðu til-
boði Mengistu Haile Mariem forseta
Eþíópíu um að Eritreu yrði skipt í
tvö sjálfsstjórnarhéruð og þannig
yrði bundinn endi á 28 ára borgara-
styrjöld í landinu.
Þjóðfrelsishreyfing Eritreu lýsti
því yfir í útvarpi að hugmynd Men-
gistu um að skipta Eritreu í tvennt
og skilja þannig að kristna og mús-
líma væri úr sér gengin.
Samkvæmt hugmynd Mengistu
átti að skipta Eritreu þannig að eitt
sjálfsstjórnarhérað yrði í láglendinu
þar sem múslímar eru alls ráðandi
og annað í fjallasvæðum þar sem
kristnir eru í miklum meirihluta.
Ríkisstjórn Eþíópíu kynnti hug-
myndir sínar á fimmtudag og sagði
að með því að skipta Eritreu í tvennt
væri gengið að kröfum Frelsisfylk-
ingar Eritreu sem eitt sinn var sterk-
asta andstöðuaflið í héraðinu, en
koðnaði niður sem skæruliðasamtök
fyrir áratug eða svo.
Þjóðfrelsishreyfing Eritreu hefur
mestallan norður- og vesturhluta
Eritreu algerlega á valdi sínu og
hefur sótt mjög fram gegn stjórnar-
her Eþíópíu á síðustu mánuðum.
Hreyfingin hefur farið fram á friðar-
viðræður undir stjórn alþjóðlegra
samtaka svo semja megi um vopna-
hlé í hinu langvinna stríði. Gera
samtökin ráð fyrir að í þeim viðræð-
um yrði skorið úr um það hvort
Eritrea eigi að verða sjálfstætt ríki
eða sjálfsstjórnarhérað í ríkjasam-
bandi við aðra hluta Eþíópíu.
Eritrea var einmitt í ríkjasam-
bandi við Eþíópíu árið 1952 í sam-
ræmi við samninga er gerðir voru
undir handleiðslu Sameinuðu þjóð-
anna. Eþíópía innlimaði síðan hér-
aðið árið 1962 og hefur borgarastyrj-
öld ríkt þar síðan.
Auk hernaðarins í Eritreu hefur
stjórnarhcrinn í Eþíópíu átt í höggi
við skæruliða í nágrannahéraðinu
Tíger og farið frekar halloka á
undanförnum mánuðum. Þar féllu
um 2000 manns í bardögum er
stjórnarherinn freistaði þess að ná
bænum Inda Selassie á föstudaginn.
Skæruliðar hafa haft bæinn á valdi
sínu frá því í júlímánuði. Herinn
gerði einnig áhlaup á bæinn í sept-
ember og október en varð frá að
hverfa eftir harða bardaga og mikið
mannfall.
Skæruliðar í Eritrcu sem barist hafa gegn stjórnarher Eþíópíu ■ 28 ár höfnuðu
tilboði Mengistu forseta um að Eritrcu yrði skipt upp í tvö sjálfsstjórnarhéruð
svo binda megi cnda á borgarastyrjöldina.
Handtökur og
brottvísanir
ísraelar voru iðnir við kolann
upp úr áramótunum. Á nýjársdag
vísuðu ísraelsk yfirvöld þrettán
Palestínumönnum úr landi vegna
meintrar aðildar þeirra að uppreisn
Palestínumanna á hernumdu svæð-
unum á Vesturbakkanum og í
Gaza.
Palestínumennirnir þrettán voru
teknir um borð í herþyrlu, þeim
flogið að Zumriya varðstöðinni á
landamærum ísraels og Líbanons.
Þaðan var þeim ekið í átt til stöðva
Sýrlendinga í Bekaa dalnum í Líb-
anon.
Talsmaður ísraelska hersins
sagði að tveir Palestínumenn aðrir
hafi yfirgefið ísrael af fúsum og
frjálsum vilja þar sem ísraelsk
yfirvöld höfðu lofað þeim að þeir
fengju að koma aftur til ísraels
eftir fimm ár ef þeir létu af afskipt-
um af uppreisninni.
Á sunnudaginn voru 24 ár liðin
frá því Fatha samtökin, stærstu
samtök innan PLO, hófu aðgerðir
gegn ísraelum.
En ísraelar létu ekki hér við
sitja. Níu Palestínumenn voru
handteknir sakaðir um að hafa
grýtt eldsprengjum að stöðvum
Israela á hernumdu svæðunum.
Heimili tveggja hinna föngnu Pal-
estínumanna voru jöfnuð við jörðu
í fyrrinótt.
Talsmaður Israelshers sagði að
mennimir níu væru meðlimir í
íslömsku andspyrnuhreyfingunni
Hams, sem keppst hefur við leið-
toga PLO um forystuna í uppreisn-
inni á hernumdu svæðunum.
57 drukkna
í Guatemala
Að minnsta kosti 57 manns
drukknuðu er farþegaferja sökk
við Atlantshafsströnd Guatemala
í gær. Herskip hafði tekið ferjuna
í tog eftir vélarbilun er hún sökk
skyndilega á Amatiqueflóa 180
mílur norðvestur af Guatemala-
borg. Farþegar voru 120 talsins
og voru þeir á leið frá Livingstone
til Puerto Barrios.
Nánari fréttir höfðu ekki borist
í gærkveldi er Tíminn fór í
prentun.
Hengja skal
Kehar Singh
Ramaswamy Venkataraman for-
seti Indlands hafnaði í gær beiðni
um að sýkna Kehar Singh sem taka
á af lífi fyrir morðið á Indiru Gandhi
árið 1984. Aftökunni hafði verið
frestað á meðan forsetinn íhugaði
málið.
Kehar Singh var dæmdur til dauða
ásamt Satwan Singh sem skaut
Indiru eigin hendi. Kehar var hins
vegar dæmdur til dauða vegna sam-
særis, en hann drap ekki Indiru.
Kehar er frændi Beant Singh sem
var ásamt Satwan Singh lífvörður
Indiru og myrti hana, en Beant
framdi sjálfsmorð nokkrum sekúnd-
um eftir að hafa grandað yfirmanni
sínum.
Venkataraman hafði neitað að
sýkna Kehar, en hæstiréttur Ind-
lands úrskurðaði að forsetinn ætti að
skoða hug sinn á nýjan leik. Það
hefur hann nú gert, en ekki skipt um
skoðun.
Ekki hefur verið ákveðið hvenær
aftakan fer fram, en þeir félagarnir
verða hengdir.
Kína:
Lest sendir brúði
á vit forfeðranna
Brúður og þrjátíu ættingjar henn-
ar hurfu á vit feðra sinna í norðaust-
urhluta Kína í sunnudag þegar járn-
brautarlest var ekið á fullri ferð á
langferðabíl sem var á leið til brúð-
kaupsveislu í Heilongjiang héraði.
Það var fréttastofan Nýja Kína er
skýrði frá þessu í gær.
í frétt Nýja Kína var ekki getið
um það hvort einhver hafi komist af
úr langferðabílnum.
Svipað slys varð í Shenyanghéraði
í norðausturhluta Kína á Þorláks-
messu. Þá létust fjörutíu og þrír
farþegar í langferðabifreið. Þeir
voru ekki á leið til brúðkaupsveislu.