Tíminn - 03.01.1989, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 3. janúar 1989
Tíminn 13
ÚTLÖND lllillllllllllllllllll ,
llllllllill
Áramótagleöin tvíbent víða um heim:
Nýársfagnaðurinn
kostaði mannslíf
Áramótagleðin í Manila
tók sinn toll þetta árið. Ellefu
menn létu lífið og rúmlega
tvöþúsund slösuðust illa í
flugeldasprengingum, hnífa-
bardögum og skammbyssu-
skothríð er nýja árið gekk í
garð.
Það er hefð á Filippseyjum að
fagna nýju ári með öflugri flugelda-
skothríð og sprengingum sem eru
það kröftugar að íslenskt gamlárs-
kvöld er barnaleikur miðað við lætin
þar. Fjórtánþúsund manns misstu
heimili sín í eldsvoðum sem urðu
vegna eldflaugasýninganna.
En þrátt fyrir mannfall þóttu þessi
áramót með allra friðsamlegasta
móti.
En Hollendingum þótti ekki frið-
samlegt hjá sér þessi áramótin. Einn
maður var skotinn til bana, tveir
særðust alvarlega og fimmtíu voru
handteknir í óeirðum.
í Napolí á Ítalíu þurftu hundrað
og fimmtán manns að leita sér lækn-
inga eftir tíu tíma eldflaugaskothríð
og skammbyssuskothríð þegar nýju
ári var fagnað. Fimm þessara manna
misstu hendi í sprengingu. Það er
hefð í Napolí að skjóta úr skamm-
byssum í loft upp er nýju ári er
fagnað, þó aðrir Italar láti sér yfir-
leitt flugeldana duga.
í Punjabhéraði á Indiandi hófst
árið með ofbeldisöldu. Sextán
manns féllu á sunnudaginn þegar
öfgafullir Shíkar réðust að samborg-
urum sínum er játa trú Hindúa. Alls
létust um tvöþúsund og fimm hundr-
uð manns í kynþáttaátökum í Punj-
ab á síðasta ári.
Andstæðar fylkingar Shíta í Beir-
út hófu árið einnig með ofbeldi og
innbyrðis átökum þrátt fyrir að sýr-
lenskir hermenn hafi gert allt sitt til
að koma í veg fyrir bardaga. Átta
manns létu lífið á sunnudag, þar af
tvö ung börn. Að sögn talsmanns
Amal skæruliða létust fimm óbreytt-
ir borgarar, þar af kona og tvö börn
hennar í átökum Amalliða og liðs-
manna Hizbollahsamtakanna. Tveir
Amalliðar og einn liðsmaður Hiz-
bollah féllu.
Þá létust fjórir í mikilli sprengingu
í Washington á gamlársdag þegar
heimatilbúin sprengja nokkurra
ungmenna sprakk í loft upp.
Tíbet:
Snjóstormur heftir
för ferðalanga
Tuttugu og átta ferðalöngum frá
Evrópu, Bandaríkjunum, Ástralíu
og Japan var bjargað með naumind-
um eftir að hafa orðið innlyksa í
suðurhluta Tíbet þegar gífurlega
harður snjóstormur gekk yfir landið
í síðustu viku. Alla ferðalangana kól
eitthvað í kuldanum þar sem þeir
höfðu leitað sér skjóls í lítilli um-
ferðamiðstöð við þjóðveginn er ligg-
ur frá Kína til Nepal.
Ferðalöngunum var bjargað á
gamlársdag af björgunarsveit Tíbeta
og var þeim komið fyrir í bænum
Zhangmu. Þaðan munu þeir fljúga
til Nepal einhvern næstu daga.
Snjórinn á þessum slóðum mælist
nú 120 cm djúpur og hefur ekki
snjóað svo mikið á þessum slóðum í
áratugi.
UMSJÓN:
Sri Lanka:
Indverjar kalla
herdeildir heim
Indverjar hyggjast kalla tvær her-
deildir sínar frá Sri Lanka á næstu
dögum eftir að nýkjörinn forseti
landsins Ranasinghe Premadasa fór
fram á það. Indverskar hersveitir
hafa dvalið á Sri Lanka frá því í
júlímánuði 1987 þegar þáverandi
forseti Junius Jayewardene og Rajiv
Gandhi forsætisráðherra Indlands
undirrituðu samning er átti að binda
endi á átök Tamíla og Shingalesa á
norðurhluta eyjarinnar. Það hefur
ekki tekist.
Premadasa verður settur inn í
forsetaembættið í búddaklaustri í
borginni Kandy í dag.
Samningur Indverja og Sri Lanka-
manna árið 1987 gerði ráð fyrir því
að 50 þúsund indverskir hermenn
sæju til þess að friður ríkti á norður-
hluta eyjarinnar þar sem skæruliða-
hreyfingar höfðu barist gegn stjórn-
arhernum um árabil. Flestar skæru-
liðahreyfingarnar samþykktu samn-
inginn enda fengu Tamílar aukin
réttindi og sjálfsstjórn í kjölfar hans.
Hins vegar hafnaði öflugasta skæru-
liðahreyfing Tamíla samningnum og
hefur hún barist gegn indverska
hernum jafnt sem stjórnarhernum
síðastliðið eitt og hálft ár.
Premadasa og Rajiv Gandhi hitt-
ust á fundi ríkja í suðaustur Asíu í
Islamabad á laugardaginn og ákváðu
þeir þá tilhögun brottflutningsins.
Venezuela:
Mannskæð
aurskriða
Óttast er að tuttugu og sex manns hafi látist er aurskriða féll á þorp í
fjallshlíðunum rétt utan við Caracas höfuðborg Venezuela á sunnudaginn.
Hundruð lögreglumanna og hermanna hafa leitað fólks er varð undir
skriðunni er féll á þorpið La Pedrera í kjölfar mikilla rigninga. Um 170
hús urðu að einhverju leyti fyrir skemmdum.
Rúmlega 1000 fátæklingar hafa misst hreysi sín í aurskriðum á þessum
slóðum að undanförnu.
D
Vinningaskrá 1988
Toyota Land CruiserTurbo Diesel:
33891 - 48696
Heimilispakkar
sem innihaldatMacintosh Plus einkatölvu,
Nordmende CV 2201 kvikmyndatökuvél,
Bang & Olufsen Beosystem 5000 ásamt
Penta hátölurum, Nordmende Prestige
29" sjónvaro, Nordmende V1405 mynd-
bandstæki, Goldstar ER 654 D örbylgjuofn
og Mitsubishi farsíma:
5700-7835-13069-27944
44513-81021 - 144353
Gervihnattamóttakarar:
324-62042-73156
81981 - 117069 - 155345
Mitsubishi farsímar:
37499 - 59129 - 82173 - 91368
Bang & Olufsen MX-2000 sjónvörp,
ásamt VHS 82.2 myndbandstækjum:
16151 -20118-22437- 157854
Macintosh Plus einkatöivur:
11322 - 33544 - 83881 - 162275
Goldstar GCD 60 hljómflutningstæki:
53642 - 55776 - 139748 - 164254
Goldstar GHV1245 myndbandstæki:
93516 - 96520 - 114716 - 125456
Goldstar CBT-9225 20" sjónvarpstæki:
15864 - 42055 - 129434 -155425
Goldstar CBT-4521 14" sjónvarpstæki:
10446 - 60034 - 71222 - 120739
Citizen ferðageislaspiiarar:
19339 - 37595 - 84258 - 92479
Citizen ferðasjónvarpstæki:
35133 - 75735 - 145848 - 155087
(Birt án ábyrgöar)
Vinninganna skal vitjað á skrifstofu
Radíóbúðarinnar, Skipholti 19, Rvk.
Óskum öllum landsmönnum
gleöilegs nýs árs, og þökkum
stuðninginn á liðnum árum.
Flugbjörgunarsveitin Reykjavík
.Flugbjörgunarsveitin Hellu
Flugbjörgunarsveitin Skógum
Flugbjörgunarsveitin V-Húnavatnssýslu
Flugbjörgunarsveitin Varmahlíð
Flugbjörgunarsveitin Akureyri
Hvolpur gefins
6 mánaða Collie hvolpur fæst gefins.
Upplýsingar í síma 91-671341.