Tíminn - 03.01.1989, Qupperneq 16
I » I
16 Tíminn
DAGBÓK llllllllllllllllllilllllllllllllllllllllilllllllllllllllllllllllllll^
MUSICA NOVA:
Tónleikar Nýja músíkhópsins
Nýi músíkhópurinn mun halda tónleika
í íslensku óperunni í kvöld, þriðjud. 3.
jan. kl. 20:30. Þar verða frumflutt í
Reykjavík fjögur íslensk tónverk: Milli-
spil fyrir sjö eftir Atla Ingólfsson, Sjö-
skeytla eftir Hilmar Þórðarson - en bæði
þessi verk eru skrifuð fyrir hópinn, -
Jarðardreki eftir Snorra Sigfús Birgisson
(frumflutt af Jónasi Ingimundarsyni á
Siglufirði sl. sumar, en heyrist nú í fyrsta
sinn í flutningi höfundar) og raftónverkið
Resonance eftir Kjartan Ólafsson, samið
úr íslenskum hverahljóðum í tilrauna-
stúdíói Finnska útvarpsins. Þá verða
einnig flutt verkin Márchenbilder eftir
danska tónskáldið Hans Abrahamsen og
Dialogue entre Metopes eftir {talann
Pietro Borradori.
Þetta eru þriðju tónleikar Nýja músík-
hópsins. Að þessu sinni koma fram 18
hljóðfæraleikarar sem starfa á íslandi, í
Noregi, Þýskalandi, Hollandi, Sviss og
Bandaríkjunum. Stjórnendurverðatveir,
Guðmundur Óli Gunnarsson og Hákon
Leifsson.
Atli Ingólfsson býr nú í París og semur
tónlist eftir tónsmíðanám á Ítalíu, Hilmar
Þórðarson nemur tónsmíðar í Los Ange-
les, Kjartan Ólafsson er að ljúka námi frá
Sibelíusar-akademíunni í Helsinki, en
Snorri er tónskáld og píanóleikari „vest-
ast í Vesturbænum". Borradori og Abra-
hamsen eru meðal fremstu ungra tón-
skálda og margverðlaunaðir fyrir sína
músík.
Tónleikar Sigríðar Jónsdóttur
Sigríður Jónsdóttir mezzósópran og
Jónas Ingimundarson píanóleikari halda
Ijóðatónleika í Norræna húsinu á
morgun, miðvikud. 4. jan. kl. 20:30.
Sigríður Jónsdóttir hóf söngnám hjá
Ólöfu Kolbrúnu Harðardóttur í Söng-
skólanum í Reykjavtk 1980. Að loknu
stúdentsprófi 1985 hélt hún til Bandaríkj-
anna til söngnáms við University of
Illinois í Urbana-Champaign. Um þessar
mundir lýkur hún Bachelorprófi í tónlist
frá sama skóla. Þetta eru fyrstu opinberu
tónleikar Sigríðar hérlendis.
Á efnisskrá tónleikanna verða ljóða-
söngvar eftir Gabriel Fauré, Frauenliebe
0LL VINNSLA
PRENTVERKEFNA
Við í Prentsmiðjunni Eddu tökum að
okkur hönnun og vinnslu á stórum og
smáum prentverkefnum.
Höfum yfir 50 ára reynslu í prentverki.
Reynið viðskiptin.
1PRENTSMIDIAN1
\Cl
Smiðjuveqi 3, 200 Kópavogur.
Sími45000.
t
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi
Guðmundur Jónsson
Ökrum við Nesveg
lést á Landspítalanum 25. desember s.l.
Anna G. Bjarnadottir
Bjarni V. Guðmundsson María B. Sveinsdóttir
Gunnlaugur Guðmundsson Hildur Hlöðversdóttir
Jón E. Guðmundsson
barnabörn og barnabarnabörn
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
t
Innilegustu þakkir til allra þeirra er auðsýndu
samúð og vinarhug við andlát og jarðarför
Sigríðar Jónsdóttur
Kvíum í Þverárhlíð
Sérstakar þakkir færum við læknum og starfsfólki Sjúkrahúss
Akraness fyrir hjúkrun og umönnun í veikindum hennar.
Guð blessi ykkur öll.
Gleðilegt nýtt ár.
Eggert E. Ólafsson Auður Þorsteinsdóttir
RagnarÓlafsson Theódóra Guðmundsdóttir
Þorgeir Ólafsson Helga Ólafsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
und - leben eftir Robert Schumann,
íslensk lög eftir Sigvalda Kaldalóns og Pál
Isólfsson, útsetningar á írskum ballöðum
eftir Benjamin Britten og Fred Weatherly
og ítalskar antikaríur eftir Bononcini og
Pergolesi.
Félag eldri borgara
Árshátíð Félags eldri borgara verður
haldin að Hótel Sögu föstudaginn 6.
janúar. Pantanir óskast sóttar á skrifstofu
félagsins fyrir 5. janúar.
Skákþing Reykjavíkur
Skákþing Reykjavíkur 1989 hefst
sunnud. 8. janúarkl. 14:00. 1 aðalkeppn-
inni tefla keppendur í einum flokki ellefu
umferðir eftir Monrad-kerfi. Umferðir
verða að jafnaði þrisvar í viku, á sunnu-
dögum kl. 14:00 og á miðvikudögum og
föstudögum kl. 19:30. Biðskákadagar
verða inn á milli, nánar verður ákveðið
um þá síðar. Lokaskráning í aðalkeppn-
ina verður laugard. 7. jan. Id. 14:00-
18:00.
Keppni í flokki 14 ára og yngri hefst
laugard. 14. jan. kl. 14:00. Tefldar níu
umferðir eftir Monrad-kerfi, umhugsun-
artími 40 mín. á skák. Keppnin tekur þrjá
laugardaga, þrjár umferðir í senn. Bóka-
verðlaun verða fyrir a.m.k. fimm efstu
sæti.
Jólasýning í Gallerí Grjót
í Gallerí Grjót, Skólavörðustíg 4A,
stendur nú yfir jólasýning, - scm jafn-
framt er sölusýning. Á sýningunni eru
verk þeirra 9 listamanna sem að galleríinu
standa, þ.e.: Gestur Þorgrímsson, Jónína
Guðnadóttir, Magnús Tómasson. Ófeig-
ur Björnsson, Páll Guðmundsson frá
Húsafelli, Ragnhciður Jónsdóttir, Sigrún
Guðjónsdóttir (Rúna), Þorbjörg Hösk-
uldsdóttir og Örn Þorsteinsson. 011 verk-
in á sýningunni eru til sölu.
Opið alla virka daga frá kl. 12-18.
KRÆKIBER
Anna María Þórisdóttir hefur gefið út
í bók greinar o.fl. sem hafa birst eftir
hana á alllöngu áraskeiði. Bókinni gaf
hún nafnið Krækiber en undir því nafni
birtusf margar greinar hennar í Morgun-
blaðinu (sunnudagsblaði).
Anna María túlkar í skrifum sínum oft
sjónarmið heimavinnandi kvenna og
mæðra og gerir einarða en öfgalausa
grein fyrir köllun þeirra og stöðu í
samfélaginu. Átthagar Önnu Maríu eru í
Þingeyjarsýslu og minnist hún þeirra með
glöðu þakklæti vegna þess að hafa átt
hamingjusama bernsku á fögrum slóðum.
BILALEIGA
meö utibú allt í kringum
landið, gera þér mögulegt
aö leigja bíl á einum staö
og skila honum á öörum.
Reykjavík
91-31615/31815
Akureyri
96-21715/23515
Pöntum bíla erlendis
interRent
Bílaleiga Akureyrar
ýdcT 'FjtjGtji r' ‘wJj'sAi'ú
Þriðjudagur 3. janúar 1989
UTVARP/SJÓNVARP
6>
Rás I
FM 92,4/93,5
ÞRIÐJUDAGUR
3. janúar
6.45 Veðurfregnir . Bæn, séra Hulda Hrönn M.
Helgadóttir flytur.
7.00 Fréttir.
7.03 í morgunsárið Fréttayfirlit kl. 7.30 og 8.30,
fróttir kl. 8.00 og veöurfregnir kl. 8.15. Lesið úr
forustugreinum dagblaðanna að loknu fréttayfir-
liti kl. 8.30. Tilkynningar laust fyrir kl. 7.30,8.00,
8.30 og 9.00.
9.00 Fréttir.
9.03 Litli barnatíminn „Salómon svarti og
Bjartur“ eftir Hjört Gíslason. Jakob S. Jónsson
les (2). (Einnig útvarpað um kvöldið kl. 20.00).
9.20 Morgunleikfimi Umsjón: Halldóra Björns-
dóttir.
9.30 í pokahorninu Sigríður Pétursdóttir gefur
hlustendum holl ráð varðandi heimilishald.
9.40 Landpósturinn - Frá Suðurnesjum
Umsjón: Magnús Gíslason.
10.00 Fréttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir.
10.30 Ég man þá tíð Hermann Ragnar Stefánsson
kynnir lög frá liðnum árum.
11.00 Fréttir. Tilkynningar.
11.05 Samhljómur Umsjón: Hanna G. Sigurðar-
dóttir. (Einnig útvarpað að loknum fréttum á
miðnætti).
11.55 Dagskrá.
12.00 Fréttayfirlit. Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar.
13.05 í dagsins önn - Þjóðhættir Umsjón: Stein-
unn Harðardóttir.
13.35 Miðdegissagan: „Konan í dalnum og dæt-
urnar sjö“ Ævisaga Moniku á Merkigili skráð af
Guðmundi G. Hagalín. Sigríður Hagalín les
(26).
14.00 Fréttir. Tilkynningar.
14.05 Snjóalög - Snorri Guðvarðarson. (Frá Akur-
eyri)
15.00 Fréttir.
15.03 Frakkar og Frónið okkar Island með augum
Frakka. Umsjón: Friðrik Rafnsson og Torfi
Túliníus. (Endurtekinn þáttur frá nýársdegi).
16.00 Fréttir.
16.03 Dagbókin Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Barnaútvarpið
17.00 Fréttir.
17.03 Tónlist eftir Franz Liszt. a. Píanósónata í
h-moll. Louis Lortie leikur. b. Ljóðasöngvar.
Brigitte Fassbánder syngur og Irwin Gage leikur
á píanó.
18.00 Fréttir.
18.03 Á vettvangi Umsjón: Bjarni Sigtryggsson,
Guðrún Eyjólfsdóttir og Páll Heiðar Jónsson.
Tónlist. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir.
19.00 Kvöldfréttir
19.30 Tilkynningar.
19.33 Kviksjá - Heimsendir sálarinnar Hlín Agn-
arsdóttir segir frá uppsetningu á leikritinu
„Lokaæfingu" eftir Svövu Jakobsdóttur í Tabard
leikhúsinu í Lundúnum. (Einnig útvarpað á
föstudagsmorgun kl. 9.30).
20.00 Litli barnatíminn (Endurtekinn frá morgni).
20.15 Klrkjutónlist eftlr Otto Olsson. a. Prelúdía
og fúga í dís-moll. Hans Fagius leikur á orgel
kirkjunnar í Nederluleá. b. Te Deum op. 25 fyrir
blandaðan kór, strengjasveit, hörpu og orgel.
Anna Stángberg leikur á hörpu, Erik Lundkvist
á orgel, Kór Táby kirkju syngur og Orfeus
kammersveitin leikur. Kerstin Ek stjómar.
21.00 Kveðja að austan Úrval svæðisútvarpsins á
Austurlandi í liðinni viku. Umsjón: Haraldur
Bjarnason. (Frá Egilsstöðum)
21.30 Útvarpssagan: „Heiður ættarinnar“ eftir
Jón Björnsson Herdís Þorvaldsdóttir les (15).
22.00 Fréttir . Dagskrá morgundagsins . Orð
kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.30 Leikrit: „Við erum ekki lengur í Grimms-
ævintýrum" eftir Melchior Schedler Þýðandi:
Karl Guðmundsson. Leikstjóri: María Kristjáns-
dóttir. Leikendur: Arnar Jónsson, Árni Tryggva-
son, Edda Björgvinsdóttir og Oddný Arnarsdótt-
ir. (Einnig útvarpað nk. fimmtudag kl. 15.03).
23.00 Tónlist eftir Franz Schubert. a. Sónatína í
a-moll op. 137 fyrir fiðlu og píanó. Arthur
Grumiaux og Robert Veyron-Lacroix leika. b.
Píanósónata í B-dúr. Ingrid Haebler leikur.
24.00 Fréttir.
00.10 Samhljómur Umsjón: Hanna G. Sigurðar-
dóttir. (Endurtekinn frá morgni).
Næturútvarp á samtengdum rásum til
morguns.
&
FM 91,1
01.10 Vökulögin Tónlist af ýmsu tagi í næturút-
varpi. Fréttir kl. 2.00 og 4.00 og sagðar fréttir af
veðri, færð og flugsamgöngum kl. 5.00 og 6.00.
Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 4.30.
7.03 Morgunútvarpið Dægurmálaútvarp með
fréttayfirliti kl. 7.30 og 8.30 og fréttum kl. 8.00.
Leifur Hauksson og Oiöf Rún Skúladóttir hefja
daginn með hlustendum, spyrja tíðinda víða um
land, tala við fólk í fréttum og fjalla um málefni
líðandi stundar. Veðurfregnir kl. 8.15 og leiðarar
dagblaðanna kl. 8.30.
9.03 Viðbit - Þröstur Emilsson. (Frá Akureyri)
10.05 Morgunsyrpa Evu Ásrúnar Albertsdóttur og
Óskars Páls Sveinssonar.
12.00 Fróttayfirlit. Auglýsingar.
12.20 Hádegisfréttir
12.45 í Undralandi með Lísu Páls. Sigurður Þór
Salvarsson tekur við athugasemdum og ábend-
ingum hlustenda laust fyrir kl. 13.00 í hlustenda-
þjónustu Dægurmálaútvarpsins.
14.00 Á milli mála - Eva Ásrún Albertsdóttir og
Óskar Páll Sveinsson.
16.03 Dagskrá Stefán Jón Hafstein, Sigríður Ein-
arsdóttir og Ævar Kjartansson bregða upp
mynd af mannlífi til sjávar og sveita og því sem
hæst ber heima og erlendis. Kaffispjall upp úr
kl. 16.00, „orð í eyra“ kl. 16.45 og dagsyfirlit kl.
18.30. Andrea Jónsdóttir segir frá nýjum plötum
á fimmta tímanum og Ingvi örn Kristinsson
flytur hagfræðipistil á sjötta tímanum.
19.00 Kvöldfréttir
19.33 Áfram ísland Dægurlög með íslenskum
flytjendum.
20.30 Útvarp unga fólksins Við hljóðnemann er
Vernharður Linnet.
21.30 FRÆÐSLUVARP: Lærum ensku Ensku-
kennsla fyrir byrjendur á vegum Fjarkennslu-
nefndar og Málaskólans Mímis. Fyrsti þáttur
endurtekinn frá liðnu hausti.
22.07 Bláar nótur Pétur Grétarsson kynnir djass
og blús.
01.10 Vökulögin Tónlist af ýmsu tagi í næturút-
varpi til morguns. Að loknum fréttum kl. 2.00
verður endurtekinn frá föstudegi þátturinn „Ljúf-
lingslög" í umsjá Svanhildar Jakobsdóttur. Að
loknum fréttum kl. 4.00 flutt brot úr dægurmála-
útvarpi þriðjudagsins. Fréttir kl. 2.00 og 4.00 og
sagðar fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum
kl. 5.00 og 6.00. Veðurfregnir frá Veðurstofu kl.
1.00 og 4.30.
Fréttir kl. 2.00, 4.00, 7.00, 7.30, 8.00, 8.30, 9.00,
10.00, 11.00, 12.00, 12.20, 14.00, 15.00, 16.00,
17.00,18.00,19.00, 22.00 og 24.00.
SVÆÐISÚTVARP Á RÁS 2
8.07- 8.30 Svæðisútvarp Norðurlands
18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands
SJÓNVARPIÐ
Þriðjudagur
3. janúar
18.00 Berta (11). Breskur teiknimyndaflokkur í
þrettán þáttum. Leikraddir Sigrún Waage og Þór
Tulinius. Þýðandi Sveinbjörg Sveinbjörnsdóttir.
18.10 Á morgun sofum við út (11). (I morgon er
det sovemorgon) Sænskur teiknimyndaflokkur
í tíu þáttum. Sögumaður Kristján Eldjám. Þýð-
andi Þorsteinn Helgason. (Nordvision-Sænska
sjónvarpið)
18.25 Julian og Maríumyndin (Julian og den
hellige jomfru). Julian er sex ára og býr í
Mexíkó. Þar búa átján milljón manns og Julian
er heppinn því hann á fjölskyldu og heimili.
Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir. (Nordvision -
Danska sjónvarpið)
18.55 Táknmálsfréttir
19.00 Stéphane Grappelli. Franski fiðluleikarinn
Stéphane Grappelli hefur verið einn helsti
jassfiðluleikari heimsins í rösklega hálfa öld.
Hann kom á Listahátíð í Reykjavík 1988 og er
þessi þáttur upptaka frá tónleikum hans þar.
Stjórn upptöku Gísli Snær Erlingsson.
19.50 Tommi og Jennl.
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Matarlist. Umsjón Sigmar B. Hauksson.
20.50 Buster Keaton - Engum líkur (A Hard Act
to Follow: Buster Keaton). Lokaþáttur. Breskur
heimildamyndaflokkur í þremur þáttum. Þýð-
andi og þulur Þorsteinn Helgason.
21.45 Hannay (Hannay). Djarfur lelkur. Breskur
sakamálamyndaflokkur. Þýðandi Óskar Ingi-
marsson.
22.35 Hér stóð bær. Heimildamynd um smíði
þjóðveldisbæjarins í Þjórsárdal eftir Hörð Ág-
ústsson og Pál Steingrímsson.
23.00 Seinni fréttir og dagskrárlok.
'Smt
Þriðjudagur
3. janúar
16.40 Hong Kong. Noble House. Lokaþáttur
endursýndur. Aðalhlutverk: Pierce Brosnan,
Deborah Raffin, Ben Masters og Julia Nickson.
Leikstjóri: Gary Nelson. Framleiðandi og höf-
undur: James Clavell. De Laurentiis Entertain-
ment Group.
18.20 Eyrnalangi asninn. Nestor. Falleg teikni-
mynd um asnann Nestor sem verður að athlægi
fyrir löngu eyrun sín. Þýðandi: Ástráður Haralds-
son.
18.45 Ævintýramaður. Adventurer. Spennandi
framhaldsmyndaflokkur í ævintýralegum stíl.
Aðalhlutverk: Oliver Tobias, Peter Hambleton
og Paul Gittins. Leikstjóri: Chris Bailey. Fram-
leiðandi: John McRae. Thames Television.
19.1919.19. Heil klukkustund af fréttaflutningi
ásamt fréttatengdu efni.______________________
20.30 íþróttir á þriðjudegi. Iþróttaþáttur með
blönduðu efni úr víðri veröld. Umsjón Heimir
Karlsson.
21.25 Landvinningar. GonetoTexas. Bandarísku
vestrarnir hafa framleitt meira af goðsagnarper-
sónum í gegnum tíðina en góðu hófi gegnir en
engin þeirra kemst í hálfkvisti við Sam Houston
sem var uppi frá 1793-1863. Um þrítugt var
Sam orðinn ríkisstjóri í Tennessee og naut þar
mikillar hylli almennings. Stjómmálaferill hans
fékk þó skjótan endi og hann beið mikinn
álitshnekki þegar nýbökuð brúður hans hafnaði
honum. Vonlaus og bitur flytur hann til Chero-
kee-indíánanna í leit að friði og einveru en þar
hafði hann dvalið sem lítill drengur. Þar finnur
hann ást og nýtur mikillar virðingar en ró hans
er raskað á nýjan leik þegar bandarísk stjórn-
völd falast eftir landi indíánanna. Sam heldurtil
Washington til fundar við Bandaríkjaforseta
sem sýnir málstað indíánanna lítinn skilning.
Uppfrá því hefst öflug barátta Sams fyrir lýðræði
og rétti indíána í Bandaríkjunum. Sam tókst
ætlunarverk sitt að mestu en hann lauk ævi
sinni í þeirri trú að líf hans hefði verið mistök frá
upphafi til enda. Aðalhlutverk: Sam Elliott,
Michael Beck og James Stephens. Leikstjóri:
Peter Levin. Framleiðandi: J.D. Feigelson.
Worldvision 1986.
23.45 Sólskinseyjan. Island in the Sun. Mynd
þessi var gerð á seinni hluta sjötta áratugarins
en á þeim tíma þótti hún í djarfara lagi.
Aðalhlutverk: Joan Collins og Stephen Boyd.
Leikstjóri: Robert Rossen. Framleiðandi: Darryl
F. Zanuck. Pýðandi: Ágústa Axelsdóttir. 20th
Century Fox 1957. Sýningartími 115 mín. Alls
ekki við hæfi bama.
01.40 Dagskrárlok.