Tíminn - 03.01.1989, Side 20
RfKISSKIP
NtrriMA FLUTNINGAR
Hatnarhúsinu v/Tryggvagötu,
S 28822
........WBSKMgk
S
MIBBBBÉHBHBSKIPn
SAMVINNUBANKANS
SUÐURLANDSBRAUT18 • 108 REYKJAVÍK
ÞRDSTUR
685060
VANIR MENN
rtmmn
ÞRIÐJUDAGUR 3. JANÚAR 1989
Bifreiðaskoðún íslands hefur fengið fyrstu skoðunarstöðina á hjólum, frá Hannover í Þýskalandi:
Karl Ragnars við nýju færanlegu skoðunarstöðina sem Bifreiðaskoðun íslands tekur í notkun innan skamms.
Tímamyndir Pjetur
Færanleg skoðunarstöð
annast landsbyggðina
í dag byrjar skráning ökutækja
eftir nýja númerakerfinu sam-
kvæmt reglum dómsmálaráðu-
neytisins. Munu ný ökutæki hcr
eftir bera fast númer, tvo bókstafi
og þrjá tölustafi, sem fylgir öku-
tækinu þótt eigendaskipti eigi sér
stað. í stað Bifreiðaeftiriits ríkis-
ins tekur Bifreiðaskoðun íslands
við skráningu og eftirliti með
ökutækjum og verður hlutverk
hennar að öðru leyti mestmegnis
það sama og Bifreiðaeftirlitsins
áður.
Samfara þessu verður tekin í
notkun fyrsta færanlega skoðun-
arstöðin hér á landi. Karl Ragn-'
ars framkvæmdastjóri Bifreiða-
skoðunarinnar sagði færanlegu
skoðunarstöðinni vera ætlað að
fara í dreifðari byggðir landsins.
Hann sagði mikla þörf vera fyrir
hana, svo hægt verði að skoða
bifreiðar landsbyggðarinnar á
fullnægjandi hátt, án teljandi
fyrirhafnar eigendanna.
Skoðunarstöðinni er skipt í
þrjár einingar, hvítar og bláar að
lit. Fyrsta einingin er dráttarbíll
sem einnig gegnir hlutverki raf-
stöðvar, önnur er skrifstofa og
svo skoðunarstöðin sjálf. Bíllinn
er af gerðinni Mercedes Bens en
skoðunareiningin af gerðinni
Doll. Hvorutveggja kemur frá
Hannover í Þýskalandi og kostar
einar 17 milljónir hingað komið.
Hún mun eingöngu verða notuð
við eftirlit með bifreiðum og
verður þá þakinu lyft og hliðarnar
færðar út með þar til gerðum
rafeindabúnaði svo rúmmálið
tvöfaldast. Pallur sem er bakhlið
stöðvarinnar þegar hún er ekki í
notkun, verður settur niður, bíl-
arnir keyrðir upp hann og inn þar
sem skoðunin fer fram. Karl
sagði þá hjá Bifreiðaskoð'uninni
ekki hafa þekkingu á því hvernig
búnaðurinn virkar og mun þess
vegna koma maður frá Þýska-
landi á næstu dögum í því skyni
að kenna þeim til verka.
Skoðunarstöðvar sem þessa
sagði hann vera mikið notaðar í
Þýskalandi til að auka og betr-
umbæta þjónustu við viðskipta-
vini. Til að mynda væri farið með
þær að stórmörkuðum á annatím-
um og fólki gefinn kostur á að
láta skoða bílinn sinn rneðan það
verslaði. Þetta sagði Karl þó ekki
verða gert hér, a.m.k. ekki til að
byrja með, meðan þeir ættu ekki
nema þessa einu.
Veruleg hækkun verður á
skoðunargjaldinu vegna viðbótar
25% söluskatts auk smávægilegra
breytinga annarra á verðskránni.
Eldri ökutæki munu geta haldið
sínu gamla númeri, en við eig-
endaskipti verður heimilt að
skipta yfir í nýju gerðina.
Bifreið dómsmálaráðherra var
fyrsta ökutækið sem fékk nýja
gerð númera nú stuttu fyrir ára-
mót, en að auki hafa nokkrir
bílar aðrir fengið ný númer.
Bifreiöaskoðun íslands tekur við hlutverki Bifreiðaeftirlits ríkisins og starfsmaður hennar fjarlægir ummerki
þess.