Tíminn - 12.01.1989, Qupperneq 5
f • t I , f .» f v f « |f *» 4 í I f I
f.l-,1 r,-T
Fimmtudagur 12. janúar 1989
Tíminn 5
Þórarinn V. Þórarinsson framkvæmdastjóri VSÍ segirtómt mál að tala um launahækkanirá íslandi í ár:
Rauntekjur geta ekki
hækkað á íslandi í ár
Ögmundur Jónasson formaður BSRB: -Svigrúm heimilanna er ekkert orðið.
Laun verða að hækka og kaupmáttur þeirra verður að vera tryggður.
Þórarinn V. Þórarinsson framkv.stjóri VSt: Það er hvergi svigrúm til
launahækkana á íslandi 1989.
„Það fer nokkuð eftir því í hversu
mikium tengslum við framleiðsluat-
vinnuvegina menn eru, hvaða skiln-
ing þeir hafa á samhengi íslenskra
efnahagsmála.
Ég er ekki jafn viss um að fólk í
opinberri þjónustu, ég tala nú ekki
um forystumenn þeirra, hafi þennan
skilning til að bera.
Það er tómt mál að tala um
einhverjar launahækkanir. Raun-
tekjur geta ekki hækkað á íslandi
1989. Fyrir því er ekki nokkur
möguleiki," sagði Þórarinn V. Þór-
arinsson framkvæmdastjóri VSÍ.
„Umræður um kröfugerð er hafin
innan aðildarfélaga BSRB og forystu
bandalagsins hefur verið falið að
hefja könnunarviðræður við stjórn-
völd til að fá vitneskju um fyrirætlan-
ir þeirra í efnahagsmálum," sagði
Ögmundur Jónasson formaður
BSRB við Tímann.
Nú líður óðum að því að lög um
samningabann og verðstöðvun renni
út og samningar verði lausir. Munar
þar mestu um 17 þúsund manna
samtök BSRB en einnig munu nokk-
ur verkalýðsfélög á almenna vinnu-
markaðnum verða með lausa samn-
inga er líður á vorið.
Ýmis verðbólguteikn eru nú á
lofti, þenslan virðist vera að fara á
fulla ferð aftur, vextir hækka sem
gerir stjórnvöldum erfiðara fyrir
með að koma skikk á undirstöðu-
greinarnar.
í dag hefjast könnunarviðræður
milli forystu BSRB og fjármálaráð-
herra og fleiri ráðherra, svipaðar
þeim sem áttu sér stað í fyrradag
milli þriggja ráðherra og forystu-
manna í Verkamannasambandinu.
Ögmundur Jónasson formaður
BSRB sagðist gera ráð fyrir því að
eitthvað af fyrirætlunum ríkisstjórn-
arinnar í efnahagsmálum kæmi upp
á borðið á fundinum í dag og á
fundum sem fyrirhugaðir eru næstu
daga.
Hann sagði að forysta BSRB hefði
fylgst grannt með efnahagsráð-
„Sú yfirgangssemi VSl sem lýsir
sér í málssókn Flugleiða á hendur
forystumanni Verslunarmannafé-
lags Suðurnesja er raeð eindæm-
um. Venjan hefur verið sú að láta
mál, sem upp kunna að koma í
verkfalli, niður falla að verkfalli
loknu,“ sagði Ásmundur Stefáns-
son forseti ASÍ.
Ásmundur sagði að málaferli af
þessu tagi gegn félagi innan ASÍ
hefðu ekki komið upp í forsetatíð
sinni. Hér væri í raun verið að
takast á um grundvallaratriði;
hvort atvinnurekanda væri heimilt
að láta aðra ganga í störf fólks sem
væri í verkfalli og hvort stjómend-
ur fyrirtækja gætu gengið í störf
hvaða starfsmanns sem væri þegar
verkfall stæði yfir.
Viðbrögð ýmissa samtaka launa-
fólks hafa vcrið harkaleg.
Ögmundur Jónasson formaður
BSRB sagði við Tímann að hann
stöfunum ríkisstjórnarinnar sem
hingað til hefðu flestar gengið út á
kjaraskerðingar og hefðu menn því
þungar áhyggjur af framtíðinni í
ljósi reynslunnar.
„Kröfugerð mun að sjálfsögðu
taka mið af þeim ráðstöfunum sem
gripið hefur verið til hingað til,“
sagði Ögmundur.
- En hversu mikið svigrúm er til
launahækkana almennt í þjóðfélag-
inu og í ríkisrekstri, einkum með
tilliti til fyrirætlana ríkisstjórnarinn-
ar um samdrátt í ríkisrekstri?
Ögmundur sagði: „Við veltum
fyrst og fremst fyrir okkur svigrúmi
heimilanna og það er orðið afar
lítið, einkum hjá fólki í lægstu
launaflokkunum. Reyndar er það
svo að BSRB eru láglaunasamtök
þar sem launamunur er afar lítill.
Þeir sem lakast standa hafa um 45
þúsund krónur í dagvinnutekjur, og
innan við helmingur félagsmanna
væri undrandi á dómgreindarleysi
forráðamanna Flugleiða í þessu
máli. Mikil reiði ríkti meðal fé-
lagsmanna og kröfur væru uppí um
að ekki yrði rætt frekar við Flug-
leiðir um væntanlegar sumarleyfis-
ferðir féiagsmanna innanlands og
utan á sumri komanda.
í gær samþykkti stjóm Starfs-
mannafélags ríkisstofnana ályktun
þar sem fyrirhugaðri málssókn
Flugleiða er mótmæit harðlega og
minnt er á að fyrir dyrum standi
samningar fjölmargra verkalýðs-
félaga um flutning þúsunda laun-
þega til sumarleyfisdvalar.
Stjóm SFR ieggur til að ekki
verði rætt við Flugleiðir um ferða-
lög fyrir félagsmenn verkalýðs-
hreyfingarinnar að svo stöddu.
Þá ályktaði stjóm Póstmannafé-
tags íslands um málið í gær og lítur
svo á að málshöfðunin sé aðför að
starfsemi allra samtaka launafólks
í landinu. -sá
hefur um 55 þúsund kr.“
Ögmundur sagði að fyrir dyrum
stæði stórfelldur niðurskurður í
ríkisrekstri og ríkisstarfsmenn sæju
fram á minnkandi eftirvinnu. BSRB
vildi hvetja stjórnvöld til raunsæis:
Ef samdráttarhugmyndir gengju
eftir, yrði að auka kaupmátt dag-
vinnulauna þannig að yfirvinna færð-
ist inn í dagvinnutaxtana.
Hann sagði að öllu skipti hver
kaupmáttur launa yrði eftir samn-
inga og hann vildu menn fá tryggðan.
Að öðru leyti væru kröfur enn
ómótaðar enda umræða um þær rétt
að hefjast innan bandalagsins. Búast
mætti þó við að þær verði að mestu
mótaðar þegar bráðabirgðalögin um
bann við kjarasamningum falla úr
gildi þann 15. febrúar n.k.
- En hvað segir framkvæmdastjóri
VSÍ um svigrúm til launahækkana?
„Starfsfólk framleiðslufyrirtækj -
anna áttar sig á stöðunni og er
Steingrímur Hermannsson mun á
næstu dögum fara í fundaferð um
landið. Fyrsti fundurinn verður hald-
inn á Hótel Sögu í kvöld.
í viðtali við Tímann sagði Stein-
grímur að hann hefði oft farið slíkar
ferðir ýmist í þinghléi eða áður en
þing hefst. í þessari ferð verður fyrst
og fremst fjallað um efnahagsmálin
og niðurstöður þeirra athugana sem
ríkisstjórnin hefur látið vinna.
Steingrímur sagðist álíta að þessar
athuganir sköpuðu miklu betri
grundvöll en áður til að taka á
efnahagsmálunum ef samstaða
næðist.
Aðspurður um hver stefna ríkis-
stjórnarinnar yrði í viðræðunum við
Borgaraflokkinn sem hefjast á
morgun, sagði Steingrímur: „Um
það get ég ekki sagt núna, þetta er
könnunarfundur og þetta er fyrst og
fremst spurningin um stefnu stjórn-
arflokkanna. Við ætlum fyrst að
heyra óskir og skoðanir Borgara-
flokksmanna og munum í framhaldi
áskorun framkvæmdastjórnar
Verkamannasambandsins um að líf-
eyrissjóðirnir bregðist vel við og
kaupi skuldabréf Atvinnutrygg-
ingarsjóðs dæmi um þann skilning
sem verkafólk hefur á erfiðri stöðu
og þeirri hættu sem vofir yfir at-
vinnulífinu og þar með atvinnu
fólksins," sagði Þórarinn V. Þórar-
insson.
Þórarinn sagði emnig að efnahags-
horfur þessa árs bentu til áframhald-
andi samdráttar. Þjóðartekjur ættu
að öllum líkindum eftir að halda
áfram að falla á árinu í framhaldi af
falli þeirra síðasta ár. Við þær að-
stæður væri tómt mál að tala um
launahækkanir.
Yrðu launahækkanir knúnar fram
gætu afleiðingarnar orðið með
tvennum hætti: Annars vegar gæti
atvinnuleysi aukist þannig að enn
færri skiptu milli sín þjóðarkökunni
og atvinnulausir tækju á sig kaup-
af því meta hvort þær eru aðgengi-
legar.“
- Nú hefur Júlíus Sólnes lýst því
yfir að til verði að koma ný ríkis-
stjórn og nýr stjórnarsáttmáli, hver
er þín skoðun á þessu?
„Ef einn flokkur bætist inn í
ríkisstjórnina þá er það eðli málsins
samkvæmt ný ríkisstjórn. Þannig að
mér finnst slík umræða í raun og
veru vera út í loftið. Ég hef núna
máttarhrapið. Hinn kosturinn væri
einfaldlega verðbólga.
Ástæðan væri einfaldlega sú að
ekki hefði enn tekist að sannfæra
neytendur í öðrum löndum um að
þeir eigi að greiða hærra verð fyrir
íslenskar vörur í takt við kostnaðar-
hækkanir á íslandi.
„Ríkisstjórnin sem nú situr hefur
verið upptekin við að reyna að finna
lausn á hvernig halda megi fram-
leiðslufyrirtækjunum gangandi mið-
að við núverandi útgjaldastig.
Fyrirtækin eru að loka eitt af
öðru. Rekstrarstöðvun blasir við
sjávarútveginum ef ekkert verður að
gert. Sjávarútvegurinn og fram-
leiðslugreinarnar eru þessi undir-
staða sem allt annað byggist á. Með
þessu er ég ekki að segja að aðrar
greinar séu eitthvað síðri eða óæðri,
en samhengið í efnahagskeðjunni er
nú einu sinni svona.“ -sá
Steingrímur Hermannsson, forsætis-
ráðherra.
umboð frá forseta til að leiða ríkis-
stjórn Framsóknarflokks, Alþýðu-
flokks og Alþýðubandalags, það
verður að breytast ef nýr flokkur
kemur inn. Stjórnarsáttmálinn getur
verið sá sami ef menn eru sáttir um
hann.“ SSH
Þeir bæta tiiveruna
„Við byggjum" er kjörorð Kiw-
anishreyfingarinnar hér á landi sem
verður 25 ára á laugardaginn.
Þeir kiwanismenn hafa þjónustu
og líknarmál á stefnuskrá sinni en
samkvæmt þeim grundvallarsjón-
armiðum vinnur hver klúbbur. Til
að mynda eru málefni aldraðra
ofarlega á baugi sem og málefni
fatlaðra, þoskaheftra og annarra
þeirra er minna mega sín í þjóðfé-
laginu.
Haldinn er K-dagur á þriggja ára
fresti en þá er starfað undir kjör-
orðinu „gleymum ekki geðsjúk-
um“. Því fé sem þá hefur safnast
var annars vegar varið til uppbygg-
ingar verndaðs vinnustaðar og hins
vegar Unglingageðdeildar.
Málshöföun Flugleiða á hendur Verslunarmannafélagi
Suðurnesja gæti dregið dilk á eftir sér fyrir Flugleiðir:
Missa Flugleiðir
af orlofsferðum?
Steingrímur Hermannsson, formaður
Framsóknarflokksins:
Fundaferð
um landið