Tíminn - 07.02.1989, Side 16
16 Tíminn.
DAGBÓK
Elsa Lund ásamt nokkrum af skemmtikröftunum sem þarna koma fram.
Bjórstofa Elsu á Þórscafé
Föstudaginn 10. febrúar hefst ný
skemmtidagskrá í Þórscafé með öllu til-
heyrandi.
„Gleðidagskráin BJÓRSTOFA
ELSU“ verður sýnd í Þórscafé öll föstu-
dags- og laugardagskvöld. Þar eru í fylgd
með Elsu Lund ýmsir góðkunnir gleði-
menn, eins og t.d. Saxi læknir, Leifur
óheppni, kínverski hollustukokkurinn
Wee Ta Mín, Mófred gamli og fl. og fl.
Einnig galsabræðurnir Halli og Laddi,
söngvarinn Egill Ólafsson og hátíðarsveit
Magnúsar Kjartanssonar. Egill Eðvarðs-
son stjórnar. Þarna er á boðstólum þrí-
réttuð veislumáltíð „að hætti Elsu Lund“,
eins og segir í fréttatilkynningu. Borð má
panta í síma 23333 og 23335.
Myndakvóld
Ferðafélags íslands
Á morgun, miðvikudaginn 8. febrúar,
kl. 20:30, verður myndakvöld á vegum
F.t. í Sóknarsalnum, Skipholti 50A.
Grétar Eiríksson sýnir myndir og segir
frá ferðum sínum um Breiðafjarðareyjar
í sumar sem leið. í næstu Árbók F.(.
verður fjallað um Breiðafjarðareyjar,
ennfremur verður fyrsta sumarleyfisferð-
in í ár skipulögð um Breiðafjarðareyjar.
Eyjarnar „óteljandi" eiga merkilega
sögu og er þessi myndasýning fyrsti þáttur
kynningar Ferðafélagsins á Breiðafjarð-
areyjum á nýbyrjuðu ári.
„Myndir úr myndasafni" Grétars
Eiríkssonar verða sýndar eftir kaffihlé.
Allir velkomnir, félagar og aðrir. Að-
gangur kr. 150.00.
Ferðafélag íslands
Félagsfundur JC NES
JC Nes heldur 6. félagsfund starfsársins
í dag, þriðjudaginn 7. febrúar kl. 20:30 að
Laugavegi 178 III hæð. Gestur kvöldsins
verður Ragnar Birgisson, forstjóri Sanitas
h/f, og umræðuefni kvöldsins verður
„Koma bjórsins 1. mars“.
Kaffiveitingar í hléi og eru félagsmenn
hvattir til að taka með sér gesti.
Hallgrímskirkja
- Starf aldraðra
Haft verður „Opið hús“, ef veður
leyfir, í safnaðarsal kirkjunnar á morgun,
miðvikudag, og hefst kl. 14:30.
Dagskrá: Helga Hálfdanardóttir les
upp og Svava Stefánsdóttir syngur við
undirleik Hólmfríðar Árnadóttur. Kaffi-
veitingar.
Þeir sem óska eftir bílfari vinsamlegast
láti vita fyrir kl. 12:00 sama dag í síma
kirkjunnar 10745.
Aðalfundur
Safnaðarfélags Ásprestakalls
Aðalfundur félagsins verður haldinn
þriðjudaginn 7. febr. kl. 20:30 í félags-
heimilinu.
Venjuleg aðalfundarstörf. Frú Ragna
Jónsdóttir kemur á fundinn og segir frá
kvennaráðstefnunni í Osló sl. sumar.
Erla B. Axelsdóttir sýnir
í F.Í.M.-salnum
Laugardaginn 4. febrúar opnaði Erla
B. Axelsdóttir myndlistarsýningu í
F.Í.M.-salnum, Garðastræti 6 í Reykja-
vík.
Erla stundaði nám við Myndlistarskól-
ann í Reykjavík 1975 til 1982 og við
listadeild Skidmore-háskóla, Saratoga
Springs.
Þetta er sjötta einkasýning Erlu, en
síðast sýndi hún á Kjarvalsstöðum 1986.
Hún átti jafnframt myndir á sýningunni
„Reykjavík í myndlist" það sama ár.
í F.I.M. salnum sýnir Erla málverk og
pastelmyndir sem unnar eru á s.l. þrem
árum.
Sýning Erlu stendur frá 4. febrúar til
21. febrúar og verður opin virka daga kl.
'13:00-18:00 og um helgar kl. 14:00-18:00.
Síminn er 25060.
Níels Hafstein og
ívar Valgarðsson
sýna í Nýlistasafninu
Laugardaginn 4. febrúar kl. 16:00 opn-
aði Níels Hafstein sýningu í Nýlistasafn-
inu á „verkum sem fjalla um listbrögð
sem verður að beita til að öðlast heiður,
auðsæld, ást og orðstír," eins og segir í
fréttatilkynningu.
Á síðasta ári átti Níels Hafstein verk á
tveim veigamiklum sýningum; hin fyrri
var haldin í Ruine der Kúnste í Berlín á
alþjóðlegri listahátíð undir nafninu:
Berlín, listahöfuðborg Evrópuráðsins.
Hin sýningin var á Listasafni fslands:
Nýlistasafnið 10 ára (sýnishorn eldri
verka safnsins). Sýningunni lýkur 19.
febrúar.
Laugardaginn 4. febrúar kl. 16:00 opn-
aði Ivar Valgarðsson sjöundu einkasýn-
ingu sína í Nýlistasafninu. ívar átti á
síðasta ári verk á eftirtöldum sýningunr:
Listasafn íslands „Aldarspegill", íslensk
myndlist í eigu safnsins 1900-1987, Seoul,
Suður-Kóreu: The Arts Olympics, sýning
í tengslum við Olympíuleikana, Listasafn
íslands: Fimm ungir listamenn. Sýning-
unni lýkur 19. febrúar.
Merkjasala Rauða krossins
á öskudag
Árleg merkjasala Rauða kross íslands
verður á öskudag. Merkjasalan er til
fjáröflunar fyrir deildir Rauða krossins.
Innanlands starf Rauða krossins byggist á
sjálfboðaliðum sem starfa á vegum 47
deilda um allt land. Verkefni deildanna
eru margvísleg, t.d. rekstur sjúkrabif-
reiða, starf að öldrunarmálum, annast
heimsóknaþjónustu o.fl. Þá bjóða deild-
irnar upp á skyndihjálparnámskeið fyrir
almenning, sjá m.a. um blóðsöfnun og
fatasöfnun og starfa einnig að fjölmörgum
öðrum innlendum og erlendum verkefn-
um.
Merkjasalan er mikilvæg fjáröflunar-
leið fyrir deildirnar.
í Reykjavík verða merki afhent sölu-
börnum í félagsmiðstöðvum frá kl. 14:00
til 16:00 þriðjudaginn 7. febrúar og einnig
á miðvikudag hjá Reykjavíkurdeild RKI
að Öldugötu 4 og skrifstofu RKl, Rauðar-
árstíg 18.
ELAinreeT a
rbvi\i\oo i nnr
Framsóknarfélag Garðabæjar
Almennur félagsfundur verður haldinn þriðjudaginn 7. feb í Framsókn-
arhúsinu Goðatúni 2, kl. 20.30.
Dagskrá;
1. Fjárhagsáætlun Garðabæjar 1989.
2. Önnur mál.
Allir velkomnir
Stjórnin
Kópavogur
Skrifstofan í Hamraborg 5 er opin þriðjudaga og miðvikudaga kl. 9-13.
Sími 41590. Heitt á könnunni.
Opið hús alla miðvikudaga kl.17-19. Félagsmenn eru hvattir til að
líta inn og taka með sér gesti. Eflum flokksstarfið.
Framsóknarfélögin í Kópavogi.
Reykjanes
Skrifstofa Kjördæmissambandsins að Hamraborg 5, Kópavogi er
opin á mánudögum og miðvikudögum kl. 17 til 19. Sími 43222.
K.F.R.
Suðurland
Skrifstofa Kjördæmissambandsins, Eyrarvegi 15, Selfossi er opin á
mánudögum kl. 15 til 17 og á fimmtudögum kl. 17 til 19, sími 98-22547.
K.S.F.S.
Þriðjudagur 7. febrúar 1989
ÚTVARP/SJÓNVARP
o
Rás I
FM 92,4/93,5
Þriðjudagur
7. febrúar
6.45 Veðurfregnir. Bæn, séra Irma Sjötn Óskars-
dóttir flytur. 7.00 Fréttir.
7.03 í morgunsárið meö Óskari Ingólfssyni.
Fréttayfirlit kl. 7.30 og 8.30, fróttir kl. 8.00 og
veðurfregnir kl. 8.15. Lesið úr forustugreinum
dagblaðanna að loknu fréttayfirliti kl. 8.30.
Tilkynningar laust fyrir kl. 7.30, 8.00, 8.30 og
9.00. 9.00 Fréttir.
9.03 Litli barnatíminn - „Sitji guðs englar“
Guðrún Helgadóttir les sögu sína. (2) (Endur-
tekið um kvöldið kl. 20.00).
9.20 Morgunleikfimi Umsjón: Halldóra Bjöms-
dóttir.
9.30 í pokahominu Sigríður Pétursdóttir gefur
hlustendum holl ráð varðandi heimilishald.
9.40 Landpósturinn - Frá Suðurlandi Umsjón:
Þorlákur Helgason.
10.00 Fréttir. Tilkynningar. 10.10 Veðurfregnir.
10.30 Ég man þá tíð Hermann Ragnar Stefánsson
kynnir lög frá liðnum árum.
11.00 Fróttir.
11.03 Samhljómur Umsjón: Hanna G. Sigurðar-
dóttir. (Einnig útvarpað eftir fréttir á miðnætti).
11.55 Dagskrá.
12.00 Fréttayfirlit. Tilkynningar.
12.20 Hádegisfréttir
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar.
13.05 í dagsins önn - Faraidsfræði Umsjón:
Steinunn Harðardóttir.
13.35 Miðdegissagan: „Blóðbrúðkaup" eftir
Yann Queffeléc Guðrún Finnbogadóttir þýddi.
Þórarinn Eyfjörð les (9).
14.00 Fréttir. Tilkynningar.
• 14.05 Snjóalög - Inga Eydal. (Frá Akureyri) (Einn-
ig útvarpað aðfaranótt þriðjudags að loknum
fréttum kl. 2.00).
15.00 Fréttir.
15.03 Eínskonar seiður, þáttur um franska
vísnatónllst Umsjón: Sigmar B. Hauksson.
(Endurtekinn þáttur frá fimmtudagskvöldi).
15.45 Þlngfréttir
16.00 Fréttir.
16.03 Dagbókin Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir.
16.20 Ðarnaútvarpið - „Virgill litli“ Sigurlaug
Jónasdóttir les 2. lestur sögu Ole Lund Kirke-
gaard. Þýðing: Þorvaldur Kristinsson
17.00 Fróttir.
17.03 Tónlist á síðdegi - Bloch og Prokofiev. -
„Schelomo", hebresk rapsódía fyrir selló og
hljómsveit eftir Emest Bloch. Lynn Harrell leikur
með Concertgebouwhljómsveitinni í Amster-
dam; Bernard Haitink stjórnar. - „Rómeó og
Júlía", svíta nr. 1 eftir Sergei Prokofiev. Skoska
Þjóðarhljómsveitin leikur; Neeme Járvi stjómar.
18.00 Fréttir.
18.03 Á vettvangi Umsjón: Bjarni Sigtryggsson,
Guðrún Eyjólfsdóttir og Páll Heiðar Jónsson.
Tónlist. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir.
19.00 Kvöldfréttir
19.30 Tilkynningar.
19.32 Kviksjá - Shakespeare í London Umsjón:
Sverrir Guðjónsson. (Einnig útvarpað á föstu-
dagsmorgun kl. 9.30).
20.00 Litli barnatíminn - „Sitji guðs englar“
Guðrún Helgadóttir les sögu sína. (2) (Endur-
tekinn frá morgni).
20.15 Orthulf Prunner leikur orgelsónötur eftir
Johann Sebastian Bach - Sónötu nr.1 í
Es-dúr. - Sónötu nr. 2 í c-moll. - Sónötu nr.3 í
d-moll. (Hljóðritun, gerð í Dómkirkjunni í
Reykjavík) /
21.00 Kveðja að norðan Úrval svæðisútvarpsins
á Norðurlandi í liðinni viku. Umsjón: Margrét
Blöndal og Kristján Sigurjónsson. (Frá Akureyri)
21.30 Útvarpssagan: „Þjónn þinn heyrir“ eftir
Söru Lidman Hannes Sigfússon les þýðingu
sína (8).
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Lestur Passíusálma Guðrún Ægisdóttir les
22.30 Leikrit vikunnar: „Morð í mannlausu
húsi“, framhaldsleikrit eftir Michael Hardwick
byggt á sögu eftir Arthur Conan Doyle. Þýðandi:
Margrét E. Jónsdóttir. Leikstjóri: Benedikt Árna-
son. Lokaþáttur: Hefnandinn frá Utha. Leikend-
ur: Sigurður Skúlason, Pálmi Gestsson, Stein-
dór Hjörleifsson, Þórhallur Sigurðsson, Jón
Gunnarsson, Flosi Óiafsson, örn Ámason,
Ragnar Kjartansson, Árni Pótur Guðjónsson,
Erlingur Gíslason Fiðluleikari: Szymon Kuran.
Kynnir: Gyða Ragnarsdóttir. (Einnig útvarpað
nk. fimmtudag kl. 15.03).
23.15 Tónskáldatími Guðmundur Emilsson kynnir
íslensk tónskáld.
24.00 Fróttir.
00.10 Samhljómur Umsjón: Hanna G. Sigurðar-
dóttir. (Endurtekinn frá morgni).
01.00 Veðurfregnir.
Næturútvarp á samtengdum rásum til
morguns.
&
FM 91,1
01.10 Vökulögln
7.03 Morgunútvarpið Leifur Hauksson og Ólöf
Rún Skúladóttir hefja daginn með hlustendum.
9.03 Stúlkan sem bræðir íshjörtun, Eva Ásrún
kl. 9 Morgunsyrpa Evu Ásrúnar Albertsdóttur. -
Afmæliskveðjur kl. 10.30.
11.03 Stefnumót Jóhanna Harðardóttir tekur fyrir
það sem neytendur varðar.
12.00 Fréttayfirlit. Auglýsingar.
12.15 Heimsblöðin
12.20 Hádegisfréttir
12.45 Umhverfis landið á áttatíu Margrót Blöndal
og Gestur Einar Jónasson leika þrautreynda
gullaldartónlist og gefa gaum að smáblómum í
mannlífsreitnum.
14.05 Milli mála, Óskar Páll á útkíkki og leikur nýja
og fína tónlist. - Útkíkkið kl. 14.14, allt sem þú
þarft að vita um það sem fólk er að gera í
mannbótaskyni.
- Auður Haralds talar frá Róm.
- Hvað gera bændur nú?
16.03 Dagskrá Dægurmálaútvarp fyrír þá sem vilja
vita og vera með. Stefán Jón Hafstein, Ævar
Kjartansson og Sigríður Einarsdóttir.
- Kaffispjall og innlit upp úr kl. 16.00, hlustenda-
þjónustan kl. 16.45.
- Fréttanaflinn, Sigurður G. Tómasson með
fjölmiðlarýni eftir kl. 17.00
- Stóru mál dagsins milli kl. 17 og 18.
- Þjóðarsálin, þjóðfundur I beinni útsendingu
að loknum fréttum kl. 18.03.
Málin eins og þau horfa við landslýð, sími
þjóðarsálarinnar er 38500.
19.00 Kvöldfréttir
19.32 Áfram ísland Dægurlög með íslenskum
flytjendum.
20.30 Útvarp unga fólksins Við hljóðnemann:
Vemharður Linnet.
21.30 FRÆÐSLUVARP: Lærum ensku Ensku-
kennsla fyrir byrjendur á vegum Fjarkennslu-
nefndar og Málaskólans Mímis. Níundi þáttur
endurtekinn frá liðnu hausti.
22.07 Bláar nótur Pétur Grétarsson kynnir djass
og blús.
01.10 Vökulögin Lög af ýmsu tagi í næturútvarpi
til morguns. Að loknum fréttum kl. 2.00 verður
endurtekinn frá föstudegi þátturinn „Ljúflings-
lög“ í umsjá Svanhildar Jakobsdóttur. Að lokn-
um fréttum kl. 4.00 flutt brot úr dægurmálaút-
varpi þriðjudagsins. Fréttir kl. 2.00 og 4.00 og
sagðar fréttir af veðri, færð og flugsamgöngum
kl. 5.00 og 6.00. Veðurfregnir frá Veðurstofu kl.
1.00 og 4.30.
Fréttir kl. 2.00, 4.00, 7.00, 7.30, 8.00, 8.30, 9.00,
10.00, 11.00, 12.00, 12.20, 14.00, 15.00, 16.00,
17.00,18.00,19.00, 22.00 og 24.00.
SVÆÐISÚTVARP Á RÁS 2
8.07- 8.30 Svæðisútvarp Norðurlands
18.03-19.00 Svæðisútvarp Norðurlands
SJÓNVARP1Ð
Þriðjudagur
7. febrúar
18.00 Veist þú hver hún Angela er? (Vet du hvem
Angela er?) Angela er lítil stúlka sem býr í
Noregi en foreldrar hennar fluttu þangað frá
Chile. Fylgst er með Angelu og kisunni hennar
í einn dag. Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir.
Þulur Halldór N. Lárusson. (Nordvision-Norska
sjónvarpið)
18.20 Gullregn. Fjórði þáttur. Danskurframhalds-
myndaflokkur fyrir börn í sex þáttum. Þýðandi
Jóhanna Jóhannsdóttir. (Nordvision - Danska
sjónvarpið)
18.50 Táknmálsfréttir
18.55 Poppkorn - endursýndur þáttur frá 1. feb.
Umsjón Stefán Hilmarsson.
19.25 Smellir - Peter Gabriel I. Endursýndir
þættir frá í haust.
19.50 Ævintýri Tinna. Ferðin til tunglsins (14).
20.00 Fréttir og veður.
20.40 Matarlist. Umsjón Sigmar B. Hauksson.
20.55 Á því herrans ári - 1969. Atburðir ársins
rifjaðir upp með aðstoð fróttaannála Sjónvarps-
ins og skoðaðir í nýju Ijósi. Umsjón Edda
Andrésdóttir og Árni Gunnarsson.
22.00 Leyndardómar Sahara. Secret of the Sa-
hara) Fjórði þáttur. Framhaldsmyndaflokkur í
átta þáttum. Aðalhlutverk Michael York, Ben
Kingsley, James Farentino og David Soul.
Þýðandi: Gauti Kristmannsson.
23.00 Seinni fréttir.
23.10 HM í alpagreinum. Sýndar myndir frá risa-
svigi karia á heimsmeistarakeppninni í alpa-
greinum sem fram fór fyrr um daginn í Vail í
Colorado. Meðal þátttakenda er örnólfur Valdi-
marsson frá Reykjavík.
23.25 Dagskrárlok.
sm-2
Þriðjudagur
7. febrúar
15.45 Santa Barbara. Bandarískur framhaldsþátt-
ur sem hlotið hefur verðskuldaða athygli qaqn-
rýnenda.
16.30 Opnustúlkan. Policewoman Centerfold.
Bandarísk sjónvarpsmynd byggð á sannsögu-
legum atburðum. Myndin fjallar um unga lög-
reglukonu sem á í vök að verjast gagnvart
yfirmönnum sínum þegar nektarmynd af henni
birtist í blaði nokkru. Aðalhlutverk: Melody
Anderson og Ed Marinaro. Leikstjórn: Reza
Badiyi. Framleiðandi: Frank Von Zerneck. Þýð-
andi: Sigrún Þorvarðardóttir. ITC. Sýningartími
95 mín. Lokasýning.
18.05 Selurinn Snorri. Seabert. Teiknimynd með
íslensku tali. Leikraddir: Guðmundur Ölafsson
og Guðný Ragnarsdóttir. Þýðandi: Ólafur
Jónsson. Sepp 1985.
18.20 Feldur. Foofur. Teiknimynd með íslensku
tali um heimilislausa en fjöruga hunda og ketti.
Leikraddir: Arnar Jónsson, Guðmundur Ólafs-
son, Saga Jónsdóttir og Sólveig Pálsdóttir.
Þýðandi: Ástráður Haraldsson.
18.45 Ævintýramaður. Adventurer. Spennandi
framhaldsmyndaflokkur í ævintýralegum stíl.
Sjöundi þáttur. Aðalhlutverk: Oliver Tobias,
Peter Hambleton og Paul Gittins. Leikstjóri:
Chris Bailey. Framleiðandi: John McRae.
Thames Television.
19.1919.19. Heil klukkustund af fréttaflutningi
ásamt fréttatengdu efni.
20.30 Leiðarinn. Áhorfendum hættir til að gleyma
að Stöð 2 sinnir ekki eingöngu menningu,
afþreyingu og fréttum heldur hefur hún verið
óhrædd við að taka afstöðu til ágreinings,
jafnvel hneykslismála líðandi stundar. I þessum
þáttum mun Jón Óttar beina spjótum að þeim
málefnum sem Stöð 2 telur varða þjóðina mestu
á hverjum tíma. Umsjón: Jón Óttar Ragnarsson.
Stöð 2.
20.45 íþróttir á þriðjudegi. Iþróttaþáttur með
blönduðu efni úr ýmsum áttum. Umsjón Heimir
Karlsson.
21.40 Hunter. Hunter og Dee Dee takast á við
spennandi sakamál að vanda. Þýðandi: Ingunn
Ingólfsdóttir. Lorimar.
22.30 Rumpole gamli. Rumpole of the Bailey.
Breskur myndaflokkur í sex hlutum. 1. þáttur.
Spennandi, breskir sakamálaþættir í sex hlutum
þar sem lögfræðingurinn Rumpole fer með
aðalhlutverkið. Hér ver hann unglingsdreng
sem er sekur fundinn um rán og ofbeldisverk.
Þrátt fyrir vissu Rumpoles varðandi sakleysi
drengsins gengur erfiðlega að sækja málið þar
sem drengurinn er kominn af alræmdri glæpa-
fjölskyldu. Aðalhlutverk: Leo McKem. Leik-
stjóm: Herbert Wise. Höfundur: John Mortimer.
Framleiðandi: Irene Shubik. Þýðandi: Bjöm
Baldursson. Thames Television.
23.20 Sumar óttans. Summer of Fear. Bandarísk
hrollvekja. Ung stúlka missir fjölskyldu sína í
bílslysi. Hún flyst til frændfólks síns en skömmu
eftir komu hennar fara ógnvænlegir hlutir að
gerast á heimilinu. Aðalhlutverk: Linda Blair,
Lee Purcell og Jeremy Slate. Leikstjóri: Wes
Craven. Framleiðendur: Max A. Keller og Mi-
cheline H. Keller. ITC 1978. Sýningartími 90
mín. Ekki við hæfi bama.
00.55 Dagskrárlok.