Tíminn - 07.02.1989, Page 20
AUGLÝSINGASÍMAR 1 0 0 0 œ (0 ■ a 686300
_ A PÓSTFAX NÝJA SENDIBÍLASTÖÐIN
RÍKISSKIP NÚTÍMA FLUTNINGAR Hatnorhúsinu v/Tryggvagötu, S 28822 VT> VERflBRlFAVtBSKIPn SAMVINNUBANKANS SUÐURLANDSBRAUT 18. SlMI: 688568 TÍMANS 687691 68-5000 GÓÐIR BÍLAR ÁGÆTIR BÍLSTJÓRAR
c
ríminii
ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 1989
BORGARAFLOKKUR
Á LEIÐ í STJÓRN
Formlegar viðræður á milli ríkisstjórnarinnar og við-|
ræðuhóps Borgaraflokksins hafa ekki verið boðaðar ál
næstu dögum. Samkvæmt heimildum Tímans er lítill
málefnalegur ágreiningur ríkjandi á milli borgara og
stjórnarinnar, heldur greinir menn frekar á um orðalag. (
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra sagðist á Alþingi í
gær vongóður um að samkomulag
gæti náðst við Borgaraflokkinn um
aðild hans að ríkisstjórninni og
kvað jafnframt skilning vera ríkj-
andi innan raða Borgaraflokksins
á þeim erfiðleikum er við væri að
glíma í efnahagsmálum þjóðarinn-
ar. Júlíus Sólnes formaður Borg-
araflokksins sagði í gær að farið
væri að reyna verulega á þolinmæöi
sína. Hann benti á að annað hvort
yrði Borgaraflokkurinn að vera í
stjórnarandstöðu eða ekki og tím-
inn til að ná saman væri mjög
naumur.
Nú er talið líklegt að saman
kunni að ganga með þessum aðil-
um á næstu dögum. Helsta ágrein-
ingsefni borgaraflokksmanna og
ríkisstjórnarinnar var, að sögn Júl-
íusar Sólness í síðustu viku, ágrein-
ingur um hversu langt eigi að
ganga í að afnema matarskattinn.
Júlíus sagði í viðtali við Tímann
síðastliðinn laugardag að sinn
flokkur legði til að matarskatturinn
yrði lagður strax niður og benti í
því sambandi á að missir þeirra
tekna er annars kæmu inn af matar-
skattinum væri eðlilegur fórnar-
kostnaður til að vega upp á móti
áhrifum gengisfellingar á kjör
launafólks. Nú þegar lýst hefur
verið yfir að gengið skuli fellt í
áföngum um allt að 5%, er sýnt að
væri söluskattur af matvælum felld-
ur algerlega niður mundi það gera
gott betur en að vega upp á móti
kjaraskerðingu 5% gengisfelling-
ar. Af því er eðlilegast að álykta að
slagurinn á milli viðræðunefnd-
anna standi um hvort gefa eigi
allan söluskatt af matvælum eftir
eða hvort geyma eigi þá eftirgjöf
þar til síðar.
Það liggur Ijóst fyrir að ef af
stjórnarþátttöku Borgaraflokksins
verður mun mikill meirihluti
flokksins standa á bak við hana.
Menn velta fyrir sér hvort Ingi
Björn Albertsson muni taka þátt í
að styðja ríkisstjórn Steingríms
Hermannssonar. Hann hefur sjálf-
ur lýst því yfir að honum þyki
flokkurinn fá of lítið af sínum
stefnumiðum framgengt. Hvort
hann klýfur sig frá hópnum verður
tíminn að leiða í ljós en hitt er ljóst
að Benedikt Bogason, .varamaður
Alberts Guðmundssonar, er
hlynntur stjórnarþátttöku
flokksins.
Ekki hefur verið mikið rætt um
Júlíus Sólnes, formaður Borgaraflokks, niðursokkinn
í útreikninga á Alþingi í gær.
skiptingu ráðuneyta, verði af inn-
komu Borgaraflokksins í stjórnina
en almennt er gengið út frá því að
flokknum verði boðnir tveir ráð-
herrastólar. Jafnframt er ekki talið
ólíklegt að einhver uppstokkun
Tímamynd Pjetur.
ráðuneyta, á milli þeirra flokka
sem nú eru í stjórn, geti átt sér stað.
-ág
Hörð reynsla í fyrstu veiðiferðinni:
Brotsjór gekk
yfir Snæfugl
„Þetta var hauga helvítis bræla
og togarinn hallaðist 40-45 gráður
á stjórnborða,“ sagði Ásmundur
Ásmundsson, fyrsti stýrimaður á
Snæfugli frá Reyðarfirði, en togar-
inn fékk óvægna vígslu í sinni
fyrstu veiðiferð.
Brotsjórinn reið yfir um klukkan
þrjú til hálf fjögur aðfaranótt
mánudags. Snæfugl var á landstími
þegar hann fékk á sig tvo væna
hnúta með áðurgreindum af-
leiðingum, þegar um 20 sjómílur
voru ófarnar til lands. Veðrið var
leiðinlegt eins og fram kom í máli
stýrimannsins, eða á bilinu 11-13
vindstig og mikill sjór. Ekki fór
annað úrskeiðis við brotsjóinn en
að einn bjargbátur losnaði, en án
þess að hverfa á haf út þar sem
hann blés ekki upp. Sagði Ás-
mundur að það væri sérkenniieg
reynsla að fá svona öfluga hnúta á
togarann, en það væri greinilegt að
Snæfugl væri afar gott sjóskip.
Að sögn forstjóra útgerðarfélags
Snæfugls, Hallgríms Jónassonar,
varð ekki eignatjón af völdum
þessara brota. Sagði Hallgrímur
að til hefði staði^ að koma inn til
Reyðarfjarðar aðfaranótt mánu-
dags hvort sem er, þannig að
breyting varð ekki á áætlun. Snæ-
fugl var í sinni fyrstu veiðiferð og
voru m.a. tveir sérfræðingar með í
för frá framleiðanda. KB
Ingi Björn Albertsson, borgari:
Ekki lengur
til viðræðu
Ingi Björn Albertsson, alþingis-
maður Borgaraflokksins, gekk af
þingflokksfundi á sunnudaginn þar
sem hugsanleg ríkisstjórnarþátttaka
var til umræðu og segir hann að ekki
sé hægt að fallast á tilboð stjórnar-
flokksformannanna. í viðtali við
Tímann í gær sagði Ingi Bjöm að
tilboðið hafi alls ekki getað sam-
ræmst samþykkt aðalstjórnar Borg-
araflokksins frá því á laugardag og
því sjái hann engar forsendur fyrir
áframhaldandi viðræðum. „Ég taldi
mig ekki eiga erindi í þessar viðræð-
ur á þeim grundvelli sem lagður var
fyrir þingflokkinn á sunnudaginn,"
sagði Ingi Bjöm.
Að sögn Inga Björns ítrekaði
aðalstjórn flokksins á laugardag að
til þess að flokkurinn geti haldið
áfram þessum viðræðum verði að
liggja fyrir að matarskatturinn falli
strax niður og staðið verði við jafna
skiptingu ráðuneyta. „í því tilboði
sem ríkisstjórnarformenn lögðu fyrir
þingflokk okkar í gær var ekki orð
um ráðherraskiptingu og kröfunni
um niðurfellingu matarskattsins er
hafnað í raun og veru,“ sagði þing-
maðurinn.
Samkvæmt þessum yfirlýsingum
er Ingi Björn ekki lengur inni í
viðræðum um stjórnarþátttöku og
skipar sér í sveit með fymtrn for-
manni borgara Alberti Guðmunds-
syni. KB