Tíminn - 31.05.1989, Side 2
■ 2 Tíminn
899 falsaðar ávísanir hafa borist til RLR frá áramótum, sem
Falsað fyrir
35 þús. á dag
Fölsuðum ávísunum hefur farið fjölgandi frá áramótum. í
gær, þann 30. maí höfðu 899 falsaðar ávísanir borist inn á
borð Rannsóknarlögreglu ríkisins frá áramótum að upphæð
5.235.848 krónur. Að meðaltali berast því sex ávísanir
daglega, hver að meðaltali upp á 5.817 krónur, sem gerir
34.905 króna dagskammt.
Ástæða þess að fólk kemst upp
með fölsunina er einkum sú að
viðtakendur krefjast ekki skilríkja
með mynd af framseljenda. Á síð-
asta ári voru gefnar út falsaðar
ávísanir að upphæð um 20 milljónir
króna.
Að sögn Jóns Snorrasonar deild-
arstjóra hjá Rannsóknarlögreglu
ríkisins hefur mjög mikið af fölsuð-
um ávísunum borist inn á borð
þeirra frá áramótum og verið frekar
að aukast heldur en hitt. „Þetta
gengur vegna andvaraleysis þeirra
sem taka við ávísunum í verslunum
og annars staðar. Það er því fyrst og
fremst um að kenna, að fólk er ekki
á varðbergi," sagði Jón. Hann sagði
að embættið hefði lagt árherslu á að
fá einhverjar lausnir sem yrðu til
einhvers. „Við höfum bent á að það
sé mjög knýjandi að bankakort verði
ekki gefin út nema með mynd og
almennt sé krafist skilríkja með
mynd í viðskiptum með tékka,“
sagði Jón.
Fjöldi falsaðra ávísana á ári skiptir
þúsundum og á síðasta ári komu
falsaðar ávísanir upp á um 20 millj-
ónir króna inn á borð RLR. Aðeins
óverulegur hluti þessara ávísana fæst
innheimtur og verða því viðtakendur
ávísananna að taka á sig skaðann.
Þess eru dæmi að viðtakendur taki
við ávísunum, sem lítið annað er
skiljanlegt á en upphæð ávísunarinn-
ar og jafnvel að nafn þess sem
undirritar er vitlaust stafsett.
Jón sagði að 30. maí, þ.e. í gær
hefðu alls 899 falsaðar ávísanir skil-
að sér inn á borð til þeirra og
samanlögð fjárhæð þeirra er
5.235.848 krónur. Þetta eru þær
ávísanir sem borist höfðu þá og enn
eiga eftir að berast ávísanir sem
falsaðir voru fyrir þann tíma.
Magnús Finnsson framkvæmda-
stjóri Kaupmannasamtakanna sagði
í samtali við Tímann að hann hefði
heyrt það á fundi fyrir skömmu að
fleiri falsaðar ávísanir kæmu nú til
kaupmanna en oft áður. Hann sagði
að því væri ekki að neita að margir
kaupmenn ættu safn af fölsuðum
ávísunum, sem þeir kæmu líklega
aldrei til með að fá greiddar. „Þetta
gerist um leið og harðnar á dalnum,"
sagði Magnús. Hann sagði að Kaup-
mannasamtökin hefðu lagt áherslu á
það þegar bankakortin voru tekin
upp að bankarnir gæfu út skilríki
með myndum, eins og tíðkaðist
erlendis, en engin samþykkt hefur
verið gerð um þetta mál nýlega hjá
samtökunum. Aðspurður hvort
kaupmenn hefðu hugleitt að hætta
að taka við ávísunum þar til þetta
fyrirkomulag hefði verið tekið upp,
sagði Magnús að það hefði ekki
verið rætt. „Það er mjög erfitt, því
megnið af útgefendum eru ágætt og
heiðarlegt fólk,“ sagði Magnús.
Kristján Snorrason deildarstjóri
hjá Búnaðarbankanum sagði að þeir
hefðu stigið það skref í fyrra að hafa
myndir á tékkaeyðublöðum, þó svo
að það mætti vera meiri notkun á
þeim möguleika. „Sá möguleiki í
sjálfu sér fyrirbyggir hins vegar ekk-
ert fals og menn geta eftir sem áður
framselt tékka með mynd,“ sagði
Kristján. Hann sagði að númer eitt
væri að krefjast alltaf persónuskil-
ríkja, þegar verið væri að taka á
móti tékkum. „Tékkar hafa þennan
v MiöviKudagur 31. maí ,1989
jafngildir sex á dag að meðaltali:
Hver ávísun á myndinni sýnir þá upphæð sem fölsuð er á degi hverjum að
meðaltali. Á viku tímabili eru falsaðar ávísanir að upphæð 244.335 krónur.
galla að það er tiltölulega auðvelt
fyrir fólk að losna við falsaðan
tékka, ef það er ekki spurt um
skilríki,“ sagði Kristján.
Aðspurður sagði hann að það
hefði verið rætt í samvinnunefnd
banka og sparisjóða sem væri sam-
ræmingaraðili fyrir alla bankana,
hvort setja ætti mynd á bankakort.
Það að setja mynd í bankakort sagði
Kristján að væri gífurlega dýr fram-
kvæmd og átti hann ekki von á því
að farið yrði út í það fyrir þann
markað sem væri hér á íslandi. „Mér
skilst að markaðurinn sé allt of lítill
til að standa straum af slíkum kostn-
aði,“ sagði Kristján.
Það verður aldrei komist hjá ávís-
anafalsi, sagði Kristján, en það væri
númer eitt hjá tékkheftahöfum að
tilkynna strax um glötuð eða stolin
hefti. „Það er í raun viðbragðsflýtir-
inn sem skiptir miklu máli. Það eru
til menn sem týna heftum, að við
teljum af gáleysi og ef það kemur
fyrir tvær til þrjár helgar í röð að
menn tilkynni glötuð hefti á mánu-
degi, þá er það ekki eðlilegt og við
höfum leitast við að taka tékkhefti
af slíkum mönnum. Þetta er ekki
algengt, en það er til,“ sagði
Kristján. -ABÓ
Alþjóða heilbrigðismálastofnunin biður konur heims að „drepa í“ í dag:
Þriðjungur kvenna
hættur að reykja
Rannsóknarskipið Árni Friðriksson úr rækjuleit:
Lofar góðu í
Rósagarðinum
Um 45 af hverjum 100 íslenskum
konum á aldrinum 15-79 ára hafa
aldrei reykt. Af þeim 55 af hundraði
sem einhverntíma byrjaði reykingar
hefur rúmlega þriðja hver hætt þeim
„ósóma“ þ.a. um 200 á reyklausa
deginum í fyrra. Rúmlega þriðjung-
ur allra kvenna á áðurnefndum aldri
svælir hins vegar ennþá, samkvæmt
könnunum.
Alþjóða heilbrigðismálastofnunin
höfðar sérstaklega til þessa síðast-
nefnda þriðjungs kvenþjóðarinnar,
og kvenna annarra í sömu sporum
um heim allan, með hinum aljóðlega
tóbaksvarnardegi sem hún ákvað í
dag.
Áberandi mestu „stromparnir“
meðal kvenþjóðarinnar eru 25-30
ára konur, samkvæmt víðtækum
könnunum sem gerðar voru á s.l.ári.
Af þeim eru það aðeins 30% sem
aldrei hafa byrjað reykingar - og
innan við helmingur hinna hefur
hætt. Meira en 43% kvenna á þess-
um aldri reykja daglega (og raunar
aðeins helmingur þeirra er alveg
reyklaus), en 35-37% þeirra sem eru
heldur yngri og heldur eldri. T.d.
reykja aðeins 19% yngsta hópsins,
15-19 ára. Af þeim hafa 72% aldrei
vanið sig á „naglana" sem er langtum
hærra hlutfall en finnanlegt er í
nokkrum öðrum aldurshópi.
Konur sem hætt hafa að reykja
eru hins vegar hlutfallslega lang
flestar í hóp 35-40 ára og hins vegar
yfir sjötugt - en í báðum þessum
hópum hafa álíka margar konur
hætt að reykja eins og þær sem enn
hafa ekki slökkt í síðustu sígarett-
unni.
Athyglisvert er að á reyklausa
daginn 7. apríl í fyrravor voru það
aðeins konur, og allar undir 45 ára
aldri, sem gerðu tilraun til að hætta
reykingum. Af þeim helmingi reyk-
ingakvenna sem svöruðu spurning-
um Hagvangs mánuði síðar, höfðu
2,7% hætt á reyklausa daginn, hvar
af rúmlega helmingur var þó
„sprunginn“ þegar könnunin var
gerð. Miðað við fjölda reykingak-
venna á þessum aldri svara þessar
tölur til þess að um 530 þeirra hafi
hætt á reyklausa daginn, hvar af um
210 hafi ekki byrjað aftur í næsta
mánuði á eftir.
íslenskar konur eru hópi mestu
reykingakvenna heims ásamt kyn-
systrum á: Kúbu, Póllandi, Sovétr-
íkjunum, Hollandi, Kanada, Bret-
landi og Noregi. Aðeins danskar
konur (45% reykjandi) slá allar
aðrar út. - HEI
Rannsóknarskipið Árni Friðriks-
son hefur undanfarinn hálfan mánuð
verið við rækjuleit austuraf landinu.
Að sögn Sólmundar Einarssonar
leiðangursstjóra hefur þessi túr verið
þokkalegur og hafa verið þræddir
þeir staðir sem þeir hafa haft spurnir
af. Sagði hann að leiðangurinn hafi
fyrst og fremst verið farinn til að
fylla í þau skörð sem ekki höfðu
verið könnuð.
Árni Friðriksson hefur í þessum
leiðangri farið um svæðið allt frá
Lónsdýpi, austur og norður með
landinu að Seyðisfjarðardýpi. „Þau
svæði sem við höfum lagt aðal-
áherslu á eru svæðin sem hafa gefið
sæmilega vísbendingu áður en ekki
verið athuguð kerfisbundið," sagði
Sólmundur. Þar sem rannsóknar-
skipið fékk skárstan afla fyrst í stað
var á Lónsdjúpinu og á Berufjarðar-
ál. Þar hefur verið veitt áður, en
þessi svæði eru fremur óstöðug.
„Þar var mjög þokkalegur afli. í
Lónsdýpinu fengum við mest 100
kíló á klukkustund, sem þykir nokk-
uð gott og í Berufjarðarál fengum
við rúm 200 kíló af sæmilegri rækju.
Hún var ekki mjög stór, um 180 til
190 stykki í kílói," sagði Sólmundur.
Þá var haldið í Rósagarðinn svo-
kallaða, sem nær að miðlínunni milli
íslands og Færeyja. Sólmundur sagði
að þetta svæði hefði í gegnum tíðina
gefið nokkuð stóra rækju. „Þetta er
sú stærsta rækja sem hefur verið á
fslandsmiðum, að frátöldum Dohrn-
bankanum. Við höfum komist í
rækju sem er allt niður í að vera 70
til 80 stykki í kílói, sem þykir mjög
gott. í Rósagarðinum fórum við
nokkuð víða og fengum allt upp í 70
kíló á klukkustund, sem þykir nokk-
uð sæmilegt ef miðað er við að
rækjan er mjög stór, um og yfir 100
stykki í kílói. Hún er hins vegar
nokkuð laus í skel, þannig að hún
viðist ekki vera vel vinnsluhæf eins
og er, en það breytist allt saman. Þá
er hún einnig hrognalaus, sem þýðir
að þegar hún er komin með hrogn
verða miklu færri rækjur í kílói, um
70 til 80 stykki. Við vorum þokka-
lega ánægðir með þessa útkomu.
Þetta er stærsta rækja sem fæst hér á
djúpslóð, en magnið mætti vera
meira,“ sagði Sólmundur.
Ámi Friðriksson var í gær staddur
skammt norðan við stað sem kallað-
ur er Rauðatorgið og kom best út í
leit í fyrra. Hann sagði að nokkrir
bátar væru þar að veiðum núna, en
hún væri frekar dræm. Skipin em að
fá frá um 200 til 300 kíló í togi, sem
tekur um fimm tíma.
Leiðangri Árna Friðrikssonar lýk-
ur nú um helgina og fer skipið
fljótlega eftir helgi í svokallað rækju-
rallý, þar sem hefðbundin rækju-
svæði eru könnuð og stofnstærðar-
mæling gerð. -ABÓ
KÍ þingar
Kennarasamband íslands held-
ur 5. fulltrúaþing sitt dagana
l.-3.júní nk. í Borgartúni 6,
Reykjavík.
M.a. verður rætt á þinginu um
kjaramál og kjarabaráttu og
verða fmmdrög að kjarastefnu
KÍ í launa- og kjaramálum lögð
fram. Einnig verður rætt um
skólastefnu KÍ sem samþykkt var
á síðasta þingi 1987 og verður
hún endurskoðuð. -gs
Jón Sigurðsson viðskiptaráðherra segir
rétt að taka upp viðræður við Borgara-
flokk um aðild að ríkisstjórn í sumar:
Ótímabær
yfirlýsing
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra telur yfirlýsingar
Jóns Sigurðssonar viðskiptaráð-
herra í Alþýðublaðinu í gær ótíma-
bærar. í viðtali við blaðið segir Jón
að rétt og skynsamlegt væri að taka
upp viðræður við Borgaraflokkinn
í sumar um formlega aðild að
ríkisstjórninni. Jafnframt hefur
blaðið eftir ráðherranum að ekki
sé útilokað að um nýja uppröðun
ráðherra verði.
Alþýðublaðið hefur eftir Júlíusi
Sólnes að hann sé ekki tilbúinn í
frekari árangurslausar viðræður og
segir að hann vildi fá einhverja
tryggingu fyrir að slíkar viðræður
skiluðu árangri.
Steingrímur gat tekið undir það
sjónarmið Júlíusar að hann væri
ekki tilbúinn í frekari árangurs-
lausar viðræður. Hann vildi benda
á að slíkar viðræður ættu ekki að
fara fram í fjölmiðlum. „Hefjist
þessar viðræður á ný mun ég kanna
rækilega hvort þær eru Iíklegar til
að bera jákvæðan árangur og verði
það niðurstaðan verður farið í
þessar viðræður f sumar,“ sagði
Steingrímur.