Tíminn - 31.05.1989, Side 6
6 Tíminn
Miðvikudagur 31. maí 1989
Lög sem hefta innflutning matvæla á vegum erlendra ferðaskrifstofa:
„Sömu reglur um inn-
flutning allra adila
Félag íslenskra ferðaskrífstofa fagnar nýjum lögum sem
gera það að verkum að íslenskar ferðaskrifstofur sitja við
sama borð og þær erlendu hvað varðar kaup á matvælum.
„Það er ljóst að hækkun á matvæl-
um hér innanlands hefur átt þátt í
því að erlendar ferðaskrifstofur hafa
leitast við að flytja inn matvöru í
einhverjum mæli. Ferðaskrifstofur
hér á landi hafa barist fyrir því að
sömu reglur giltu um innflutning
þessara aðila og annarra sem þurfa
að standa skil á öllum gjöldum.
Lögin verða til þess að menn gera
sér betur grein fyrir í hveriu verðmis-
munur, á ferðum um Island sem
boðið hefur verið upp á, liggur. En
margir hafa viljað meina að hann
lægi eingöngu í verðlagningu mat-
væla,“ sagði Ingólfur Hjartarson
framkvæmdastjóri félagsins í samtali
við Tímann.
Hann sagði að töluvert hefði verið
um að erlendar ferðaskrifstofur
flyttu inn hart nær alla matvöru fyrir
ferðalanga á þeirra vegum. „En það
er einnig ljóst að þetta er ekki algilt.
Okkur finnst þó að þessi tilhneiging
hafi frekar vaxið undanfarið með
hækkandi verði matvöru. Þetta gerir
íslenskar ferðaskrifstofur sam-
keppnisfærari það er engin spurning.
Helst af öllu vildum við þó að
verðlag matvæla hérlendis væri sam-
bærilegt við verðlag erlendis," sagði
Ingólfur.
I frétt Tímans fyrir nokkru, þar
sem greint var frá setningu laga sem
fjalla um gjöld sem greiðist af mat-
vælum sem fluttar eru inn í stórum
stíl af einum aðila, var tekið sem
dæmi innflutningur ferðalanga með
Norrænu. í samtali við lögregluþjón
á Seyðisfirði kom fram að nokkuð
hefði borið á innflutningi bensíns en
það sem af væri þessu sumri hefði
ekki orðið vart neins innflutnings af
því tagi. Norræna hefur ekki hafið
ferðir sínar í sumar og hið rétta er
að síðastliðið sumar varð ekki vart
neins innflutnings á bensíni. Jafn-
framt vildu forráðamenn Norrænu
koma því á framfæri að nefndur
innflutningur væri síst meiri með
Norrænu en eftir öðrum leiðum og
sögðu það reyndar heyra undantekn-
ingu til ef vart yrði flutnings mat-
væla, með erlendum ferðamönnum,
svo nokkru næmi. jkb
Veitti
sjáltum
sér
áverkana
í ljós hefur komið að maðurinn
sem Tíminn sagði frá í gær að
ráðist hefði verið á, á Laugaveg-
inum á sunnudagsmorgun og
hann tvístunginn með hnífi í
kviðinn, veitti sér sjálfur áverk-
ana. Það að ráðist var á manninn,
á sér því ekki stoð í veruleikan-
um. -ABÓ
Hjónin Guðlaug Karlsdóttir og Einar Þorsteinsson færðu Landsbókasafni
Islands nýlega að gjöf handrit Karis Ó. Runólfssonar, tónskálds, en hann
hafði á sínum tíma óskað eftir því, að þau gengju að sér iátnum til
Landsbókasafnsins. Á myndinni eru f.v. Finnbogi Guðmundsson landsbóka-
vörður, Guðlaug Karlsdóttir, sem er dóttir tónskáldsins, Einar Þorsteinsson
og Grímur M. Helgason deildarstjóri.
Lögreglukona skoðar eitt hjólanna. Lögreglan setur límmiða á öll hjól sem
teljast vera í lagi, en á þetta hjól vantaði hins vegar kattaraugu.
(Tímam.Ámi Bjarna)
Hjólaskoðun
Hin árlega hjólaskoðun lögregl-
unnar í Reykjavík hófst á mánudag
og stendur til l.júní. f dag mun
lögreglan skoða hjól í Breiðholts-,
Fella- og Hólabrekkuskóla fyrir há-
degi, þ.e. 10:00-11:00. Eftirhádegi,
þ.e. 13:30-14:30 verður hún í Selja-,
Öldusels- og Foldaskóla. Á morgun
heldur lögreglan áfram í Árbæjar-,
Ártúns- og Selásskóla fyrir hádegi
en eftir hádegi verður hún í Æfinga-
deildinni, Landakots-, Varmár- og
Mýrarhúsaskóla. Þegar hafa hjól
verið skoðuð í 12 skólum.
Lögreglan leggur áherslu á að
foreldrar yngstu barnanna komi með
þeim í hjólaskoðunina. -gs
Georgi Andreev, sendiherra Búigaríu,
lætur af því starfi um mánaðamótin en hyggst hnýta lausa enda áður
Vilja gera við og
smíða íslensk skip
Búlgarski sendiherrann á fslandi
sem hefur aðsetur sitt í Osló, Hr.
Georgi Andeev, er staddur hér á
landi annars vegar til þess að kveðja
íslenska embættismenn, en hann
lætur af störfum nú um mánaðamót-
in og hins vegar hyggst hann nota
tækifærið til þess að undirbúa komu
búlgarskrar sendinefndar um við-
skiptamál hingað til lands.
Að sögn hr. Andreev hafa Búigar-
ar nú mótað ákveðnar tillögur um
aukin viðskipti við fsland og mun
sendinefndin kynna þessar hug-
myndir íslenskum aðilum þegar hún
kemur til landsins. Sendiherrann
sagði enn of snemmt að upplýsa um
einstök atriði í hugmyndum Búlgar-
anna en utanríkisviðskiptaráðherra
Búlgaríu og þáverandi utanríkisráð-
herra Steingrímur Hermannsson
ákváðu á fundi sínum hér í fyrra að
setja á laggirnar slíkar gagnkvæmar
viðskiptanefndir. „Hins vegar get ég
sagt það að við höfum mikinn áhuga
á að komast inn á skipasmíðamark-
aðinn á íslandi og viljum gjarnan
gera við eða jafnvel smíða íslensk
skip í skipasmíðastöðvum okkar.
Við höfum mjög fullkominn skipa-
smíðaiðnað og sem dæmi get ég
nefnt að við höfum nýlega lokið við.
að gera samninga við Norðmenn um
smíði 10 skipa og stöndum í samn-
ingaviðræðum við þá um 5-6 skip í
víðbót," sagði hr. Andreev í samtali
við Tímann. Aðspurður um það
hvort Búlgararnir væru samkeppnis-
færir t.d. við Pólverja á þessu sviði
sem þegar hefðu haslað sér völl á
þessum markaði hér á íslandi sagðist
sendiherrann láta sérfræðingunum
eftir tæknilega útfærslu á samkeppn-
isstöðu þeirra, en þeir fullyrtu að
Búlgarir væru vel samkeppnisfærir.
„En í sendinefnd þeirri sem við
höfum hug á að senda hingað til
íslands er aðalframkvæmdastjóri
stærstu skipasmíðastöðvarinnar í
Búlgaríu. Komi það hins vegar í ljós
að við erum ekki samkeppnisfærir
þá nær það vitaskuld ekki lengra,"
sagði hr. Andreev.
Sendiherrann sagði skipasmíða-
iðnað aðeins eitt þeirra sviða sem
mögulegt væri að auka viðskiptin á.
Hann sagði að hugur þeirra stefndi
til þess að undirrita langtímasamn-
ing við fslendinga um viðskipti, eins
konar rammasamning um viðskipti.
Það væri eitt hlutverk áðurnefndrar
sendinefndar að vinna að því, en
slíkt myndi þó velta á viðbrögðum
íslenskra viðskiptaaðila. Hann sagði
ennfremur að það sem Búlgarar
Georgi Andreev, sendiherra Búlgaríu.
sæktust einkum eftir með slíkum
samningi væri að kaupa sjávarafurð-
ir af íslendingum, einkum að tryggja
sér kaup á fiskmjöli til lengri tíma.
„Við erum nú að leita hentugra leiða
fyrir íslenska aðila til að stofna
innflutningsfyrirtæki í Búlgaríu en
lögin í Búlgaríu heimila nú starfsemi
erlendra fyrirtækja," sagði hann.
í samtali Tímans við sendiherrann
kom einnig fram að Búlgarar hafa
mikinn áhuga á að auka ferða-
mannastraum frá fslandi til Búlgar-
íu. Benti hann á að í Búlgaríu væri
fyrir hendi einstök aðstaða ekki
hvað síst fyrir hvers kyns heilsurækt-
arferðamennsku og sagði hann að
Búlgörum hafi tekist vel upp að
virkja vel menntaða lækna og annað
hjúkrunarfólk í þessum tilgangi.
Áður hefur verið greint frá slíkum
heilsuræktarferðamönnum hér í
blaðinu, og er skemmst að minnast
ódýrra tannlækninga sem íslending-
ar hafa notið þar í landi. Að sögn hr.
Andreev er ferðaskrifstofan Ferða-
val í samvinnu við búlgörsk stjóm-
völd nú að kanna möguleikann á því
að skipuleggja leiguflug til Búlgaríu
næsta sumar sem gæti auðveldað
fnvAnlnntA WnnrtoA ctÁrlpíTíl
Tímamynd: Árni Bjarna
Eins og áður segir er hr. Georgi
Andreev að láta af störfum sem
sendiherra og mun hann snúa til
Búlgaríu þar sem hann mun starfa
við pólitíska stefnumótun. Hann
hefur verið sendiherra á fslandi í tæp
10 ár og segist hafa orðið var við
miklar framfarir í landinu á þessum
tíma og segist einkum hafa hrifist af
þeirri efnahagslegu velmegun sem
fari sívaxandi, uppbyggingunni og
atorkusemi íslendinga. Sendiherr-
ann sagði að á þessum tímamótum
væri hann bjartsýnn á að tengslin
milli íslands og Búlgaríu nú væru í
gangi ýmis samstarfsverkefni milli
íslenskra og búlgarskra fyrirtækja
og auk þess væri hið alþjóðlega
umhverfi í dag mun afslappaðra en
oft áður og ýmsir „sálfræðilegir
múrar“ sem hindrað hefðu eðlileg
samskipti í gegnum árin væru nú
óðum að hverfa. Að lokum vildi
sendiherrann þakka öllum, sem
hann hefur átt viðskipti við, sam-
starfið og óskaði þeim og íslensku
þjóðinni alls hins besta í framtíðinni
og vonaðist eftir að framtíðin bæri í
skauti sér enn betra samstarf land-
anna tveggja.
- BG