Tíminn - 31.05.1989, Page 10

Tíminn - 31.05.1989, Page 10
10 Tíminrv Miðvikudagur 31. maí 1989 Miðvikudagur 31. maí 1989 Tíminn 11 Sigurður Grétarsson í landsleik á Laugardalsvelli Hestaíþróttir: Hestaíþrótta- samband Islands stofnað 16. maí Hestamennska færist sífellt í vöxt sem almennings- og keppn- isíþrótt. Hestamenn hafa lengi barist fyrir því að verða taldir fullgildir íþróttamenn, en þann 16. þessa mánaðar varð draum- urinn að veruleika er Hesta- íþróttasamband íslands var stofnaö scm 20. sérsambandið innan ÍSÍ. Stofnfundurinn var haldinn f íþróttamiðstöðinni í Laugardal. Fundinn sat 21 fulitrúi frá 12 héraðssamböndum og íþrótta- bandalögum. Skráðir iðkcndur hestaíþrótta víðsvegar um iand- ið eru rösklega 3 þúsund. Gestir fundarins voru Gísli Halldórsson heiðursforseti ÍSÍ, Kári Arnórs- son formaður Landssambands hestamanna og Hjalti Pálsson framkvæmdastjóri sambandsins. Forseti ÍSf, Sveinn Björnsson, stýrði fundinum og flutti setning- arræðu, en Sigurður Magnússon framkvæmdastjóri ÍSÍ lagði fram og kynnti drög að lögum Hesta- íþróttasambandsins. Voru þau einróma samþykkt eftir nokkrar umræður með minniháttar breytingum. 1 fyrstu stjóm Hestaíþrótta- sambandsins (HÍS) voru kjörnir: Pétur Jökull Hákonarson for- maður, Lísbet Sæmundsdóttir, Hákon Bjarnason, Hrafnkell Guðnason og Þorsteinn Hólm Stefánsson. Stjórnarmennirnir cru úr 4 héraðssamböndum og íþrótta- bandalögum. í varastjórn voru kjörnir: Ragnar Petersen, Jón Gísli Þorkelsson og Gunnar B. Gunnarsson. Endurskoðendur voru kjörnir þeir Sigurbjörn Bárðarson og Kári Arnórsson og í dómstól voru kjörnir Guðmundur Örn Jónsson, Ragnar Tómasson og Erlingur Jónsson. Kári Arnórsson formaður Landssambands hestamanna óskaði hestaíþróttafólki til ham- ingju með þennan áfanga og lagði áherslu á þá miklu vinnu sem lægi að baki öllurn undir- búningi. Hann afhcnti Sveini Björnssyni forscta ÍSÍ borðfána landssambandsins. Hestaíþróttamenn eru þar með komnir í ÍSÍ, en hesta- íþróttir eiga sífellt meiri vinsæld- um að fagna meðal almennings ckki síður en hefðbundin hesta- mcnnska. BL Pétur Jökull Hákonarson fyrsti formaður Hestaíþróttasami nds- ins í ræðustól. Knattspyrna: Islenska landsliðið mætir því sovéska á Lenín-leikvanginum - Islenska liðið án Ásgeirs og Arnórs ekki líklegt til stórafreka í dag leika íslendingar gegn Sovétmönn- um í 3. riðli undankeppni heimsmeistara- keppninnar í knattspyrnu á Lenín-leik- vanginum í Moskvu. Leikurinn er síðari leikur liðanna, en í fyrri lcik liðanna á Laugardalsvelli varð jafntefli 1-1. Vart er slíkra úrslita að vænta í dag, knattspymu- mennirnir era flestir að hefja keppnistíma- bilið og liðið leikur í dag án þeirra Ásgeirs Sigurvinssonar og Araórs Guðjohnsens. Arnór Guðjohnsen leikur ekki knatt- spyrnu næstu mánuði vegna meiðsla, gekkst reyndar undir aðgerð í gær og Ásgeir Sigurvinsson á ekki heimangengt frá Stuttgart. íslenska liðið sem í dag mætir Sovétmönnum er þannig skipað: Markverðir: Bjarni Sigurðsson .... Val Guðmundur Hreiðarsson Aðrir leikmenn: .... Víkingi Atli Eðvaldsson Val Ágúst Már Jónsson . . . Hácken Guðmundur Torfason . . . . . Rapid Vín Guðni Bergsson . . . Tottenham Gunnar Gíslason Hácken Halldór Áskelsson .... Val Ólafur Þórðarson .... Brann Ómar Torfason Fram Pétur Arnþórsson .... Fram Rúnar Kristinsson .... KR Sigurður Grétarsson . . . Luzern Sigurður Jónsson Sheffield Wed. Þorsteinn Þorsteinsson . Fram Þorvaldur Örlygsson . . KA Landsliðið dvelur á Hótel Rossia í Moskvu, en leikurinn í dag hefst ki. 15.00 að íslenskum tíma og útsending frá Lenín- leikvanginum í Moskvu hefst kl. 14.55 í Sjónvarpinu. Líklegt byrjunarlið í leiknum í dag er: Bjarni í markinu. Ágúst Már, Atli, Guðni verða aftastir. Ólafur og Gunnar verða á köntunum. Sigurður Jónsson, Pétur og Ómar verða á miðjunni og Sigurður Grét- arsson og Guðmundur Torfason verða í fremstu víglínu. Reiknað er með að uppselt verði á völlinn í dag, en Lenín-leikvangurinn tek- ur 100 þúsund áhorfendur. Útsendingin í Sjónvarpinu hefst eins og áður segir kl. 14.55. BL Handknattleikur: 21 árs lidið í úrslit HM á Spáni í september íslenska landsliðið í handknattleik skip- að leikmönnum 21 árs og yngri tryggði sér um helgina sæti í úrslitakeppni Heims- meistarakeppninnar í handknattleik sem fram fer á Spáni í september á þessu ári. íslenska liðið lék tvö leiki gegn Sviss um helgina, báða ytra og var það gert í sparnaðarskyni að ósk stjórnar HSÍ. Fyrri leikurinn var á föstudagskvöld og lauk honum með jafntefli 18-18. Sigtryggur Albertsson markvörður úr Gróttu átti stórleik í íslenska markinu og varði fjöld- ann allan af skotum. Hefði hans ekki notið við er hætt við að úrslitin hefðu orðið önnur. Héðinn Gilsson og Konráð Olavs- son voru markahæstir í leiknum með 5 mörk hvor. Heimaleikur íslands fór fram í Zúrich á sunnudaginn. íslenska liðið mætti ákveðið til leiks og sigraði 28-24 eftir að staðan var 11-9 í leikhléinu, íslandi í vil. Mörkin gerð: Héðinn Gilsson 8, Halldór Ingólfsson 7, Konráð Olavsson 4, Árni Friðleifsson 4, Davíð Gíslason 2, Þorsteinn Guðjónsson 1, Hilmar Hjartarson 1 og Júlíus Gunnarsson 1. Þjálfari íslenska liðsins, Jóhann Ingi Gunnarsson, hefur ákveðið að gefa ekki áfram kost á sér sem þjálfari liðsins. Samningur hans rann út með leikjunum í Sviss, en Jóhann Ingi er mjög óánægður með vinnubrögð HSÍ-manna varðandi undirbúning liðsins. BL Körfuknattleikur - NBA-deildin: Lakers meistarar - í vesturdeildinni Lið Los Angeles Lakers tryggði sér um helgina sigur í vesturdeild NBA-körfu- knattleiksins með sigri á Phoenix Suns í fjórða leik liðanna, 122-117. Þar með eru meistarar Lakers komnir í úrslit NBA- deildarinnar þar sem liðið mætir Detroit Pistons eða Chicago Bulls. Sjö tipparar voru með 12 rétta í íslensk- um getraunum um síðustu helgi. Hver þeirra fær 34.457 kr. í sinn hlut, sem er mjög lítið fyrir 12 rétta. Þá var vinningur- inn fyrir 11 rétta aðeins 535 kr. Þátttakan í getraununum í síðustu viku var sú minnsta frá því beinlínukerfið var tekið í notkun. Heildarupphæð vinninga var 344.454 kr. sem skiptist þannig að 241.199 fóru í 1. vinning og 103.255 kr. í 2. vinning. Seðillinn var alíslenskur og því mjög áhugaverður, en samt sem áður virðist sem tipparar hafi ekki haft áhuga. Skýringin á þessu virðist vera að breyti- Bakverðir Lakers þeir Magic Johnson og Byron Scott áttu frábæran leik gegn Phoenix á sunnudag. Scott skoraði 35 stig, en Johnson gerði 21. Þar að auki átti Magic 20 stoðsendingar og hann hirti 6 fráköst. Liðsheild Lakers hefur verið mjög sterk í úrslitakeppninni, varamennirnir hafa legi lokunartíminn virðist ekki falla í kramið og kemur hann mjög niður á getraunasölunni. Ef framhald á að verða á getraunastarfsemi á sumrin þarf að koma til skilningur á því að hafa fastan leiktíma um helgar. Þá yrði hringlandaháttur á lokun sölukerfis úr sögunni og salan meiri. Alíslenskir seðlar væru um hverja helgi og tipparar vissu alltaf hvenær sölukerfið lokaði. Næsti seðill verður blandaður, íslenskir og þýskir leikir. Vonandi sýna tipparar meiri áhuga um næstu helgi, en þá lokar sölukerfið kl. 13.30 á laugardag. BL komið inná og staðið fyrir sínu. „Það leggjast allir á eitt,“ sagði Magic Johnson eftir sigurinn á Phoenix Suns. Lakers vann alla 4 leikina gegn Suns og liðið hefur ekki tapað einum einasta leik í allri úrslitakeppninni. Lakers vann Port- land Trailblazers 3-0 í fyrstu umferð, síðan vann liðið 4-0 sigur á Seattle Supersonics og nú síðast varð Phoenix fyrir barðinu á meisturunum. f fyrra lenti Lakers í erfið- leikum í úrslitakeppninni. Þá vann Lakers nauman sigur á Utah Jazz í úrslitaleikjum vesturdeildarinnar og í úrslitaleikjunum gegn Detroit Pistons vann Lakers sigur í 7. og síðasta leik liðanna. Los Angeles Lakers varð í fyrra fyrsta liðið til að sigra í NBA-deildinni 2 ár í röð, síðan Boston Celtics gerði það 1969. Ekkert lið hefur unnið meistaratitilinn 3 ár í röð, nema Boston Celtics sem vann 8 ár í röð, frá 1959-1966. Mótherjar Lakers í úrslitunum verða annað hvort Detroit Pistons eða Chicago Bulls. Staðan í viðureign liðanna er 2-2, eftir að Detroit tókst að jafna metin á mánudag, með 86-80 sigri. Þeim Joe Dum- as og Dennis Rodman hjá Detriot, tókst að halda Michael Jordan í skefjum og skoraði hann aðeins 23 stig í leiknum. Isiah Thomas gerði 27 stig fyrir Detroit liðið. Dennis Rodman og John Salley hirtu mikið af fráköstum og skoruðu einnig grimmt. BL Islenskar getraunir: 34 ÞÚSUND FYRIR 12RÉTTA iiiiillllinii iþróttir iJinniii: iiiiiiiii:i!:: iiíIiiiiiiiiiiii:: .................................................................................................. ........................................ ................. ...................... íslenska liðið myndar varnarmúr í leiknum í gær og nýtur við það aöstoöar V-Þjóðverja. Tímamynd Pjetur. Knattspyrna: - ísland og V-Þýskaland geröu 1-1 jafntefli í Evrópukeppninni í knattspyrnu 21 árs og yngri íslenska landsliðið í knattspyrnu, skipað leikmönnum 21 árs og yngri, gerði jafntefli gegn því v-þýska er liðin mættust í Lagardalnum í gærkvöld. Mikil óheppni kom í veg fyrir að íslenska liðið ynni sigur í leiknum, því tækifæri íslenska liðsins voru mun hættulegri en færi Þjóð- verjanna. Leikurinn var í jafnvægi lengst af en Þjóðverjarnir voru öllu meira með knöttinn, án þess þó að þeir sköpuðu sér veruleg marktækifæri. Besta færi íslendinga í hálfleiknum kom á lokamínútunni er Eyjólfur Sverrisson komst í gegnum þýsku vörnina, en markvörðurinn varði ágætt skot Eyjólfs. í síðari hálfleik kom íslenska liðið mun meira inní leikinn og þegar á upphafsmínútunum voru Þjóðverj- arnir heppnir að fá ekki á sig mark. Baldur Bjarnason fékk knöttinn í vítateignum en hikaði og varnar- maður náði að bægja hættunni frá. Baldur var allof lengi að athafna sig og hefði betur skotið strax á markið. Þjóðverjarnir áttu hörkuskalla í hliðarnetið stuttu síðar, en Baldur var aftur á ferðinni á 68. mín. er hann skaut hátt yfir úr góðu færi. V-Þjóðverjar sneru vörn í sókn og Birhoff frá HSV skallaði knöttinn í bláhornið eftir góða fyrirgjöf Steffens. Það tók Islendinga ekki nemaómín. að jafna. Á75. mín. lék Haraldur Ingólfsson inní vítateig Þjóðverja, gaf á Eyjólf Sverrisson sem skoraði af öryggi af stuttu færi. Það var síðan á 79. mín. að íslenska liðið var hársbreidd frá því að gera út um leikinn. Steinar Adolfsson skaut í þverslá af stuttu færi og upp úr því skaut Eyjólfur rétt yfir. V-Þjóðverjarnir sluppu með skrekkinn að þessu sinni og voru heppnir að ná jafntefli. Þeir hafa sigrað 2-0 í þeim þremur leikjum sem búnir eru í keppninni. Eyjólfur Sverrisson er því fyrsti leikmaðurinn til að skora hjá V-Þjóðverjunum í 4 leikjum. Bestu leikmenn íslands voru Sæv- ar Jónsson og Eyjólfur Sverrisson. Staðan í 4. riðli er nú þessi, eftir að Finnar og Hollendingar gerðu 1-1 jafntefli í Salo í gærkvöld: V-Þýskaland........ 4 3 1 0 7-1 7 Finnland ...........3 1 1 13-5 3 ísland............. 3 0 2 1 3-4 2 Holland............ 4 0 2 2 2-5 2 BL TIL SÖLU SEAT IBIZA 1988 1200 GLX. GRÁSANSERAÐUR, RAFMAGN í RÚÐUM, CENTRAL LÆSINGAR, ÁLFELGUR, ÚTVARP OG HÁTALARAR. BEIN SALA. UPPLÝSINGAR í SÍMA 91-30983. AMAZDNE AMAZONE dreifarinn er með tveim dreifiskífum, sem þú getur treyst til að gefa jafna og örugga áburðardreifingu. Vinnslubreidd er stillanleg á 9,10,12 og 15 m. Einnig hægt að dreifa aðeins til annarrar hliðarinn- ar, t.d. meðfram skurðum og girðingu. Auðveldur í áfyllingu vegna þess hve lágbyggður dreifarinn er. Bútæknideildarprófaður sumarið 1988, sem stað- festi þessa eiginleika. Bílastæðasjóður Reykjavíkurborgar Borgarstjórn hefir samþykkt eftirfarandi breytingar á innheimtukerfi stöðumæla- og stöðubrotasekta: Frá 1. júní n.k. helst sektarupphæð óbreytt fram til 7. næsta mánaðar eftir að viðkomandi brot á sér stað. Áður hækkaði sektarupphæðin að tveimur vikum liðnum frá broti. GATNAMÁLASTJÓRI Laugardagur kl. 13:25 22. LEIKVIKA- 3. júní 1989 11 X 2 Leikur 1 Akranes - Víkingur ^ Leikur 2 F.H. - Valur1 d Leikur 3 Fram - Keflavík 1 d Leikur 4 Selfoss - Í.B.V.2 d Leikur 5 Völsunqur - Stjarnan2 d Leikur 6 Tindastóll - Einherji2 d Leikur 7 Í.R. - Breiðablik2d Leikur 8 Leiftur - Víðir2d Leikur 9 W. Bremen - Frankfurt Leikur 10 B.Leverkusen - Stuttqart LeikurH Bayern M. - Uerdingen Leikur 12 H.S.V. - Kaiserslautern Símsvari hjá getraunum er 91-84590 og -84464. Ath. breyttan lokunartíma ! GETRAUNIR í ALLT SUMAR ! Pökkum hlýhug og góðargjafir þcirra fjölmörgu um land allt er samfögnudu okkur á aldarafmælinu 23. apríl 1989. Pórólfur Gíslason KcUipfélagssljóri

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.