Tíminn - 02.08.1989, Side 2
2 Tíminn
Örorku- og ellilífeyrisþegar:
Tryggingarauki
Á ríkisstjórnarfundi í gær
var ákveðið að greiða örorku-
og ellilífeyrisþegum svokallað-
an tekjutryggingarauka sem
samtals nemur 100 milljónum
króna. Tekjutryggingaraukinn
verður mismikill eftir því hvort
og hve miklar tekjur bótaþegar
hafa til viðbótar bótum al-
mannatrygginga. í tUkynningu
frá heilbrigðis- og trygginga-
ráðuneytinu segir að þetta sé
gert í því skyni að koma til
móts við þá elli- og örorkulíf-
eyrisþega sem við erfíðustu
kjörin búa þar sem þeir njóti
ekki annarra tekna en bóta
almannatry gginga.
Þessar greiðslur svara til 30%
hækkunar tekjutryggingar, heimil-
isuppbótar og sérstakrar heimilis-
uppbótar.
Tekjutryggingaraukinn greiðist
út í tvennu lagi, í september og
desember. Áðurnefndir bótaflokk-
ar verða því 15% hærri en ella í
þessum mánuðum.
Ákvörðun ríkisstjórnarinnar er
tekin í framhaldi af kröfum, m.a.
launþegasamtakanna, um að elli-
og örorkulífeyrisþegum verði
greiddar orlofsuppbætur til sam-
ræmis við þá orlofsuppbót sem
almennir launþegar fengu í kjölfar
síðustu kjarasamninga. Engin
lagaleg skylda var til þess að veita
slíka uppbót en vilji var í ríkis-
stjórninni til að koma til móts við
kröfurnar að einhverju leyti og
komst nefnd fjögurra ráðherra,
fjármála-, mennta-, félags- og heil-
brigðisráðherra að þeirri niður-
stöðu að fy rrnefnd leið skyldi farin.
Greiðslur til elli- og örorkulíf-
eyrisþega, sem njóta fullrar tekju-
tryggingar, heimilisuppbótar og
sérstakrar heimilisuppbótar, eru
nú rétt tæpar 40 þúsund krónur á
mánuði. Frá 1. september 1987
hefur verið stefnt að því að bætur
almannatrygginga væru aldrei und-
ir lágmarkslaunum, sem eru nú
rúmar 35 þúsund krónur á mánuði.
Bætur almannatrygginga eru því
nú 12% hærri en lágmarkslaun.
SSH
Miövikiidagur 2. ágúst 1989
Endurvinnslan hf. tekur til starfa eftir sjö daga,
fimm móttökustöðvar í Reykjavík en sex úti á landi:
Endurvinnsla í
gang eftir viku
Þriðjudaginn 8. ágúst mun Endur-
vinnslan hf. hefja móttöku skila-
gjaldsskyldra einnota umbúða. Mót-
tökustaðir á Stór-Reykjavíkursvæð-
inu verða fimm, en að auki verða
móttökustöðvar á Akranesi, Akur-
eyri, ísafirði, Vestmannaeyjum,
Selfossi og í Keflavík. Tekið verður
á móti lítillega beygluðum og
óbeygluðum umbúðum og greiddar
fimm krónur fyrir hverja einingu.
Skilagjaldsskyldar umbúðir eru
málmdósir 33 og 50 cl, plastdósir 33
cl, PET plastflöskur undan gos-
drykkjum 50, 100, 150 og 200 cl og
einnota öl-glerflöskur. Á móttöku-
stöðvum verða umbúðir taldar og
greitt fyrir þær á staðnum. Á nokkr-
um stöðum úti á landi er verið að
semja við flutningafyrirtæki um mót-
töku og flutning á einnota umbúð-
um. Þau munu taka við pokum frá
almenningi og flytja þá til Endur-
vinnslunnar hf. í Reykjavík, þar
sem umbúðirnar verða taldar og
viðkomandi fær síðan senda ávísun
í pósti fyrir innlögðu magni. Á
móttökustöðvunum þarf fólk að
koma með hverja tegund umbúða í
sér poka, þ.e. málmdósir saman,
plastdósir og plastflöskur saman og
einnota gler sér, en þar sem umbúð-
um verður skilað á flutningastöð er
í lagi að blanda tegundum saman.
Þar sem mikið magn skilagjalds-
skyldra einnota umbúða hefur safn-
ast saman á heimilum, er ljóst að
nokkurn tíma tekur að taka á móti
og telja þær umbúðir sem nú eru til
í landinu. -ÁG
Hundadagar hófust um helgina:
Markaðssetja
listahátíðina
Aðstandendur Hundadaga,
listadaga sem hófust um helgina,
hafa leitað allnýstárlegra leiða
við sölu aðgöngumiða á viðburði
hátíðarinnar. Leitað var til til-
tölulega nýstofnaðs fyrirtækis
sem sér um margskonar mark-
aðssetningar og áskriftasafnan-
ir. Starfsfólk fyrirtækisins, Arn-
arsson og Hjörvar, hefur undan-
farið hringt í fjölda aðila og
boðið þeim aðgöngumiða.
Þetta mun vera í fyrsta skipti sem
aðgöngumiðasala á listviðburði list-
hátíðar er á þennan hátt færð til
viðskiptavina í stað þess að beðið sé
eftir að þeir beri sig eftir björginni.
„Tímarnir hafa breyst og ég held
að almennt sé viðurkennt að nú á
dögum þýðir lítið að bíða við miða-
söluopið eftir því að fólk komi. En
það má segja að leikhús hafi orðið
svolítið á eftir í þeirri þróun að
markaðssetja sig. Við sem stöndum
að hátíðinni eigum fullt í fangi með
að æfa og vinna alla þá listrænu
vinnu sem þarf. Þannig að við leituð-
um á náðir skrifstofu sem hefur
sérhæft sig í markaðssetningu sem
þessari. Þeir hafa þó ekki fengist
áður við sölu á þessari tilteknu
tegund af vöru.
Hátíðin er ný og eins og flestir
þekkja úr leikhúsinu eru áhorfendur
stundum svolítið seinir að taka við
sér. Við erum því að reyna að vekja
athygli á viðburðunum áður en þeir
fara af stað einkum vegna þess að
sýningafjöldi er takmarkaður. Við
erum mjög spennt að sjá hvernig
þessi tilraun tekst til og ég vona að
þetta fari fram þannig að öllum sé
sómi að,“ sagði Viðar Eggertsson
leikari í samtali við Tímann.
Boðið er upp á miða á hvern
einstakan viðburð og jafnframt
pakka, það er að segja miða á allar
sýningar, með töluverðum afslætti.
Aðstandendur Hundadaga eru
Tónlistarfélag Kristskirkju, Alþýðu-
leikhúsið og Listasafn Sigurjóns
Ólafssonar. Hátíðin dregur nafn sitt
af Síríusi, skærustu stjörnu himins-
ins. Boðið er upp á fjölda listvið-
burða í flutningi um það bil hundrað
listamanna, bæði innlendra og er-
lendra.
Af dagskránni ber helst að nefna
sýningu Alþýðuleikhússins á Mac-
beth og frumflutning nýrrar íslenskr-
ar óperu hér á landi, „Mann hef ég
séð“, eftir Karólínu Eiríksdóttur. í
óperunni er jafnframt boðið upp á
fjölda kammer- og einleikstónleika.
í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar
gefst meðal annars tækifæri til að
sækja djasstónleika og í Kirkju
Krists konungs í Landakoti verða
orgeltónleikar helgaðir verkum
franska tónskáldsins Oliver Mes-
siaen. Á dagskrá Hundadaga eru
auk þessa þrjár málverkasýningar
og ýmsar uppákomur á Borginni,
svo sem flutningur ljóða, leikrita og
svokallaðra stuttmynda.
„Listahátíðir eru aðeins haldnar
annað hvert ár og menningarlíf í
borginni er frekar dapurlegt á sumr-
in þar á milli. Hátíðin er haldin að
frumkvæði listamannanna sjálfra.
Hugmyndin kom upphaflega fram í
tengslum við sýningu á Macbeth,
sem er stærsta og viðamesta verkefni
Alþýðuleikhússins til þessa. Tón-
leikahliðin er einnig hin forvitnileg-
asta. Við eigum orðið mikinn fjölda
ungra, góðra tónlistarmanna eins og
til dæmis stúlkurnar í Miami
strengjakvartettinum. Okkur lang-
aði til að þesssir listamenn gætu nýtt
starfskrafta sína hér heima, því við
erum meira og minna að missa það
fólk allt úr landi. Ef vel tekst til væri
gaman að geta haldið þessu áfram,“
sagði Viðar. jkb
Ný flugvél Flugfélags Austurlands. Flugmenn félagsins standa við vélina, Einar Einarsson t.v. og Gústav
Guðmundsson yflrflugmaður t.h. Tímamynd: Jón K.
Ný flugvél til Austurlands
Flugfélag Austurlands fékk síðastliðinn flmmtudag nýja flugvél af gerðinni Piper chieftain. Vélin er vel búin tækjum
og er m.a. með auka eldsneytistanka þannig að hægt er að fljúga henni milli landa. Vélin, sem tekur 9 farþega, er
keypt notuð til landsins og kostar um 10 milljónir. Félagið á fyrir eina flugvél sömu gerðar, eina 7 manna vél og
eina kennsluvél. Að sögn Þorsteins Gústafssonar starfsmanns Flugfélags Austurlands kemur þessi nýja flugvél til
með að breyta miklu fyrir félagið og auka umsvif þess. Henni er einkum ætlað að sinna leigu- og sjúkraflugi. -EÓ
Um 15.000 milljóna tekjuskattur af launum landsmanna 1988:
5.6 MILUARDAR KR.
A FERD OG FLUGI
Skattgreiðsla og skattinnheimta með staðgreiðslu virðist
ekki eins einfalt mál og ýmsir kynnu að ætla. Af um 15.000
millj.kr. álögðum tekjuskatti á tekjur þær sem landsmenn
höfðu á s.l. ári á ríkissjóður annað hvort eftir að innheimta
eða endurgreiða hátt í þriðjung.
Tæplega 12.000 millj. kr. tekju- greiðsluskyldur, en kemur fram
skattar af tekjum fyrra árs hafa sem ógreiddur tekjuskattur. Inn-
skilað sér í ríkiskassann gegnum
staðgreiðsluna. Ríkissjóður telur
sig enn eiga útistandandi tæplega
3.300 millj.kr. í ógreiddum tekju-
sköttum af tekjum ársins 1988. Þar
af er ríflega helmingur vegna áætl-
ana, hvar af óttast er að ríkissjóður
missi um 800 til 1.000 millj.kr. af
eftir kærumeðferð. Að öðru leyti
er um að ræða tekjuskatt af eigna-
tekjum og hagnað af atvinnurekstri
einstaklinga, sem ekki er stað-
heimta þeirra skatta dreifist á þá
mánuði sem eftir eru til áramóta.
Um 2.300 milljónir
ofgreiddar
Á hinn bóginn hefur komið í ljós
að fjöldi manns hefur greitt allt of
mikið í staðgreiðsluskatta, eða
samtals eru það 2.300 millj. kr.
Þessa ofgreiddu skatta mega menn
búast við að fá endurgreidda í
ávísunum frá ríkissjóði nú næstu
daga.
Ástæður þessarar ofgreiðslu
(sem svarar að meðaltali um 13
þús.kr. á hvern skattgreiðanda)
eru m.a. sagðar: Að framteljendur
hafi ekki nýtt persónuafslátt sinn
að fullu, að vaxtaafsláttur (um 750
millj.kr.) er dreginn frá sköttum
við epdanlega álagningu og auk
þess ,að ýmsir kostnaðarliðir hafa
verið viðurkenndir hjá fólki á móti
framtöldum tekjum.
Ávísanir á nær öll
heimili landsins
Ríkissjóður er þessa dagana að
senda út hátt á annað hundrað
þúsund greiðsluávísanir upp á
samtals nær 4.000 milljónir kr. til
skattgreiðenda - eða hátt í eins
margar ávísanir og skattgreiðendur
í landinu eru margir (um 180.000).
Barnabætur 728 m.kr.
Barnabótaauki 227 m.kr.
Húsnæðisbætur 697 m.kr.
Endurgreiðsl. 2,333 m.kr.
Samtals eru þetta 3.985 m.kr.,
hvar af ríkissjóður ætlar að vísu að
halda um 659 millj. eftir upp í
skattskuldir viðkomandi.
Þessu til viðbótar greiðir ríkis-
sjóður 2.735 m.kr. í barnabætur og
barnabótaauka á öðrum tímum
ársins. Alls eru það því um 6.730
milljónir króna sem ríkissjóður
greiðir í endurgreiðslur og bætur á
þessu ári. -HEI