Tíminn - 02.08.1989, Blaðsíða 16
AUGLÝSINGASÍMAR: 680001 —686300
; * ■ ■ l
RÍKISSKIP ^ $ Wr SAiWV lWöitJBANK! ÍSLAMOS MF.
NÚTÍMA FLUTNINGAR
Halnarhúsinu v/Tryggvagölu, S 28822
=n-=c=c =x=c=a 03 ÁTTHAGAFÉLÖG, FYRIRTÆKI OG EINSTAKLINGAR aiœsilegur salur til loigu fyrir samkvœmi og fundarhöld á daginn sem á kvöldln. P C3* ST F!/V)C TÍMANS 587691
Ba==a±x=x= ~ ^xr=x=o= =ai
MIÐVIKUDAGUR 2. ÁGÚST 1989
Myndin var tekin um síðustu helgi að Árbæjarhjáleigu í Holtahreppi. Það er Kristinn Guðnason bóndi á Skarði í Landsveit sem er að binda. í baksýn má
sjá Árbæjarfoss og Þríhyrning. Timamynd: G'IK
Heyskapur gekk vel um síðustu helgi á Suður- og Vesturlandi:
Upprúllaður vandi
við gjöf í vetur?
Tíð hefur verlð rysjótt það
sem af er sumri og heyskapur
gengið seint. Um síðustu
helgi gerði flæsu og þá gekk
heyskapur vel á Suður- og
Vesturlandi.
„Ég held að þessi helgi hafi bjarg-
að óskaplega miklu,“ sagði Jón
Vilmundarson ráðunautur hjá Bún-
aðarfélagi Suðurlands. „Það kom
sér að vísu illa að sumir voru ekki
búnir að slá nægilega mikið því að
menn bjuggust við rigningu á mánu-
daginn en hann kom síðan sem
viðbót við þurrkinn. Menn treystu á
að það myndi rigna þá eins og
veðurstofan var búin að spá. Þó geri
ég ráð fyrir að mánudagurinn hafi
verið flestum kærkominn. Það er því
miklu bjartsýnna hljóð í mönnum
núna. Spretta fór reyndar svo seint
af stað að menn voru ekki komnir í
neitt óskaplega mikið óefni. Núna er
víðast hvar orðið fullsprottið og
farið að spretta úr sér.“
- Ástandið er þá ekki svo slæmt?
„Nei, og ég man eftir mörgum
sumrum þar sem tún og umhverfi
túna var mun blautara en nú er. Nú
heyrir maður ekkert um að menn
séu í vandræðum með að komast um
túnin eins og stundum hefur verið. “
- Er hægt að segja að heyskapur
sé að verða hálfnaður?
„Eigum við ekki að segja að hann
sé orðinn það hjá duglegri
bændum.“
- Hafa menn rúllað meira núna en
á síðasta ári?
„Jú, okkur finnst reyndar nokkuð
óhugnanlegt hversu rúlluvélarnar
hafa breitt hratt úr sér. Á vissum
svæðum er þetta orðið mjög mikið
og það sem við óttumst er að það
verði ekki nægilega góð aðstaða til
að fást við þetta í vetur. Menn hafa
freistast til að fá sér þessar vélar nú
í þessari ótíð. Þetta gengur óskap-
lega hratt fyrir sig þegar þetta er
komið af stað en síðan er lítil
aðstaða yfir veturinn. Síðan eru
nokkrir sem hafa verið of bráðlátir
og sett illa blaut hey í poka og það
er alveg voðalegur hiutur. Sem betur
fer virðast þó flestir hafa skilning á
því að heyið þurfi að vera þurrt
þegar því er rúllað.“
Nokkuð algengt virðist vera að
hey eyðileggist í rúllum og á mörgum
bæjum má sjá rifna rúllupoka með
gjörónýtu heyi í. Dæmi eru um að
tugir rúlla hafi eyðilagst hjá bændum
m.a. vegna þess að þeir hafa geymt
rúllurnar úti og ekki komist til að
gefa þær vegna snjóa. Jón Vilmund-
arson sagði að í þröngum gömlum
fjósum geti verið erfitt að koma því
við að gefa rúllurnar. „Sumir virðast
hreinlega ekki hafa hugsað fyrir því
hvernig þeir ætli að gera þetta í
vetur.“
- Bændur eru alveg óhræddir að
fjárfesta á þessum síðustu og verstu
tímum?
„Já, maður verður stundum hálf
hissa á því. Við eigum erfitt með að
skilja hvernig menn geta keypt sér
traktor upp á eina og hálfa miljón.“
- Hvað finnst þér þá um það þegar
menn eru komnir með 3-4 aðferðir
til að verka hey?
„Ja, mér er þetta óskiljanlegt. Þó
má segja að best stæðu kúabúin ráði
við þetta. Maður vonar bara að þau
kollsigli sig ekki líka á þessum
ósköpum. Vélakosturinn hefur
vissulega komið sér vel við þessar
aðstæður, nú þegar eru fáir dagar til
að þurrka.“ -EÓ
Hluthafafundur kýs
bankaráð íslandsbanka:
Kosning
samkvæmt
handriti
í gær var haldinn síðasti hluthafa-
fundurinn í Útvegsbankanum hf. en
þar var endanlega samþykkt að
breyta nafni bankans í fslandsbanka
hf. Fyrir fundinum lágu einnig tillög-
ur um breytingar á samþykktum
bankans sem nauðsynlegar eru
vegna sameiningar Iðnaðar-, Versl-
unar-, Alþýðu- og Útvegsbanka í
einn íslandsbanka. Hinum nýja
banka var kosið bankaráð á fundin-
um og var samþykkt tillaga sem lá
fyrir fundinum. í bankaráð voru
þessir kosnir: Brynjólfur Bjarnason
og Haraldur Sumarliðason, frá Iðn-
aðarbanka, Magnús Geirsson og Ás-
mundur Stefánsson frá Alþýðu-
banka, Gísli V. Einarsson og Þor-
valdur Guðmundsson frá Verslunar-
banka, og Kristján Ragnarsson er
fulltrúi Fiskveiðasjóðs. Sjö vara-
menn voru kjörnir: Sveinn Valfells
og Indriði Pálsson, Þorvarður
Elíasson, Guðmundur H. Garðars-
son, Árni Benediktsson, Ólafur
Ólafsson og Baldvin Hafsteinsson.
Fyrir fundinum lágu tillögur
bankaráðs um útgáfu jöfnunarhluta-
bréfa og um hlutafjáraukningu upp
á 1,5 milljarða kr. og var sú hluta-
fjáraukning samþykkt samhljóða.
Umræða um útgáfu jöfnunarhluta-
bréfanna var það eina á fundinum
sem ekki gekk eftir eins og fyrirfram
hafði verið gert ráð fyrir. Halldór
Guðbjarnarson fyrrum bankastjóri
Útvegsbanka íslands gagnrýndi
harðlega tillögu bankaráðs um út-
gáfu jöfnunarhlutabréfa upp á að-
eins 38% og taldi að aukningin yrði
að nema 90-110% af nafnverði ef
hluthafar í Útvegsbankanum ættu
ekki að tapa stórfé. Nefndi hann í
því sambandi að Fiskveiðasjóður
einn myndi tapa um 100 milljónum
ef tillagan næði fram að ganga. Engu
að síður fór tillagan í gegn næstum
samhljóða eftir skriflega atkvæða-
greiðslu. -BG
Einhugur í ríkis-
stjórn um björgun
Málefni Patreksfjarðarhrepps
voru tekin fyrir á ríkisstjórnarfundi
í gær en sem kunnugt er þá er
framtíð byggðarlagsins í járnum
eftir gjaldþrot Hraðfrystihúss Pat-
reksfjarðar.
Steingrímur Hermannsson sagði
eftir ríkisstjórnarfundinn að
ákvörðun hefði verið tekin um að
beina því til þeirra stofnana sem
hlut eiga að máli að tryggja að
skipin tvö sem eru í eigu Hrað-
frystihússins verði áfram í byggðar-
laginu. Forsætisráðherra sagði
jafnframt að ríkisstjórnin sjálf gæti
lítið annað gert en að beita sér fyrir
slíkri málsmeðferð og það hafi
verið stutt mjög eindregið innan
ríkisstjórnarinnar. Ríkisstjórnin
muni því gera allt sem henni er
heimilt til að sporna gegn því að
skipin verði seld úr byggðarlaginu.
Steingrímur Hermannsson mun
eiga fund með fulltrúum sveitar-
stjórnarinnar í dag. Þar verður
rætt um hvaða leiðir séu færar til
að bjarga framtíð byggðarlagsins.
Sveitarstjórn Patreksfjarðar-
hrepps hefur beitt sér fyrir því að
stofnað verði hlutafélag sem hafi
það markmið að kaupa skip og
aðrar eignir sem tapast hafa úr
plássinu á uppboðum eða vegna
gjaldþrota. Á mánudagskvöldið og
í gær fundaði sveitarsjórnin með
fulltrúum sex fyrirtækja í vinnslu
og útgerð á staðnum og óskaði eftir
, samstarfi við þá um stofnun hluta-
félagsins. SSH