Tíminn - 02.08.1989, Side 4
4 Tíminn ,
Miðvikudagur 2. ágúst 1989
OEUTZ-FOHR
Eigum fyrirliggjandi takmarkaðar birgðir af þessum vinsælu
DEUTZ-FAHR tromlumúgavélum á ótrúlega hagstæðu verði.
Vinnslubreidd 3,5 m. Hafið samband við sölumenn okkar sem
allra fyrst í Ármúla 11, eða hringið í síma 681500.
I
Hafnarfjarðarbær
JL\- lóðaúthlutun
Hafnarfjarðarbær mun á næstunni úthluta lóðum
fyrir íbúðarhús:
a) á Hvaleyrarholti fyrir fjölbýlishús og þétta, lága
byggð (klasahús)
b) í Setbergi fyrir parhús og raðhús.
Lóðirnar verða til afhendingar frá n.k. hausti til vors
1990.
Skipulag er samþykkt af bæjarstjórn og endanleg
staðfesting mun liggja fyrir er úthlutað verður.
Umsóknarfrestur er til 16. ágúst. n.k.
Eldri umsóknir þarfa að endurnýja.
Nánari upplýsingar verða gefnar á skrifstofu
bæjarverkfræðings, Strandgötu 6.
Forstöðumaður
Starf forstöðumanns við Hjúkrunarheimilið að
Fellsenda í Dalasýslu er laus til umsóknar frá 1.
október n.k.
Skriflegum umsóknum með upplýsingum um fyrri
störf skal skila fyrir 1. september til Péturs
Þorsteinssonar sýslumanns, Búðardal, Dalasýslu,
sem gefur allar nánari upplýsingar.
Orðsending til mjólkurframleiðenda
Framleiðnisjóður landbúnaðarins hefur náð mark-
miðum búvörusamnings frá 21. september 1986,
um kaup eða leigu á fullvirðisrétti til mjólkurfram-
leiðslu og er þeim hér með hætt.
Framleiðnisjóður landbúnaðarins.
LEKUR ER HEDDID
BLOKKIN? SPRUNGIÐ?
Viðgerðir á öllum heddum og blokkum.
Plönum hedd og blokkir - rennum ventla.
Eigum oft skiptihedd í ýmsar gerðir bifreiða.
Viðhald og viðgerðir á iðnaðarvélum - járnsmíði.
Vélsmiðja Hauks B. Guðjónssonar
Súðarvogi 34, Kænuvogsmegin - Sími 84110
Kollegar Haraldar Bessasonar og fleiri flytja erindi á ráðstefnu í húsakynnum MA:
Lífið undir leiðar-
stjörnu á Akureyri
Fyrsta opna ráðstefna Háskól-
ans á Akureyri verður haldin að
Möðruvöllum húsi Menntaskól-
ans á Akureyri, dagana 9.-
12.ágúst. Um er að ræða opna
þverfaglega ráðstefnu og eru
fyrirlesarar frá íslandi, Skot-
landi, Bandaríkjunum og Kan-
ada. Meðal þeirra viðfangsefna
sem tekin verða til umræðu eru
heilbrigðisfræði, rekstrarfræði,
sjávarútvegsfræði, félagsfræði,
mannfræði, bókmenntir og
sagnfræði.
Haraldur Bessason rektor Háskól-
ans á Akureyri hefur borið hitann og
þungann af skipulagningu ráðstefn-
unnar og að hans sögn eru flestir
fyrirlestranna byggðir á frumrann-
sóknum fyrirlesara. Upphaflega
kviknaði hugmyndin að ráðstefn-
unni hjá Haraldi, þegar hópur kol-
lega hans ákváðu að sækja hann
heim á þessu sumri. „Petta fólk kom
hingað hvort sem var, þannig að ég
bjó nú til þessa ráðstefnu til þess að
láta það hafa eitthvað að gera á
meðan það staldraði hér við,“ sagði
Haraldur er Tíminn hafði samband
við hann í gær. En það eru fleiri en
samkennarar Haralds sem flytja
Haraldur Bessason, rektor.
fyrirlestra á ráðstefnunni, þar á með-
al eru: Gauti Arnþórsson prófessor,
Margrét Tómasdóttir forstöðumað-
ur heilbrigðisdeildar Háskólans á
Akureyri og íslenskumaðurinn
góðkunni Gísli Jónsson, sem ntun
kynna niðurstöður verkefnis sem
hann hefur unnið að á undanförnum
árum. Ransóknarverkefnið fjallar
um mannanöfn í Húnavatnssýslu
1703-1845 og að nokkru leyti til
okkar daga.
Ráðstefnan sem ber heitið Líf
undir leiðarstjörnu, er öllum opin og
þátttökugjald er ekkert. Að sögn
Haraldar Bessasonar er ráðgert að
gefa fyrirlestrana út á bók, að ráð-
stefnunni lokinni. - ÁG
Eignaskattar Reyknesinga hækka um 103% milli ára:
Aðal verktakar 516
milljónir í skatta
Álagðir skattar í Reykjanesum-
dæmi eru samtals um 9.322 milljónir
króna. Þar af eru skattar einstakl-
inga um 7.440 m.kr., sem lagðar eru
á um 46.620 manns. Þar af eru um
2.560 börn undir 16 ára aldri. Alls
um 2.280 eru í skattskrám lögaðila,
og álagðir skattar á þá samtals 1.882
m.kr.
Tæplega helmingur skattgreið-
enda borgar nokkurn tekjuskatt,
samtals um 4.050 m.kr. Útsvar er
lagt á um 42 þús. einstaklinga,
samtals um 2.634 m.kr. Aðstöðu-
gjald á einstaklinga er rúmlega 106
m.kr.
Álagður eignaskattur hækkar að
þessu sinni um 103% milli ára og er
samtals um 471,5 m.kr. Aðeins inn-
an við þriðjungur skattgreiðenda
fær álagðan eignaskatt, eða rúmlega
14.600 manns. Af þeim fjölda eru
það um 10.400 manns sem þurfa að
greiða skattinn að fullu, því ríkis-
sjóður greiðir um 17,6% af öllum
eignasköttum einstaklinga til baka
með skattafslætti, alls 83 m.kr. til
4.250 skattgreiðenda.
Hátt í helmingur skattgreiðenda
mun fá endurgreiddar frá ríkissjóði
samtals um 871 millj.kr., annað
hvort í ávísunum eða sem skattaf-
slátt til greiðslu útsvars, eignaskatta
eða sérstakra eignaskatta.
Millj.kr. Fjöldi
Barnabótaauki 183 6.400
Húsnæðisbætur 156 3.031
Sk.afsl.útsv. 446 19.786
Sk.afsl.eignask. 83 4.250
Sk.afsl.eignask. 3 847
Samtals 871 rn.kr.
Skattafslátturinn nemur þannig
rúmlega sjötta hluta alls álagðs út-
svars og eignaskatta. Beinar eða
óbeinar greiðslur til skuldugra hús-
byggjendur nema líka stórum fjár-
hæðum, því auk 156 millj.kr. í
húsnæðisbætur er um að ræða rúm-
lega 283 millj.kr. í vaxtaafslátt.
Fátítt mun að fólk láti mynda
börn sín á stofu, fyrr en þau eru ögn
farin að stálpast og eru látnar nægja
skyndimyndir íheimahúsum, meðan
þau enn eru í vöggu. Hins vegar er
ungbarnaljósmyndun sérstök grein
erlendis, þ.e. myndatökur af börn-
um á aldrinum eins til fjögurra
mánaða.
Nú býður „Stúdíó ’76“ að Suður-
landsbraut 22 upp á sérhæfða ung-
barnaljósmyndun, en annar eigenda
stofunnar, Anna Sigurðardóttir,
lærði þessa grein sérstaklega í
Meðaltal álagðra gjalda á einstak-
linga er mjög mismunandi milli sveit-
arfélaga, sem gefur til kynna mikinn
mismun á tekjum manna sem þar
búa.
Garðabær 208 þús. kr.
Seltjarnarnes 205 þús. kr.
Bessast.hreppur 178 þús. kr.
Kjalarnes 173 þús. kr.
Gerðahreppur 169 þús. kr.
Kópavogur 165 þús. kr.
Keflavík 162 þús. kr.
Hafnarfjörður 159 þús. kr.
Njarðvík 158 þús. kr.
Mosfellsbær 155 þús. kr.
Miðneshreppur 151 þús. kr.
Vatnsleysustr. 139 þús. kr.
Grindavík 138 þús. kr.
Hafnahreppur 117 þús. kr.
Kjósarhreppur 114 þús. kr.
Garðbæingar þurfa samkvæmt
þessu að borga nær 83% hærri skatt
að meðaltali helduren Kjósverjar.
HEI
Bandaríkjunum og helgaði henni
hálft ár af þriggja ára ljósmynda-
námi. Ungbarnaljósmyndun varlíka
meginviðfangsefni hennar hjá virtu
ljósmyndafyrirtæki, sem hún starf-
aði hjá að námi loknu vestra.
Slíkar myndir eru t.d. vinsæl sæng-
urgjöf hjá mörgum og vill stofan
vekja eftirtekt fólks á þessari
nýjung, þar sem hún hefur mælst
mjög vel fyrir meðal þeirra sem
reynt hafa hérlendis. Anna tekur
fram að sérstök áhersla er lögð á
öryggi og vellíðan barnsins meðan á
töku stendur.
Nýjung í Ijósmyndaþjónustu hérlendis:
Ungbarnaljósmyndun