Tíminn - 02.08.1989, Blaðsíða 10
10 Tíminn,
Miðvikudagur 2. ágúst 1989
Sænskur kór syngur í
Langholtskirkju, Norræna
húsinu og Hallgrímskirkju
1 dag, miðvikudaginn 2. ágúst, kl.
19:00, mun Kammermúsíkkórinn frá
Hajlundi í Svíþjóð, sem nú er í heimsókn
á íslandi, halda tónleika í Langholts-
kirkju. Á dagskránni eru m.a. lög eftir
Scarlatti, Britten og Vivaldi.
í hópnum eru 17 söngvarar og fjórir
hljóðfæraleikarar.
Tilgangur ferðarinnar er að hitta tón-
listarfólk á íslandi og syngja fyrir íslend-
inga. l'au hafa fengið styrk frá NOMUS í
Svíþjóðogtónlistarráðinu í Hallandsléni.
Tónleikar verða í Norræna húsinu
laugardaginn 5. ágúst kl. 15:00 Þá verður
fjölbreytt efnisskrá, svo sem lög eftir
Shearing, Ramel, Tegnér og fleiri.
Einnig koma þau fram í Norræna
húsinu fimmtudaginn 3. ágúst á undan
Opnu húsi kl. 20:00.
Sunnudaginn 6. ágúst kl. 11:00 syngur
kórinn við messu í Hallgrímskirkju.
Kórfélagarnir vilja gjarnan hitta ís-
lenskt tónlistarfólk föstudaginn 4. ágúst
kl. 12:00 í fundarherbergi Norræna
hússins.
STUÐMENN á Norðurlandi
Stuðmenn leggja leið sína til Norður-
lands að afloknum tónleikum í Hafnar-
firði á fimmtudagskvöld.
Á föstudag leikur hljómsveitin í félags-
heimili Mývetninga, Skjólbrekku. Á
laugardagskvöld verður hljómsveitin í
Miðgarði í Skagafirði, nánar tiltekið í
Varmahlíð.
Að því loknu mun hljómsveitin leika á
rokkhátíðinni Húnaver ’89 ásamt 8 af
þekktustu hljómsveitum landsins, auk 30
nýrra og upprennandi hljómsveita hvað-
anæva af landinu. Rokkhátíðin fer fram
dagana 4. 5. og 6. ágúst, sem er Verslun-
armannahelgin.
Heyrnar- og talmeinasér-
fræðingar verða á ísafirði
Móttaka verður á vegum Heyrnar- og
talmeinastóðvar íslands í Heilsugæslu-
stöð ísaljarðar dagana 11. og 12. ágúst og
í Heilsugæslustöð Bolungarvíkur 13.
ágúst.
Þar fer fram greining heyrnar- og
talmeina og úthlutun heyrnartækja.
Sömu daga, að lokinni móttöku Heyrn-
ar- og talmeinastöðvarinnar, verður al-
menn lækningamóttaka sérfræðings í
háls-, nef- og eyrnalækningum.
Tekið er á móti viðtalsbeiðnum á
viðkomandi heilsugæslustöð.
rLvi\r\og i Mnr
Kerlingarfjöll - Hveravellir
Sumarferð framsóknarfélaganna
í Reykjavík
Hin árlega sumarferð framsóknarfélaganna í Reykjavík verður farin
laugardaginn 12. ágúst nk.
Lagt verður af stað frá B.S.Í. kl. 8:00.
Leiðsögumenn verða í öllum bílum.
Nánar auglýst síðar.
Framsóknarfélögin í Reykjavík.
Reykvíkingar
Guðmundur G. Þórarinsson, alþm. verður til
viðtals á skrifstofu Framsóknarflokksins, Nóa-
túni 21, miðvikudaginn 9. ágúst n.k., milli kl. 17
og 19.
Verið velkomin.
Fulltrúaráðið
Sumartími:
Skrifstofa Framsóknarflokksins, að Nóatúni 21 í Reykjavík, er opin
alla virka daga frá kl. 8.00-16.00.
Framsóknarflokkurinn.
t
Dagný Sigurbjörg Jónsdóttir
frá Arakoti á Skeiðum
andaðist að morgni þriðjudagsins 1. ágúst á Hrafnistu.
Börn hinnar látnu.
t
Móðir okkar, tengdamóðir og amma
Ingilaug Teitsdóttir,
Tungu
verður jarðsungin frá Breiðabólstað I Fljótshlíð föstudaginn 4. áqúst
kl. 14.00.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
Ferðafélag íslands:
Helgarferöir um verslunarmannahelgi:
4. - 7. ágúst kl. 20 Kirkjubæjarklaustur -
Lakagígar - Fjaðrárgljúfur. Gist í svefn-
pokaplássi á Kirkjubæjarklaustri. Dags-
ferð frá Kirkjubæjarklaustri á Lakagíga-
svæðið og Fjaðrárgljúfur. Verð kr. 6.250
(fyrir félagsmenn) og kr. 6.900 (fyrir
utanfélagsmenn).
4. - 7. ágúst kl. 20
Þórsmörk - Fimmvörðuháls. Gist í Skag-
fjörðsskála/Langadal. Dagsferð yfir
Fimmvörðuháls (tekur um 8 klst.) að
Skógum, þar sem rúta bíður og flytur
hópinn til Þórsmerkur. Einnig verða
farnar gönguferðir um Mörkina. Verð kr.
4.400 (í húsi f. félagsmenn) og kr. 4.850
(í húsi f. utanfélagsmenn).
4. - 7. ágúst kl. 20 Landmannalaugar -
Hábarmur- Eldgjá. Gengið á Hábarm og
ekið í Eldgjá ef færð leyfir. Gist í sæluhúsi
Ferðafélagsins í Laugum. Verð kr. 4.700
f. félagsmenn og kr. 5.200 f. utanfélags-
menn.
4. - 7. ágúst kl. 20 Sprengisandur -
Skagafjaröardalir (inndalir). Gist í sæl-
uhúsi Ferðafélagsins í Nýjadal ( 1 nótt)
og Steinstaðaskóla ( 2 nætur). Verð kr.
6.500 fyrir félagsmenn og 7.200 kr. fyrir
utanfélags.
Pantið tímanlega í ferðirnar. Farmiða-
sala á skrifstofu félagsins, Öldugötu 3.
ÚTIVIST
Ferðir um verslunarmannahelgi 4.- 7.
ágúst.
1) Þórsmörk. Heim á sunnudegi eða
mánudegi. Einnig sunnudagsferð. Gist í
Útivistarskálunum Básum. Gönguferðir.
2) Langisjór - Sveinstindur - Lakagígar -
Fjallabaksleið syðrí. Gist í svefnpoka-
plássi í hinu vinalega félagsheimili Skaft-
ártungumanna, Tunguseli. Dagsferðir
þaðan. Fararstj. IngibjörgS. Ásgeirsdótt-
ir.
3) Núpsstaðarskógar. Tjöld. Kynnist
þessu margrómaða svæði. Gönguferðir
m.a. að Tvílitahyl. Fararstj. Hákon J.
Hákonarson.
4) Hólaskógur - Landmannalaugar -
Gljúfurleit. Ný ferð. Gist í húsum. M.a.
skoðaðir tilkomumiklir fossar í Þjórsá,
Gljúfurleitarfoss og Dynkur.
Ennfremur dagsferðir í Þórsmörk á
sunnudag og mánudag.
Munið fjölskylduhelgina í Þórsmörk
11.-13. ágúst. Uppl. og farm. á skrifstof-
unni Grófinni 1, símar: 14606 og 23732.
Útivist, ferðafélag
Ljósmyndasýning
Bjarna Jónssonar
Bjarni Jónsson opnaði ljósmyndasýn-
ingu í Listasafni alþýðu, Grensásvegi 16,
sl. laugardag og er sýningin opin daglega
kl. 14:00-21:00 dagana 29. júlí-13. ágúst.
KVENNAATHVARF
Húsaskjól er opið allan sólarhringinn
og aðstoð fyrir konur sem beittar hafa
verið ofbeldi í heimahúsum eða orðið
fyrir nauðgun.
Síminn er 21205 - opinn allan sólar-
hringinn.
11111111 1 STJARNHEIMAR 111 lllllllllllllllllllllllllllllllll 111111 lllllllllllllllllllllll
Jarðstjarnan Merkúríus
Merkúríus er líflaus stjarna, þar sem auðnin og þögnin ríkir í öllu sínu veldi.
Gígar þekja yfirborðið líkt og er á tunglinu. Sólin sýnist þrefalt stærri en
héðan frá jörðu. Myndin á að sýna aðstæður á Merkúríusi, eins og
listamaðurinn hugsar sér þær. Klettadrangur einn mikill skyggir á sólina, en
út frá honum til hægri stafar Ijósgeislum sólarinnar. Og í sverðbjarmanum,
sem frá sólunni leggur út í geiminn, sést Jörðin í fjarska ásamt tunglinu.
Merkúríus er sú reikistjarna sól-
hverfisins, sem gengur næst sólu.
Hún er því aldrei sýnileg nema rétt
eftir sólsetur eða rétt fyrir sólarupp-
rás.
Merkúríus er að þverntáli 4880
km og hann er minnsta reikistjarna
sólhverfisins. Meðalfjarlægð hans
frá sólu er 579 milljónir km. Braut
Merkúríusar er mjög sporbaugs-
mynduð, er í sólnánd í 45,9 milljón
km og í sólfirð í 69,7 millj. km frá
sólu. Hitageislun sólar til hnattarins
er því mjög misjöfn eftir því hvar
hann er staddur á braut sinni.
Það tekur Merkúríus 88 daga að
ganga eina umferð um sólu. Mjög er
erfitt að sjá nokkur kennileiti á
yfirborði hnattarins og fyrri stjörnu-
fræðingar gátu ekki betur séð, en að
hann snéri alltaf sömu hlið að sólu,
hefði bundinn möndulsnúning, rétt
eins og tunglið um jörðina. En
nýjustu ratsjármælingar sýna ótví-
rætt að snúningur hans um möndul
sinn tekur 59 daga. Ekkert gufuhvolf
er á Merkúríusi og ekkert er því sem
hindrar hina miklu geislun sólarinn-
ar að falla beint á yfirborð hans. Því
er talið að hitinn sólarmegin sé um
400°C. Ekkert líf í neinni mynd mun
því geta þróast á þessari reiki-
stjörnu. Vegna nálægðar við sólu
gengur Merkúríus hraðar á braut
sinni en aðrar reikistjörnur, eða 47,9
km á sek. að meðaltali. Eðlisþyngd-
in, miðað við vatn, er 5,4 eða álíka
Hér er að sjá allstóran hluta af
yfirborði Merkúríusar og kemur vel
í Ijós hve þéttsettur hann er hring-
mynduðum gígum og það svo að
víða skarast þeir hver yfir annan
■-stórir og smáir.’.. .
og eðlisþyngd jarðarinnar, en að-
dráttarkraftur við yfirborð er 0,37
miðað við aðdráttarkraft jarðar og
stafar sá mismunur af því, hve
efnismagn Merkúríusar er miklu
minna.
Miklir erfiðleikar eru á að skoða
stjörnuna frá jörðu. En þegar fyrsta
geimflaugin, Mariner 10, fór fram
hjá henni í lítilli fjarlægð, þá kom
skýrt í Ijós hvernig yfirborð hennar
er á að líta. Þarna mátti sjá gíga-
myndanir, fjöll og sléttlendi, h'kt og
er á tunglinú.
• -Á-norðlægnmbreiddargráðum er.
stundum hægt að sjá Merkúríus sem
kvöldstjörnu á vorin, en sem morg-
unstjörnu á haustin, en þó ekki
nema við sérstaklega hagstæð skil-
yrði og ekki með berum augum.
Nálægð hnattarins við sólu veldur
miklum erfiðleikum við athugun á
honum og þar sem aldrei er hægt að
sjá hann nema skammt ofan við
sjóndeildarhring, þá veldur þykkt
og óróleiki gufuhvolfsins miklum
erfiðleikum við nákvæma skoðun,
jafnvel þótt notaðir séu fullkomn-
ustu stjörnusjónaukar.
. ... . . . . Iogvar Agnarssoa .