Tíminn - 02.08.1989, Síða 14
'14' ‘TíVninn,
'J -Mi 6 víkiídacjnr,-2:-ag úsV 1989
llllllllllllllllll ÚTLÖND
FRÉTTAYFIRLIT
VARSJÁ - Verð á pólskum
matvörum hækkaði um allt að
500% þegar kaupmenn röð-
uðu þeim í auðar hillur í versl-
unum sem tæmst höfðu
undanfarna daga þegar al-
menningur hamstraði eins og
mögulegt var. Verðhækkanirn-
ar koma í kjölfar þess að
verðlagning í Póllandi vargefin
frjáls að hluta, en ríkisstjórnin
hefur stjórnað verðlagi í Pól-
landi undanfarna áratugi. Hið
nýja fyrirkomulag er einn liður
í efnahagsumbótum ríkis-
stiórnarinnar í Póllandi og eiga
ao koma lagi á efnahagslífið
sem er í kaldakoli.
PARIS - Alþjóðleg ráðstefna
um Kambódíu samþykkti að
Sameinuðu þjóðirnar sendu
sérstaka eftirlitsnefnd til Kam-
bódíu til að fylgjast með brott-
hvarfi víetnamskra hermanna
frá landinu, en brottflutningun-
um á að verða lokið í septem-
berlok.
MOSKVA - Armenar og
Azerar eru enn að atast hvorir
í öðrum í Azerbaijan og virðist
ekkert lát ætla að verða á
kynþáttaátökum þar. Þrjú-
hundruð Azerar réðust að
vörubílalest Armena sem var á
leið til Nagorno-Karabakhs
héraðs. Tuttugu menn slösuð-
ust í átökunum.
STOKKHÓLMUR
Tveggja daga viðræður banda-
rískra og sovéskra embætti-
smanna um ástandið í Afgan-
istan enduðu án þess að niður-
staða næðist.
Israelar bjóðast til þess að sleppa sjeik Obeid ef Israelum og vestrænum
gíslum í Líbanon verður sleppt:
Ofstækisf u 11 i r Shítar
gefa gísl gálgafrest
Það ríkti ntikil spenna meðal
almennings í Bandaríkjum og
raunar víðar fram eftir degi í
gær, en líbönsk öfgasamtök
höfðu hótað að taka Bandaríkja-
manninn Joseph Cicippio af lífi
ef ísraelar slepptu ekki sjeik
Abdei Kareim Obeid andlegum
leiðtoga innan hinna illræmdu
Hizbollah skæruliðasamtaka
Shíta, en ísraelar rændu honum
um helgina.
Það voru „Samtök byltingar og
réttlætis“ sem hótuðu að taka Cicip-
pio af lffi, en samtökin rændu honum
í Líbanon í september árið 1986. En
vegna „áskorana vinsamlegra afla“
frestuðu samtökin aftöku Cicippio
um tvo sólarhringa, svo menn gátu
andað léttar.
Gífurleg reiði ríkir í Bandaríkjun-
um vegna morðsins á bandaríska
landgönguliðanum Williams Hig-
gins, en önnur öfgasamtök, tengd
Hizbollah, hengdu hann á mánudag
til að hefna ránsins á Abdel Kareim
Obeid. Virðuleg dagblöð eins og
New York Times slógu upp fyrir-
sögnum eins og „BASTARÐAR"
yfir mynd af Higgins hengdum, en
myndband af honum var sent til
fjölmiðla eftir aftökuna. Lýsir það
mjög afstöðu bandarísks almennings
til morðsins. Ekki eru allir á eitt
sáttir hverjum aftakan sé í raun að
kenna því sumir kenna ísraelum um.
ísraelar halda því fram að Higgins
hafi fyrir löngu verið drepinn og að
samtökin hafi einungis beðið eftir
rétta tækifærinu til að koma því á
■
Ruhin varnarmálaráðherra ísraels beinir byssu sinni yfir til Líbanons. Sú ákvörðun Rabins og félaga hans í
ríkisstjórninni að senda herlið inn í Líbanon til að ræna andlegum leiðtoga HizboIIah-samtakanna hefur kostað einn
bandarískan gísl lífið og annar fékk gálgafrest í gær.
framfæri. Shamír forsætisráðherra
ísraels skýrði frá því fyrri partinn í
gær að ísraelar væru í beinu sam-
bandi við öll öfgasamtök Shítamús-
líma sem hafi gísla í haldi og sagði
Shamír að ísraelar væru reiðubúnir
til að slepp Obeid ef öllum ísraelsk-
um hermönnum og öllum vestrænum
gíslurn sem haldið væri af Shítum í
Líbanon yrði sleppt. Hizbollah sam-
tökin hafa neitað slíku.
George Bush forseti Bandaríkj-
anna hefur ekki verið par hrifinn af
framtaki fsraela. Hann gagnrýndi þá
harðlega, óbeint þó, eftir morðið á
Higgins. Forsetinn hvatti til þess í
gær að öllum gíslum sem í haldi væri
í Miðausturlöndum yrði sleppt.
Morðið á Higgins hefur vakið
óhug um allan heim og hafa flest ríki
fordæmt það harðlega, þar með talin
Arabaríkin. Hins vegar hafa Ar-
abaríkin gagnrýnt ísraela harðlega
fyrir að hafa rænt Obeid og sagt að
með því hafi ísraelar sett snöruna
um háls Higgins.
KABUL - Afganskar örygg-
issveitir söfnuðu saman um
190 eldflaugum í mikilli leit í
nágrenni Kabúl. öryggissveit-
irnar fóru á stjá um dreifbýlið í
kringum Kabúl eftir að eld-
flaugaárásir skæruliða drápu
að minnsta kosti 24 íbúa Kab-
úlborgar og særðu hátt í 60 á
mánudaginn.
BELGRAD - Meira en 600
námuverkamenn af albönsku,
bergi brotnir hófu verkfallí Kos-
ovo héraði þar sem 25 manns
létust I kynþáttaátökum fyrr á
þessu ári.
MOSKVA - Sovéskir hug-
myndafræðingar reyndu I vik-
unni að stöðva útgáfu minn-
inga Nikitas Krushevs, en út-
gefendur börðust af hörku fyrir
því að bókin yrði gefin út og
urðu þeir ofan á. Sonur Kru-
shevs fyrrum leiðtoga Sovét-
ríkjanna skýrði frá þessu.
Uppreisn í pólska þinginu daginn sem 45 ár eru liðin
frá upphafi uppreisnarinnar í Varsjá 1944:
Smábændaflokkurinn
styður ekki Kiszczak
sem forsætisráðherra
Sírenur vældu í Varsjá í
gær þegar Pólverjar minnt-
ust þess að 45 ár eru liðin
frá uppreisn Varsjárbúa
gegn Þjóðverjum í síðari
heimsstyrjöldinni. Er talið
að 250 þúsund Pólverjar
hafi fallið í bardögunum í
Varsjá sem stóðu í 63 daga.
Þjóðverjar lögðu borgina í
rúst á meðan hinn sovéski
Rauði her gerði ekkert til
að létta á Varsjárbúum,
enda voru kommúnistar fáir
í neðanjarðarhreyfingu Pól-
verja á þessum tíma.
Það er því táknrænt að 13 þing-
menn Kommúnistaflokksins og 60
fulltrúar Smábændaflokksins
pólska sem hefur fylgt kommún-
istaflokknum að málum í fjóra
áratugi, risu upp gegn fyrirhugaðri
tilnefningu Czeslaw Kiszczak
innanríkisráðherra sem forsætis-
ráðherra. Ástæðan er sú að Kisz-
czak er hershöfðingi og átti þátt í
því að setja á herlög í Póllandi árið
1981 ásamt Jaruzelski forseta. Þyk-
ir smábændaflokksmönnum nægi-
legt að annar þeirra félaga farið
með svo há embætti, en Kiszczak
hefur þó verið sæmilega vel liðinn
í Póllandi þar sem hann var drif-
krafturinn í samningaviðræðum
pólskra kommúnista við Samstöðu
um pólitískar umbætur í landinu.
Hin harða afstaða Smábænda-
flokksins hefur gefið byr undir
báða vængi hugmyndinni um nýja
samsteypustjóm Smábændaflokks-
ins og Samstöðu, en Kommúnista-
flokkurinn þarfnast áframhaldandi
stuðnings Smábændaflokksins til
að halda meirihluta í Sejm, neðri
deild þingsins. Samstaða hefur hins
vegar alla þingmenn Öldunga-
deildarinnar sem starfar sem efri
deild.
Samstaða hefur nú undanfarna
daga boðið Smábændaflokknum
til stjómarsamstarfs undir forsæti
Bronislaws Geremek þingflokks-
formanns Samstöðu. Hins vegar
getur Jaruzelski forseti Póllands
orðið Þrándur í Götu slíkrar ríkis-
stjómar, ef þingmenn Smábænda-
flokksins samþykktu að starfa með
Samstöðu í ríkisstjóm, því Jamzel-
ski einn getur tilnefnt forsætisráð-
herra. Þingið verður þó að sam-
þykkja tilnefninguna.
Jamzelski sem kosinn var forseti
Póllands með minnsta mögulega
mun fyrir tæpum hálfum mánuði
lét af embætti formanns Kommún-
istaflokksins á laugardaginn. Við
tók Rakowski sem verið hefur
forsætisráðherra Póllands að
undanförnu. Hin nýja staða hefur
ekki lagst vel í Rakowski því hann
var lagður inn á sjúkrahús vegna
hjartatruflana í gær.
Danir og Norðmenn geta
ekki komið sér saman um
fiskveiðiréttindi hjálparlaust:
Deilan um
JanMayen
til Haag
Danir hafa farið fram á það við
Alþjóðadómstólinn í Haag að hann
kveði úr um fiskveiðiréttindi og
námuvinnsluréttindi á hafsbotni við
Jan Mayen, en Danir og Norðmenn
hafa rifist um réttinn í níu ár. Danir
flytja málið fyrir hönd grænlensku
landsstjómarinnar því 200 mflna
landhelgi Norðmanna við Jan May-
en og 200 mflna landhelgi Grænlands
skerast.
Gráa svæðið við Jan Mayen og
Grænland er um 27 þúsund km að
flatarmáli og er þar að finna auðug
fiskimið auk þess sem olíu og málma
má eflaust finna á hafsbotni.
Danir halda því statt og stöðugt
fram að 200 mílna efnahagslögsaga
Jan Mayen skerði í engu 200 mílna
efnahagslögsögu Grænlands. Norð-
menn aftur á móti vilja að miðlína
gildi, en Jan Mayen er norsk.
Þess er ekki að vænta að úrskurður
Alþjóðadómstólsins liggi fyrir fyrr
en eftir tvö ár í fyrsta lagi, svo fremi
sem Alþjóðadómstóllinn taki málið
upp.