Tíminn - 02.08.1989, Síða 15
Miðvikudagur 2, ágúst 1989
Tíminn ;15
■iiiiiiiii iþróttir iiiiiiiiiiiiiiiiiim
MARGT SMATT
Glasgow. Enski landsliðsmið-
vörðurinn Terry Butcher hefur skrif-
að undir nýjan samning við lið sitt
Glasgow Rangers. Butcher átti enn
eftir 1 ár af eldri samningi sínum við
Rangers. Butcher er nú samnings-
bundinn liðinu til ársins 1991, en þá
verður hann orðinn 32 ára gamall.
Enska 1. deildarliðið Tottenham
mun hafa verið á eftir Butcher og
félagið var reiðubúið að greiða 1
milljón punda fyrir kappann, sam-
kvæmt fréttum ensku blaðanna.
Framá
toppinn
Framarar skutust í efsta sæti 1.
deildar, ásamt FH, er liðið vann
Keflvíkinga syðra í gærkvöld. Pétur
Ormslev gerði sigurmark fslands-
meistaranna í síðari hálfleik. Fram
og FH hafa nú 22 stig ■ efsta sætinu,
en Valur hefur 21 stig. KA hefur 20
stig og KR 19 stig.
I kvöld verður síðasti leikur 12.
umferðar er Víkingur og ÍA mætast
á Víkingsveili kl. 20.00. BL
Leikur 2 Karlsruher - B. Uerdingen
Leikur 3 Homburg - Kaiserslautern
Leikur 4 Nurnberg - Leverkusen
Leikur 5 W. Bremen - Dusseldorf
Leikur 6 Mannheim - Bochum
Brönshöj Dan~
Leikur 7 Bröndby
Leikur 8 Silkeborg - Næstved
Danm.
Danm.
Leikur 9 Herfölge - A.G.F.
Leikur 10 Moss
- Brann
Nor.
Leikur11 Molde
- Lilleström
Leikur 12 Kongsvinger - Tromsö
Nor.
Símsvari hjá getraunum er 91-84590 og -84464.
LUKKULÍNAN S. 991002
Ath. Tvöfaldur pottur !i
Laugardagur kl.13:25
31. LEIKVIKA- 5-ágúSt 1989
Leikur 1 Gladbach - B. Miinchen
London. Finnski landsliðsmað-
urinn Jari Rantanen hefur verið
seldur frá enska 2. deildarliðinu
Leicester City til finnska liðsins HJK
Helsinki. Söluverðið mun vera 45
þúsund sterlingspund. Leicester
keypti Finnann frá IFK Gautaborg
fyrir 2 árum fyrir 50 þúsund pund.
Hann lék 19 leiki með Leicester og
skoraði 4 mörk.
Þá hefur fyrrum landsliðsbakvörður
Skotlands, Arthur Albiston, verið
seldur frá WBA til skoska úrvals-
deildarliðsins Dundee fyrir 50 þús-
und pund. Albiston, sem lék á árum
áður með Manchester United, er nú
32 ára gamall.
Moskva. Sovéski Ólympíu- og
heimsmeistarinn í stangarstökki
Sergei Bubka mun hvíla sig frá
keppni í 1 ár, en hann mun þó taka
þátt í nokkrum Grand Prix mótum í
sumar. Bubka ætlar að einbeita sér
að því að byggja sig upp fyrir
Evrópumeistaramótið og Vináttu-
leikana í Seattle, en þessi mót verða
á næsta ári.
Buenos Aires. Heimsbikar-
keppnin í alpagreinum skíðaíþrótta
hefst í næsta mánuði. Keppt verður
á suðurhveli jarðar, en þar er nú
vetur sem kunnugt er. Fyrstu keppn-
irnar verða í Argentínu 10. og 11.
águst og verður þá keppt í bruni og
risastórsvigi kvenna. Mikil snjó-
koma hefur verði í Argentínu að
undanförnu, en á tímabili leit illa út
vegna snjóleysis. Meðal keppenda í
Argentínu verður heimsbikarmeist-
arinn Vreni Schneider frá Sviss.
Keppni í karlaflokki hefst í Ástalíu
"11. ágúst, en þar er nú milt veður og
hláka.
Ziirich. Knattspyrnusamband
Kúvait hefur farið fram á 5 milljóna
dala skaðabætur frá alþjóðaknatt-
spyrnusambandinu FIFA, í kjölfar
þess að hætta varð við mikið knatt-
spyrnumót íslamskra ríkja. Kúvait-
menn fengu ekki leyfi til þess að
halda mótið þar sem þátttökuþjóðir
áttu að vera 42 talsins. Alþjóða-
knattspyrnusambandið vildi að
fjöldi þátttökuþjóðu væri 6-8 og
einnig var deilt um nafn mótsins.
Ekkert varð því af mótshaldinu.
KA missti af
toppsætinu
Frá Jóhannesi Bjarnasyni íþróttafréttamanni
Tímans á Akureyri:
Það var rafmögnuð spenna á
Akureyrarvelli síðustu minútur
leiks KA og Þórs í gærkvöld.
KA-menn höfðu náð forystu með
marki Jóns Kristjánssonar á 51.
mín. og Þórsarar, sem höfðu átt
síst minna í leiknum, gerðu ör-
væntingarfullar tilraunir til þess að
jafna metin.
Þegar aðeins 2 mín. lifðu að
leiknum fengu Þórsarar vítaspymu
eftir að varnarleikmaður KA hand-
lék knöttinn innan teigs. Júlíus
Tryggvason skoraði úr vítaspyrn-
unni í annarri tilraun og tryggði
Þórsurum jafntefli í leiknum.
Hvorugt liðið getur verið ánægt
með stigið, því sigur var báðum
aðilum nauðsynlegur. Þórsarar
komu mjög á óvart með góðum
leik og eins og áður sagði áttu þeir
síst minna í leiknum. KA-liðið var
lengi í gang og mikið lán hvfldi yfir
þeim fyrstu mín. er sóknir Þórsara
voru hvað hvassastar. Júlíus
Tryggvason og Júgóslavarnir tveir
Luka Kostic og Bojan Tanevski
áttu allir mjög góðan leik hjá Þór,
en Ormarr Örlygsson átti frábæran
dag hjá KA.
Gylfi Orrason dæmdi leikinn og
gerði það mjög vel. KA-menn
vom þó mjög óánægðir með vita-
spyrnudóminn, sem gerði toppsæt-
isvonir þeirra að engu, í bili að
minnsta kosti. Fjölmargir áhorf-
endur vom á þessari innbyrðis
viðureign Akureyrarliðanna og
stemmningin var mikil og góð.
Þetta var 10. viðureign liðanna í 1.
deild og enn hefur KA ekki náð að
sigra. JB/BL
Knattspyrna:
Þeir urðu að láta sér nægja að fylgjast með félögum sínum frá hliðarlínunni í gærkvöld þeir Sæbjöm Guðmundsson KR og Guðmundur Magnússon Fylkismað-
ur, en á innfelldu myndinni má sjá þá félaga. A stóra myndinni eru þeir Björn Rafnsson KR og Pétur Oskarsson Fylki í baráttu um knöttinn. Pétur hafði
betur að þessu sinni. Kflclttspyrncl 1 CÍGÍICÍ' Timamynd Pjelur.
Heppnisigur KR-inga
hörðum leik í Árbæ
KR-ingar voru heppnir að næla
sér í 3 stig í toppbaráttunni í gær-
kvöld er þeir bám sigurorð af Fylk-
ismönnum á Árbæjarvelli. Leikur-
inn var mjög harður enda mikið í
húfi fyrir bæði liðin.
Fylkismenn voru öllu ákveðnari í
upphafi leiks og þeir fengu gullið
tækifæri til þess að komast yfir á 11.
mín. Baldur Bjarnason framherji
Fylkis komst einn inn fyrir vörn KR,
hafði nægan tíma til þess að leggja
knöttinn fyrir sig, en Þorfinnur
Hjaltason markvörður KR náði á
óskiljanlegan hátt að verja fast skot
Baldurs og bægja hættunni frá.
Næstu mín. voru Fylkismenn öllu
hættulegri og Baldur gerði nokkrum
sinnum harða hríð að KR markinu,
en Þorfinnur sá jafnan við honum.
Þegar líða tók að leikhléi komu
KR-ingar meira inní leikinn og 4
mín. fyrir hlé tókst þeim að ná
forystu í leiknum. Willum Þórsson
komst í gegnum vörn Fylkis, lék á
Guðmund Baldursson markvörð og
gaf síðan fyrir markið þar sem
Fylkismönnum tókst að verjast ein-
um 3 skotum KR-inga, áður en
Heimi Guðjónssyni tókst að koma
knettinum í netið. Sæmundur Víg-
lundsson dómari dæmdi markið ekki
gilt fyrr en hann hafði ráðfært sig við
Gísla Guðmundsson línuvörð.
Síðari hálfleikur var tíðindalítill
framan af, en baráttan var í fyrir-
rúmi. Jón Bjarni Guðmundsson,
sem komið hafði inná sem varamað-
ur átti hættulegt skot að marki KR á
77. mín. Annar varamaður, Steinar
Ingimundarson KR-ingur, varði skot
hans á marklínu. Fylkismönnum
tókst síðan að jafna metið á 85. mín.
Örn Valdimarsson fékk knöttinn
fyrir utan vítateig og hann var ekkert
að hika við að þruma á KR-markið.
Knötturinn hafnaði í bláhorninu,
óverjandi fyrir Þorfinn. KR-ingar
hófu leikinn á miðju. Þorsteinn Hall-
dórsson geystist upp hægri kantinn
og gaf fyrir á Steinar Ingimundarson
sem skallaði rakleiðis í mark Fylkis.
Þá var innan við mínúta frá jöfnun-
armarki Fylkismanna.
Sigur KR í þessum leik var engan
veginn sanngjarn, Fylkismenn áttu í
það minnsta að ná jafntefli, en það
eru mörkin sem telja og KR-ingar
nýttu færi sín betur í gærkvöld en
andstæðingarnir. BL
I