Tíminn - 05.08.1989, Page 4

Tíminn - 05.08.1989, Page 4
4 Tíminn Laugardagur 5. ágúst 1989 Öldrunarfulltrúi Félagsmálastofnun Kópavogs auglýsir stöðu öldr- unarfulltrúa lausa til umsóknar. Öldrunarfulltrúi hefur faglega umsjón með öldrun- arþjónustu, t.a.m. félagsstarfi aldraðra, heimilis- hjálp, húsnæðis- og vistunarmálum auk ráðgjafar við aldraða og aðstandendur þeirra. Umsækjendur þurfa að hafa lokið háskólaprófi á sviði félagsráðgjafar, félagsfræða eða hjúkrunar- fræði. Starfsreynsla í öldrunarmálum æskileg. Umsóknarfrestur er til 28. ágúst nk. og liggja umsóknareyðublöð frammi á Félagsmálastofnun Kópavogs, Digranesvegi 12. Nánari upplýsingar veitir undirritaður í síma 45700. Félagsmálastjóri. Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar VONARSTRÆTI4 - SÍMI25500 Félagsráðgjafi óskast á hverfaskrifstofu Félags- málastofnunar Reykjavíkurborgar, Vonarstræti 4. Verkefni eru fyrst og fremst meðferð barnavernd- armála, auk stuðnings og ráðgjafar við fjölskyldur og einstaklinga. Um er að ræða afleysingu í 1 ár. Æskilegt er að umsækjandi hafi starfsreynslu á sviði félagsráðgjafar. Laun samkvæmt kjarasamningi BHM og Reykja- víkurborgar. Upplýsingar í síma 25500 hjá yfirmanni fjölskyldu- deildar, Gunnari Sandholt, eða Anni G. Haugen yfirfélagsráðgjafa. Umsóknareyðublöð liggja frammi hjá Starfs- mannahaldi Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, þar sem einnig er tekið á móti umsóknum. Umsóknarfrestur er til 25.08. 1989. Forstöðumaður Starf forstöðumanns við Hjúkrunarheimilið að Fellsenda í Dalasýslu er laust til umsóknar frá 1. október n.k. Skriflegum umsóknum með upplýsingum um fyrri störf skal skila fyrir 1. september til Péturs Þorsteinssonar sýslumanns, Búðardal, Dalasýslu, sem gefur allar nánari upplýsingar. Orðsending til mjólkurframleiðenda Framleiðnisjóður landbúnaðarins hefur náð mark- miðum búvörusamnings frá 21. september 1986, um kaup eða leigu á fullvirðisrétti til mjólkurfram- leiðslu, og er þeim hér með hætt. Framleiðnisjóður landbúnaðarins. DAGVIST BARIMA Forstöðumenn Forstöðumenn óskast til starfa á barnaheimilunum Efri-Hlíð og Hálsaborg. Stöðurnar veitast frá 1. okt. n.k. Umsóknarfrestur er til 20. ágúst. Fóstrumenntun áskilin. Upplýsingar gefur framkvæmdastjóri Dagvistar barna í síma 27277 eða á skrifstofunni í Hafnar- húsi við Tryggvagötu. Hálfur mánuður í að gæsaveiðitíminn hefjist. Sýslumaðurinn í Rangárvallasýslu reifar ákveðnar hugmyndir: Vill taka gjald af veiðimönnum Nú styttist óðum í að gæsaveiði- tíminn hefjist en gæsaveiðar eru leyfilegar frá og með 20. ágúst. Byssumenn eru því þegar farnir að hreinsa byssur sínar og kaupa skot. Byssueign landsmanna hefur stóraukist á síðustu árum, reyndar svo mikið að mörgum þykir nóg um. Sumir bændur hafa haft áhyggjur af þessu og ekki að ástæðulausu því dæmi eru um að kýr hafi verið drepnar af veiðimönnum. Friðjón Guð- röðarson sýslumaður í Rangár- vallasýslu er einn þeirra manna sem hafa viljað reyna hafa ein- hverja stjórn á skotgleði lands- manna. „Það hefur verið alveg eins og hernaður hérna niður í Landeyjun- um á haustin. Við höfum viljað líta eftir þessu með bændunum en þegar við erum að banka í hrygginn á þessum veiðimönnum þá eru þeir náttúrulega pappíralausir og vitlaus- ir, segja manni eitthvað og það kostar mikla fyrirhöfn að fá það staðfest hvort þeir eru með leyfi eða ekki. Allur tími lögreglunnar fer í það. Þess vegna vil ég að bændur taki lítið gjald af veiðimönnum og þeir fái kvittun fyrir og þar með bréf upp á að þeir megi veiða í landi þessa bónda. Svo fer nú alveg að verða ástæða til þess fyrir bændur að hugsa sinn gang þegar menn eru að salla niður hundruð gæsa. Bændur eiga ekkert alltaf að vera að opna allt og gefa sín hlunnindi. Það er núna unnið að því að drepa stéttina og því ástæðulaust að vera að gefa þetta eftir.“ - Gæsaveiðar hafa aukist mjög mikið að undanfömu. Skapast þar með ekki aukin hætta á slysum?" „Jú, því er ekki að neita. Slys hafa orðið og því er brýnt að lögregla og landeigendur reyni í sameiningu að hafa stjórn á þessu. Einstaka menn hafa verið með kraftmikla riffla og það er fyrir neðan allar hellur að menn séu að skjóta á gæs með þeim. Svo em sumir með sprengikúlur sem Af gæsaveiðum í Rangárvallasýslu. hefðu enn sem komið er ekki farið út í það að gefa út gjaldskrá fyrir gæsaveiðar en taldi ekki óeðlilegt að bændur nýttu sér þessi hlunnindi eins og hver önnur. Ámi sagði að víða væri þessi gæs bændum til ama því að hún skemmdi tún og því væm margir þeirra fegnir ef einhver vildi drepa gæsina. Hjá öðmm bændum væri ásókn veiðimanna í að fá leyfi til að skjóta gæs orðin svo mikil að þeir yrðu hreinlega að taka giald fyrir til að minnka ásóknina. Ámi taldi að best færi á því að bændur ákveði sjálfir hve hátt þetta gjald ætti að vera. Guðni Kristinsson hreppstjóri á Skarði í Landmannahreppi kvað menn þar um slóðir ekki hafa tekið gjald af veiðimönnum nema þá í mjög litlum mæli. Flestir bændur væm bara fegnir því að vera lausir við gæsina. Guðni taldi að bændur hefðu oftast nær engan sérstakan ama af veiðimönnum. Hann sagðist þó vita að einhverjir hefðu verið að skjóta gæs inni á afrétti og það væri ekki vel séð. „Mér frnnst alltaf dálítið óhugnanlegt þegar menn eru að skjóta þetta í myrkrinu," sagði Guðni að lokum. -EÓ Friðjón Guðröðarson, sýslumaður. eyðileggja kjötið og em stórhættu- legar. Pegar menn em svo að skjót- ast í leyfisleysi og skjóta eitthvað út í loftið er eins líklegt að einhver liggi í leynum á móti og verði fyrir skoti. Maður vonar bara að þetta verði ekki eins og á Ítalíu þar sem tugir manna em drepnir á meðan á veiði- tímanum stendur.“ - Eru menn eitthvað að skjóta undir áhrifum áfengis? „Sumir em það. Langoftast bíða menn þó með það þangað til veiði er lokið, til allrar guðs lukku. En flestir af þessum mönnum eru ágætir, hafa leyfi og gera þetta sem sannir sport- veiðimenn.“ Ámi Snæbjömsson hlunninda- ráðunautur sagði að bændasamtökin Skátar á mót til Noregs í gær fór hópur íslenskra skáta til Noregs til að taka þátt í landsmóti norskra skáta, SKAUGUM-89, sem haldið verður dagana 5. til 12. ágúst 1989. Mótið verður haldið á búgarði Haraldar krónprins Noregs sem er rétt sunnan við Osló. f hópnum verða 42 skátar sem koma víðsvegar að af landinu. Fararstjóri í ferðinni er Sigurjón Einarsson. Að afloknu móti mun hópurinn halda á heima- slóðir vinarsveitar sinnar, skáta frá Lillehammer, og dvelja þar í heima- húsum og í skátaheimili tvær nætur. Eftir dvölina í Lillehammer verð- ur haldið í smá ferðalag og dvalið fyrstu nóttina í skátaskála við Brött- um skammt suður af Lillehammer. Daginn eftir, miðvikudaginn 16. ágúst verður haldið áleiðis að vatn- inu Kröderen og dvalið í skála íslendingafélagsins í Osló við Nore- fjell. Hópurinn kemur síðan heim 18. ágúst. t’etta er sjötti skátahópurinn sem heldur utan það sem af er þessu ári. Áður hafa farið hópar til Færeyja, Ítalíu, Svíþjóðar og tveir hópar til Englands. -EÓ Skolahljomsveit Tónlistarskólans á Akureyri á heimsmóti lúðrasveita: Unnu gull Hljómsveit Tónlistarskólans á Akureyri vann gullverðlaun á heimsmóti lúðrasveita sem haldið var í HoUandi um síðustu helgi. Þrjúhundruð hljómsveitir sóttu mótið og keppt var í flokkum atvinnumanna og áhugamanna. íslenska hljómsveitin vann fyrstu verðlaun í flokki áhugamanna. Heimsmót lúðrasveita var fyrst haldið 1951 og síðan reglulega á fjögurra ára fresti. í ár var það haldið í Kerkrade í Hollandi og er áætlað að um tólfþúsund lúðra- sveitaleikarar hafi tekið þátt í mót- inu, en auk þeirra voru fjöldi aðstoðarmanna og áhorfenda sem fylgdust með. Um fimmtíu manna hljómsveit Tónlistarskólans á Ak- ureyri var boðin þátttaka í mótinu í kjölfar velgengni þeirra á hljóm- sveitarmóti í Osló fyrir skömmu, og er hún fyrsta íslenska hljóm- sveitin sem hlotnast þann heiður. Meðlimir hljómsveitarinnar eru á aldrinum 11 til 20 ára, og var þetta sú hljómsveit sem hafði hvað yngst- an meðalaldur, en jafnframt var þetta eina skólahljómsveitin á mót- inu. Jón Hlöðver Áskelsson, skóla- stjóri tónlistarskólans, sagði í sam- tali við Tímann að hljómsveitin hefði verið í góðri æfingu því meðlimir hennar hefðu verið í strembnu tónleikaferðalagi um Þýskaland, dagana fyrir keppnina. Verkin sem hljómsveitin flutti í keppninni voru Svíta Arctica eftir Pál P. Pálsson, Heiðursmars Ólafs krónprins og verk sem allir þátttak- endur þurftu að spreyta sig á, en það barst íslensku keppendunum tveimur mánuðum áður. Undir stjóm hljómsveitarstjórans Roar Kvam, tókst sveitinni að krækja sér í 291 stig af 350 mögulegum, en það er mjög góður árangur og gat Jón Hlöðver þess að hin opinbera lúðrasveit vetrarólympíuleikanna í Calgary í Kanada, hefði verið und- ir íslensku skólahljómsveitinni í stigum. Jón sagði að þessi árangur væri ákaflega ánægjulegur og að hann væri ekki síst að þakka þeim fjölmörgum aðilum, foreldrum og öðrum, sem hafa stutt sveitina fjárhagslega. Jón kvaðst gjarnan vilja láta hljóðrita nokkur lög með sveitinni á meðan hún væri í óbreyttri mynd og nýta þannig hæfileika hennar öðrum til ánægju. LDH-

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.