Tíminn - 05.08.1989, Blaðsíða 14

Tíminn - 05.08.1989, Blaðsíða 14
26 Tíminn Fanney Magnúsdóttir Fædd 14. september 1914 Dáín28.júli 1989 Þá er hún Fanney frænka mín dáin. Þá getum við ekki Iengur gantast um landsins gagn og nauð- synjar eins og við oft gerðum í gegnum tíðina, ekki síst þegar ég var heimagangur hjá frænkunum þrem- ur í Drápuhlíðinni á menntaskóla- árunum. En minningin um glettna brosið sem tendraði andlitið hennar Fanneyjar þegar henni fannst ég taka einum of mikið upp í mig og gerði grín að okkur sjálfum, pólitík- inni eða hverju sem var, það lifir í minningunni. Hún frænka mín vildi ekki að um hana yrði skrifuð lofrulla að henni genginni. En örfá fátækleg orð í minningu hennar á hún svo sannar- lega skilið frá minni hendi fyrir þær fjölmörgu ánægjulegu stundir sem við höfum átt saman allt frá því ég var lítill pottormur fram til þess síðasta er hún barðist gegn sjúkdóm- inum harða er hafði sigur að lokum. Ég veit að Fanneyju líður vel nú þar sem hún hefur yfirgefið þennan heim. Þær hafa eflaust um mikið að spjalla stórvinkonurnar og tengda- mæðgumar Fanney og Berglind, en fallegri vinskap en á milli þeirra var í lifanda lífi er vart að finna. Það var erfið stund í lífi Fanneyjar að fylgja Berglindi tengdadóttur sinni til grafar fyrir tveimur og hálfu ári þegar krabbinn hafði lagt Berg- lindi að velli tæplega þrítuga og í blóma lífsins. Þá var það heitasta ósk Fanneyjar að það hefði frekar verið hún sem Rúnar sonur hennar var að fylgja til grafar en ekki Berglind, þannig að augasteinarnir hennar fengju að lifa áfram saman hamingjuríku lífi. En við ráðum engu um örlög okkar. Það vissi Fanney af biturri reynslu. Hún missti Matthías mann sinn þegar Rúnar var agnarlítill drengur. Hún missti elskulega tengdadóttur sína í blóma lífsins. Það vissi Fanney einnig þegar lækn- arnir úrskurðuðu að hún bæri sjúk- dóm sama kyns og tók Berglindi frá okkur. Sá úrskurður var Fanneyju þungbær. Ekki vegna hennar sjálfr- ar, heldur vegna Rúnars sonar síns. „Hallur, mér finnst það svo órétt- látt að Rúnar minn eigi eftir að’ ganga aftur í gegnum þessa hræði- legu baráttu," sagði Fanney er ég heimsótti hana þegar ljóst var hvað hafði verið að hrjá hana. Þetta var Fanneyju líkt. Hennar eigin líðan skipti ekki meginmáli, það sem skipti máli var að fráfall hennar yrði syni hennar ekki þung- bærara en nauðsyn væri. En í þessari heimsókn náði samt glettna brosið hennar Fanneyjar að tendra upp andlitið. „Það er þá á hreinu að lystarleysið hjá mér er ekki taugaveiklun eins og læknarnir vildu helst halda,“ sagði Fanney við mig og augun tindruðu þegar brosið náði til augnanna. Fanney mín, takk fyrir ánægju- stundirnar. Elsku Rúnar, þær Berg- lind og Fanney eru horfnar úr þessari jarðvist, en þær skilja eftir hjá okkur fallegar minningar sem ylja um alla framtíð. Hallur Magnússon Laugardagur 5. ágúst 1989 DAGBÓK Sönghópurinn Hljómeyki Sumartónleikar í Skálholtskirkju 5., 6. og 7. ágúst - Frumflutt messa eftir Hjálmar H. Ragnarsson Síðustu tónleikar sumarsins á vegum Sumartónleika í Skálholtskirkju verða dagana 5.,6. og 7. ágúst. Að þessu sinni verða tvær tónleika- skrár. Byggir önnur þeirra á söngverkum eftir Hjálmar H. Ragnarsson, fluttum af Sönghópnum Hljómeyki og hin á tón- verkum fyrir hörpu og flautu, sem flutt eru á af Elísabetu Waage og Peter V. Lunel. Frumflutt verður messa eftir Hjálmar. Hún er í hefðbundnu formi. Sönghópur- inn Hljómeyki flytur. Peter V. Lunel flautuleikari og Elísabet Waage hörpuleikari mynda saman dúó, sem tekið var inn í dagskrá „Young Musician" undir vemdarvæng Yehudi Menuhin. Young Musician er stofnun sem hefur það markmið að gefa ungu tónlistarfólki tækifæri til að koma fram. Peter V. Lunel er frá Hollandi. Hann lauk kennaraprófi 1988 og einleikaraprófi ári síðar. Hann hefur bæði leikið einleik með píanó og hörpu og einnig kammer- tónlist með fleiri hljóðfærum. Elísabet Waage lauk prófi úr Konung- lega Tónlistarháskólanum í den Haag. hún er fyrir löngu kunn fyrir hörpuleik og þátt sinn í íslensku tónlistarlífi. Hún hefur haldið tónleika á Islandi, í Hol- landi, Noregi og Wales. Helgina 5.,6. og 7. ágúst verða þrennir tónleikar, laugard. 5. ágúst kl. 15:00 og 17:00, sunnud. kl. 15:00 og mánudag kl. 15:00. Á laugardags- og sunnudags-tónleikum kl. 15:00 flytur Sönghópurinn Hljómeyki söngverk eftir Hjálmar H. Ragnarsson. Á laugardags- og mánudagstónleikum kl. 17:00 og 15:00 leika Elísabet Waage og Peter V. Lunel verk fyrir hörpu og flautu. M.a. verk eftir J.S. Bach, S. Natra.I. Yun, W. Alwyn, C. Nielsen, V. Persic- hetti og Atla H. Sveinsson. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis. Messa vcrður sunnudag kl. 17:00. Sr. Guðmundur Óli Ólafsson predikar, en organisti er Hilmar öm Agnarsson. Flutt verða tónverk úr dagskrám helgarinnar við guðsþjónustu. Rútuferðir eru frá B.S.Í. á sunnudög- um kl. 11:30 frá Reykjavík og til baka aftur kl. 17:40. NEW HOLLANP RÚLLUBINDIVÉLAR Afkastamiklar og sterkbyggðar rúllubindivélar með breytilegri stærð rúllubagga - henta flestum bústærðum. - Fastkjarna rúllubaggar meö jöfnum þrýstingi - betri fóöurverkun. - Breytileg baggastærö: 1,0 til 1,4 m. - Betur lagaöir baggar sem halda betur lögun viö geymslu. - Fastkjarna rúllubaggar rúma allt aö 36% meir en heföbundir rúllubaggar, 1,2 x 1,2m. Allt aö 37% færri rúllubaggar á hvern hektara. - Lægri pökkunarkostnaöur og minni notkun bindigarns. - NEW HOLLAND rúllubindivélar hafa áralanga reynslu hér á landi. - NEW HOLLAND rúllubindivélin var prófuð af Bútæknideildinni á Hvanneyri sl. sumar. ip .s> V ARMULA 11 SIMI 681500 Guðsþjónustur í Reykjavíkurprófastsdæmi sunnudag 6. ágúst 1989 Árbæjar- og Gráfarvogssókn. Guðsþjón- usta í Árbæjarkirkju kl. 11. árdegis. Prestur sr. Ólafur Jens Sigurðsson. Org- anleikari Jón Mýrdal. Sóknarprestur. Áskirkja. Guðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Jón Dalbú Hróbjartsson. Sóknarprest- ur. Bústaðakirkja. Helgistund kl. 11 f umsjá leikmanna. Sr. Pálmi Matthíasson. Dómkirkjan. Messa kl. 11. Dómkórinn syngur. Organisti Marteinn Hunger Friðriksson. Sr. Jakob Ágúst Hjálmars- son. Viðeyjarkirkja. Messakl. 14. Dómkórinn syngur. Organisti Marteinn Hunger Friðriksson. Sérstök bátsferð verður með kirkjugesti kl. 13.30. Sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson. EUiheimilið Grund. Guðsþjónusta kl. 10. Organleikari Kjartan Ólafsson. Sr. Magnús Bjömsson. Fella- og Hólakirkja. Guðsþjónusta fellur niður. Sóknarprestar. Grensáskrikja. Guðsþjónusta kl. 11. Org- anisti Jón Þórarinsson. Fyrirbænir eftir messu. Sr. Gylfi Jónsson. Hallgrímskirkja. Guðsþjónusta kl. 11. Altarisganga. Sænskur kór, Hallands Kammerkör, syngur í messunni. Sr. Karl Sigurbjömsson. Þriðjudagur: Fyrirbæna- guðsþjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum. Landspítalinn. Guðsþjónusta kl. 10. Sr. Bragi Skúlason. Háteigskirkja. Messa kl. 11. Sr. Tómas Sveinsson. Kvöldbænir og fyrirbænir em í kirkjunni á miðvikudögum kl. 18. Prest- amir. Kópavogskirkja. Guðsþjónusta kl. 11. árdegis. Sr. Ámi Pálsson. Laugameskirkja. Laugardagur: Guðs- þjónusta í Hátúni 10B, 9. hæð, kl. 11. Sunnudagur: Vegna viðgerða á kirkjunni messar Jón Dalbú Hróbjartsson í Áskirkju næstu sunnudaga kl. 11. Sóknar- prestur. Neskirkja. Guðsþjónusta kl. 11. Orgel- og kórstjóm Reynir Jónasson. Miðvik- udag: Fyrirbænaguðsþjónusta kl. 18.20. Sr. Olafur Jóhannsson. Seljakirkja. Guðsþjónustur falla niður f ágústmánuði vegna sumarleyfa starfsfólks. Seltjamameskirkja. Messa kl. 11. Organ- isti Sighvatur Jónasson. Prestur Sr. Sol- veig Lára Guðmundsdóttir. Ungt fólk sýnir leikræna tjáningu. Þorvaldur Hall- dórsson syngur. Guðný Hallgrímsdóttir guðfræðinemi prédikar. Viðistaðasókn. Guðsþjónusta á Hrafnistu kl. 11. Sr. Bragi Friðriksson messar. Sr. Sigurður Helgi Guðmundsson. Dags- og kvöldferðir Ferðafélagsins Sunnud. 6. ág. Id. 13:00: Sandfell/ Hagavík. Ekið f Ölfusvatnsvík, gengið upp með Ölfusvatnsá að Löngugróf og þaðan á Sandfell (404 m). Komið niður í Hagavfk. (Verð 1000 kr.) Mánud. 7. ág. kl. 13:00: Reykjadalir - Klambragil - Hveragerði. Gengið af Kambabrún að Klambragili og þaðan um Reykjadali í átt að Hveragerði. (Verð 1000 kr.) KI. 08:00-Þórsmörk/dagsferð. Dvalið rúmlega 3 klst. í Þórsmörk. Famar göngu- ferðir. (Verð 2000 kr.) Miðvikud. 9. ág. kl. 08:00 Þórsmörk/ dagsferð. Sumarleyfistilboð fyrir dvalar- gesti gildir út ágúst. Kl. 20:00 BláfjallaheUar. (Verð 600 kr.) Brottför frá Umferðarmiðstöðinni, austanmegin. Farmiðar við bíl. Frítt fyrir böm í fylgd fullorðinna. Ferðafélag íslands Blandað upphengi í Gallerí B0RG í Gallerí Borg, Pósthússtræti 9 hefur að undanförnu staðið yfir sýning á verkum „gömlu meistaranna". Nú hafa einnig verið hengdar upp myndir eftir yngri og núlifandi höfunda. Má þar t.d. finna nýjar landslags-vatnslitamyndir eftir Guðrúnu Svövu, Kristfnu Þorkelsdóttur og nýjar pastel-myndir eftir Jón Reykdal, Hring Jóhannesson og litlar vatnslita- myndir eftir Kjartan Guðjónsson, svo eitthvað sé nefnt. Þá em nýkomnar myndir eftir Louisu Matthfasdóttur og vatnslitamyndir eftir Karólínu Lámsdóttur. 1 kjaUaranum í Pósthússtræti er einnig úrval smámynda eftir núlifandi höfunda, ásamt fjölda verka gömlu mcistaranna. í Grafík-Gallerí Borg, Austurstræti 10 (Penninn) er að finna grafík-myndir eftir helstu íslenska grafík-listamenn, auk gler-og keramikmuna. Þar er einnig í „nýja salnum“ fjöldi málverka núlifandi listamanna. Gallerí Borg er opið virka daga kl. 10:00-18:00, en lokað um helgar yfir .sumartímann. Landslagsmyndir í Safni Ásgríms Jónssonar 1 Safni Ásgríms Jónssonar við Berg- staðastræti hefur verið opnuð sýning á landslagsmyndum eftir Ásgrím. Sýndar em 24 myndir, bæði olíumálverk og vatnslitamyndir. Þar em nokkrar eldri vatnslitamynda Ásgríms, svo sem myndin Brenna í Rútsstaðahverfi f Flóa frá 1909. Á sýningunni em einnig nokkrar öræfa- myndir, t.d. frá Kerlingarfjöllum. Flestar em myndimar frá Borgarfirði, þar sem Ásgrímur var langdvölum á efri ámm, einkum á Húsafelli. Má nefna olíumál- verkin Sólskin á Húsafelli og Úr Húsa- fellsskógi, Eiríksjökull og vatnslitamynd- irnar Kiðárbotnar og Strútur og Eiríks- jökuU frá 1948. Sýningin stendur til septemberloka og er opin kl. 13:30-16:00 alla daga nema mánudaga. Árbæjarsafn Árbæjarsafn er opið kl. 10:00-18:00 alla daga nema mánudaga. Leiðsögn um safnið laugardaga og sunnudaga kl. 15:00. Veitingar í Dillons- húsi. Handritasýning í Ámagarði Handritasýning Stofnunar Árna Magn- ússonar er í Ámagarði við Suðurgötu á þriðjudögum, fimmtudögum og laugar- dögum kl. 14:00-16:00 til 1. september.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.