Tíminn - 21.09.1989, Side 3
Fimmtudagur 21. september 1989
Tíminn 3
Tyrkneskur flóttamaður af kúrdísku bergi brotinn, kom ólöglega til landsins fyrir tveimur mánuðum, er nú í vinnumennsku í Húnavatnssýslu:
Hefur sótt um hæli sem
pólitískur flóttamaður
Fyrir um tveimur mánuðum síðan kom hingað til lands
kúrdískur flóttamaður. Maðurinn kom hingað frá Noregi
með ferjunni Norrænu og slapp inn í landið þrátt fyrir að vera
án skilríkja, eða landvistarleyfis. Kúrdinn, sem ber nafnið
Koca hefur beðist hælis sem pólitískur flóttamaður hér á landi
og bíður nú úrskurðar yfírvalda í sínu máli. Á meðan hefur
honum verið komið fyrir á sveitabæ inn til dala í Austur-
Húnavatnssýslu, þar sem að hann vinnur almenn sveitastörf.
Ekki náðist í gær í bóndann sem
skaut skjólhúsi yfir manninn, þar
sem að hann var við smalamennsku
upp til heiða, en heimildamenn Tím-
ans fyrir norðan segja að honum líki
að flestu leyti mjög vel við flótta-
manninn og vilji að hann ílengist í
vistinni hjá sér. Koca, hefur verið
atvinnulaus frá því að hann kom til
Norðurlanda og er að sögn ham-
hleypa til verka og vinnufús með
eindæmum eftir að hafa verið án
starfa í fjögurár. Hann hefur m.a.
verið iðinn við að stinga út úr
fjárhúsum bóndans og mun nú hér
um bil að vera að ljúka við það verk.
Eftir því sem næst verður komist
eru meiri líkur á að kúrdíska flótta-
manninum verði vísað héðan aftur.
Koca hefur verið yfirheyrður af
útlendingaeftirlitinu og eru nú
skýrslur um málið komnar frá út-
lendingaeftirlitinu til dómsmála-
ráðuneytisins, þar sem að ákvörðun
veður tekin um hvort kúrdinn fær að
dvelja hér á landi eða ekki. Þor-
steinn Geirsson ráðuneytisstjóri hjá
dómsmálaráðuneytinu staðfesti að
skýrsla um manninn hefði borist
þeim í fyrradag, en vildi að öðru
leyti ekki tjá sig um málið. Þorsteinn
sagði að öll gögn sem þyrftu til
ákvarðanatöku lægju fyrir og málið
yrði afgreitt samkvjemt gildandi lög-
um og í samræmi við alþjóðlegar
samþykktir um meðferð flótta-
manna.
Samkvæmt eigin frásögn mun
flóttamaðurinn Koca hafa flúið úr
fangelsi í Tyrklandi, til Danmerkur
árið 1986. Þar mun hann hafa leitað
hælis sem pólitískur flóttamaður.
Kúrdinn fullyrðir sjálfur að honum
hafi verið hafnað, en samkvæmt
heimildum Tímans mun hann ekki
hafa beðið eftir úrskurði, heldur
horfið sporlaust frá Danmörku. Það
næsta sem spyrst til hans er í Noregi
og samkvæmt frásögn flóttamanns-
ins sótti hann einnig þar um hæli sem
pólitískur flóttamaður. Blaðinu er
ekki kunnugt um hvort sú frásögn er
rétt, en Koca mun hafa farið frá
Noregi án þess að tilkynna sig og
haldið til íslands seinni part sumars.
Þegar til íslands kom snéri hann
sér til Amnesty International deild-
arinnar hér á landi. Jóhanna Katrín
Eyjólfsdóttir formaður samtakanna
á Islandi sagði í samtali við Tímann
að þau hefðu bent manninum á að
hafa samband við útlendingaeftirlit-
ið, sem hann og gerði. Tímanum er
ekki kunnugt um hversu langur tími
leið frá því að kúrdinn kom hingað,
þar til að hann tilkynnti sig hjá
útlendingaeftirlitinu.
Koca virðist hafa átt einhverja að
á landinu, a.m.k. unnu einhverjir
aðilar að því að koma honum í vinnu
hér, en það gekk brösulega til að
byrja með. Jóhanna Katrín segir að
þar hafi Amnesty International ekki
átt neinn hlut að máli, enda sé slíkt
ekki innan verksviðs samtakanna.
Um þetta fengust ekki heldur upp-
lýsingar hjá dómsmálaráðuneytinu,
eða útlendingaeftirlitinu. Vitað er til
þess að gerð var tilraun til þess að
koma flóttamanninum í fiskvinnu í
Stykkishólmi, en án árangurs. Þá
var reynt að koma honum fyrir í
sveit á a.m.k. tveimur bæjum í
Skagafirði, en lyktir mála urðu þær
að húnverskur bóndi tók manninn
að sér.
Sem áður segir mun ákvörðunar í
máli kúrdans tyrkneska vera að
vænta á næstu dögum. Líkur eru
taldar á að hann verði sendur til
Danmerkur aftur þar sem að hann
sótti upphaflega um landvist sem
pólitískur flóttamaður. Fái hann
hæli í Danmörku, væri honum frjálst
að snúa hingað aftur og halda áfram
í vistinni hjá bóndanum í Húna-
Niðurstöður úr árlegum seiðaleiðangri Hafrannsóknarstofnunar:
Bendir til meðal-
árgangs þorskseiða
Fjöldi þorskseiða í ár er fyrir
neðan meðaltal áranna 1970 til 1989
og því fjórða árið í röð sem seiða-
fjöldinn er undir meðallagi. Þetta
eru meðal annars niðurstöður úr
árlegum seiðaleiðangri Hafrann-
sóknastofnunar sem lauk 8. sept-
ember sl.
Það kemur einnig fram í niður-
stöðunum að á hinn bóginn var
ástand þorskseiðanna gott, þ.e.
meðallengd þeirra var nú yfir meðal-
tali fyrrnefnds tímabils. Ef tekið er
tillit til þessa, sýnir reynsla undan-
farinpa ára að hér gæti verið um
meðalárgang að ræða. Hvað aðrar
niðurstöður varðar þá voru ýsuseiði
einnig undir meðaltali, en fjöldi
karfaseiða í meðallagi og fjöldi
loðnuseiða mikill. Niðurstaðan nú,
hvað loðnuseiðin varðar er önnur sú
hæsta síðan 1980, en einungis 1988
sýnir betri útkomu.
Þá var hitastig sjávar einnig mælt.
í efstu lögum sjávar var hitastig í
meðallagi á öllu athugunarsvæðinu
og streymi hlýsjávar norður fyrir
land sömuleiðis. Skil kalda og hlýja
sjávarins fyrir Norðurlandi voru að
þessu sinni fjarri landinu. Niðurstöð-
ur hitamælinganna sýna að hitastig
sjávar sumarið 1989 er með svipuðu
móti og sumarið á undan.
Hvað dreifingu seiðanna varðar,
þorsk-, ýsu-, karfa- og loðnuseiða,
þá var hún áþekk því sem var árið
1988. Mest var af þorsk- og loðnu-
seiðum fyrir Norðurlandi, en ýsan
hélt sig að mestu norðvestur af
landinu. Karfinn var hins vegar í
mestu magni á norðanverðu Græn-
landshafi og við Austur-Grænland.
Viðar Helgason einn leiðangurs-
stjóra sagði í samtali við Tímann að
niðurstöður þessar sýndu það að
fjöldi þorskseiðanna væri lítill, en
svo virðist sem ástand þeirra væri
gott, hvað lengdina varðar, sem væri
jákvætt. „Það er mjög erfitt að gera
sér grein fyrir því hvers vegna fjöldi
seiðanna er þessi og stærðin yfir
meðallagi, án þess að athuga það
sérstaklega hvað veldur, sem oft
mjög erfitt þar sem ýmsir þættir
koma þar inní,“ sagði Viðar. Til
þess þarf gífurlega miklar rannsókn-
ir og af allt annarri stærðargráðu en
við höfum bolmagn til að sögn
Viðars. „Ég veit ekki til að þessari
spurningu hafi yfirleitt verið svarað.
Eg held að menn séu mjög óvissir
um hvað gerist og geti í fæstum
tilfellum bent á eitthvert eitt eða
fleiri atriði sem eru þessu valdandi,"
sagði Viðar. \
Hann sagði að taka yrði tillit til
þess að niðurstöður þ^ssa leiðangurs'
væru bara fyrsta vísbending, um
ástand þessa árgangs. Aðspurður
sagði hann að yfirleitt færu þeir
varlega í að spá langt fram í tímann,
en nokkur ár eru þar til árgangurinn
kemur inn í veiðina. Hægt er að
reikna með að þessi seiði fari að
veiðast eftir um fjögur ár að ein-
hverju ráði. Hvort ekki þyrfti að
draga mikið úr veiðum þegar að því
kæmi þar sem árgangurinn er frekar
slakur, sagði Viðar aðspurður að
erfitt væri að gera sér grein fyrir því,
þar sem ekki er nákvæmlega vitið
hvað um hann verður fyrr en þeir
hefðu eitthvað meira í höndunum.
„Það segir sig sjálft, eins og þetta
ástand er orðið að meirihluti þorsk-
aflans er samsettur af þremur ár-
göngum og ef þrír klikka þá hlýtur
það að leiða af sjálfu sér að það
kemur niður á stofnstærðinni,“ sagði
Viðar.
Seiðafjöldinn í ár er að sögn
Viðars mjög svipaður og hann hefur
verið þrjú síðustu ár. „Það stendur
fast að fjöldi seiðanna er lítill, hins
vegar eru þau í sæmilegu ásigkomu-
lagi og ekki útséð hvort árgangurinn
verði rétt undir meðallagi. Það er
hugsanlegt að hann gæti slagað upp
í það, en meira verður það ekki,“
sagði Viðar. Hvort svo verður, kem-
ur ekki í ljós fyrr en eftir eitt til tvö
ár, í togararöllunum svokölluðu, en
þá fást m.a. vísbendingar um fjölda
eins og tveggja ára fiska og hvernig
honum hefur reitt af.
Leiðangursstjórar á rannsókna-
skipunum tveim sem þátt tóku í
leiðangrinum voru auk Viðars
Helgasonar þau Vilhelmína Vil-
helmsdóttir og Sveinn Sveinbjörns-
son.
- ABÓ
vatnssýslunni. því að ekki þarf at-
vinnuleyfi milli landa á Norðurlönd-
um. Víst er að bóndinn kemur til
með að sakna vinnumanns síns verði
hann að fara úr landi. A.m.k. er haft
eftir manni sem tengist þessu máli,
en vill ekki láta nafns síns getið, að
bóndi vilji ættleiða piltinn og kalli
hann í daglegu tali Smið Björnsson.
ÁG
Svipta þurfti
6 veiðirétti
Sjávarútvegsráðuneytið þurfti
að svipta sex skip veiðiréttindum á
mánudag. Ástæðan var sú að út-
gerðir skipanna höfðu ekki skilað
inn veiðiskýrslum fyrir ágústmán-
uð, eða voru komnir fram yfir
kvótann og höfðu ekki tilkynnt
tilfærslu milli skipa.
Að sögn Jóns B. Jónassonar
skrifstofustjóra í sjávarútvegsráðu-
neytinu eru þeir aðilar sem sviptir
eru yfirleitt búnir að tryggja sér
kvóta, en hafi ekki haft löngun eða
ástæðu til að skrifa ráðuneytinu
bréf vegna þessara millifærslna.
Hann sagði að það væru yfirleitt
sömu aðilarnir sem trössuðu að
skila inn veiðiskýrslum og það eina
sem þeir virtust skilja væri stöðvun
bátanna. Hann sagði að menn
væru fljótir til að skila inn skýrslun-
um þegar þeir hefðu verið stoppað-
ir. - ABÓ
SUÐUR- OG AUSTURLAND:
fimmtudaginn 21. sept.
Vík í Mýrdal, við Söluskálann kl. 12.00-13.30
Kirkjubæjarklaustur kl. 15.00-16.00
Höfn í Hornafirði, við Hótel Höfn kl. 19.00-21.00
föstudaginn 22. sept.
Djúpivogur, við Kaupfélagið kl. 11.30-13.30
Breiðdalsvík, við Hótel Bláfell kl. 15.00-16.00
Stöðvarfjörður, við bensínstöð ESSO kl. 16.30-17.30
Fáskrúðsfjörður, við SHELL skálann kl. 18.00-19.00
laugardaginn 23. sept.
Neskaupstaður, við SHELL skálann kl. 10.00-13.00
Eskifjörður, við SHELL skálann kl. 14.00-15.30
Reyðarfjörður, við SHELL skálann kl. 16.00-17.30
sunnudaginn 24. sept.
Seyðisfjörður, við Herðubreið kl. 11.00-13.30
Egilsstaðir, við söluskála
Kaupfélagsins kl. 14.30-17.00
NORÐURLAND:
mánudaginn 25. sept.
Húsavík, við Bílaleigu Húsavíkur kl. 10.00-13.00
Akureyri, hjá bifreiðaverkstæði
Jóhannesar Kristjánssonar kl. 15.00-20.00
þriðjudaginn 26. sept.
Dalvík, við Víkurröst kl. 12.00-13.30
Ólafsfjörður, við Tjarnarborg kl. 14.00-15.00
Siglufjörður, við OLÍS skálann kl. 16.00-17.00
Sauðárkrókur, við ESSO skálann kl. 19.00-21.00
miðvikudaginn 27. sept.
Blönduós, við ESSO skálann kl. 11.00-13.00
Hvammstangi, við Kaupfélagið kl. 14.30-16.00
Borgarnes, við SHELL skálann kl. 19.00-20.00