Tíminn - 21.09.1989, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 21. september 1989
Tíminn 5
Sendinefnd
frá Angóla
í heimsókn
Þriggja manna sendinefnd frá
sjávarútvegsráðuneyti Angóla kom
hingað til lands fyrr í mánuðinum í
boði í>róunarsamvinnustofnunar
íslands. Tilgangur ferðarinnar var
að kynna sér aðstæður og vinnu-
brögð í íslenskum sjávarútvegi.
Sendinefndin heimsótti fisk-
vinnslustöðvar, fiskmarkað og sölu-
aðila, jafnframt sem ýmsar gerðir
fiskiskipa voru skoðaðar og farið í
plastbátaverksmiðj u.
Það sem mesta athygli vakti var
stjórnun og eftirlit með fiskveiðum
og landhelgi. Á lokafundi með Þró-
unarsamvinnustofnun lýstu sendi-
nefndarmenn mikilli ánægju með
dvölina hér á landi og sögðust margt
hafa lært, einkum það að Islendingar
taki fiskveiðar alvarlega. Létu þeir í
ljós eindregna ósk um að takast
mætti samstarf milli íslendinga og
Angólabúa um þróun sjávarútvegs í
Angóla, að því er fram kemur í
fréttatilkynningu frá Þróunarsam-
vinnustofnun íslands. - ABÓ
Fyrsti borgarstjórnarfundurinn að loknu sumarleyfi í dag. Fjöldi mála á dagskrá, m.a.:
Samfelldur skóladagur í
grunnskólum innan 5 ára?
Borgarstjórn heldur fyrsta fund
sinn að afloknu sumarleyfi síðdegis
í dag. Á dagskrá er m.a. aragrúi
fundargerða frá nefndum og ráðum
borgarinnar og voru borgarstjórnar-
menn í gær að gantast með það að
þeir yrðu sjálfsagt næstu 20-30 tím-
ana samfleytt að afgreiða þau mál
sem fyrir fundinum liggja.
Auk fundargerðanna liggja fyrir
þrjú mál: í fyrsta lagi er tillaga frá
fulltrúum minnihlutaflokkanna um
að stefna að því á næstu fimm árum
gera grunnskóla borgarinnar ein-
setna. Þá er tillaga um að byggðar
verði leiguíbúðir og íbúðir fyrir
aldraða. Tillagan er einnig frá full-
trúum minnihlutaflokkanna og er
flutt í kjölfar fyrirspurnar frá Sig-
rúnu Magnúsdóttur borgarfulltrúa
framsóknarmanna frá því fyrr í sum-
ar um fyrirhugaðar byggingar á veg-
um borgarinnar fyrir aldraða, með
eða án þjónustukjarna.
Þriðja tillagan fyrir borgarstjórn-
arfundinum í dag er frá sjálfstæðis-
mönnunum Vilhjálmi S. Vilhjálms-
syni og Júlíusi Hafstein um að stofn-
að verði þróunarfélag til að sam-
ræma hugmyndir og tillögur hags-
muna- og framkvæmdaaðila um upp-
byggingu mannvirkja og nauðsyn-
lega þjónustu í gamla miðbænum.
í greinargerð er vísað til þess að
nú liggi fyrir í fyrsta sinn staðfest
deiliskipulag fyrir miðbæinn og sam-
kvæmt því standi fyrir dyrum tals-
verðar breytingar á nýtingu austur-
hafnarinnar og hún eigi að tengjast
miðbæjarkjarnanum. Til þess að
mæta þessu sem best þurfi að sam-
hæfa hagsmuni einka- og opinberra
aðila við uppbyggingu og skynsam-
lega nýtingu gamla miðbæjarins og
til þessa verks sé þróunarfélagið
heppilegur vettvangur. - sá
38. helgar-
skákmótið
Bent Larsen stórmeistari frá
Danmörku keppir á 38. helgar-
skákmóti tímaritsins Skákar. Mót-
ið verður haldið á Egilsstöðum
dagana 22.-24. september. Þetta er
í fyrsta skipti sem mótið er haldið
á Egilsstöðum. Að venju eru veg-
leg verðlaun í boði. Sá sem sigrar
fær 50 þúsund Jcrónur í verðlaun.
Veitt er verðlaun fyrir fjögur efstu
sætin auk þess sem sérstök verð-
laun eru veitt í unglinga-, kvenna-
og öldungaflokki.
Nú eru rúmlega níu ár síðan
fyrsta helgarskákmótið var haldið.
Þau hafa átt mikinn þátt í að efla
skáklíf á landsbyggðinni auk þess
sem þau hafa gefið sterkum skák-
mönnum tækifæri til að reyna sig í
keppni við verðuga andstæðinga.
KÍ vill auka veg Námsgagnastofnunar:
Stofnunin fái meiri
peninga og betra hús
„Stjórn Kennarasambands Is-
lands skorar á yfirvöld menntamála
að bregðast þegar við tillögum
nefndar um Námsgagnastofnun og
hrinda þeim í framkvæmd. Tryggja
verður að Námsgagnastofnun geti
séð grunnskólum landsins fyrir sem
bestum og fullkomnustum náms-
og kennslugögnum og verði gert
kleyft að leita nýrra leiða í náms-
gagnagerð ásamt því að þróa aðra
þjónustustarfsemi við skóla
landsins," segir í ályktun frá KÍ
í ályktuninni er lýst ánægju með
störf nefndar sem tók út starfsemi
Námsgagnastofnunar og gerði
áætlun um framtíðarstarfsemi
hennar. í skýrslu nefndarinnar
kom fram að stofnunin búi við
þröngan húsnæðiskost og sé fjár-
hagslega þröngur stakkur skorinri.
Kennarasambandið bendir á
nauðsyn þess að stofnuninni sé
gert fjárhagslega kleyft að sinna
lögboðnu hlutverki sínu og að við
núverandi aðstæður standi fjár- og
húsnæðisskortur henni fyrii
þrifum. - sá
Kennslubækur á hljómböndum hjá Námsgagnastofnun:
Tværkennslubækur
í sögu komnar út
Bækurnar Sjálfstæði fslendinga,
þriðja bindi eftir Gunnar Karlsson
prófessor og Samferða um söguna,
sem er þýdd kennslubók í sögu fyrir
grunnskóla hafa nú bæst í hljóð-
bókasafn Námsgagnastofnunar og
eru nú alls 28 kennslubækur á hljóm-
böndum í safninu.
Hljóðbækur Námsgagnastofnunar
eru einkum ætlaðar blindum og
sjónskertum en þær nýtast einnig
öllum þeim nemendum sem ekki
geta einhverra hluta vegna lesið
námsbækurnar hjálparlaust.
Gunnar Karlsson sjálfur og Silja
Aðalsteinsdóttir lásu þriðja bindi
Sjálfstæðis íslendinga inn á hljóm-
band en Sigurður Hjartarson, þýð-
andi bókarinnar Samferða um sög-
una las hana inn á hljómband ásamt
Valgerði Kristjónsdóttur. - sá
Vikurit um viðskipti og efnahagsmál gerir ekki greinarmun
á staðgreiðslu vaxtaskatts og vaxtaskattinum sjálfum:
Röng vísbending
hjá Vísbendingu
í nýjasta hefti vikuritsins Vísbend-
ingar, er fjallar um viðskipti og
efnahagsmál, birtist grein er ber
nafnið „Skattar þar og hér“. Með-
fylgjandi greininni er þýdd tafla um
skatt á vexti í EB-löndunum. Heim-
ildin er ritið Financial Times frá 9.
febrúar á þessu ári. Sé skoðuð sú
grein sem Vísbending vitnar í, kem-
ur í ljós að taflan sem þýdd er upp
úr henni er ekki yfir skattlagningu
vaxatekna, heldur staðgreiðslu
skatta á vexti.
í texta greinarinnar „Skattar hér
og þar“, er fullyrt að skattur á
vaxtahagnað sé til dæmis ekki til
staðar í Lúxemburg og á Bretlandi
og Þýskaland hafi fallið frá 10%
vaxtaskatti í sumar vegna mikils
fjárflótta úr landinu. Hér er um
alranga þýðingu að ræða þar sem í
greininni er verið að fjalla um stað-
greiðslu skatts af vaxtatekjum í EB-
löndunum, en ekki, skattinn sjálfan.
Staðreyndin er sú að í öllum aðildar-
löndum EB er innheimtur skattur af
vaxtatekjum og þar eru Lúxemborg,
Bretland og Vestur-Þýskaland ekki
undan skilin.
Tíminn bar málið undir Má Guð-
mundsson ■ efnahagsráðgjafa fjár-
málaráðherra og staðfesti hann að
hér væri um ranga þýðingu að ræða:
„Þeir misskilja orðin withholding
tax, sem þýðir staðgreiðsluskattur,
eða „eftirhaldsskattur". Það sem
birtist í töflu Financial Times er
yfirlit yfir staðgreiðsluskatta af
vaxtatekjum. Þeir halda hins vegar
að þetta sé yfirlit yfir skatta á vexti
og ræða um þau lönd sem ekki hafa
staðgreiðsluskatt eins og að þau hafi
enga skatta á vöxtum. Það er jafn
fáránlegt og að halda því fram að
það hafi ekki verið neinir skattar á
launatekjur á íslandi þar til stað-
greiðslan var tekin upp,“ sagði Már.
Þess má geta að greinin „Skattar
hér og þar“ er tekin upp í Stakstein-
um í Morgunblaðinu í gær og notuð
sem rök gegn því að skattleggja
fjármagnstekjur hér á landi. - AG
Þjónusta við
Tailandsfara
Ferðaskrifstofan Saga hefur
tekið saman ítarlega verðskrá til
afnota fyrir þá ferðalanga er
hyggjast leggja leið sína til Tai-
lands á eigin vegum á vetri kom-
anda. í skrá þessari, sem gildir
fram til 31. mars á næsta ári, eru
gefnir ýmsir ferðamöguleikar í
mismunandi verðflokkum, jafnt
á flugi sem kynnisferðum og gisti-
aðstöðu. Þá býður ferðaskrifstof-
an hvers kyns þjónustu hvað
varðar móttöku, leiðsögn, akstur
milli staða og fleira. JBG.